Vísir - 12.11.1976, Síða 1
íslenskt dilkakjöt 60% dýrara í
framleiðslu en það nýsiálenska
Sérfrœðingar rannsóknarráðs
ríkisins ráðleggja sauðfjár-
rœktarbœndum að taka upp
rœktun holdanauta
Paö kostar næstuin jafnmikiö
fyrir islenskan bónda að fram-
leiöa 6,9 tonn af dilka kjöti og 0,6
tonn af ull af 355 kindum og þaö
kostar nýsjálenskan bónda að
framleiða 16,8 tonn af kjöti og
6,6 tonn af ull á 1650 kindur.
Þetta kemur fram i skýrslu
Rannsóknarráðs rikisins um
stöðu sauðfjárræktunar á fs-
landi, sem er nýkomin út. í
skýrslunni segir m.a. að verð-
lagning sauðfjárafurða hafi
orsakað það að bændur hafi lagt
meiri áherslu á kjötframleiðslu
heldur en ullar- og gærufram-
leiðslu, sem veldur minni verð-
mætasköpun á afurðum hverrar
ær.
t skýrslunni eru settar fram
hugmyndir til að bæta stöðu
sauðfjárræktunar i landinu og
bent á ýmsar leiðir sem sauð-
fjárræktarbúin geta farið, t.d.
að taka upp ræktun holdanauta.
í skýrslunni er bent á að árið
1974 hafi verið 860 þúsund fjár i
landinu og horfur séu á, með
óbreyttu ástandi að það verði
um 900 þúsund fjár i landinu
árið 1985. Þá er og vakin athygli
á þvi, að auknar niðurgreiðslur
vegna útflutnings dilkakjöts sé
sivaxandi byrði á rikissjóði og
beri að beina þessum niður-
greiðslum inn á aðrar brautir
sauðfjárræktunarinnar til þess
aðbændurfáisttil þess að reyna
að auka gæði ullar og gæru og
stuðla að meiri kynbótum fjár-
ins.
Nánar er sagt frá helstu nið-
urstöðum skýrslunnar á bls. 10 i
Visi i dag.
Þessmá geta, að rannsóknar-
ráð hefur boðað blaðamenn til
fundar i dag til þess að kynna
nýja skýrslu um þróun land-
búnaðar almennt og spár, sem
gerðar hafa verið á vegum ráðs-
ins um þróunina fram til ársins
1985. Efni þeirrar skýrslu er enn
trúnaðarmál, en Visir mun
skýra frá þvi á morgun.
—RJ
,Alþýðubanda-
lagið tók
íhaldssama
afstöðu'
„Mjög bcr að harma hve Al-
þýðubandalagið hefur tekið
ihaldssama afstööu til kjör-
dæmamálsins”, segir Finnur
Torfi Stefánsson lögfræðingur
i grein sinni á blaðsiðu 10 i
dag.
Grein Finns fjallar um
nýjar hugmyndir sem uppi eru
i kjördæmamálinu. Ræðir
hann um tillögur sem ungir
menn úr þremur stjórnmála-
flokkum hafa sett fram og
getur viðbragða við þeim.
„Islendingar hafa nú þegar
heyrt rödd flokksræðisins i
þessu máli,” segir Finnur
ennfremur i grein sinni. A
hann þar við talsmenn Al-
þýðubandalagsins sem túlkað
hafa skoðanir sinar i sjónvarpi
og leiðurum.
Finnur Torfi Stefánsson,
sem er eins og kunnugt er
frambjóðandi Alþýðuflokksins
i Norðurlandskjördæmi
vestra,-segir þvi næst:
„Undirritaður tók aldrei
sérstakt tillit til hagsmuna
Alþýðuflokksins, er hann hug-
leiddi valkosti og tillögur i
þessum efnum.” Sjábls.10.
Gamla
samkomulagið
staðfest
Samkomulagið, sem gert
var við breta siðastiiöið vor
um veiöar þeirra innan
’islensku fiskveiðilögsögunnar,
var samþykkt á Alþingi i gær
með 39 atkvæðum stjórnar-
þingmanna gegn 17 atkvæðum
stjórnarandstööuþingmanna.
Fjórir þingmenn voru fjar-
staddir.
„ÁKVÖRÐUN UM SAMNINGA-
VIÐRÆÐUR VARLA TEKIN í DAG"
— segir utanrikisráðherra
„Ég get ekkert sagt um það
fyrirfram hvort þessar
könnunarviðræður leiða til við-
ræðna um samninga”, sagði
Einar Agústsson, utanríkisráð-
herra, I samtali við VIsi I
morgun er fundur hans með
Finn Gundelach og Emon
Gallagher var að hefjast.
Þeir komu hingað til lands i
gær og áttu fund með utanrikis-
ráðherra i morgun áður en
formlegur viðræðufundur hófst i
ráðherrabústaðnum um fisk-
veiðisamninga milli Islands og
Efnahagsbandalagsins.
Einar Agústsson sagðist ekki
gera ráð fyrir að neinar ákvarð-
anir yrðu teknar i dag um frekari
viðræður. Af ráðherrum væru
það aðeins hann og Matthias
Bjarnason, sjávarútvegsráð-
herra, sem tækju þátt i fund-
inum i dag — og þeir þyrftu að
gera rikisstjórninni grein fyrir
þvi sem þar kæmi fram. Að
fundinum 'loknum væri ráðgert
að halda blaðamannafund.
Auk þeirra Gundelach og
Gallagher kom skrifstofustjóri
einkaskrifstofu Christopher
Soames, David Hannay, en
vegna veikinda getur Soames
ekki tekið þátt i þessum við-
ræðum.
Sanningurinn um fiskveiði-
réttindi breta rennur út 1. des-
ember og hafa bretar lagt
áherslu á að ná samningum um
frekari veiðiheimildir innan 200
milna eftir þann tima.
—SG
Einar Agústsson tekur á móti Finn Gundelach I morgun.
Hvernig œtlarðu að verja helginni?
Það er úr miklu að velja, eins og þú getur séð á bls. 8 og 9