Vísir - 15.11.1976, Síða 2
e;
n
Mánudagur 15. nóvember 1976
VISER
^ í Reykjavík
Hvort kýstu heldur,
frost, eða rigningu og
hláku?
Finnbogi Baldvinsson, renni-
smiður: — Ég kann betur við
frostið ef það fylgir þvi ekki
snjór, hann er svo hvimleiður.
Frostið er hins vegar bara heil-
næmt.
Magnús Hinriksson, bókbind-
ari: — Ég vil heldur hafa frost.
Ég kann illa við að vera blaut-
ur!
Guðrún ólafsdóttir, er i skóla:
— Ég kýs heldur frostið. Hlákan
er svo leiðinleg, þá verður hált
og maður dettur.
Guðbrandur Ingimundarson
iðnnemi: — Ég er hrifnari af
frosti. bað er skemmtilegra.
Maður er orðinn leiður á rign-
ingunni.
Asgeir Jónsson, fimm ára: —
Sólskin
Brúsinn með hinum dýrmæta vökva er kominn á sinn stað og þar með getur keppnin hafist. Sá sem ók lengst komst nær 90 km á
„lekanum” og þykir þaö vel gert. Ljósmyndir LÁ...
AÐ KUNNA AÐ GÆLA
VIÐ BENSÍNGJÖFINA
„Galdurinn er bara að gæla
við bensingjöfina — keyra eins
og maður og vera á vel stilltum
bil,” sagði Högni Jónsson sigur-
vegarinn i sparaksturskeppni
FIB sem háð var i gær.
Högni sem ók á bifreið af
gerðinni Renault 4 komst 88,8
kilómetra á þeim fimm litrum
af bensini, sem honum eins og
öðrum þátttakendum i
keppninni , voru skammtaðir
áður en haldið var af stað.
,,Ég var með þeim fyrstu sem
fóru af stað og komst i Kúagerði
við Reykjanesbraut á þessum
fimm litrum”, sagði Högni.
„bað fóru tveir bilar fram úr
mér á leiðinni en ég fór siðan
fram úr þeim þegar þeir voru
búnir með sinn skammt.
barna á Reykjanesbrautinni
beið ég siðan ásamt eftirlits-
manninum, sem með mér var i
bilnum eftir þvi að einhver
kæmist lengra, en það var eng-
inn sem náði þvi. Annars var
munurinn ekki mikill þvi að við
vorum fjórir þarna á litlum
kafla.”
Hvar bensindropi nýttur.
1 þessari sparaksturkeppni
tóku þátt 30 bilar. Hófst keppnin
við bensinstöðina við Nesveg,
þar sem bilarnir voru skoðaðir
og siðan tengdir við þá sérstakir
bensinbrúsar með fimmlitrum
af bensini i.
Var bilunum siðan skipt i
fimm flokka eftir vélastærð, og
siðan haldið af stað og ekið við
islenska staðhætti eða á malbiki
og malarvegum til skiptis.
Ekið var suður i Hafnarfjörð,
þaðan i Krisuvik og um ísólfs-
staðaveg i Grindavik og þaðan
út á Reykjanes braut. Var var-
lega ekið og hver bensindropi
nýttur til fulls.
beir bilar sem komust lengst
á þessum 5 litrum voru Raun-
ault, 4, sem var i 2. flokki — bil-
ar með 800 til 1100 rúmsenti-
metra vél — komst hann 88,8
km, og fór með 5,63 litra af
bensi'ni miðað við 100 km.
Annar varð Skoda 1000 —
einnig úr 2. flokki — sem komst
88,41 km og eyddi 5,65 litrum á
hundraðið. briðji varð bill af
gerðinni Auto Bianchi sem
komst 87,85 km og fór með 5,69
litra á 100 km. t fjórða sæti
kom svo bill úr 1. flokki — 800
rúmsentimetrar og minna — en
þar var Citroen (Braggi) sem
fór 87,13 km og eyddi 5,37 litrum
miðað við 100 km.
Renault og Citroen urðu sig-
urvegarar i 1. og 2. flokki en i 3.
flokki komst bill af gerðinni
Skoda 110L lengst eða 83,13 km.
1 4. flokki — bilar 1600 til 2200
rúmsentimetrar — var það Audi
100 sem lengst fór komst i 71,50
km — flokki bilar meir en 2200
rúmsentimetrar — var það
Citroen CX sem lengst komst
,eða 45,16 km en hann fór með
að meðaltali 11,07 litrum á
hundraði i þessari sparaksturs-
keppni sem tókst i alla staði
mjög vel. — klp —
Hverblll var gaumgæfilega skoöaður og þess vandlega gætt aö ekki
væru nein svik I tafli áður en haldið var af staöí sparaksturinn.
ÞEGAR SKÆRIN TALA
begar kyrrt er á vettvangi
stjórnmálanna og stóru efna-
hagssamsteypurnar I þjóðfélag-
inu hafa sæmilegan „vinnu-
friö”, iðkar Samband islenskra
sam vinnufélaga að afneita
Framsóknarflokknum og
Framsóknarflokkurinn borgar i
sömu mynt og afneitar SÍS.
Komi hins vegar upp ágreining-
ur utan bræðralaga flokks og
fjármálastórveldisins birtast á-
róðursrit SÍS óbreytt og innan
gæsalappa i forustugreinum
Timans, sem er eitt mesta
flokksblað landsins að bjóðvilj-
anum undanskildum. Þannig
eru skærin látin taia og stefna
SÍS er bókstaflega, og með
nokkrum handtökum, klippt inn
I stefnu fiokksins i þágu þeirrar
einokunaraðstöðu sem StS
krefst sér til handa, svo fyrir-
tækið geti eflt söluviðskipti sln
við bændur og haft nokkurn frið
I afurðaversluninni, þ.e. bundið
bændur á klafa geðþóttavið-
skipta með hjálp svonefndrar
Sex manna nefndar, sem hvaö
eftir annað reynist uppvls að þvl
aö setja stimpil sinn gagnrýnis-
laust á útreikninga sem kaupfé-
lagasamsteypan matar hana á.
Siöastliðinn laugardag voru
skærin enn einu sinni látin tala i
forustugrein Timans, þegar
birt var úrklippa úr Sambands-
fréttum um rökin fyrir dauða-
dómi yfir blómlegu fyrirtæki á
Sauðárkróki, sem einskonar
stefnuyfirlýsing Framsóknar-
flokksins. Heidur skal selja
hundrað þúsund óunnar gærur
úr landi, og flytja sextiu og tvö
þúsund gærur óunnar frá Sauð-
árkróki til Akureyrar en láta
Loðskinn á Sauðárkróki hafa
gærurnar til vinnsiu, þótt þar
verði tuttugu manns atvinnu-
lausir vegna slikra aðgerða.
Enginn myndi missa atvinnu
sina á Akureyri, þótt engar
gærur kæmu þangaö frá Sauð-
árkróki. Þetta þjónar auðvitað
ekki byggðajafnvæginu, en
þurfi SIS á nokkurri röskun að
halda, þá skal röskunin vera
stefna Framsóknarflokksins.
Heiftaræöi SÍS út I Loöskinn á
Sauðárkróki stafar af þvi, að
Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður, lét SÍS-valdið
ekki komast upp með valdniðslu
i haust, þegar fjölmargir bænd-
ur i Skagafirði kusu aö slátra I
eigin sláturhúsi i stað þess að
lúta ákvæðum SÍS-valdsins um
sláturkostnað. Þar sem Eyjólf-
ur Konráð Jónsson er formaður
stjórnar Loöskinn h.f. lá auðvit-
að beinast við að freista að
drepa það fyrirtæki opinskátt og
fyrir augunum á alþjóð I krafti
þess aö nógu margir myndu
trúa þvi að iokun Loðskinns
væri liður i samciginlegri hug-
sjóirabaráttu SiS-valdsins og
Framsóknarflokksins i héraði,
sem hefur lægstu meðallaun á
mann I landinu. Atvinnuleysi
tuttugu manna á Sauðárkróki
var smáfórn, sem varð að færa
særðu stolti furstanna I forustu-
liði samvinnuhreyfingarinnar —
ættstórra sem ættsmárra.
En meira kom til. Færu
bændur að brjótast undan
ákvæðum um sláturkostnað
mcð þvi að sátra I eigin húsum,
stefndi i hreinan voöa með
rekstrarfé SÍS -valdsins, sem
það fær að stórum hluta i
'afurðalánum til bænda'og út-
flutningsbótum, sem greiddar
eru bændum að geðþótta.
Sláturkostnaðurinn sjálfur er
svo kapituli út af fyrir sig, og
ekki litilsverður i þeirri sorgar-
sögu, sem veröiagsmál búvöru-
afuröa eru orðin. Þótt vitað sé
að kaupfélög breyti i cngu, eða
sáralitlu, skrifstofuhaldi sinu I
sláturtið frá þvi venjulega,
heimilar Sex manna nefndin
þeim að reikna 11.75 kr. i skrif-
stofukostnað pr. 15 kg skrokk.
Sé slátrað um 60 þúsund fjár
greiðast um tiu milljónir i skrif-
stofukostnað. Blýantar og ann-
að skrifstofudót er reiknað á 94
aura pr. 15 kg skrokk. Miðað við
sömu tölu sláturfjár, gerir þessi
kostnaður einn um niu hundruð
þúsund. Þó er heildsölu kostn-
aðurinn hrikalegastur, en ekki
er vitað hver hann er annar en
sá að koma skrokkunum á bil til
brottflutnings. Þessi kostnaður
reiknast nær tuttugu milljónir
miðað við fyrrgreinda slátur-
fjártölu. Allt er þetta samþykkt
af Sex manna ncfnd. Hins vegar
reiknast launakostnaðurinn ein-
ber 22 kr. á 15. kg skrokk.
Auðvitað eru fleiri dæmi að
hafa úr þessu botnlausa dýki
einokunaraðstöðunnar.
Það er þvi engin furða þótt
StS-valdið bregðist hart við,
þegar vegið er að sláturréttind-
um þess i landinu, og eigi nú
sameiginlega stefnu með
Framsóknarflokknum um að
drepa Loðskinn h.f. á Sauðár-
króki, eins og skæraleiðari Tim-
ans s.l. laugardag sannar best.
Svarthöfði