Vísir - 15.11.1976, Qupperneq 9

Vísir - 15.11.1976, Qupperneq 9
9 VISIR Mánudagur 15. nóvember 1976 Blindir benda á ýmislegt, sem þörf er Grindur við gangbrautir, upphleypt borgarkort og símaskró ó blindraletri Ráðstefna Blindrafélagsins um öryggi blindra i umferöinni, hjálp i viðlögum, og eldvarnir, var haldin nýlega i húsnæði Blindrafélagsins undir kjörorð- inu Vitneskja veitir öryggi. Ráðstefnan fjallaði um vandamál blindra i umferðinni og taldi að með ýtarlegri um- ferðarfræöslu mætti létta á erfiðleikum þeirra i umferöinni. Var lögð sérstök áhersla á þaö að við gangbrautir yfir götur væru settar upp grindur, sitt hvoru megin við gangbrautina, svo blindir mættu vita hvar þær væru, auk þess sem hljóð- merkjagjafar yrðu settir upp við götuvita og gæfu þeir frá sér hljóð, þegar græna ljósiö logaði fyrir gangandi umferð. A ráð- stefnunni kom fram að ráða má bót á ókunnugleika blindra og sjónskertra á skipulagi borgar- innar með þvi að setja upp upp- hleypt kort af borginni t.d. að Hamrahlið,17, þar sem Blindra- ' félagið hefur aðsetur. Ráðstefnán benti á nauðsyn þess að haldið væri námskeið fyrir blinda og s jónskerta í hjálp i viðlögum og mætti til þeirrar fræðslu gefa út fjölfaldaöar segulbandsspólur. Auk þess væri heppilegt að gefa út sima- skrá, annað hvort með upp- hleyptu letri eða með mjög stóru svart/hvitu letri fyrir sjónskerta, þar sem fram kæmu simanúmer hinna ýmsu neyðar- vekta, sem fólk getur haft sam- band við er nauösyn ber til. Varðandi eldvarnir var bent á nauðsyn þess, að komiö yrði upp eldvarnarkerfi aö Hamrahlið 17 og að gera mönnum ljóst, hvernig bregöast skuli við elds- voða. Ráöstefna blindra var undir kjöroröinu Vitneskja veitir Þörf er á aö setja upp varúðargrindur við gangbrautir og láta hljóð- merki heyrast þar, þegar grænt ljós er á. „Ekki hœgt að bíða þess að samningar renni út" — segir Hermann Guðmundsson í Hlíf ,,Það er ekki hægt ;aö biða þess að samningstimabilið renni út”, sagði Hermann Guð- mundsson formaður Verka- mannafélagsins Hlifar i Hafnarfirði i samtali við Visi. Á fundi Hlifar fyrir helgi var samþykkt ályktun um kjaramál verkafólks þar sem krafist var aögerða af hálfu verkalýðs- hreyfingarinnr. 1 ályktuninni segir: „Fundur- inn telur að svo sé nú þrengt að kjörum verkafólks almennt með hinum skef jalausu veröhækkun- um að verkalýðshreyfingin geti ekki setið lengur hjá aðgerðar- laus, þótt samningar séu bundn- ir fram á næsta vor. Fundurinn skorar á verka- lýðssamtökin að risa nú upp og hefja aðgerðir og sóknarbaráttu fyrir bættum kjörum og nota til þess hverja þá aðgerö sem lik- leg er til árangurs. Hermann sagði það lifsnauð- syn fyrir verkafólk I landinu að kaupmátturinn verði aukinn til þess að það gæti lifað af launum sinum. Þaö geti verkafólk ekki núna. Sagði Hermann að yfir- vinna heföi minnkað stórkost- lega og til dæmis næturvinna væri óþekkt nema á stöku stað I fiskvinnslu. „Verkalýðshreyfingin getur á margan hátt knúið fram kjara- bætur”, sagði Hermann. „Bæði með skattabreytingum og á annan hátt”. —EKG öryggi, en fram til þessa hefur þeirra upplýsinga, sem talið er meö þvi aö fjölfalda segul- mikiö skort á aö blindir eða sjálfsagt aö hver maöur viti. A bandsspólur og lána eða selja sjónskertir hafi getaö aflað sér þessu má ráöa bót og er gert blindum og sjónskertum. Mikiö hefur hingað til skort á, að blindir hafi getað aflað sér þeirra upplýsinga, sem allir telja sig þurfa að hafa aðgang að. — Myndir Loftur Það er skemmtilegt og stundum nauðsynlegt aö taka vel á móti fólki - án sérstakrar fyrirhafnar. Hvort sem um vináttu- eða viðskiptatengsl er að ræða er þægi- legt og stundum ómetanlegt að geta setið og spjallað saman í ró og næði yfir góðri máltíð. I Blómasalnum á Hótel Loftleiðum er glsesilegt kalt borð í hádeginu. Þar að auki fjölbreyttur matseðill. Og notalegur bar. Opið 12-14.30 og 19-22.30. HOTEL LOFTLEIÐIR Sími 22322 Bjóðió gestunum í Blómasattnn

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.