Vísir - 12.11.1976, Síða 23
HVAÐ HEFUR VOJTSEK AÐ
UPP Á SVIÐ Á ÍSLANDI í
Z_J
GERA
DAG?
Pálina Júnsdóttir, hringdi:
Hver réði þvi að leikritið
Vojtsek var valið til sýningar i
Þjóðleikhúsinu og hvers vegna?
Ég undrast að hvorki þýðandi,
leikstjóri eða leikendur skyldu
ekki hafna þvi að koma nálægt
þessu verki.
Leikritið er stutt, langdregið,
innihaldslitið og sundurlaust
sem sagt lélegt leikhúsverk.
Einmanaleiki, allsleysi og
vonleysi alls ráðandi samanber
söguna, sem „amman” segir
börnunum i leikritinu. (Er það
einu sinni forsvaranlegt að hafa
börn með i svona sýningu? Að
þau sjái annað eins i sjónvarp-
inu er engin afsökun.) Þar að
auki var verkið leiðinlegt.
Aö visu er ekki nauðsynlegt að
leikrit séu skemmtileg en að
það veki að minnsta kosti til
umhugsunar.
Eina hugsun min eftir frum-
sýninguna var, hvað hefur þetta
140 ára gamla verk að gera upp
á svið á Islandi i dag? Og hvað
kostaði þessi fjölmenna upp-
færsla á Vojtsek?
Svar: Visir hafði
samband við Þjóðleikhúsið og
fékk þar eftirfarandi svar:
Leikrit þau sem sýnd eru i
Þjóðleikhúsinu eru valin af
Þjóðleikhússtjóra i samráði við
leikritavalsnefnd. Verkefna val
er samþykktaf Þjóðleikhúsráði.
Um verk Buchners er það að
segja að það er almennt talið til
meiri háttar verka leikbók-
menntanna og hefur verið sýnt i
flestum menningarföndum, oft
með mjög góðum árangri.
Hvernig tekst til hverju sinni er
að sjálfsögu engin formúla til
um. Og það er alkunna að ipörg
sigild verk höfum víð aldrei
eignast á islensku leiksviði.1
Ekkert verka Æskylosar,
Evripidesar, Racines, Corneilly
es, Caedierons. Marlowes svo
örfá dæmi séu nefnd.
Það hlýtur að vera matsatriði
hvort eða þá hvenær við eigum
að leggja til atlögu við viðkvæm
og vandasöm verkefni af þessu
tagi. Reynslan hefur sýnt að i
mörgum tilvikum hefur slikt
tekist, i öðrum ekki, eins og
gengur'.
Hvað snertir kostnaðinn við
Góðir þœttir - en œttu
að vera á ððrum tíma
Elin hringdi:
A dagskrá sjónvarpsins á
sunnudögum hafa nú bæst tveir
þættir. Það eru þættirnir „Hús-
bænur og hjú” og „Adams-fjöl-
skyldan”. Báðir þessir þættir
lofa góðu og reyndar sá ég
nokkra þeirra i Stokkhómi fyrir
nokkru og hafði mikið gaman
af.
En mér finnst það skelfing
kjánaleg tilhögun hjá sjónvarp-
inu að hafa báða þessa þætti á
sunnudögum. Mætti ekki hafa
t 'd- annan þeirra á einhverjum
virkum degi, þvi að dagskráin
er léleg flesta daga vikunnar.
Annar þessara þátta væri þvi
vei þeginn þá.
Að auki ér þættinum „Hús-
bænur og hjú” valinn vondur
timi, þar sem hann er sýndur
seinnipart sunnudags, en þá eru
margir ekki heima við og geta
þvi ekki horft á þáttinn.
Meira um íþróttafólk
frá Akureyri í Vísi!
Akureyringar skrifar:
„Um leið og ég vil þakka Visi
fyrir góðan og skilmerkilegan
fréttaflutning, ekki sist héðan
frá Akureyri, þá sé ég mig til-
knúinn að koma með smá
umkvörtun.
Mikil óánægja rikir hér fyrir
norðan með fréttaflutning af
iþróttum þeim er varða akur-
eyrskt iþróttafólk. Hefur þetta
einna helst loðað við fréttaflutn-
ing af skiðamótum, en nú verð-
ur ekki betur séð en þetta sé að
yfirfærast á handknattleikinn
lika.Þannig var það t.d. um sið-
ustu helgi, er bæði Þór og KA
frá Akureyri kepptu fyrir sunn-
an, að þess voru nánast engin
skil gerð i Visi. Sigraði Þór þó
KR, en það lið hafði verið talið
liklegt til stórafreka i annarri
deildinni. Þá tapaði KA að vísu
fyrir Armanni, en þar áttust við
toppliðin i annarri deild, og þvi
full ástæða til aö skýra itarlega
frá þeim leik.
Vonandi verður skjótt unnin
bót á þessu, og þyi verður varla
trúað, að á meðan tekin er heil
siða fyrir ensku knattspymuna
sé ekki unnt að segja frá
innlendum iþróttaviðburðum
um leið. Að öðru leiti þakkir fyr-
ir gott blað”.
uppsetninguna á Vojtsek, mun
hann vera i meðallagi miðað
við uppsetningarkostnað leik-
r'ita almennt. Yfirleitt er upp-
setningarkostnaður leikrita i
Þjóðleikhúsinu mun lægri en
tiðkast i sambærilegum leikhús-
um erlendis.
Ágœtir fyrirlestrar
um nútímatónlist
ó Kjarvalsstöðum
„Ahugamaður uin list” skrifar:
Oft er kvartað undan þvi að
ekki sé á boðstólum nægileg
fræðsla og upplýsingar um
myndlist fyrir almenning hér á
Islandi. Að sjálfsögðu mætti
gera meira af þvi tagi i barna-
og gagnfræðaskólum. En oft er
það svo að fólk ber sig ekki eftir
björginni.
Gott dæmi um slikt hugsunar-
leysi er að ekki sækja nándar
nærri nógu margir ágæta
fyrirlestra um nútimalist, sem
haldnir eru hvern fimmtudag á
Kjarvalsstöðum. Þar fjallar
hinn ungi framkvæmdastjóri
Listaráðsins, Aðalsteinn
Ingólfsson, um stefnur i nútima-
list. skörulega, skýrt og af
mikilli viðsýni. Sú fræðsla gæti
komið þvi fólki til góða sem
kvartar i sifellu yfir torræðni
listar i dag og hleypur i blöð fullt
af fordómum.
BELTEK
Stereo segulband, 8 rósa í bíla
Allir tala um
verðhœkkanir en við
bjóðum stórkostlega
verðlœkkun
Venjulegt verð 26.200.-,
okkarverð 12.800.-.
Mjög gott verð.
Takmarkað upplag
INGVAR HELGASON
Vonorlandi v/Sogovog — Simar S45I0 og 84511