Vísir - 22.11.1976, Side 28
Jarðskjálftahrinan í Mýrdals-
jökli fœrist nú nœr Kötlu
Almannavarnir eru við öllu búnar
VISIR
Mánudagur 22. nóvember 1976".
Röntgen-
tœknar
mœttu ekki
til vinnu
sinnar
í morgun
Röntgentæknar á Land-
spítalanum og Borgarspltal-
anum I Reykjavik mættu ekki
til vinnu i morgun. Eins og
Visir greindi frá sögöu
röntgentæknar upp störfum
frá og meö 20. nóvember.
Röntgentæknum barst bréf
þar sem uppsagnarfrestur
þeirra var lengdur um þrjá
mánuöi, en þvi var ekki hlýtt.
Aö sögn Ingu Valborgar
Einarsdóttur, formanns
Röntgentæknafélagsins, eru
þaö 12 manns sem uppsagn-
irnar náöu til, aðeins i
Reykjavik. Sérsamningar
gilda úti á landi.
Inga Valborg kvaöst búast
viö því aö ástandiö yröi erfitt á
Borgarspitalanum. Röntgen-
tæknar sem þar störfuöu hafa
boðist til aö mæta ef aöstoðar
verður þörf viö neyðartilfelli.
— EA
Vœngja-
sláttur
hafinn
Vængir fengu um helgina
leyfi til aö fljúga áætlunarfiug
með Islander vél sinni og var
flogið til Blönduóss og Siglu-
fjaröar i gær. Islander vélin er
tiu sæta og erfitt verður að
vinna upp það sem safnast
hefur fyrir, ,,en við munum
gera okkar besta” sögðu þeir
hjá Vængjum, i morgun.
Otter vélarnar tvær, sem
eru tuttugu sæta, eru enn jarð-
bundnar og verða þar til
flugvirki getur útskrifað þær.
Það er búið aö vera von á hon-
um frá Bandarikjunum, tölu-
vert lengi og að sögn er hann
nú rétt ókominn. —óT
Snörp jarðskjáiftahrina varð
á Mýrdalsjökli um kl. 11 á
laugardagsmorguninn og stóð
hún i um klukkustund. Stærstu
skjálftarnir mældust nálægt 4
stigum á richterskvarða.
Að sögn Páls Einarssonar
jarðeðíisfræðings hafa margir
jarðskjálftar orðið á þessu
svæði siðustu tvo mánuðina og
siðustu 4-5 sólarhringana hafa
þeir aukist talsvert. Flestir
jarðskjálftanna hafa átt upptök
sin i suðvesturhorni jökulsins,
ennú um helgina hafa þeir færst
Undanfarinn hálfan mánuð
hafa þrir inatreiðslumenn Flug-
leiöa dvalið á Egilsstööum og
úrbeinað urn 38 tonn af nauta-
kjöti, sem Flugleiðir hafa keypt
þar, en það mun vera þriðjung-
ur ársnotkunar félagsins.
Vísir náði tali af Jóni G.
Sigurðssyni, yfirmatreiðslu-
manni á Keflavikurflugvelli
sem stjórnar verkinu. Hann
sagði að Flugleiðir hefðu keypt
austur eftir jöklinum og nær
Kötlu.
Almannavarnir i
viðbragðsstöðu
„Við settum upp aðvörunar-
skilti við veginn yfir Mýrdals-
sand eftir að hrinan kom á
laugardaginn og þau hafa ekki
verið tekin niður aftur.” sagði
Guðjón Petersen hjá Almanna-
vörnum rikisins i samtali við
Visi i morgun.
Hann sagði ennfremur að við
nautakjöt á Egilsstöðum frá ár-
inu 1968, en hafið vinnslu þess á
staðnum árið 1971. Þetta fyrir-
komulag hefði marga kosti. Þaö
tryggði meðal annars úrvals
hráefni, lækkun flutnings-
kostnaðar og auðveldaði mat-
reiðslu kjötsins þvi kjötið er
flokkað og pakkað i sérstakar
einingar sem henta hótelum.
Kjötið er unnið i sláturhúsi
Kaupfélags Héraðsbúa og sagði
veginn væru tii staðar hlið og
keðjur til þess að loka veginum
ef ástæða þætti til. Ef svona
hamagangur, eins og varð á
laugardagsmorguninn, yrði
aftur, sagði hann að kæmi
alvarlega til mála að loka
veginum um tima.
A þessu svæði er fjarskipta-
stöðvanet sem hægt er að setja i
gang ef simasambandslaust
yrði austur yfir sand. Þetta net
er tengt á einn stað, sem er
loranstöðin i Reynisfjalli og
þaðan yrði öllum aðgerðum
Jón, að þeir félagar hefðu notið
sérlega góðrar fyrirgreiðslu
K.H.B. Kjötið kvað hann vera
það jafnbesta sem hann hefði
séð hér og taldi að gott sumar og
bætt fóðrun væru orsakir þess.
Þess má geta að umrætt kjöt-
magn mun nægja i um það bil
eitt hundrað þúsund matar-
skammta handa gestum Flug-
leiða.
— SG/ERH, Egilsstöðum.
stjórnað. Þá eru almannavarnir
með viðvörunarkerfi i Vik i
Mýrdal, sem gefur þvi fólki sem
býr á lægstu stöðunum aðvörun
um að flytja sig á hærri staði.
Eftir jarðskjálftahrinuna á
laugardaginn var haldinn
fundur með öllum þeim aðilum
sem starfa að björgunar- og
hjálparstarfi á þessu svæði. Þar
voru rifjaðar upp þær áætlanir
sem til eru um aðgerðir vegna
Kötlugoss og sagði Guöjón að nú
væru allir ferskir i þessu og við
öllu búnir. _SJ
Allir loðnu-
bátarnir
fylítu sig
Sex loönubátar voru á leið til
lands I morgun allir með
fullfermi. Voru þetta allir bát-
arnirsem voru á miðunum úti
af Vestfjörðum i gærkvöldi.
Fimm bátanna ætluðu á hafnir
við Faxaflóa, en einn til Siglu-
fjarðar. Þrær i Bolungarvik
eru nú yfirfullar.
Tveir bátar sem ekki hafa
verið á miðunum undanfarið,
eru nú á leiðinni. Það eru Arni
Sigurður AK og Hilmir SU.
Súlan EA, sem verið hefur á
loðnu er ennfremur á leiðinni
á miðin.
„Bliðuveður er nú á miðun-
um”, sagði Andrés Finnboga-
son hjá Loðnunefnd i morgun.
Hann sagði að visu væri
suðaustan gola, en þó ekki
þannig að hamlaði neitt
veiðum. Aflinn sem bátarnir
sex fengu i gærkvöldi og nótt
fékkst nokkru nær landi en
upp á siðkastið. I vestanátt-
inni, á dögunum færðist is-
hrafl yfir miðin og þvi færðu
bátarnir sig. Búast má við þvi
að isinn hverfi burt nú i suð-
austan áttinni. —EKG
f— • q. an? —
Þessi mynd var tekin þegar
verið var að landa loðnu á Bol-
ungarvik. Þar er nú þróar-
rými allt yfirfullt. Ljósmynd
Visis EKG
Innkaupaferð til Egilsstaða:
Matreiðslumennirnir Höröur Jónsson, (llfur Eysteinsson og Jón G. Sigurösson.
Kaupa hundrað þúsund
skammta af nautakjöti
Fjórir lögregluþjónar slösuðust í ótökum við unglinga
sekt fyrir að sparka í hund
ráðast á lögregluþjón"
„Hœrri
en að
„Þaö var ekkert I skýrslum
lögregiuþjónanna, sem gaf
ástæðu til að dæma þessa
unglinga í hærri sektir. Það var
aöeins einn úr hópnum, sem
eitthvað var meira við málið
riðinn og hans mál var sent
áfram. Hin voru dæmd I um 2500
króna sekt. En hámarkssektin
er 5000 krónur fyrir öivun á al-
mannafæri”.
Þetta sagði Erla Jónsdóttir
fulltrúi í Sakadómi Reykjavikur
er viö spurðum hana að því I
morgun hvaða sektir ungling-
arnir hafi verið látnir greiöa,
sem handteknir voru i sam-
bandi viö ólætin á Hallærisplan-
inu á föstudagskvöldið, en Erla
hafði meö mál þeirra að gera er
þeim var sleppt út úr fanga-
klefunum á laugardagsmorgun-
inn.
Þarna var um að ræða tólf
unglinga á aldrinum 16 til 19 ára
sem handteknir voru í sam-
bandi við einhver mestu ólæti,
sem hafa orðið siöan unglingar
úr Reykjavik og næstu ná-
grannabyggðum fóru aö safnast
saman við Hallærisplanið á
föstudagskvöldum nú i haust.
Fjórir lögregluþjónar slös-
uöust i þessum látum. Voru þrir
þeirra fluttir á slysadeildina
meira og minna slasaðír, en
enginn þeirra þó alvarlega.
Lætin byrjuöu er tveir lög-
regluþjónar ætluðu að taka
nokkra unglinga sem voru I
slagsmálum og áberandi
drukknir. Réöst þá hópur að
þeim og siöan á þann þriðja,
sem þarna kom að. Lenti hann
undir þvögunni, þar sem högg
og spörk voru látin dynja á hon-
um, og hinir tveir fengu svipaöa
meðferð hjá skrilnum sem verst
lét.
Fjóröi lögregluþjónninn slas-
aðistá fæti er grjóti var kastað I
hann, en grjóti, mold og flöskum
rigndi yfir hópinn þegar mest á
gekk. Sem betur fer slasaöist
enginn alvarlega, og má það
teljast hrein heppni.
Alls voru sautján unglingar
handteknir i sambandi við þetta
uppþot — þar af ein 13 ára
gömul stúlka, sem var svo
drukkin, aö hún vissi hvorki I
þennan heim né annan.
Þau sem höfðu aldur til voru
sett I fangageymslurnar. Hin
voru flutt heim til sin eða for-
eldrar þeirra voru látnir sa*ja
þau á stöðina.
Lögregluþjónar sem Visir tal-
aði við i gær, voru mjög
óánægðir með þær sektir sem
unglingarnir voru látnir greiða.
Hafði einn þeirra á orði, að hér á
Islandi væri orðin „hærri sekt
fyrir að sparka t hund en að
vera með óspektir á almanna
færi og ráðast á lögregluþjóna I
starfi.”
„Ef borgari veitir lög-
regluþjóni áverka á hann yfir
höfði sér hámark 5000 króna
sekt, en ef lögregluþjónn ver
hendur sinar, getur hann átt von
á allt að 45 daga gæsluvarð-
haldi”, sagði einn lögregluþjón-
anna.
Var mjög þungt i lögregluliði
borgarinnar um helgina vegna
þessa máls og ekki gott að segja
hvað gert veröur n.k. föstudags-
kvöld þegar hamagangurinn viö
Hallærisplanið byrjar aftur.
— klp —