Vísir - 22.11.1976, Síða 4
Mánudagur 22. nóvember 1976
VISIH
Patty œtlar að
nota frelsið til
leikhúsferða
og upplyftingar
Patricia Hearst sagði í
blaðaviðtaii i gær, að nú
þegar hún er laus orðin úr
fangelsi (gegn trygg-
ingu) vilji hún heimsækja
kaffihúsin, leikhúsin og
tefla skák við föður sinn,
sem hún á einni segul-
spólunni frá ræningjum
sinum kallaði „svín".
Þessi 22 ára gamli erfingi
milljóna blaðakóngsins
Randolps Hearst hefur eytt
siðustu þrem árunum að mestu
sem fangi mannræningja SLA
sem byltingarstúlka og dæmdur
bankaræningi.
Lögmenn hennar hafa sagt,
að lif hennar væri i hættu, og
fengu þeir leyfi hjá dómaranum
til þess að hafa um hana einka-
lifverði. Sjálf segist Patty hafa
hug á að fá sér varðhund á borð
við þýskan Dobermann.
Foreldrar hafa lagt fram fyrir
hana 1,5 milljón dollara trygg-
ingu til ábyrgðar fyrir þvi að
hún mæti fyrir rétt eða i fang-
elsið, hvenær sem vera vill.
Patty Hearst er nú loks laus úr
fangelsi, en einungis tii bráða-
birgöá og gegn 1 1/2 miiijón
dollara tryggingu foreldra
hennar. — Sfðustu þrjú árin hef-
ur hún verið i prisund, ýmist á
vaidi mannræningja eða I
fangelsum þess opinbera.
Dularfullar árásir á
fyrri félaga Dubceks
Fjár-
krögg-
ur
New
York
Abraham Beam, borgar-
stjóri New York, á enn við
að blíma f járhagskröggur
borgarinnar og hittir í dag
að máli fulltrua fjármála-
ráðuneytis Bandaríkjanna
til að finna leiðir til að
greiða milljarðaskuidir
borgarinnar.
Hann átti i gær fund með
Robert Gerard ráðuneytisstjóra i
fjármálaráðuneytinu, en hann
hefur umsjón með lánveitingum
þess opinbera til New York-
borgar.
Þessi nýja kreppa i fjármálum
borgarinnar kemur i kjölfar fó-
getaúrskurðar um að veð borgar-
innar fyrir skuld að upphæð einn
milljarður, sem orðin er árs-
gömul, væru ekki gild.
A fjárlögum bandariska rikis-
ins fær New York-borg 2,3
milljarða dollara i rikislánum til
að bægja frá gjaldþroti. Fjár-
málaráðherrann hefur lofað
borgarstjórninni að lánagreiðsi-
urnarhaldi áfram, nema eitthvað
ófyrirsjáanlegt komi upp á.
Tveir grimuklæddir
menn réðust á einn af
fyrri stjórnarmönnum
tékkneska kommúnista-
flokksins og konu hans á
heimili þeirra i Prag
siðasta föstudag.
Prófessor Kriegel, sem átti
fyrrum sæti i æðsta ráði flokks-
ins, var einn af andstæðingum
innrásar Varsjárbandalagsins i
Tékkóslóvakiu 1968. Hann var
rekinn úr flokknum það ár, og
hefur ekki fengið að taka upp
læknisstörf sin, sem hann hafði
lagt á hilluna vegna stjórnmál-
anna.
Tveir menn með dökk sólgler-
augu, hatt niður i augu og upp-
bretta frakkakraga börðu að
dyrum á ibúð þeirra hjóna sið-
degis á föstudag. Þegar frú
Kriegel opnaði, ruddust þeir inn,
og án þess að segja aukatekið orð
tóku þeir til við að misþyrma
henni.
Það kom til ryskinga, þegar
prófessorinn kom henni til
hjálpar, en þegar hann hljóp Ut i
glugga og æpti á hjálp út á götu,
forðuðu árásarmennirnir sér.
Þau hjón hafa kært atburðinn
til lögreglunnar.
Vinum sinum hafa þau skýrt
frá þessu jafnframt og um leið
bent á, hversu lik þessi árás er
þeirri, sem gerð var i águst
siðastliðnum á vin þeirra Jiri
Hajek, sem var utanrikisráð-
herra 1968 undir stjórn
Alexanders Dubeck.
Ráðist var á Hajek, þar sem
hann var á gangi hjá sveitasetri
sinu um 50 km fyrir utan Prag.
Tóku árásarmennirnir skjala-
tösku hans (sem var þvi sem næst
tóm), en henni var skilað
skömmu siðar af lögreglunni.
Wolf Biermann, þjóðvisnaskáid. — Kommúnistaflokkur A-Þýskalands
hefur hrint af staö mikilli herferö til stuðnings ákvörðun stjórnarinnar
um að leyfa Biermann ekki að snúa heim aftur úr hljómleikaferð í
V-Þýskalandi.
HERFCRÐ GíGN
BIERMANN
Sú ákvörðun austur-
þýsku stjórnarinnar að
reka Wolf Biermann i
útlegð hefur klofið bók-
menntamenn þjóðar-
innar i tvær fylMngar.
33 fremstu rithöfundar
A-Þýskalands hafa
undirritað mótmæli við
útlegðardómnum,
meðan aðrir hafa tekið
sér stöðu með
kommúnistaflokknum,
sem hrundið hefur af
stað herferð til suðnings
aðgerðum þess opinbera
gegn hinu vinsæla þjóð-
visnaskáldi.
Listamennirnir segja, að málið
undirstriki afstöðu manna, sem
annars vegar fylgi auknu rit-
frelsi, eða hins vegar menningar-
stefnu þess opinbera.
Hin opinbera fréttastofa ADN,
lagði útsendingar sinar i gær nær
allar undir birtingu lista yfir þá
listamenn, rithöfunda, list-
málara, leikara og myndhögg-
vara, sem fréttastofan segir, að
styðji brottvikningu Biermanns
úr landi.
„Neues Deutschland”, mál-
gagn kommúnistaflokksins, verði
einnig miklu rúmi i að tfunda þá,
sem styðja stjórnina i þessu máli.
Hvergi var hins vegar getið
hinna þrjátiu og þriggja.
Nokkrir listamenn sögðu
fréttamanni Reuters i gær I
Austur-Berlin, að fast hefði verið
lagt að þeim að undirrita
stuðningsyfirlýsingu við stefnu
þess opinbera gagnvart Bier-
mann. Einn leikari sagði, að leik-
hússtjóri hans hefði varað hann
við þvi að undirrita nokkur mót-
mæli, fyrst hann ekki vildi undir-
rita stuðningsyfirlýsinguna. Ein
leikkona sagðist hafa undirritað
stuðningsyfirlýsinguna, þegar
gefið var i skyn við hana, að ella
mundihún eiga i erfiðleikum með
að finna sér vinnu.