Vísir - 25.03.1977, Blaðsíða 17
17
yism
Föstudagur
25. mars 1977
Menntskœlingar á Akureyri frumsýna
„0 þetta er
indœlt stríð"
í gær, fimmtudag frumsýndi
Leikfélag Menntaskólans á
Akureyri leikritiö „Ó, þetta er
indælt strið”, eftir Joan Little-
'wood.
Leikstjóri er Þórhildur Þor-
leifsdóttir, en gerð búninga og
leikmyndar annaðist Messiana
Tómasdóttir. Atján leikarar
koma fram i sýningunni, tækni-
menn eru fjórir og annað að-
stoðarfólk nálægt tuttugu tals-
ins.
1 leikritinu er mikið um stórar
hópsenur og mikill söngur er i
verkinu. Leikritið gerist á árum
fyrri heimsstyrjaldarinnar, og i
þvi er að finna hvassa ádeilu
styrjaldarreksturinn. Einkum
er bent á, að striðið komi verst.
við óbreytta hermenn, og að á
meðan þeir vegi hvern annan
stundi yfirmenn þeirra ýmsa
miður þokkalega iðju. Auk sýn-
inga á Akureyri er ráðgert að
sýna leikritið á Isafirði.
Sýningin er mjög viðamikil,
og mjög virðingarvert að
áhugaleikhópur komi svo um-
fangsmikilli sýningu á svið.
Unnið hefur verið að æfingum
og öðrum undirbúningi undan-
farnar fimm vikur, og sögðu
leikarar þeir er blaðamaður
Visis ræddi við, aö skólameist-
ari og kennarar M.A. ættu mikl-
ar þakkir skildar fyrir þeirra
þátt i að sýningin varð að veru-
leika.
— AH, Akureyri.
Magnús Loftsson og Jón S.
Kristinsson i hlutverkum sinum
I skólasýningu M.A.
Hópur leikara úr M.A. á sýningu striðsádeiiunnar eftir Joan Littlewood.
.... —
Þetta er glœsilega Granada
sófasettið okkar.
Verð kr. 298.000 Staðgreitt kr. 268.000
Þessi verð þekkjast hvergi nema hjó okkur
Norrænir iðnfræðslustyrkir
Menntamálaráöuneyti Danmerkur, Finnlands, Noregs og
Sviþjöðar munu á þessu ári veita nokkra styrki handa Is-
lendingum tilnáms við iönfræðslustofnanir I þessum lönd-
um. Er stofnað til styrkveitinga þessara á grundvelli á-
lyktunar Noröurlandaráðs frá 1968 um ráöstafanir til að
gera Islenskum ungmennum kleift að afla sér sérhæförar
starfsmenntunar á Noröurlöndum. Styrkirnir eru einkum
ætlaðir.
1. þeim.sem lokið hafa iðnskólaprófi eða hliöstæöri starfs-
menntun á Islandi, en óska að stunda framhaldsnám í
grein sinni.
2. þeim.sem hafahug á að búa sig undir kennslu f iönskól-
um eöa iðnskólakennurum sem leita vilja sér fram-
haldsmenntunar, og
3. þeim, sem óska að leggja stund á iðngreinar, sem ekki
eru kenndar á íslandi.
Varðandi fyrsta flokkinn hér aðframan skal tekiö fram að
bæði koma til greina nokkurra mánaða námskeiö og
Iengra framhaldsnám fyrir þá, er lokiö hafa sveinsprófi
eöa stundað sérhæfö störf i verksmiðjuiönaöi, svo og nám
viö listiðnaöarskóla og hliöstæðar fræðslustofnanir hins
vegar ekki tæknifræðinám. Hugsanlegt er að i Finnlandi
yrði styrkur veittur til náms i húsagerðarlist, ef ekki bær-
ust umsóknir til náms á þeim sviðum er aö framan grein-
ir. Styrkir þeir, sem I boði eru, nema I Danmörku 10.000
d.kr I Noregi um 8.000 n.kr. i Sviþjóð um 6.000 s.kr. og i
Finnlandi 6.000mörkum, og er þá miöað við styrk til heil/
skólaárs. Sé styrkur veittur til skemmri tima, breytist
styrkfjárhæðin I hlutfalli við timalengdina. Til náms I
Danmörku verða væntanlega til ráöstöfunar fjórir fullir
styrkir þrir I Finnlandi, fimm I Noregi og jafnmargir i
Sviþjóð.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komiö til
menntamálaráöuneytisins, Hverfisgötu 6,Reykjavik, fyr-
ir 20. april n.k. 1 umsókn skal m.a. skýrt frá náms- og
starfsferli og tekið fram, hvers konar nám umsækjandi
hyggst stunda, hversu lengi og við hvaöa námsstofnanir.
Fylgja skulu staðfest afrit prófskirteina og meömæli.
Umsóknareyðublöð fást I ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
18. mars 1977.
Höfum til sölu
Draumabílinn
Mercedes Benz árg. 77 2ja dyra,
sjálfskiptur, vökvastýri og fleira
lyftiduft
Royal lyftiduft er
heimsþekkt gæðavara sem reynsla
hefur sýnt að aetíð má treysta.