Vísir - 22.11.1976, Side 5
vism
Mánudagur 22. nóvember 1976
Pétursson
Frá hamförunum í Darwin jóla- k
daginn 1974, þegar bærinn lagö- y
ist alveg I rúst og 44 manns létu ’
lifið. Stjórnvöld hétu þvi aö
endurreisa bæinn, og efnt var til
alþjóða söfnunar á fé til styrkt-
ar þeim, sem misstu allt sitt.
Bæjarstjórinn í Dar-
win i Norður-Astraliu,
sein lagðist að miklu
leyti i rúst i fellibylnum
illræmda jóladaginn,
1974, segir, að mikill
hluti þeirra sjö milljón
dollara, sem safnað
var erlendis til aðstoð-
ar bæjarbúum, hafi
farið i sprútt og fjár-
hættuspil erlendis.
„Ég veit, það eru voðalegar
fréttir fólki, sem gaf fé til þessa
málefnis, en þetta eru stað-
reyndirnar,” sagði Ella Stack,
aðstoðarformaður hjálparsjóös-
Sviku gjafafé út
ur
Dr. Stack bæjarstjóri sagði,
að mikið af því fé, sem greitt
heföi verið beint sem bætur til
ibúa í Darwin, hefði lent i hönd-
um fólks, sem ekki heföi haft
þörf fyrir þá. „Sumir sviku út
féð, sumir gáfu upp fölsk nöfn...
Það er alltaf töluvert, sem fer
þannig til spillis.”
Othlutun úr hjálpársjóönum
er nú orðið pólitiskt hitamál i
Astralfu, eftir yfirlýsingar Alan
Stretton yfirmanns almanna-
varna i Astraliu, en hann sagöi i
siðustu viku, að hjálparsjoöi og
gjafafé ætti aðnota til opinberra
framkvæmda, en ekki til
greiðslu bóta beint til einstakl-
inga.
LURIE
11-16-76
Njósnir í
Svíþjóð
Óbreyttur borgari, bú-
settur nyrst i Sviþjóð,
hefur verið handtekinn,
grunaður um njósnir i
þágu erlends rikis.
Saksóknari Norrbottensýslu
hefur skýrt frá þvi, að maður-
ínn hafi verið handtekinn á
heimili sinu i byrjun siðustu
viku til yfirheyrslu.
Ekki hefur verið látið uppi,
hver maðurinn er, eða hvaða
riki hann hafi njósnað fyrir.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins i Stokkhólmi Sagði að
ménn hefðu áhyggjur af þvi, að
ljóstrað hefði verið upp ein-
hverjum leyndarmálum Kalix-
varnarlinunnar, sem liggur við
landamæri Finnlands.
„Svenska Dagbladet", sem
fyrst skýrði frá njósnamálinu,
segir, að yfirvöld hafi um langa
hrið fylgst með athöfnum
mannsins. — En yfirvöld
verjast allra frétta. — „Afton-
bladet” segir, að um sé að ræða
embættismann, sem hafði
frjálsan aðgang að svæðum,
sem herinn hefur lokað útlend-
ingum.
Frœndi
Maos
tekinn
af lífi?
Frændi Mao Tse-tung sá-
luga er nú aðalskotspónn
veggspjalda i Canton fyrir
stuðning við róttæka
vinstrisinna og ekkju for-
mannsins, Chiang Ching.
Mao Yuan-hsin, sem fram a
siðustu vikur var einn af fram-
kvæmdastjórum kinverska
kommúnistaflokksins hefur verið
þokað frá i kjölfar hreinsananna
eftir fráfall Maos formanns
frænda hans.
Orðrómur er kominn á kreik
um að Mao Yan-hsing hafi verið
tekinn af lifi.
Honum er gefið að sök það
sama og „Shanghai-mafiunni”
Nefnilega að hafa setið á svikráð
um við hinsta vilja Maos for
manns.
Eitrun í
Seveso
Ein kýr hefur drepist
og aðrar sýnt alvarleg
eitrunarmerki fjórum
mánuðum eftir að eitur-
efnin láku út úr efna-
verksmiðjunni i Seveso
á Norður-ítaliu.
Landbúnaðarráðunautur
héraðsins segir, að kýrin hafi
ekkert verið annað en skinniö og
beinin, þegar hún drapst, og
leiddi krufning i ljós að vefir i inn-
yflum voru brunnir eftir „di-
oxin”-eitrun.
Kýr á nágrannabæjum hafa -
misst nyt, horast og greinilega
sýkst af fóðri.
A sinum tima voru rúmlega 700
manns flutt burt af heimilum sin-
um i Seveso vegna eiturhættunn-
ar. Nú hefur komið til tals, að
leyfa þessum fjölskyldum að snúa
aftur.