Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 14

Vísir - 15.11.1976, Blaðsíða 14
14 Mánudagur 15. nóvember 1976, VISIR Hverjir ráða: Ríkisstjórnin eða kratarnir í ráðuneytunum? Þaö kvisaðist fyrr á þessu ári að ýmsar útsendingar sjón- varpsins sæjust i lit. Mikill kipp- ur komst i innflutning og sölu litasjónvarpstækja með þeim afleiðingum aö viðskiptaráö- herra tók til sinna ráða og stöðvaði þann innflutning i nafni slæmrar gjaldeyrisstöðu. Land- inn lét þó ekki innflutningsbönn aftra sér frekar en fyrri daginn, og enn eru menn að sleikja sárin eftir aö uppvist varð um um- fangsmikið smygl á litasjón- varpstækjum. Enda þótt upplýst sé, að lita- sjónvarp sjáist viðast hvar á landinu, og aö fólk hafi i stórum stil áhuga á kaupum á litsjón- varpstækjum, sitja yfirvöld viö sinn keip, og skrifstofustjóri viðskiptaráðuneytisins, Alþýöu- flokksmaðurinn Björgvin Guðmundsson, tilkynnir valds- mannslega i Visi á fimmtudag, aö enginn innflutningur verði leyföur frekar fyrir áramót. Hver er það annars sem ræður i þessu landi? Rikisstjórnin eöa kratarnir i ráðuneytunum? t fljótu bragði kann það aö þykja fánýtt og hégómlegt að sækjast eftir litasjónvarpi. Einu gildi i hvaða litum myndefnið sé, ef efnisinnihaldið sé þess viröi að horfa á það. En sama mætti segja um klæðnað, engu skipti hvernig snið eða útlitió er, svo framarlega sem hann er hlýr. Engu máli varði, hvernig maturinn smakkast, ef hann gefur næringu o.s.frv. Þétta er ekki spurning um smekk, heldur um framtið sjón- varpsins. Það er spurningin hvort þaö eigi að staðna á gelgjuskeiöinu, eða fá að fylgj- ast með þróuninni og komast til manns. Menn deila ákaft um sjón- varpið, efnisval og útsendingar en engum blandast hugur um, að það hefur á einum áratug gerbreytt lifsháttum þjóðarinn- ar og orðið snar þáttur jafnt i afþreyingu fólks sem menn- ingaruppeldi. Sjónvarpið er ekki lengur gestkomandi heldur heimilisfast hjá islenskum fjöl- skyldum. Islenska sjónvarpið, áratug eftir stofnun þess, stendur nú á timamótum. Tækjabúnaður er að ganga úr sér, dreifikerfið er ófullnægjandi og fjárhagsleg úlfakreppa svo alvarleg, aö tekjur hrökkva ekki til að standa undir vöxtum og afborg- unum af skuldum. Til viðbótar er ljóst að flest sjónvarpstæki landsmanna eru 7-8 ára gömul, en það er talinn eðlilegur endingartimi. öll þessi -tæki þarf almenningur aö endurnýja á næstu mánuðum og misserum. Ellert B. Schram Sjónvarpið sjálft stendur frammi fyrir sams konar vanda. Nú reynist æ erfiðara að fá nauðsynlega varahluti, þar sem tæki eru vart framleidd lengur fyrir svart/hvitt sjón- varp. Flestallt efni er nú gert fyrir litasjónvarp og er fáanlegt án nokkurs aukagjalds. A sama tima gerast erlendar stöðvar tregari til kaupa á islenskum svart/hvitum myndum, þar sem svart/hvitt efni er ekki boð- legt til sýningar. Með þessar staðreyndir i huga hef ég á þessu hausti flutt tillögu til þingsályktunar, þar sem skoraö er á rikisstjórnina að: 1) samþykkja áætlun sjón- varpsins um reglulegar litaút- sendingar. 2) gefa frjálsan innflutning á lits jónvarpstækjum. 3) ákveða að tolltekjum af innflutningi slikra tækja skuli varið til endurbóta á tækjum og dreifikerfi sjónvarpsins. Einhverjar athugasemdir hafa heyrst um að ekkert lægi á með litasjónvarp, fyrst þurfi að tryggja að sjónvarp sjáist um allt landið — og miðin lika. Einnig, að Rikisútvarpið þurfi sjálft að segja til um, hvaöa röð skuli vera á þeim framkvæmd- • Spurningin snýst um það, hvort sjónvarpið eigi að staðna á gelgjuskeiðinu • Æ erfiðara reynist að fá varahluti fyrir svart/hvitt sjónvarp • Innflutningur litsjónvarpstœkja leysir tœknileg, dagskrárleg og fjárhagsleg vandamál sjónvarpsins um og verkefnum, sem við blasa hjá þeirri stofnun. En þessar athugasemdir eru meinlokur. Nema menn vilji hækka afnotagjöldin eða leggja fram meira fé af fjárlögunum til að bæta dreifikerfið og standa undir fjármagnsþörf Rikisút- varpsins? Ekki hefur heyrst að menn séu sérlega spenntir fyrir þvi. Eina og um leið sjálfsagð- asta leiðin er, að leyfa frjálsan innflutning á litasjónvarpstækj- um, Sala 2500 tækja gæfi Rikis- útvarpinu tekjur af aðflutn- ingsgjöldum ca. kr. 150-200 millj. Þannig væru slegnar tvær eða jafnvel margar flugur i einu höggi. Þannig er unnt að mæta tækniþróuninni og þörfum sjón- varpsins, afla fjár til að bæta dreifikerfið, draga úr smygli auka fjölbreytni i dagskrá o.fl. o.fl. Gjaldeyrissala vegna inn- flutnings á 2-2500 tækjum næmi ca. 200 millj. og það er blátt áfram hlægilegt að halda þvi fram, að innflutningur af þeirri stærðargráðu sé takmarkaður vegna slæmrar gjaldeyrisstöðu islendinga. Fram til ágústloka á þessu ári höfðu islendingar keypt gjald- eyri fyrir 60 milljarða króna, og innflutningur á sjónvarpstækj- um ræður auðvitað engum úr- slitum um gjaldeyrisstöðu þjóðarbúsins. Aðalatriðið er auðvitað hitt, að þessi leið leysir tæknileg, dagskrárleg og fjár- hagsleg vandamál islenska sjónvarpsins. Úr þvi almenn- ingur sjálfur vill og hefur efni á að kaupa litasjónvarpstæki, hvaða tilgangi þjónar það þá, að streitast við i þessu máli? Nema þá að kratarnir i ráðu- neytunum geti skýrt það? Ellert B. Schram Á uppboðum fóst um 50% að- f lutningsgjalda uppboðsvarnings t „Svarthöfðagrein” i Visi þann 11. nóv. s.l. má skilja, aö þaö sé algeng aöferð aö innflytj- endur tollafgreiöi vörur sinar með þvi mótiaö láta þær á upp- boö og leysi þær til sin þar meö hagnaöi. Þessu er til aö svara, að árið 1975 voru greidd aðflutnings- gjöld viö tollstjóraembættið aö fjárhæð kr. 9.478.383.044.-. Til uppboös fóru vörur, er hvildu á aðflutningsgjöld (með sölu- gjaldi) að fjárhæð kr. 14.390.419,- eða u.þ.b. 0,16% af heildaraðflutningsgjöldum 1975. Alls voru þetta 179 vörusending- ar, en þess má geta, að árið 1975 voru tollafgreiddar 91.103 vöru- sendingar hjá tollstjóraembætt- inu. Af þessu má sjá, að þaö er töluverður misskilningur og vanþekking, ef þvi er haldiö fram, að uppboð séu notuð i ein- hverjum mæli sem tollaf- greiðsluaöferð. Einnig gætir nokkurs mis- skilnings i áðurnefndri „Svart- höfðagrein”, að uppboðin geti Björn Hermannson, tollstjóri skrifar oröið gróöavegur fyrir innflytj- endur á þann hátt að þeir komist hjá hluta aðflutningsgjalda og sölugjaldi. Arið 1975 fóru til uppboðs vörur, er hvildu á aö- flutningsgjöld að fjárhæð kr. 14.390.419 eins og áður sagði. Uppboðsandvirði varanna var kr. 7.245.840.- og er sölugjald innifalið i upphæðinni, en það er innheimt strax af uppboðsand- viröinu. A uppboðum fæst þvi u.þ.b. 50% af aðflutningsgjöldum þess varnings, sem fer til uppboðs. Þetta er gott hlutfall, þegar þess er gætt, aö mikill meirihluti þessa varnings er skemmd vara og miður seljanleg. En sá varn- ingur sem er einhvers virði, er yfirleittseldur á raunverði enda hefur sú regla lengi veriö við höfð á uppboðum, að fulltrúar Innkaupastofnunar rikisins mæta þar og gæta hagsmuna rikissjóðs, og á Innkaupastofn- unin oft hæsta boð. t niðurlagi greinarinnar er að þvi látið liggja, að erlendir heildsalar séu að þreytast á is- lenskum innflytjendum þvi verða aðrir að mótmæla, ef rangt er, enda ekki I verkahring embættisins aö gæta hagsmuna erlendra heildsala gagnvart is- lenskum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.