Vísir - 30.03.1977, Page 3

Vísir - 30.03.1977, Page 3
3 vusm Miðvikudagur 30. mars 1977. VARMADÆLUR NÝTA AFGANGSVATN TIL HÚSHITUNAR: Þurfa fimm simwm minni raforku en bein rafhitun „Það liggur nú nokkurn veginn ljóst fyrir, að notk- unarmöguleikar varma- dælna hér á landi eru mjög viðtækir, jafnvel meiri en vera myndi i öðrum lönd- um”, að sögn Sigurðar B. Magnússonar, verkfræðings. Varmadæla er vél sem framleiðir hitaorku og hún er hagkvæm vegna þess, að hitaorkan, sem hún framleið- ir, er ávallt mun meiri en sú orka sem vélin sjálf þarf til framleiðslunnar. Sigurður segir i grein, sem hann ritar i Fréttabréf Verk- fræðingafélagsins, að hægt væri að nýta varmadæluna til ýmissa hluta, m.a. á sviði húsahitunar, þ.e. með nýt- ingu lághitavatns, sem væri 15-50 gráður. ,,Ef t.d. fyrir hendi væri 35—40 gráðu heitt vatn, er hægt með varmadælu og notkun raforku að framleiða 80 gráðu heitt vatn með fimm sinnum minni raforkunotkun en myndi þurfa, ef bein raf- hitun væri viðhöfð”, segir hann. —esj Hagnaður 2.5 milljónir Hagnaður Sjómannafélags Eyjafjarðar var á slðasta ári 2,5 milljónir króna og bókfærðar eignir félagsins eru nú orðnar 10.5 milljónir. Var það sam- þykkt á aðalfundi félagsins sem haldinn var fyrir skömmu aö hækka árgjöld félagsmanna úr átta þúsundum i tólf þúsund. Mikið starf var hjá félaginu á siðasta ári. Snerist það hvað helst í kring um gerð nýrra kjarasamninga. A aðalfundinum var gerð ályktun um skattamál þar sem mótmælt er þvi ákvæði nýju skattalaganna að skerða sjó- mannaafsláttinn. Er heitiö á þingmenn að skeröa ekki þenn- an frádrátt, en auka hann I þess stað. Formaður Sjómannafélags Eyfirðinga er Guðjón Jónsson. — EKG Nefndin um „báknið burt' Árni Vilhjálmsson er formaður Nefndin, sem kanna á, hvort aðild rikisins aö atvinnustarf- semi I landinu i samkeppni við einkaaðila sé æskileg, hefur verið skipuð. Eins og Visir skýrði frá i vikunni, er nefndarskipun þessi á vegum fjármálaráöu- neytisins. Arni Vilhjálmsson, prófessor, hefur veriö skipað- ur formaöur, en aörir i nefnd- inni eru: Gisli Blöndal, hag- sýslustjóri, Guðriður Elias- dóttir, formaöur Verka- kvennafélagsins Framtlðar- innar, Ingi Tryggvason, alþingismaöur, Jón Amason, alþingism aður, Ólafur Sverrisson, kaupfélagsstjóri, og Viglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri. ESJ Endurskoðun bókhalds Vœngja h.f. lokið: Reikningarnir óritaðir án Rekstrarafkoma Vængja á slöasta ári er að sögn forráðamanna félagsins tiltölulega betri á árinu 1976 en áriö áður, þrátt fyrir rekstrarstöðvanir um nærri tveggja mánaða skeiö. sérstakra at- hugasemda Stjórn Vængja hefur boðaö til aðalfundar i félaginu 22. april næst- komandi, en i framhaldi af honum er fyrirhugað að halda fund með umboðs- mönnum félagsins úti á landi. Endurskoðun á bók- haldi félagsins fyrir ár- ið 1976 er lokið, en end- urskoðunina fram- kvæmdi Gunnar R. Magnússon, löggiltur endurskoðandi. I greinargerðinni segir endur- skoðandinn m.a., að hann hafi áritað ársreikninga án sér- stakra athugasemda. Hiö sama hafa hinir félagskjörnu endur- skoðendur gert. „Bókhaldið er fært samkvæmt viðurkenndum bókhaldsreglum og endur- skoðun unnin samkvæmt venju um endurskoðun. Þaö er mitt álit, að reikningarnir gefi glögga mynd af rekstri ársins og efnahag i árslok”, segir i greinagerö endurskoðandans. Ifrétt frá Vængum um máliö segir m.a., að rekstrarafkoma félagsins hafi verið tiltölulega betri á árinu 1976 en árið áöur, þrátt fyrir rekstrarstöövanir um nærri tveggja mánaða skeið á siðasta ári, og efnahagsstaðan sé góð. Þá segir einnig, að endur- skoðunin hafi leitt I ljós, að til- hæfulaust væri með öllu, aö eitt- hvað vantaöi i sjóði félagsins, og enginn stjórnarmaður skuldaði félaginu, eins og fram heföi veriö haldið. Þá segir, að stjórn Vængja hafi samþykkt einróma „að stefna ábyrgðarmanni Dag- blaðsins vegna greinar á forsfðu sl. föstudag fyrir meið- yröi, atvinnuróg, til ómerkingar ummæla, til greiðslu skaðabóta og refsingar. Formaður félags- ins hefur persónulega stefnt Dagblaðinu tvisvar áður vegna slikra rógskrifa”. Þá segir einnig, að Vængir hafi ákveðið að hætta að flytja Dagblaðið með flugvélum félagsins „vegna langvarandi vanskila blaðsins á flutnings- gjöldum.”. ESJ Með Twin Otter vélum slnum hafa Vængir haldið uppi reglubundn- um áætlunarferðum til fjölmargra staða úti um land, sem annars hefðu ekki notið reglubundinna flugsamgangna. rÞJÓFURINN í PARADÍS" ÚR BANNI: I Alþingismannadeild Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna: Engin ákvörðun varðandi lestur sögunnar í bráð Lögbann það, sem sett var á lestur sögunnar „Þjdfur i Paradis” eftir Indriða G. Þorsteinsson i útvarpinu fyrir nálægt tveimur árum, var fellt úr gildi i borgardómi Reykja- vlkur i gær. Sigriður Jónsdóttir og börn hennar fengu lögbannið sett á lesturinn eftir fyrsta útvarps- lesturinn. Höfðuðu þau siðan mál til staðfestingar á lögbann- inu, en niðurstaða dómsins varö sú að Indriði og Rikisútvarpiö var sýknaö af öllum kröfum og lögbannið fellt úr gildi. Visir bar það undir Hjört Pálsson dagskrárstjóra lít- varpsins hvort þetta yrði til þess aö sagan veröi nú flutt I útvarp- inu. Hann sagði að þar sem þetta væri eingöngu undirrétt- arúrskurður yröi ekki tekin um þaö ákvöröun fyrr en ljóst væri hvort úrskurðinum veröur á- frýjað til hæstaréttar eöa ekki. —SJ Iðgjöldin nema aðeins fjórðungi lífeyrisins Iðgjöld, sem alþingismenn greiða i Lifeyrissjóð starfs- manna rikisins, duga einungis fyrir innan við einum fjórða hluta þeirrar fjárhæðar, sem llfeyrisgreiöslur úr sjóðnum til fyrrverandi alþingismanna og maka þeirra nemur. Þrjá fjóröu hluta lifeyrisins greiöir þvi rikið, til viðbótar við hlut sinn i iðgjöldunum til sjóös- ins. 1 marshefti Félagstiðinda Starfsmannafélags rikisstofn- ana segir, að tölur fyrir árið 1975 sýni, að alþingismanna- deild Llfeyrissjóðsins hafigreitt i lifeyri þaö árið 40 milljónir króna, en að greidd iðgjöld I þá deild hafi það ár einungis veriö um 9,5 miljónir króna, eða tæp- lega 1/4 hluti lifeyrisgreiðsl- anna. Hjá Lifeyrissjóöi starfs- manna rikisins i heild var staðan hins vegar þannig, aö iðgjöldin námu hærri upphæö en greiddur lifeyrir, enda mun það venjan. —ESJ.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.