Vísir - 06.10.1976, Blaðsíða 20
STJORN VÆNGJA hf
VfSIB
MiOvikudagur 6. október 1976
Stal bankabók
— með 500 þúsund kr.
Bankabók með 500 þúsund
króna innstæðu og svo peningum
var stolið frá manni nokkrum I
nótt. Hafði hann setið að sumbli
með tveimur mönnum og mun
annar þeirra hafa stolið
bankabókinni og peningunum
sem eru nokkur þúsund krónur.
Maðurinn kærði þjófnaðinn i
morgun. Sá grunaði hafði ekki
verið handtekinn þegar Visir
hafðisamband við lögregluna, en
hans er leitað.
—EA
Stolið úr vasa
leigubílstjóra
Talsvert bar á ölvun i
Reykjavik i gærkvöldi og i nótt
og gistu margir fangageymsl-
ur lögreglunnar. Meðal ann-
ars voru fjórir menn teknir i
gærkvöldi grunaðir um að
hafa stolið úr vasa leigubil-
stjóra sem þeir höfðu verið
farþegar hjá.
—EA
Vetur lœtur
á sér krœla
Húlka í morgun
Fyrst varð vart við hálku i Ar-
bænum i morgun, að sögn lög-
reglunnar þar. Ekki varð annars
staðar vart við hálku i Reykjavik
eftir þvi sem næst verður komist.
Talsverð hálka var á Suður-
landsvegi snemma i morgun, en
hún hvarf fljótt þegar sólin fór að
skina. Þá sáust menn vera að
skafa af bilrúðum i Árbænum i
morgun og má þvi segja að vetur
konungur sé orlitið farinn að láta
á sér kræla.
___________________—EA
Harður úrekstur
á Vesturlandsvegi
Harður árekstur varð á gatna-
mótum Vesturlandsvegar og
Breiðhöfða I hádeginu I gær.
Tveir stórir fólksbilar lentu þar
saman og eru þeir allt að þvi
ónýtir. Engin slys urðu þó á
mönnum.
Áreksturinn varð klukkan
rúml. 12. Annar billinn sem er
Mercedes Benz, aðeins mánaðar-
gamall, ók austur Vesturlands-
veginná vinstri akrein. Amerisk-
ur fólksbill ók inn a Vesturlands-
veginn frá Essó við Nesti og mun
fyrst hafa ekið eftir hægri akrein.
Siðan ber ökumönnum, sem
voru einir f bilum sinum, ekki
saman um það hvernig árekstur-
inn átti sér stað. Eru þeir sem
hugsanlega kynnu að geta gefið
einhverjar upplýsingar beðnir
um að hafa strax samband við
lögregluna i Reykjavlk.
—EA
VILDI EKKI HLUTA-
BRÉF Á NAFNVERÐI
En keypti bréf fyrir tíu milljónir á
fjórföldu verði
Um það leyti sem
flugfélagið Vængir hf.
var að kaupa hlutabréf
i sjálfu sér á fjórföldu
eða fimmföldu nafn-
verði, var stjórn þess
boðið að kaupa hluta-
bréf að upphæð kr.
900.000, Á NAFN-
VERÐI.
Þessu tilboði var ekki sinnt.
Seljandi var Hreinn Hauksson
sem var I stjórn Vængja áöur en
flugmannadeilan sundraði fé-
laginu.
Vængir fengu i sumar leyfi
viðski'ptaráðuneytisins til að
eiga allt að 30 prósent af eigin
hlutafé. Lög um hlutafélög
kveða á um að þau megi aðeins
eiga 10 prósent, en viðskipta-
ráðuneytið veitti semsagt und-
anþágu til fyrrnefndra kaupa.
Að þessu leyfi fengnu, seldu
stjórnarmenn Vængja, félaginu,
hlutabréf sin á margföldu nafn-
verði eins og fyrr segir. Sú upp-
hæð sem þeir fengu fyrir bréf
sin var rúmar tiu milljónir
króna.
Það fé fékkst með söiu á ann-
arri Islander vél félagsins til
Vestmannaeyja. Leyfi viö-
skiptaráðuneytisins til hluta-
bréfakaupanna er dagsett 16.
júll. Tilboðið um að félagiö gæti
fengið hlutabréf upp á 900.000 á
nafnverði, er hins vegar dagsett
14. jýli. En þvi var semsagt ekki
sinnt.
—ÓT.
Skammitafanlr:
D - HruSskeytl.
HPx •■ ST»r borgaS.
(I slsB x kemur orSafJ&idinnj
TMx margar ulaolskrirtlr.
(I staS x kemur fjöldl utanáskrlfta.)
Post *■ póstgjald borgaS.
TC ■= samanboriS (tll tryggingar).
MP m afbenda TÍStakanda sjálfum.
I'S - S aS efttrsenda.
PC — vIStAkuskfrtelnl óskast.
XP rn aisendlns borguS.
Fyrlr hraðskeytl er trSfalt gjald.
LANDSSIMI
Símskeyti
ISLANDS
orfi þann 14/7 1876 kl.
1 "I
£ E ^
5 | 5
g -S s.
*1 1
0*1
3 !
Nafn, beimlli og
andá skái artlfl skrifa h#r (relnilefa.
12831
Arni Ouðjónsscn hi*l.
/tentílr h/f
Ouðjón Stj'rkárs3on, stjórnarfcrmaður
Aðalstmtl 9 Reykjavík
F.h. Hrelns Haukssonar vll ég tilkynna stjórn Vangja h/f
að hann hyggst selja Sigurði Erni HJálmtýssyni, Aratúni 27
Garðabqa hlutabréf sín í Vaengjum h/f að nafnveröi kr. 900 þúsund
ú nafnverði gegn staðgreiðslu
Hreinn býður Vaengjum h/f eða hluthöfum félagsins forkaupsrétt
að þessum hlutabréfura i samræml við lög Vaengja h/f.
Svar óskast sent tll mín sem fyrst og eigi slðar en
fyrir 15. ágúst 1976.
Arni Ouðjónsaon hrl.
Garöastræti 17
Ebl. 2 - StMSAOOO rr 6SM bl
Afrit af skeytinu sem stjórn Vængja var sent með tilboöi um hluta
bréfakaup á nafnverði. Það er birt með leyfi seljanda.
Sjónvarpsdagskráin lengd
Næstu fjóra til fimm mánuði
verður sjónvarpsdagskráin
lengd, þannig að sjónvarpað
verður á sunnudögum milli
klukkan 5 og 6. Útvarpsráð hafn-
aði hins vegar á fundi i gær þvi
boði sjónvarpsmanna að senda út
á fimmtudögum.
Þetta er gert til þess að vinna
upp þann tima sem tapaðist I
verkfallinu,og verður ekki dregið
af afnotagjaldi vegna verkfalls-
ins.
—EA
Ný stíflu í
Elíiðavutni
Unnið verður að byggingu
nýrrar EUiðavatnsstiflu í vetur
og á framkvæmdum öllum að
vera lokið fyrir áramót 1977-78.
Haukur Páimason, hjá Raf-
magnsveitu Reykjavikur, sagði
Vfsi I morgun að hún eigi að
tryggja vatn fyrir vatnsafls-
stöðina við Elliðaár og jafn-
framt kælivatn fyrir vélarnar I
varastöðinni.
„Gamla stiflan er orðin léleg
og þarna þarf endurbætur,”
sagði Haukur. „Við gerum ráð
fyrir að byggja nýju stifluna
eins nálægt þeirri gömlu og unnt
er. Það verður gerð jarðvegs-
stifla yfir að Dimmu, en I
Dimmu sjálfri verða svo steypt-
ar flóðgáttir.”
„Þarna verður laxastigi I far-
veginum og þess er gætt mjög
vel að trufla ekki laxinn. Vegna
þess verður framkvæmdum
hagað þannig að þetta verður
mest unnið yfir veturinn.”
„Samkvæmt framkvæmda-
áætlun verður verkið unnið i
tveim áföngum. Það verður
byrjað á jarðvegsstiflunni núna
og henni lokið i vetur. Flóð-
gáttirnar verða svo steyptar
seinni partinn á næsta ári.”
Með stiflunni verður stjórnað
rennsli I Elliðaánum. Sú hætta
er fyrir hendi að þær stiflist á
efra svæðinu af jakahröngli.
Þetta getur stöðvað rennsli i
hálfan dag eða svo. Það yrði
mjöghættulegt fyrir vélar vara-
stöðvarinnar, ef þær væru á
fullu — og fengju ekkert kæli-
vatn.
Vegna þessara framkvæmda
þurfti að kaupa land af vatns-
dalsbónda, og hefur þegar verið
gengið frá þeim kaupum.
—ÓT
„Hef ekki efni á
svo dýru sporti"
Jón Hákon Magnússon fréttamaður
hœttir á fréttastofu sjónvarps
„Astæðan er fyrst og fremst
sú, að ég hef ekki lengur efni á
þvi dýra sporti að vera rikis-
starfsmaður,” sagði Jón Hákon
Magnússon fréttamaður, þegar
Vlsir spurðist fyrir um ástæðu
þess að hann hefur sagt starfi
sinu lausu frá áramótum að
telja.
Jón sagðist ekki sjá fram á
neinar breytingar i launamál-
um sjónvarpsstarfsmanna,
þrátt fyrir aðgerðir þeirra á
dögunum. Hann hyggst nú hefja
störf sem framkvæmdastjóri
Vökuls h/f.
„Þetta hefur verið skemmti-
legur kafli i lifi minu og jafn-
framtlærdómsrikur skóli. Ég sé
eftir fólkinu sem ég vinn með
hérna á fréttastofunni. Þetta
hefur verið mjög samhentur
hópur.
En ég vonast nú til að ég sé
ekki búinn að segja skilið við
fjölmiðla fyrir fullt og allt, þótt
ég viti ekki ennþá hvernig það
verður,” sagði Jón Hákon. _SJ
Hlaða o< brunnu í ) gripah morgui t, IÚS n
Mikið tjón á Heiðarbœ II
Mikið tjón varð á
Heiðarbæ II við Þing-
valiavatn i morgun,
þegar hlaða og gripahús
brunnu þar.
Eldsins varð vart á sjöunda
timanum f morgun og var þá
kviknað I heyinu, en á þriðja þús-
und hestar af heyi voru í hlöðunni
og gripahúsum.
Sveinbjörn Einarsson er bóndi
á Heiðarbæ II. I morgun þegar
Visir hafði samband þangað voru
slökkvilið, m.a. úr Reykjavik,að
vinna að þvi að slökkva eldinn, en
þá voru húsin fallin. Hlaðan var
sambyggð fjárhúsi, hesthúsi og
geymslu.
Ekki var vitað hversu miklu
magniafheyiyrði hægt að bjarga
en það var meðal annars verið að
athuga. —EA