Vísir - 15.11.1976, Side 3

Vísir - 15.11.1976, Side 3
Mánudagur 15; ndvember 1976 3 Tíu mál dag til sak- sóknara Málum þeim sem borist hafa rikissaksóknaraembætt- inu á þessu ár’i hefur fækkaö nokkuö miðað viö sama tima i fyrra. En þrátt fyrir það hafa nú verið bókuð 3127 ný mál hjá embættinu frá áramótum og daglega bætast við um 10 mál. Að sögn Bergljótar Eiriks- dóttur skrifstofustjóra . sak- sóknara er ástæðan fyrir fækkun mála frá siðasta ári meðal annars sú að siðastliðið vor voru sett lög sem rýmkuöu heimild sakadómara til að gera dómssátt við menn vegna brota á reglum um ölvun við akstur. —SJ. Fer Katla á kreik áundan Kröflu? óróleikinn i jarðskorpunni er nú ekki lengur mestur i nánd við Kröflu, heidur er Mýrdaisjökuissvæðið orðiö virkasta jarðskjálftasvæöi landsins. Flestir jarðskjálftanna virð- ast eiga upptök sin i suðvest- anverðum jöklinum, en upp- tök þeirra eru samt fremur dreifðir um svæðið. Stærstu skjálftarnir hafa reynst þrjú og hálft til fjögur stig á Richterkvarða, og er jarð- skjálftahrinan nú talsvert meiri en skjálftahrinan, sem þarna átti upptök sin um svip- að leyti á siðasta ári. Umfangsmikið mælinet er á þessum slóðum og þvi náið fylgst með öllum hugsanleg- um breytingum á jöklinum. Eins og fyrr þegar hræringar hafa oröið i Mýrdalsjökli leiða menn nú hugann að hugsan- legu Kötlugosi og velta þvi fyrir sér, hvort Katla muni verða fyrri á kreik en Krafla. Ágœtis útlit með rœkjusölu Gott útlit er á mörkuöum þeim þar sem islendingar selja rækjú sina, að sögn Hjaita Einarssonar fram- kvæmdastjóra Sölumiðstöðv- ar Hraðfrystihúsanna. Sölu- miðstöðin hefur þegar gert nokkra sölusamninga og er verð nokkuð gott. Þeir samningar sem gerðir hafa verið eru við aðila i Bret- landi, Sviþjóð og Noregi. Frekar er auðvelt að áætla hve mikið magn muni veiðast af rækju nú i vetur. Kvóta- skipting er á miðunum, svo að i upphafi er með nokkurri vissu hægt að sjá það. Áætlun Sölumiðstöðvarinn- ar er að 150 til 200 tonn af rækju verði framleidd i vetur. Þegar samningar sem geröir hafa verið hljóða upp á um 30 til 40 tonn. Ekki eru gerðir meiri samningar i einu vegna breytinga er kunná að eiga sér staö á mörkuðum. Nú eru engar rækjubirgðir til. Þrátt fyrir að bátar hafi stundað veiðar á úthafsrækju var magnið mjög litið sem fékkst, enda um tilraunaveiö- ar að ræða. —EKG Krónurnar fjúka í hakkavélina hjáSVR Nýja krónan hefur valdið nókkrum óþægindum hjá talningadeild Strætisvagna Reykjavikur. Þegar peningarnir eru teknir úr peningabaukum vagnanna og flokkaðir er strætisvagnamið- unum blásið frá peningunum. Nú er krónan okkar orðin svo létt á sér að hún fýkur frá hinni myntinni með miðunum. Starfsmenn talningádeildar- innar reyna siðan að hrista krónurnar frá miöunum, en þær vilja limast á milli miðanna og finnast þvi ekki. Þess vegna er alltaf eitthvaö um það að krónupeningar fari i hakkavél- ina með miöunum. Hins vegar kemur það ekki verulega að sök, burtséð frá tapi peninganna, þar sem krónan hakkast mjög vel og virðist ekki skemma hakkavélarnar! — SJ Áskíðum í hlíóum Alpafjalla Eins og síöastliöinn vetur bjóöum viö nú viku og tveggja vikna skíöaferðir til Kitzbuhel og St. Anton í Austurríki á veröi frá 62.400 og 75.600 krónum. Þetta eru brottfarardagarnir í vetur: Tveggja vikna feröir: Desember; 7., 21. jólaferð, 22. jólaferð Janúar: 4., 11., 18., 25. Febrúar: 1., 8., 15., 22. Mars: 1., 8., 15., 22., 29. Viku feróir: Desember: 12. Janúar: 9., 16., 23., 30. Febrúar: 6., 13., 20., 27. Mars: 6., 13., 20., 27. Apríl: 3. Þeir sem velja tveggja vikna ferðir, geta dvaliö viku á hvorum staö ef þeir kjósa heldur. Skíöafólk leitiö upplýsinga hjá söluskrifstofum okkar, feröaskrifstofunum og umboðsmönnum. LOFTLEIDIR Felög með skipulagðar skíðaferðir til Evrópu siiiilii

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.