Vísir - 22.11.1976, Blaðsíða 1
Mánudagur 22. nóvember 1976
285. tbl. 66. árg.
V
S/átfstætt randaó
og hresstlegti
Mai jpjj
Valfrelsi kjósenda
og aukin ábyrgð
sfjórnmálamanna
— sjá bls. 10
Stefna stjórnvalda að
selja ríkislönd til
sveitarfélaga á hag-
stœðu verði -$jóbis. 1»
Sakaður um að hafa tekið
þátt í árás á Geirfinn
Hæstiréttur sta&festi á
laugardaginn 20 daga gæslu-
varöhaldsvist ungs manns sem
handtekinn var 12. nóvember
vegna rannsóknar Geirfinns-
málsins.
1 dómi hæstaréttar segir:
„Geirfinnur Einarsson hvarf aö
kvöldi 19. nóvember 1974. Svo
sem greint er í hinum kær&a úr-
skurði hafa nafngreindir menn
borið á varnaraðila, að hann
hafi ásamt fleiri mönnum veitt
Geirfinni Einarssyni áverka
þetta kvöld svo leitt hafi til
bana. Var nægilegt tilefni til aö
hneppa varnaraðila i gæslu-
varðhald samkvæmt 1. tölulið
67. greinar laga nr 74/1974.
Samkvæmt þessu ber að stað-
festa hinn kærða úrskurð.”
Eins og þessi dómur ber með
sér er greinilegt að gæslu-
fangarnir sem sitja inni vegna
Geirfinnsmálsins hafa borið að
þessi ungi maður hafi verið I
Dráttarbrautinni i Keflavik og
tekið þátt i aðför að Geirfinni er
hann var ráöinn af dögum.
Rannsóknaraðilar i sakadómi
hafa til þessa haldið þvi fram
við fréttamenn, að grunur leiki
á að fimmti gæslufanginn vissi
eitthvað meira um málið þar
sem Sævar Ciecielski hefði gert
hann aö trúnaöarmanni. En að
hann hafi verið sakaður um
þátttöku i árás á Geirfihn hefur
ekki verið nefnt fyrr.
Yfirheyrslum er stöðugt hald-
ið áfram i málinu en rann-
sóknarmenn verjast allra
frétta.
— SG
EYJA í KEA-
HAFINU
Stefán Asgeirsson leggur sitt af mörkunum til þess aö minnka eyösluna. Hér er hann aö stilla vél
Toyota-bifreiöar meö afar fullkomnum tækjum. Myndina tók Loftur í morgun
500 MILUÓNIR KRÓNA
í SÚGINN ÁRLEGA
HJÁ BÍLEIGENDUM
VEGNA TRASSASKAPAR
„Erlendar athuganir sýna að að meðaltali eyða bilar 3-5% meira
bensini en þyrfti vegna trassaskapar i viðhaldi. Þetta þýðir, að um 500
milljónir fari i súginn hjá islenskum bileigendum árlega af þessum sök-
um, eða um 10 þúsund krónur á bil, sem eyðir 11 litrum á 100 kilómetra og
er ekið 20 þúsund kilómetra á ári.”
Þannig kemst ómar Ragnarsson að orði á bilaopnu sinni i Visi i dag,
þar sem hann fjallar um „raunverulegan” sparakstur.
Sjá bilarnir og við bls. 12-13.
NEMENDUR ÚR REYKHOLTSSKÓLA:
Kynntu sér aðstöðu
œskunnar í Reykjavík
— sjá bls. 20
STJORNAR „UPPMÆLINGAAÐALLINN" ASI?
sjá bls. 11