Vísir - 25.03.1977, Síða 24

Vísir - 25.03.1977, Síða 24
VÍSIR Föstudagur 25. mars 1977 „Ástœða til að hafa aðgót við Kötlu" — segir Páll Einarsson, jarðeðlisfrœðingur ,,Þaft htfur allt ver*ö rólegt á Kötlusvæöinu i nótt. Hins vegar er ómögulegt aö vita hvert framhaldiö veröur, þeg- ar ekki er þekkt hvaö orsakaöi skjálftana og er fyllsta ástæöa til aö hafa fyllstu aögát þarna”, sagöi Páll Einarsson jaröeölisfræöingur i samtali viö Visi i morgun. Skjálftahrinan sem varð i Mýrdalsjökli i gærmorgun er 5ú sterkasta sem verið hefur i vetur. Stærsti kippurinn mældist 4,5 stig á Richter- kvarða. Eftir hádegið dró úr skjálftunum og hefur aðeins verið óveruleg hreyfing á svæðinu frá kl. 18 i gærdag. Páll Einarsson sagði að ó- venju mikið hefi verið um jarðskjálfta á svæöinu i vetur en 60 ár eru nú liöin frá sið- asta Kötlugosi. I haust kom mikil hrina sem stóð allt fram yfir áramót. Skjálftarnir sem urðu i gær voru þó sýnu stærstir. — SJ V J Niðurstaða krufningar í dag Rannsókn heldur áfram á tildrögum dauöa konunnar sem lést aö heimili sinu i fyrrinótt. Krufning fór fram i gær og mun niöurslaöa liggja fyrir I dag. Eiginmaður hinnar látnu er enn i haldi hjá lögreglunni en i morgun hafði ekki verið kveöinn upp gæsluvarð- haldsúrskurður yfir honum. Hins vegar hefur hann komið fyrir dómara og að öllum likindum liggur það fyrir um hádegi hvort varðhaldsúr- skurður verður kveðinn upp eða ekki. begar Visir hafði samband við rannsóknarlögregluna i morgun varðist hún allra frétta af málinu en likur eru á að það skýrist nokkuð i dag þegar krufningarskýrsla liggur fyrir og frekari yfir- heyrslur hafa átt sér stað. Lenti á staur Slys varö i nótt þegar öku- maður missti stjórn á bil sin- um á Hringbraut og bfllinn lenti á staur. Fjórir voru i bílnum. Tveir munu hafa meiöst lltillega. Billinn er hins vegar talsvert skemmd- ur eftir. —EA Hljómflutningstœki og skrokkar hurfu Fariö var inn i Ibúðarhús I vesturbænum I Reykjavlk i nótt og þaöan stoliö hljóm- fiutningstækjum. Enginn var heima I húsinu þegar þetta geröist. Þá voru tveir menn teknir I nótt grunaöir um aö hafa stol- iö dilkaskrokkum á Kirkju- sandi, —EA Fullkominn tœkjabúnaður settur upp á flugbrautum á Keflayíkurflugvelli: Segir fyrir um ísingu „Þessi útbúnaöur hefur komiö aö mjög góöum notum i vetur og fyrir utan öryggiö sem hann veitir hefur þetta sparaö mikið erfiði. Ef einhvers staðar er þörf á svona veöurskynjurum á sem sveiflurnar eru mjög mikl- ar I veðurfari”, sagði Pétur Guðmundsson fiugvallarstjóri á Keflavikurflugvelli i samtali við VIsi. 1 vetur hafa verið i notkun fullkomnir veðurskynjarar á sitt hvorum enda tveggja lengstu flugbrautanna á Kefla- vikurflugvelli. Þessir skynjarar mæla hitastig i jörð og við yfir- borðiö, svo og gefa þeir upp- lýsingar um dýpt vatns á flug- brautunum. Skynjararnir sénda siðan þessar upplýsingar i tölvu i stjórnstöð slökkviliðsins sem vinnur úr þeim á svipstundu. Pétur Guðmundsson benti á að mælar Veðurstofunnar mældu hitastig um tveimur metrum fyrir ofan jörðu, en það gæti verið allt annað á yiirborði flugbrautanna. Ef vatn er á brautunum og frost yfirvofandi senda skynjarar aðvörun um það og þá er hægt að eyða vatn- inu eða bera á brautirnar áður en hálka nær að myndast. Þetta tryggir þvi aö hemlunarskilyrði eru alltaf sem best. Skynjararn- ir senda boð sin eftir simalinum en einnig er hægt að senda radi- óboð. Þessi tækni er tiltölulega ný af nálinni og sagði Pétur að við hefðum þvi tileinkað okkur hana mjög snemma. —SG Loðnubátarnir hafa gert það gott flestir I vetur en hinir minni þeirra eru núaðhætta og byrja á netum. Hér sést Helga RE, drekkhlaðinn eftir gott kast Ljósmynd VIsis Guðmundur Sigfússon. Loðnuvertíðinni lýkur að líkindum um páska Loðnubátunum er nú óðum að fækka. Þeir sem á annað borð ætla á net eru nú um það bil að skipta yfir. Sagði Andrés Finnbogason hjá Loðnunefnd i morg- un að þegar þeir bátar yrðu hættir yrðu ekki fleiri en 20 eftir á loðnu. Bjóst hann við þvi að það gerðist nú um helg- ina. Til samanburðar má geta þess að þegar flest var voru áttatiu bátar á loðnu i vetur. Veiði undanfarið hefur verið fremur dauf. Siðasta sólarhring fengu 19 bátar um þrjú þúsund tonn. Rannsóknarskip er nú við loðnuleit úti af Vestfjörðum undir stjórn Hjálmars Vil- hjálmssonar, fiskifræðings. Enn hefur skipið ekki orðið vart viö veiðanlega loönu. Ef miðað er við reynslu undanfarinna vertiða má búast við að loðnuveiði veröi hætt snemma i næsta mánuði. Eftir það fara flestir stóru nótabát- anna i hreinsun en sumarloönu- veiöarnar hefjast 15. júli. — EKG KJARASAMNINGARNIR: „Enginn stór fundur fyrr en eftir helgi" - sagði Torfi Hjartarson, sáttasemjari, í morgun „Það verður enginn stór samningafundur fyrr en eftir helgi, sennilega um miðja næstu viku” sagði Torfi Hjartarson, sáttasemj- ari, i viðtali við Visi i morgun. Torfi og sáttanefndin, sem rikisstjórnin skipaði nýverið. hafa unnið að undirbúningi' samningaviðræönanna en i sáttanefndinni eru Geir Gunnarsson, alþingismaður, Guðlaugur Þorvaldsson, há- skólarektor, Jón Þorsteinsson, lögfræðingur og Jón Skaftason, alþingismaður. Jafnframt var Jóni Sigurðssyni, hagrann- sóknastjóra, falið að starfa með samningaaðilum, sáttasemjara og sáttanefnd. —ESJ r ^ Aðalf. miðstjórnar Framsóknarfl. hefst í dag: Kemst Kristinn í framkvœmdastjórn? Kosning I framkvæmdastjórn og blaðstjórn Tlmans eru þau mál, sem hæst mun bera á aðal- fundi miöstjórnar Framsóknar- flokksins, sem hefst kl. 14 I dag að Hótei Sögu. Fundurinn stendur fram á sunnudag, en þá um kvöldið veröur afmælis- fagnaöur i tilefni af 60 ára af- mæli flokksins og Tlmans. A fundinum i dag veröa flutt- ar skýrslur um stjórnmál og flokksmál, og er siðan gert ráð fyrir umræðum fram á kvöld, en nefndarstörfum daginn eftir fram að kosningum, sem hef jast eiga kl. 16 á laugardag Margir velta þvi fyrir sér, hvort Kristinn Finnbogason og helstu stuðningsmenn hans muni fylgja sigrinum á aðal- fundi Fulltrúaráðs framsóknar- félaganna I Reykjavik eftir á miðstjórnarfundinum við kosningu i framkvæmdastjórn og blaðstjórn, en á siðasta miðstjórnarfundi náði Kristinn ekki kjöri i framkvæmdastjórn- ina. —ESJ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.