Vísir - 06.10.1976, Page 5
visrn
Miðvikudagur 6. október 1976
Bandarlskur tundurspillir við eyjuna Koh Tang til taks að verja landgönguna 16. malIfyrra.
Var björgunin á
Mayaguez fljót-
fœrnismistök?
Skýrsla, sem lögð
var fyrir bandarikja-
þing, gagnrýnir að
nokkru hernaðarað-
gerð þá, sem banda-
rikjastjórn greip til i
fyrra, þegar hún náði
skipinu Mayaguez og
fjörutiu manna áhöfn
þess úr höndum kam-
bodiumanna.
1 skýrslunni segir að settu
marki hafi að vfsu verið náð, en
raunar hefði kambodiustjórn
verið búin að ákveða að sleppa
skipinu og áhöfn þess (þrem
dögum eftir töku þess), og hefði
landganga bandariska flotans á
Koh Tang og sprengjuárásin á
Kambodíu ekki haft áhrif á þá
ákvörðun.
Slakri leyniþjónustu er kennt
um það, að i árásinni á eyjuna
Koh Tang hafi lifum 41 land-
gönguliða verið fórnað að ó-
þörfu, en landgangan þar var
byggð á þeim misskilngi að
Mayaguez væri haft þar 1 haldi,
sem reyndist svo ekki vera.
í skýrslunni er samt viður-
kennt, að embættismenn
stjórnarinnar hafi ekki getað
vitað á þeim tima, að kombod-
iumenn ætluðu að skila skipinu.
Samt er bent á, að stjórnin hafi
litið sinnt ýmsum vlsbendingum
um, aðKambodia væri að þreifa
fyrir sér um lausn á málinu eftir
diplómatiskum leiðum.
Þvi er einnig haldið fram i
skýrslunni að landgönguliðið
hafi haft rangar upplýsingar um
hernaöarstyrk Kambodiu á eyj-
unni Koh Tang, en gleggri og
réttari upplýsingar hafi verið
fyrir hendi, sem einhverra or-
saka vegna hafi ekki borist i
hendur stjórnendum land-
gönguliðsins.
Bandarlski tundurspillirinn,
Harold E. Holt með flutninga-
skipið Mayaguez I eftirdrag á
leið frá eynní Koh Tang. — Hins
vegar reyndist áhöfnin ekki
vera á eynni, heidur I fangavist
uppi á meginlandinu I Kam-
bodiu.
Flotaaðgerðin
Björgun Mayaguez úr prisund
Kambodiu bar að eftir að þjóð-
arstolt bandarikjamanna hafði
beðið mikinn hnekki við endalok
Vietnamsstriðsins og borgara-
styrjaldarinnar i Kambodiu.
Mæltist ákvörðun Fords forseta
um að beita flotanum til þess að
ná Mayaguez aftur vel fyrir hjá
landsmönnum hans, og þótti
röggsamlega gengið til verks til
leiðréttingar á rangindum, sem
kambodiumenn þóttu hafa haft
við, þegar þeir tóku skipið ólög-
lega.
I kosningabaráttunni þessa
dagana i Bandarikjunum hafa
stuðningsmenn Fords rifjað
Mayaguez-málið upp og bent á
það sem dæmi um röggsemi
Fords i utanrikisstefnu sinni.
Spillir
Skýrslan, sem nú hefur verið
lögð fyrir þingið, sýnir Mayagu-
ez-málið i nokkuð nýju ljósi, og
þykir það geta spillt fyrir áliti
Fords og um leið dregið úr
möguleikum hans til sigurs i
kosningunum.
Hún kemur fram á elleftu
stundu áður en Ford gengur i
annað sinn til sjónvarpseinvigis
við keppinaut sinn Jimmy Cart-
er, frambjóðanda Demókrata-
flokksins. Þykir hún sækja að
Ford á óheppilegri stundu, eftir
að landbúnaðarráðherra hans
neyddist til að segja af sér fyrir
óvingjarnleg ummæli um
blökkumenn I Bandarikjunum.
Fær Carter I skýrslunni ný vopn
I hendurnar að sækja að Ford.
Starfsmenn Hvita hússins
létu i það skina við fréttamenn i
gær, að þeim þætti það „ótrúleg
tilviljun”, að skýrslan skuli lögð
fram einmitt núna — hvorki
nokkrum vikum fyrr, né nokkr-
um vikum siðar (sem mundi þá
verða eftir kosningar).
Baríst í stúdenta-
görðum í Bankok
Stúdentar beittu sjálf-
virkum rifflum og hand-
sprengjum, þegar sló í bar-
daga í stúdentagörðum
Thammasat-háskólans í
Bangkok í nótt.
Að minnsta kosti fimmt-
án munu hafa fallið, áður
en lögreglunni tókst með á-
hlaupi að yfirbuga óeirðar-
seggina og koma á ró eftir
fjögurra klukkustunda á-
tök.
Það sló i brýnu, þegar um 2.000
hægrisinnaðir stúdentar gerðu á
hlaup á stúdentagarðana, sem
vinstrisinnaðir stúdentar hafa
haft á valdi sinu i mótmælaað-
gerð vegna veru Thanom Kittika-
chorn, fyrrum marskálks, i land-
inu.
Fljótlega safnaðist að múgur og
margmenni i forvitni og um tima
voru um 15 þúsundir i þyrpingu
umhverfis stúdentagarðana. —
Hundruð lögreglumanna ruddust
inn, en fengu litið aðgert framan
af.
Loft hefur verið 'lævi blandið i
Thailandi siðustu vikur. Hafa
Júliana hollandsdrottning.
Ætlaði aldrei
að afsala sér
drottningartign
Júliana hollands-
drottning, sem setti
niður þegar bóndi
hennar var bendlaður
við Lockheedhneykslið,
sagði i gær, að hún
hefði aldrei svo mikið
sem hugleitt það að af-
sala sér tign.
TIu sænskir blaðamenn fengu
áheyrn hjá drottningu i konugs-
höllinni við Soestdijk i gær I til-
efni af væntanlegri heimsókn
Gustafs svfakonungs og Sylviu
drottningar hans.
Júliana hóf sjálf máls á þeim
orðrómi sem komst á kreik þeg-
ar böndin tóku aö berast að
eiginmanni hennar, Bernhard
prinsi, i Lockheedmálinu. Sagð-
isthún vilja kæfa þær kviksögur
sem uppi eru um að hún ætlaði
að selja drottningartignina dótt-
ur sinni i hendur eftir kosningar
i maimánuði að ári.
Hún kvaðst svo sannarlega
ekki hafa látið það hvarfla að
sér.
A fundi sænsku blaða-
mannanna og drottningar var
ekki minnst á Lockheed-
hneykslið, sem leiddi á dögun-
um til þess, að eiginmaður
hennar hefur sagt af sér öllum
trúnaðarstöðum, jafnt hjá hol
lenska hernum sem og i kaup-
sýslunni.
skipst á mótmæli vinstrisinna
vegna heimkomu marskálksins
fyrrverandi sem nú er búdda-
munkur, og hins vegar mótmæli
hægrisinna sem lýsa vantrausti á
stjórn Seni Pramoj forsætisráð-
herra og vanþóknun á brottvikn-
ingu tveggja hægrisinnaðra ráð-
herra úr stjórninni i fyrradag.
Seni forsætisráðherra sagði af
séri síðustu viku, en snerist siðan
hugur og skipti um menn i stjórn-
inni.
öllum skólum i Bangkok hefur
nú verið lokað vegna ólgunnar i
landinu og funans i stúdentum.
Mannrán
á Kanarí-
eyjum
Lögreglan i Las Palmas á
Kanarieyjum segist hafa
fundið lik 65 ára milljóna-
mærings, sem hvarf af heimili
sinu þar fyrir fjórum
mánuðum.
Þrátt fyrir að það hafði legið
lengi á botni 180 i metra djúp-
um brunni, og vantaði auk
þess á það höfuðið, tókst að
bera kennsl á likið. Það var af
Eufemiano Fuentes sem
stundum var auknefndur
„tóbakskóngur Kanarieyja”.
Skömmu eftir hvarf Fuentes
i júni barst krafa um 45
milljóna peseta (130 milljónir
kr.) lausnargjald, en siðan
heyrðist ekkert frekar frá
ræningjunum.
Lögreglan hefur ákveðinn
eiturlyfjasmyglara grunaðan
um ránið og hefur handtekið
foreldra hans og ættmenn
fyrir hlutdeild I glæpnum en
maðurinn hefur sjálfur hins-
vegar komist undan hingað til.
1 siðustu viku var efnt til
allsherjarverkfalls á
nágrannaeynni Tenerife, eftir
að lögreglunni hafði orðið á að
skjóta ungan mann, sem hún
tók i misgripum fyrir eitur-
lyfjasmyglarann.
Hermála-
útgjöld
Sovét
William Proxmire, þingmaður
demókrata, hefur birt upplýsing-
ar frá CIA, leyniþjónustu Banda-
rikjanna, þess efnis að miklar
fjárveitingar sovétstjórnarinnar
til varnarmála sinna skapi þeim
nú efnahagsörðugleika.
1 skýrslunni, sem George Bush
forstöðumaður CIA lét þinginu i
té, kemur fram að Sovétrikin
verja 42% hærri fjárhæðum til
hermála en bandarikjastjórn.
„Sjá má mörg merki þess, að
hagvöxtur Sovétrikjanna hefur
hægt á sér einmitt á þeim tima,
sem helstu þættir efnahagslifsins,
varnarmálin, iðnaður og neysla
kalla á aukningu," segir Bush i
skýrslunni.