Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 11

Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 11
vism Mánudagur 15. nóvember 1976 n HVERNIG FER PERSONUKJOR MEÐ VALKOSTUM FRAM? A undanförnum mánuöum hefur verið starfandi nefnd skipuð fulltrúum frá Sambandi ungra framsóknarmanna, Sam- bandi ungra jafnaðarmanna og Sambandi ungra sjálfstæðis- manna til að gera tillögur um sameiginlega stefnu þessara sambanda um kosningareglur til Alþingis. Nefnd þessi hefur nú lokið störfum og birt tillögur sinar opinberlega. Hefur álit nefndarinnar m.a. birst hér i blaðinu. Svo sem fram hefur komið leggjum við til, að upp verði tekið hér á landi kosningafyrir- komulag það, sem við lýði er á trlandi, eyjunni Möltu i Mið- jarðarhafi og viðar. Nefnist þetta fyrirkomulag á ensku „single transferable vote” og höfum við nefnt það á islensku persónubundið kjör með val- kostum. Hér fer á eftir lýsing á þvi, hvernig kosningafyrir- komulag þetta virkar. Skilyrði þess, aö „persónu- kjör með valkostum” sé viðhaft, er að kjósa skuli fleiri en einn frambjóðanda úr hverju kjör- dæmi. Framboðin eru i eðli sinu einstaklingsbundin, en hver stjórnmálaflokkur getur boðið fram að vild sinni færri, jafn- mörg eða fleiri þingmannsefni en kjósa skal. Þá geta framboð að sjálfsögðu einnig verið óháð stjórnmálaflokkum. Hver kjós- andi getur merkt við frambjóð- endur frá fleiri en einum stjórn- málaflokki. Aðeins eitt atkvæði Sérhver kjósandi ræður að- eins yfir einu atkvæði, sem i fyrstu lotu talningar fellur á þann frambjóðanda, sem kjós- andinn merkir ”1” við á kjör- seðlinum. Ef atkvæðið nýtist þeim frambjóðanda hins vegar ekki, annað hvort vegna þess, að hann hlýtur fleiri atkvæði en hann þarf til að ná kjöri eða vegna þess, að fylgi hans er svo litið, að vonlaust er, að hann nái kjöri, þá er tekið tillit til merk- ingar ”2” á kjörseðlinum. Með þessu móti hefur mikill meiri- hluti kjósenda áhrif á kjörið. Einfalt fyrir kjósendur Eins og að ofan kemur fram, er kosningarathöfnin alls ekki flókin út frá sjónarmiöi kjós- andans. Hann merkir við fram- bjóöendurna meö númerum að vild sinni. Getur kjósandinn látið við það sitja að,merkja bara viö einn frambjóðandaog skrifar þá ”1” við nafn hans. Eins getur kjósandinn merkt við fleiri frambjóðendur og skrifar þá ”1”, ,>2,> ,,3,, 0 s frv vj5 nöfn þeirra, þar til hann hefur ekki áhuga á að merkja við fleiri. Ef kjósandinn óskar getur hann raðað öllum frambjóöendunum niður með ofangreindum hætti alveg án tillitis til, hversu margir þingmenn eru kjörnir úr viökomandi kjör dæmi. A mynd nr. 1. er sýnt, hvernig kjörseðiil i Clare-kjör- dæmi i Irska lýöveldinu i þing- kosningunum 1973 hefði getað litið út, eftir að flokkshollur Fianna Fail kjósandi hafði kos- ' ið. Atkvæðakvótinn fundinn Þegar „persónukjör með val- kostum” er notað, hefur fram- bjóðandi náð kjöri, þegar hann hefur fengið tiltekinn kvóta (at- kvæðalágmark) af gildum at- kvæðum. Kvótinn er fundinn þannig, að deilt er i fjölda gildra atkvæða með tölu, sem er einum hærri en fjöldi þingsæta kjör- dæmisins. Kvótinn veröur þá næsta heila tala fyrir ofan út- komuna. Tökum þriggja manna kjördæmi og gerum ráð fyrir að Jón Steinar Gunnlaugsson skrifa y„!j_íy 11 D gild atkvæði hafi verið 1000. Þá deilum við i 1000 með 4 (fjöldi þingmanna kjördæmisins + 1 = 4). Þannig fáum við 250 og þá verður kvótinn næsta heila tala hér fyrir ofan eða 251. Hefðu gildu atkvæðin verið 1050 liti dæmið þannig út: 1050/4 = 262 1/2 og kvótinn orðið 263 (næsta heila tala fyrir ofan útkomuna). Forsendan Astæðan fyrir ofangreindri aðferð við útreikning á kvóta er sú, að finna verður lægstu töl- una, sem er þannig vaxin, að eftir að nákvæmlega sá fjöldi frambjóðenda, sem kjósa á hefur náð henni, þá sé eftir minni afgangur en kvótinn. Ef afgangurinn gæti verið meiri þýddi það, að einhver annar frambjóðandi gæti hlotið hann allan og þar með verið með meira atkvæðamagn að baki sér en hinir. Ef við höldum okkur við fyrra dæmið að ofan, þ.e. 3 manna kjördæmi og 1-000 gild atkvæði sést, aö væri kvótinn 250 gætu fjórir frambjóðendur náð kvóta, fengið 250 atkvæði hver. Með þvi að hækka kvótann ofurlitið eöa upp i 251 i dæminu geta einungis þrir frambjóð- endur náð fullum kvóta. Þeir hljóta samanlagt 753 atkvæði, sem þýðir, að einungis 247 at- kvæði (minna en kvóti) verða eftir fyrir aöra frambjóðendur. Valkostir fluttir á aðra frambjóðendur Hljóti frambjóöandi fleiri at- kvæði en þarf til að fylla kvót- ann eru umframatkvæöin flutt yfir á aðra frambjóðendur, eftir þvi á hve mörgum atkvæða- seðlum hins kjörna þeir hafa verið I ööru sæti (eða næsta sæti á eftir honum). Tökum tölu- dæmi : A hlýtur 6000 atkv, en þarf aðeins 5000 (kvóti), svo.að hann má við þvi aö missa 1000 atkvæði eða 1/6 af atkvæða- magni sinu. Nú eru hinir 6000 kjörseðlar hans flokkaðir niður eftir þvi, hvaða pöfn eru nr. 2 (eða næst á eftir nafni A, hafi það t.d. veriö nr. 2 á seðlinum). Segjum sem svo, að frambjóð- andi B sé merktur með nr. 2 á 1200 seðlum, C á 3000 og D á 1800. B fær þá 1/6 af 1200 eða 200 atkvæði, C fær 1/6 af 3000 eða 500 atkvæði og D fær 1/6 af 1800 eða 300 atkvæði. Hin 1000 um- framatkvæöi A skiptast þvi þannig: B 200, C 500 og D 300. Hafi t.d. C haft 4900 atkvæði fyrir, hefur hann nú hlotiö 4900 + 500 eða 5400 atkvæði. Hann hefur þvi einnig farið upp fyrir kvóta og þannig náð kjöri. Til kjörs á þriðja frambjóðand- anum er nú hinum 400 umfram- atkvæðum C skipt milli annarra frambjóðenda eftir tilsvarandi reglum. Ef enginn frambjóðenda nær kjöri á grundvelli merkinga nr. 1 eða við skiptingu umfram- atkvæða þeirra, sem þegar eru komnir að, eru atkvæði þess fylgisminnsta tekin og þeim skipt á aðra frambjóðendur, eftir merkingum nr. 2. Þegar > slíkt er gert geta einhver atkvæði fallið niður óvirk, þ.e. atkvæði þeirra kjósenda, sem einungis hafa kosið þennan frambjóðanda og ekki látið i ljósi neina valkosti. Sýnishorn frá irlandi Hér fer á eftir sýnishorn af úr- slitum i Clare-kjördæmi i Irska lýðveldinu i þingkosningunum i febrúar 1973. Tekið skal fram, að dæmið er valið af handahófi. Sjá mynd nr. 2. Úr þessu kjördæmi eru kosnir 3 þingmenn, svo að kvótinn er fundinn með þvi að deila fjórum i fjölda gildra atkvæða (28493) Þetta er mynd af atkvæöaseöli eins og hann lítur út eftir aö kjós- andi hefur greitt atkvæöi sitt. Höfö er hliösjón af framboöum I kjördæminu Clare á trlandi í þingkosningum, sem þar fóru fram I febrúar 1973. ATKVÆÐASEÐILL Þér hafið EITTatkvæði. Notið atkvæði yðar með því að merkja ”1” við nafn þess frambjóöanda, sem þér helst kjósið, og ef þér óskið, ”2” viðnafn þess.sem þér kjósiðaðhonum slepptum, ”3” við þriðja valkost yðar, og svo framvegis, þar til þér óskið ekki að láta i ljósi fleiri valkosti. ‘Síðari valkostir yðar koma þvi aöeins til athugunar, að fyrri val- kostir hafi hlotið atkvæði umfram tilskilinn kvóta (þ.e. það at- kvæöamagn, sem hver frambjóðandi þarf til aö ná kjöri), eöa aö fy rri valkostir hafi veriö felldir brott vegna ónógs fylgis. Undir engum kringumstæöum eru sfðari valkostir yðar taldir gegn þeim fyrri. Númerið eftir valkostum Nöfn frambjóöenda og flokksaðild 1 BarrettS. Fianna Fail 3 CahillM. Fianna Fail 4 Corley M. Labour 2 Daly B. Fianna Fail Howard M. FineGael Taylor F. FineGael og hækka útkomuna upp i næstu heilu tölu. A töflunni er frambjóðendum raöað eftir flokkum i stafrófs- röð. Innan hvers flokks er svo frambjóöendunum raðaö eftir atkvæðamagni i fyrsta sæti. Fyrsta talning 1 fyrstu talningu er frambjóð- endum úthlutað atkvæöum i samræmi við merkingar nr. 1 á kjörseðlinum. Þetta er eina talningarlotan, þar sem allir at- kvæða seðlarnir eru taldir. Neðantil hægra megin er Þannig fór talning atkvæöa fram I kjördæminu Clare á irlandi i þingkosningunum i febrúar 1973. A kjörskrá voru 39413, atkvæöi greiddu 28813 eöa 73.1%. Ógild atkvæöi voru 320 eöa 1.1%. Gild atkvæöi voru þvi 28493. Þrír þingmenn eru kosnir I kjördæminu og atkvæöakvótinn til þess aö ná kjöri er því 7124 atkvæöi. Fyrsta talning önnur talning Þriöja talning Fjóröa talning Fimmta talning Umfram Umfram- Merkingar Atkvæöi atkv. Atkvæöi atkv. Nr. 1 Corleys Barretts Howards ' Taylors Fianna Fail: flutt flutt flutt flutt Urslit BarrettS. 7203 7203 479 = 7124 7124 7124 Fyrsta sæti Daly B. 5758 + 114 = 5872 + 20 = 5892 + 157 = 6049 + 258= 6307 Þriöja sæti CahillM. 4576 + 107 = 4683 + 54 = 4737 + 209 = 4946 + 277 = 5223 Næstur að atkv. 17537 17758 17753 18119 18654 Fine Gael: TaylorF. 5330 + 570 = 5900 + 3 = 5903 + 4043= 9946 + 2822 = 7124 Annaðsæti Howard M. 3832 + 892 = 4724 + 2 = 4726 4 4726 Felldurbrott 9162 10624 10629 9946 7124 Labour: Corley M. 1794 4-1794 Felldur brott 1794 Atkvæði sem ekki nýtt- ust + 111= 111 111 + 317= 428 + 2287= 2715 Samtals 28493 28493 28493 28493 28493 skráður heildaratkvæðafjöldi flokksins. 1 ljós kemur, að Barrett fer fram yfir kvóta (7124) þegar i fyrstu talningu. 1 annarri talningu lægi þvi e.t.v. beinast við að skipta hinum 79 umframatkvæðum hans á aðra frambjóðendur. Það er þó ekki gert strax, heldur er atkvæðum hins atkvæðalægsta, Corleys, skipt fyrst. önnur taining Þetta er gert vegna þess, að engu hefir skipt þó að Corley hefði hlotið öll umframatkvæði Barretts, hann hefði eftir sem áður verið atkvæðalægstur og verið felldur brott næst. Það er athyglisvert að við skiptingu á atkvæðum Corleys fær Barrett ekki atkvæði, en það er vegna þess, að hann hefur þegar náð kjöri. Eftir skiptingu atkvæða Corleys er einungis 41 atkvæðis munur á þeim tveimur fram- bjóðendum sem nú eru lægstir þ.e. Cahill og Howard. Þessi munur er lægri en umfram- atkvæðamagn Barretts, svo að þeim atkvæðum er skipt næst. Þriðja talning Við skipinguna á hinum 79 umframatkvæðum Barretts (þriöja talning) hlýtur flokks- bróðir hans Cahill 54 þeirra en Howard einungis 2. Þetta veldur þvi, að Cahill fer fram úr Howard að atkvæðamagni. Nú eru aðstæður orðnar þannig, að engum umframatkvæðum er að skipta, svo að næst er atkvæðum Howards, sem nú er orðinn at- kvæðalægstur, skipt milli hinna eftir þeim valkostum, sem kjós- endur hans hafa gefið til kynna. Fjórða talning Flokksbróðir Howards.Taylor fær yfirgnæfandi hluta atkvæð- anna og nær kjöri meö 2822 atkvæðum fram yfir kvóta. I fimmtu og siðustu talningu er svo þessum umframatkvæöum skipt til aö finna út, hvor hinna tveggja frambjóðenda, sem nú eru eftir, hljóti þriðja þingsæti kjördæmisins. Það verður Daly, þvi hann er hærri að atkvæða- magni i lokin heldur en Cahill. Daly nær kjöri. jafnvel þótt hann hafi ekki náð kvóta, þar sem einungis tveir frambjóö- endur berjast i lokin og engum umframatkvæöum frá öðrum er lengur hægt aö skipta. Séu framangreind úrslit skoðuð svolitið nánar kemur i ljós, að yfir 64% þeirra, sem skiluðu gildum atkvæðaseðlum, sjá þann frambjóðanda, sem þeir merktu ”1” við, ná kjöri. Þó ekki sé unnt að reikna það út með fullri vissu, er afar liklegt, að þeir þrir, sem kjöri náðu, hafi verið i fyrsta eða öðru sæti á yfir 90% af atkvæðaseðlunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.