Vísir - 30.04.1977, Blaðsíða 19

Vísir - 30.04.1977, Blaðsíða 19
Fallega húsið með bruna- .1 *i embættis- og athafnamenn, sem unnu landi sinu mikiö gagn — meö starfi sinu. En aö ytra hætti má hinsveg- ar segja, aö i seinni tiö sé saga þess næsta raunaleg og þaö hafi mátt muna sinn fifil fegri og blómlegri hag. Fyrir all löngu varö þaö fyrir þeirri þungbæru reynslu, að alveg upp viö suöur- gafl þess, reis steinsteypt fjögra hæða hús og siðan hefur þaö verið i skugga þess i staö þess að baöast i ljósi og yl sólar á suöurhimni eins og i gamla daga þegar viöur og grööursæll garður blasti við úr gluggunum. Þannig liðu árin i þögulum skugga hins stóra húss, sem gnæfði með sinum ókleifa, óbil- gjarna múr svo óhuggulega nærri. En við þvi var ekkert að gera. Honum varð ekki bifaö. Við svo búið hlaut að standa. En sjaldan er ein báran stök. Þaö á ósjaldan við, bæöi i lifi mann- anna og sögu húsanna. I húsinu kviknaöi eldur. Hann brenndi það aö visu ekki til kaldra kola. En hann sveið þilj- ur þess og braut glugga þess, svo að það var ekki ibúöarhæft nema með mikilli viðgerð. Hún hefur ekki enn farið fram, hvað sem siðar verður. Raunar hefur það heyrst, að nú standi til að taka húsið upp i heilu lagi — ekkisant til að flytja það i Ar- bæjar — húsakirkjugarð eins og einhverjum kann að detta fyrst i hug, heldur aðeins yfir götuna á grunn „Hússtjórnar”, sem bar nr. 28 við Þingholtsstræti, en það mikla hús brann til grunna á tveimur klukkusturidum á að- fangadagskvöld árið 1957. VISIR Laugardagur 30. april 1977 y Ingibjörg Jónsdóttir skrifar: Ekki verður sagt aö frammi- staða Grænmetisverslunar landbúnaðarins vitni um ágæti einokunarrekstrar rikisins. 1 allan vetur höfum við kartöflu- ætur mátt sætta okkur viö að fleygja helmingi kartaflanna sem við kaupum. Og til þess aö bæta gráu ofan á svart er hinn helminurinn tæpast ætur heldur. Nú gæti maður haldið að þetta væri eitthvað sem ekki væri hægt að ráða við, þvi það virðist engu breyta hvort uppskeran að hausti er góð eða slæm. En hvernig stendur þá á þvi aö fúskarar sem setja niður kartöflur i bakgarðinum hjá sér og geyma þær siöan allan vetur- inn i pokum i bilskúrnum, án þess að stilla af hita- og raka- stigið eða hvað það nú er sem þarf að hafa i huga viö geymslu kartaflna, geta nú að vori ennþá gætt sér á kartöflum sem eru al- veg óskemmdar og bragö- góðar? Eru fúskarar kannski betur til þess fallnir að rækta og geyma kartöflur en sérfræðingarnir? Þaö er kominn timi til að stjórn- endur þessa fyrirtækis taki tillit til samfelldra kvartana neyt- enda undanfarin ár og reyni að bæta þjónustuna. Neytendur eiga kröfu á þvi. Óþarfi að tala um efnalaust fólk Ibúi i Bjarnaborg hringdi: Haraldur Blöndal skrifar grein i Visi á þriöjudag 26. april sem ber yfirskriftina „Rifum gömlu húsin og byggjum ný i staðinn”. i greininni talar hann meðal annars um Bjarnaborg og segir þá „og það er efnalaust fólk sem þar býr”. Mér finnst aö Haraldur hefði getað látið þaö vera að tala um efnalaust fólk. Ég flutti i Bjarnaborg fráskil- in með þrjú börn. En nú er ég gift aftur og hjá okkur stendur til aö kaupa eigin ibúð. Þrettán ára gamall sonur minn rak aug- un i þessa klausu og varð honum illa viö. Þetta getur verið við- kvæmt og þvi vildi ég gera at- hugasemd við þetta orð, sem mér finnst persónulega að hefði mátt sleppa. Lesandi skiifar: I bók sinni: — Þáttum og myndum úr sögu Reykjavikur 1786-1936, segir dr. Jón Helga- son biskup, að vestanmegin Þingholtsstrætis hafi veriö óbyggt fram undir árið 1880. En um það leyti byggði Benedikt Gröndal timburhús, sem hann siðan seldi Jóni Jenssyni árið 1887. Þar bjó Jón þar til hann flutti i hús, sem hafði reisa látiö all miklu sunnar i Þingholts- stræti. Fékk það númeriö 27. Eftir daga Jóns eignuðust þetta hús og bjuggu þar tveir landskunnir menn, þeir Hall- grimur Kristinsson fyrsti for- stjóri S.Í.S. og Daviö Scheving Thorsteinsson, fyrrum héraðs- læknir á tsafirði. Að öðru leyti skal ibúa- og eigenda-saga þess ekki rakin. En þetta brot úr henni sýnir, aö það hefur hýst Nauðungaruppboð annað og siðasta á hluta i Holtsgötu 19, þingl. eign Huldu Magnúsdóttur o.fl. fer fram á eigninni sjálfri miðvikudag 4. mai 1977 kl. 10.30. Borgarfógetaembættið IReykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 5.7. og 9. tölublaði Lögbirtingablaösins 1977 á eigninni Háakinn 5, rishæð, Hafnarfirði þinglesin eign Bjarna Jóhannssonar, fer fram eftir kröfu Útvegs- banka tslands og Innheimtu Hafnarfjarðarbæjar, á eign- inni sjálfri þriöjudaginn 3. mai 1977 kl. 3.00. e.h. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 93., 95.og 96. tbl. Lögbirtingablaðs 1976 á Teigagerði 13, þingl. eign Sigvalda Bessasonar fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik og Veðdeildar Landsbankans á eigninni sjálfri þriðjudag 3. mai 1977 kl. 16.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Ég óska að gerast áskrifandi Nauðungaruppboð sem auglýst var 193., 95. og 96 tbl. Lögbirtingablaðs 1976 á Hðlmslandi H-15 v/Suðurlandsbraut, þingl. eign Helgu Jensen fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavik á eigninni sjálfri þriðjudag 3. mai 1977 kl. 14.30. Borgarfógtaembættið i Reykjavík. Nafn Heimili Sveitafélag

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.