Vísir - 06.10.1976, Blaðsíða 15
visra Miðvikudagur 6. október 1976
Sjónvarp klukkan 20,
Barnastjörnurnar:
SOTRA VISKI
OG REYKJA
SÍGARETTUR!
— í svallveislunum í Hollywood
Jodie Foster með Mósa I Pappirstungli.
Jodie Foster, sem leikur aðal-
hlutverkið i Pappirstungiinu i
sjónvarpinu er enginn smá-
stjarna.
Hún hefur á sinni stuttu ævi
leikið i ellefu myndum og fengið
góða dóma fyrir þær allar. Hlut-
verk hennar hafa verið með
afbrigðum ólik, allt frá sak-
lausum krakka, og upp I
vændiskonu. En fjölhæfni
hennar virðast engin takmörk
sett.
Verulega góðir barnaleikarar
eru mjög sjaldséðir. Svo sjald-
séðir að barnahlutverk hafa
jafnvel verið tekin út úr hand-
ritum, vegna skorts á leikurum.
En vissulega hafa verið til
barnastjörnur.
Shirley Temple lék i fjöl-
mörgum myndum fyrir og um
1940, og hafði aðdráttarafl á viö
helstu kynbombur þess tima.
Hún var svo mikið „krútt’ , að
harðsvlruðustu karlmenni
bráðnuðu gjörsamlega þegar
hún birtist á hvita tjaldinu. Hún
hætti alveg kvikmyndaleik
þegar aldurinn færðist yfir
hana. Það var sennilega rétt
ákvörðun, þvi að barnaleikurum
hefur reynst ákaflega erfitt að
losa sig við barnsimyndina i
augum almennings. Shirley
Temple er nú þekktur stjórn-
málamaður i Bandarikjunum.
Fáar barnastjörnur hafa siðan
komist nálægt henni að vin-
sældum.
Súfrægasta i dag er sennilega
Tatum O’Neal, en hún leik ein-
mitt i kvikmyndinni Paper
Moon, sama hlutverk og Jodie
Foster hefur i sjónvarpsþátt-
unum. Myndin Paper Moon
varð feykilega vinsæl hér á
landi eins og annars staðar, og
það var áreiðanlega mikið
frammistöðu Tatum O’Neal aö
þakka. Hún fékk reyndar
Byssurnar I Bugsy Malone eru svolitið sérstakar. Þessir hafa fengið á sig skot og eru orönir að
myndastyttum.
Óskarsverðlaunin fyrir hlut-
verkið.
Siðan hafa borist af henni
miklar sögur og sumar miður
fallegar. Sést hefur til hennar i
helstu svallveislum Hollywood,
i flegnum kjólum, sötrandi
viski og reykjandi sigarettur.
Og hún er ekki orðin 13 ára.
Pabba hennar, kvikmyndaleik-
aranum fræga Ryan O’Neal
hefur greinilega eitthvað mis-
tekist með uppeldið á stelpunni.
Jodie Foster hefur að visu
ekki verið mikið oröuö við
drykkjuskap, en hún er engan
vegin jafn mikill engill og
stelpan i Pappirstunglinu. Hún
hefur leikið ellefu hlutverk I
kvikmyndum, eins og áður
sagöi. Þekktust er hún senni-
lega fyrir hlutverk sin i mynd-
unum Tom Sawyer (Stikils-
berja Finhur) og Taxi Driver. I
Taxi Driver lék hún kornunga
vædniskonu og fékk alveg frá-
bæra dóma. Sú mynd hlýtur
reyndar að vera væntanleg
hingað innan skamms.
Hún leikur einnig eitt aðal-
hlutverkið i nýrri mynd sem
frumsýnd var I London núna i
haust, og er spáð miklum vin-
sældum. Hún heitir
„Bugsy Malone” og er
„gangsteramynd”. Þetta er
heföbundin glæpamynd (meira
að segja söngleikur) að þvi
undanskildu að öll hlutverk i
myndinni eru leikin af
krökkum. Það er rétt, elsti
leikarinn i myndinni er ekki
nema 14 ára.
Þessi mynd er fyrst og fremst
barnamynd, en engin hætta er á
að fullorðna fólkiö sofni á
sýningum. Heilmikill bófahasar
er i myndinni, byssuskothrið og
fleira, en I staðinn fyrir blýkúlur
eins og i venjulegum myndum,
þá koma sætindi úr byssunum I
Bugsy Malone. Og þeir sem
verða fyrir skoti breytast i
myndastyttur eins og skot og
eru þannig I smá tima.
Meðal leikaranna i Bugsy
Malone var Jodie Foster
óumdeilanlega aðalmanneskjan
og hagaði sér sem sllk. Jafnvel
leikstjórinn og höfundur kvik-
myndahandritsins, Alan Parker
varð aö viðurkenna að Jodie
vissi miklu meira en hann um
það, hvernig búa ætti til kvik-
myndir. Hún leikur kráarsöng-
konu, Tallulah sem er bæði lifs-
reynd og ófeimin við að segja
álit sitt á hlutunum.
Þátturinn Pappirstungl hefst
klukkan 20.401 kvöld og heitir að
þessu sinni „1 föðurleit”.
—GA.
Miðvikudagur
6. október
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miödegissagan: „Grænn
varstu dalur” eftir Richard
Lleweilyn Ólafur Jdh.
Sigurðsson islenzkaði. ósk-
ar Halldórsson les (20).
15.00 MiðdegistónleikarAlicia
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veöurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagiö mitt. Anne-Marie
Markan kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
17.30 Nói bátasmiður. Erling-
ur Daviðsson ritstjóri flytur
brot úr æviþáttum (3).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
19.35 Öður undirdjúpanna.
Arni Waag kennari flytur
erindi um hvali.
20.00 Pianósónötur Mozarts
(IV. hluti)
20.20 Benedikt Gröndal Svein-
bjarnarson — 150 ára minn-
ing. Gils Guðmundsson tek-
ur saman dagskrána. Les-
arar ásamt honum: Gunnar
Stefánsson og Hjörtur Páls-
son. Einnig verða flutt lög
við ljóð eftir Benedikt Grön-
dal.
21.30 Ótvarpssagan:
„Breyskar ástir” eftir Ósk-
ar Aðalstein. Erlingur
Gislason leikari les (3).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: Ævisaga Sigurðar
Ingjaldssonar frá Bala-
skarði. Indriði G. Þorsteins-
son rithöfundur les (19).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
18.00 Adam og Otka.Tékknesk
biomynd fyrir börn og ungl-
inga.
19.10 Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Pappirstungl. Banda-
riskur myndaflokkur. 1
föðurleit. Þýðandi Krist-
mann Eiösson.
21.05 Kirgisarnir i Afganistan.
22.00 Brauð og vin. Italskur
framhaldsmyndaflokkur i
fjórum þáttunó, byggður á
sögu eftir Ignazio Silone. 3.
þáttur. Efni annars þáttar:
Pietro er enn i fjallaþorpinu
og boðar byltingu, en
bændurnir gefa orðum hans
litinn gaum. Hann hittir þó
fyrir fólk, sem hlustar á
hann, þ.á.m. eru byltingar-
sinnaðir stúdentar.
Bianchina kemur aftur frá
Róm meö skjöl til hans, og
hann ákveður að fara
þangað sjálfur. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
23.00 Dagskrárlok.
AFDREP ER ALLRA NAUÐSYN
28644
afdrep
FASTEIGNASALA
Garðastrœti 42
Fasteignasalan er opin alla virka daga fró kl. 8 til 19. Laugardaga
fró kl. 9 til 17. Einnig í hódeginu. Finnur Karlsson heimasími 25838
Valgarður Sigurðsson lögfrœðingur löggiltur fasteignasali
heimasími 42633.
VIÐ SÓLHEIMA
4ra herbergja 115 ferm. sér-
hæð i þribýlishúsi. Stórkost-
legt útsýni. Verði og útborg-
un i hóf stillt.
3ja herbergja nýstandsett
ibúö á jarðhæð við Nýbýla-
veg i Kópavogi. Laus strax.
SÉRTILBOÐ.
KOSTAKJÖR.
3ja herbergja 80 ferm. sér-
hæð i Þingholtunum.
Þarfnast iagfæringar.
Fæst á hagkvæmu verði, og
útborgun ef samið er strax.
\TÐ RALDALÆK
Stórkostleg sérhæð
Rauðalæk, efsta hæð i fjór
bvlishúsi
lbúðin er 5 herb. 150 ferm
\ erð 15 millj
LALG.ARNESVEGUR
\ið Laugarnesveg höfum við
til sölu 120 ferni. 5 herb. ibúð
a 3. hæð I fjölbýlishúsi
Laus strax
LEITIÐ AFDREPS HJÁ 0KKUR