Vísir - 12.11.1976, Blaðsíða 3
Föstudagur 12. nóvember 1976
3
Hluti ávísanahrings-
ins tengist Alþýðu-
bankamálinu
Hluti af ávisanamálinu stóra
hefur nú verið tekinn inn i rann-
sókn Alþýðubankamálsins.
Sverrir Einarsson sakadómari
hefur hafið yfirheyrslur yfir
starfsmönnum Aiþýðubankans
vegna ávisanaviðskipta Klúbbs-
ins við bankann.
Hrafn Bragason umboðsdóm-
ari sagði i samtali við Visi, áð
han'n hefði skrifað Alþýöu-
bankanum á sinum tima eins og
öðrum bönkum og svar borist
En þar sem viðskipti Klúbbsins
tengdust hinu svonefnda
Alþýðubankamáli hefði þótt
eðlilegra að starfsmenn bank-
ans svöruðu spurningum i sam-
bandi við Klúbbinn um leið
heldur en tveir dómarar væru
að kalla þá fyrir og spyrja sömu
spurninga.
Að öðru leyti mun Hrafn halda
áfram rannsókn sinni óbreyttri
og verður Alþýðubankinn með i
þeirri rannsókn eftir sem áður.
—SG
RÖÐIN KOMIN AÐ IÐN-
AÐINUM í BORGARNESI
Iðnkynning hefst þar í dag með
þótttöku 30 fyrirtœkja
„Dagur iðnaðarins” verður I
Borgarnesi i dag, föstudaginn
12. nóvember. Þetta er þriðji
iðnkynningardagurinn sem
fram fer fyrir tilstilli islenskrar
iðnkynningar úti á landsbyggð-
inni en áöur hefur „Dagur
iðnaðarins” verið haldinn á Ak-
ureyri og Egilsstöðum.
Fyrirtæki skoðuð
á morgun.
1 Iðnaðarráðherra, dr. Gunnar
Thoroddsen, og frú Vala As-
geirsdóttir Thoroddsen eru I
heimsókn i Borgarnesi af þessu
tilefni. Ráðherrahjónin heim-
sóttu ásamt ýmsum forystu-
mönnum úr Islenskum iðnaði 4
iðnfyrirtæki fyrir hádegi 1 dag
og kynntu sér starfsemi þeirra.
Fyrirtæki þessi voru Kjötiönað-
arstöð Kaupfélags borgfirðinga,
Bifreiða- og trésmiðja KB,
Verksmiðjan Virnet hf. og einn-
ig byggingarstarfsemi Þor-
steins Theodórssonar, bygg-
ingameistara. ^
Hreppsnefnd Borgarness
efndi siðan til hádegisverðar-
boðs þar sem kynnt voru mat-_
væli frá 4 fyrirtækjum I Borgar-
nesi: Kjötiðnaðarstöð KB,
Mjólkursamlaginu, Brauðgerð
KB og Hótel Borgarnesi. Eftir
hádegiðvarsvoopnuð viðamikil
sýning I leikfimissal barnaskól-
ans. Þar kynna 30 aðilar I Borg-
arnesi framleiðslu sina og þjón-
ustu og jafnframt er ýmsum
hlutum komið fyrir á útisvæði
skólans. Sýningin mun standa
fram til mánudagskvölds.
Skipulagðar hafa verið ferðir
skólafólks á sýninguna og munu
m.a. skólar á Snæfellsnesi auk
skóla I nágrenni Borgarness
heimsækja sýninguna og jafn-
framt nokkur iðnfyrirtæki I
Borgarnesi. Slðdegis I dag verð-
ur svo haldinn fundur um iðnaö
og iðnþróun I Borgarnesi. 1 upp-
hafi fundar mun iðnaðarráð-
herra flytja stutt ávarp en slðan
munu 4 heimamenn flytja fram-
söguerindi ásamt Sigurði Krist-
inssyni forseta Landssambands
iðnaðarmanna. Iðnfyrirtæki I
Borgarnesi munu gefa þeim
starfsmönnum, sem óska eftir
að sitja fundinn, frl frá störfum.
t móttöku, er Iðnaðarráðu-
neytið efnir til klukkan 17 I dag
munu ýmsir aðilar I Borgarnesi
verða heiðraðir af samtökum
iðnaðarins fyrir störf að iðnaö-
armálum. Undirbúningsnefnd
skipuð af hreppsnefnd Borgar-
ness hefur undirbúið iðnkynn-
inguna I samráði við islenska
iðnkynningu en framkvæmda-
stjóri nefndarinnar er Sveinn
Hálfdánarsan.
„HÖFUM NÁÐ
TAKMARKINU"
„Það er ljóst, að við höfum
náð takmarkinu sem viö settum
okkur I söfnuninni”, sagði Guð-
mundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar i samtali við VIsi, en
uppgjör fyrir söfnunina til
styrktar vangefnum eru nú að^
berast til stofnunarinnar.
„Þegar er komið til okkar fé,
sem nemur á sjöttu milljón
króna, en uppgjör á gíróreiknini
og frá ýmsum aðilum tekur ein-
ar þrjár vikur, þannig að endan-
legar tölur liggja ekki fyrir
strax,” sagði Guðmundur.
Ragnheiður Einarsdóttir, for-
maður Kvenféiagsins Hrings-
ins, afhenti Guðmundi Einars-
syni eina milljón króna frá fé-
laginu til söfnunar Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar i þágu
vangefinna, og var þessi mynd
þá tekin I húsakynnum stofn-
unarinnar. — Mynd: Loftur.
Ráðstefnan á að auka skilning
á neytendamálum - segir Reynir Ármannsson
„Markmiðið með ráðstefn-
unni sem hefst I fyrramálið er
að skýra fyrir almenningi hvað
það er sem samtökin eru að
vinna að”, sagði Reynir
Armannsson formaður
Neytendasamtakanna i samtali
við Visi I morgun.
Ráðstefnan stendur yfir að
Hótel Esju frá klukkan 10 til 18 á
morgun. Sagði Reynir þetta
vera upphaf þess aö stórefla
skilning almennings og ráða-
manna á þessu starfi. Taldi
Reynir samtökin vinna að sam-
eiginlegum hagsmunum
neytenda og seljenda og þau
vildu verða báðum aöilum að
liði.
Meðal framsöguerinda á
morgun verður erindi Hrafns
Björnssonar borgardómara og
fjallar það um löggjöf um
neytendavernd. Þegar Hrafn
vann fyrir Neytendasamtökin
samdi hann drög að lagafrum-
varpi um neytendavernd og var
þetta afhent viðskiptaráðuneyt-
inu árið 1971. Siðan hefur lltil
sem engin hreyfing verið á mál-
inu fyrr en nú, að nefnd á vegum
ráöuneytisins vinnur að samn-
ingu frumvarps til laga um
verðlag og samkeppnishömlur
svo og óréttmæta viðskipta-
hætti. Sagði Reynir að samtökin
fengju aö gera tillögur til breyt-
inga áður en frumvarpið yrði
lagt fyrir Alþingi.
Ollum áhugamönnum um
neytendamál er boðið aö taka
þátt I ráðstefnunni um neyt-
endamál, sem hefst aö Hótel
Esju klukkan 10 i fyrramálið.
—SG
VÍSIIft
kpAÐ
I Helgarblaði Vísis sem fylgir blaðinu á morgun er a<
venju fjölbreytt efni og m.a. þetta:
„Ætlaði í barnœsku að
verða rithöfundur til
þess að grœða peninga'
— segir Pétur Gunnarsson höf-
undur nýútkominnar skáldsögu,
„Punktur, punktur, komma
strik” I samtali við Arna Þórar-
insson, blaðamann þar sem rætt
er um bókina, kynslóðina sem
komst til vits og ára á mölinni I
Vesturbænum, um rithöfundar-
drauma, ástarsorgir, marxisma
og sitthvað fleira.
Veröld í tónum
Rafn Jónsson blaðamaöur skrifar um fróðlega heimsókn I skóla
sem að öllu jöfnu ber ekki mikiö á I f jölmiðlum, — Tónlistarskólann
I Reykjavik, — og birtir myndir og viðtöl við skólastjóra, kennara
og nemendur.
„Fúskarar" og
„fífiarí" í
menntamólum
Dr. Bragi Jósepsson ræðir i
tæpitungulausu samtaii við óla
Tynes, blaðamann um íeril sinn
og átök við menntamálaráðu-
neytið.
Að spá
með Tarot
Arnór Egilsson skrifar aðra
grein sina um Tarot I forvitni-
legum greinafiokki. — „A
mörkum mannlegrar þekking-
ar”.
Hvað verður í bíó?
Fyrrihluti greinar af þvi góð-
gæti sem kvikmyndahúsgestir
geta átt von á að sjá á hvita
tjaldinu i bióunum okkar á
næstu mánuðum. Siðari hlutinn
birtist i Helgarblaöinu i næstu
viku. Kemur á daginn aö fjöl-
margar hnýsilegar og nýjar úr-
valsmyndir eru á leiðinni. 1
þessari grein er sagt frá mynd-
um Hafnarbiós, Laugarásbiós,
Nýja biós og Stjörnubiós.