Vísir - 30.04.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 30.04.1977, Blaðsíða 3
VISIR Laugardagur 30. april 1977 3 Guðrún Á. sýnir 25-30 ketti á Loftleiðum Guðrún A. Simonar mun halda kattasýningu i Kristalsal Hótel Loftleiöa á sunnudaginn kemur 1. mai kl. 2-6. Þetta verð- ur fyrsta kattasýningin á Is- landi. Hún verður opin aöeins þennan eina dag. Sýndir verða siamskettir i tveimur litum, afbrigði af persneskum ketti, einnig þrilit- ir, tvilitir og einlitir kettir. Alls veröa sýndir milli 25 og 30 kett- ir. Til skemmtunar veröur söngur; Guðrún A. Simonar og Þuriður Pálsdóttir syngja kattadúettinn eftir Rossini, þá mun Guðrún A. Simonar syngja lag eftir Skúla Halldórsson við texta eftir Guðjón Bjarna Guö- laugsson. Þetta lag var samið sérstaklega fyrir siamsköttinn Kikki, sem er 15 ára. Lagið heit- ir „Kötturinn Kikki”, Kikki verður á sýningunni ásamt fjöl- skyldu sinni, sem sé frú og börn- um og barnabömum. Þá munu nokkrir söngfélagar Guðrúnar syngja létt lög. —ESJ lýsingar um stofnanir og fyrir- tæki um allt land, og sagði Jóhann, að efni bókarinnar væri alltaf að aukast. Lögð er áhersla á að allar upp- lýsingar í árbókinni séu sem nýj- astar, en að meðaltali þarf að breyta um 25% af efninu á ári. Nú er í árbókinni kafli á ensku, og er hún notuð af sendiráöum og ræöismönnum Islands erlendis og af erlendum verslunarráðum. 20 fastráðnir starfsmenn Jóhann sagði, aö fastráðnir starfsmenn væru um 20 en auk þeirra ynnu nokkrir tugir manna ýmis störf fyrir sérritin. Starfseminni er skipt niður I fjögur meginsviö: stjórnun, sölu, ritstjórn og framleiöslu. Skrif- stofustjórnun annast Olga Kristjánsdóttir og Kristln Orra- dóttir, en Jóhanr. Briem er fram- kvæmdastjóri. „Viö leggjum mikla áherslu á að starfsfólkið geti starfað sjálf- stætt aö verkefnum sinum, en jafnframt f mikilli samvinnu viö aðra starfsmenn”, sagði Jóhann. „Við teljum mikilvægt að starfs- fólkið skipti um störf til þess að það kynnist af eigin raun sem flestum störfum innan fyrirtækis- ins. Þannig verður hópurinn sam- hæfðari, og einstakir starfsmenn eiga auðveldara með að ganga i önnur störf ef á þarf aö halda. Jafnframt erum við alltaf aö reyna að bæta skipulagiö hjá okk- ur og taka upp nýjungar i rekstr- inum”. Nýja húsnæðiðer mjög vistlegt, og sagði Jóhann, að lögð hefði verið mikil áhersla á að búa sem best aö starfsfólkinu með vönduð- um innréttingum og vistlegri aö- stöðu. —ESJ. 1. maí fulltrúaráðsins, INSÍ og BSRB Hörð verkfalls- átök framundan Fulltrúaráð verkalýðsfélag- anna i Reykjavik, Bandalag starfsnianna rikis og bæja, Iðn- nemasamband tslands og Far- manna og fiskimannasamband islands efna sameiginlega til kröfugöngu og útifundar í Reykjavik á baráttudegi verka- lýðsins 1. mai, sem er á sunau- daginn. 1. mai-nefnd fulltrúaráðsins hefur sent frá sér ávarp, sem meirihluti nefndarinnar stendur að— þ.e. aðrir nefndarmenn en Hilmar Guðlaugsson, forystu- maður múrara. Iðnnemasam- bandið stendur einnig að ávarpinu, og BSRB hefur lýst yfir stuðningi við „öll megin- atriði” þess. Farmanna- og fiskimannasambandið virðist hins vegar ekki standa að ávarpinu, þótt það taki þátt i kröfugöngunni og útifundinum. Kröfuganga kl. 14 Kröfugangan mun halda frá Hlemmtorgi niður Laugaveg kl. 14, en á Lækjartorgi verður úti- fundur. Þar flytja þau Jóhanna Sigurðardóttir, VR,og Kolbeinn Friðbjarnarson, Vöku á Siglu- firði ræður, en ávörp flytja Sveinn Ingvarsson fyrir Iðn- nem asambandið, örlygur Geirsson fyrir BSRB og Ingólfur Stefánsson fyrir FFSt. Jón Snorri Þorleifsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavikur, verður fundarstjóri. Meginkröfurnar Aðalkröfurnar, sem bornar verða i kröfugöngunni, eru: 100 þúsund króna lágmarkslaun, fullar visitölubætur og launa- jöfnun. 1 ávarpi 1. mainefndarinnar er þess krafistaö rikisstjórnin viki. Þá er sagt, að augljóst sé að verkalýðshreyfingin verði að búa sig undir hörð verkfallsátök og geti hún unnið sigur i þeim átökum efhver einasti launþegi sé virkur. Vildu helst ekki rjúfa samstarfið” t dreifib^éfi frá Rauðri verka- lýðseiningu kemur fram, að hún stendur að útifundinum á Lækjartorgi vegna þeirrar „ákvörðunar Alþýðubandalags- ins og Alþýðuflokksins að efna tilaðgerða 1. mai á þann hátt að ihaldið getur ekki verið með”. Þar segir að forystumenn þessara flokka hafi helst ekki viljað „rjúfa samstarfið við ihaldið” en þessi ákvörðun sé „sigur þeirrar hreyfingar, sem barðist gegn ihaldinu á ASI- þinginu”. —ESJ Teikni- mynd í Vísisbíói Kvikmyndin sem sýnd verð- ur fyrir sölu- og blaðburðar- börn Visis i Laugarásbiói i dag heitir „Dýrin i sveitinni”. Þetta er bráðskem mtileg teiknimynd sem hæfir öllum aldursflokkum. Svningin hefst kl. 1. íþrótt fyrir knapa og hest Hestamenn halda nú um helg- ina kynningarmót, þar sem keppt er i fyrsta sinn samkvæmt keppnisreglum F.E.I.F., öðru nafni Evrópusambands eigenda islenskra hesta. Mótið fer fram á keppnissvæði Fáks á Viðivöllum. Veröur keppt i tölti, fjórgang og fimmgang á hinum nýja hringvelli Fáks, og i skeiði á stóra hringnum, en hlýðnikeppni verður i gerði við hesthúsin. Forkeppnin hófst i morgun kl. 10 og stendur til kl. 6 síðdegis. t fyrramálið hefst hún aftur kl. 10, en eftir hádegið hefst mótið opin- berlega með forkeppni i 250 metra skeiði og hópreið kepp- enda. Knapinn eins mikilvæg- ur og hesturinn Þetta mót er að þvi leyti sér- stakt að það er iþróttamót þar sem ekki reynir minna á hæfni knapans en hestsins. Verður met- ið hvernig knapinn ber sig til jafns við fótalipurð hestsins. Geysilegur áhugi er fyrir mót- inu, miklu meiri en nekkurnóraði fyrir og hefur dagskráin sprengt af sér öll upphafleg timabönd. Koma keppendur viða að innan- lands og utan, frá Austurriki, Þýskalandi, Belgiu og af öllumr landshornum. Þeir eru á öllum aldri, sá yngsti 11 ára og sá-elsti um sextugt. Margir þekktustu reiömenn landsins og ekki ófræg- ari hestar taka þátt í mótinu, en 77 hestar eru skráöir til keppni. —SJ Sumir keppenda eru langt að komnir og voru þeir aö æfa sig fyrir keppnina þegar Jens tók þessar myndir í gær. Fremst á myndinni eru þau Lena M. Rist og Jóhannes Hoyos frá Austurríki og Gfsli B. Björnsson, en hann er í stjórn mótsins. MIKIÐ UM NUMERAKLIPPINGAR Aðalskoðun bifreiða i lög- sagnarumdæmi Reykjavlkur hefur gengið vel að sögn Guðna Karlssonar, forstöðumanns bif- reiðaeftirlits rikisins. Skoðunin var komin að bifreiðinni R 24000 i gær, en töluvert margir hafa ekki látið skoða bila sina á rétt- um tima. t fyrrakvöld voru klippt númer af 29 bifreiðum og 35 bifreiðar fengu að fara á verkstæði. Að sögn Guðna á aö herða aðgerðirgegn óskoðuðum bifreiðum á næstunni. —IÞH I. maí kaffí Svalanna í Blómasal og Víkingasal Hótel Loftleiða Opnað kl. 14:30. Skyndihappdrætti: Margt góðra vinninga, meðal annars: Glæsilegt hlaðborð. rafmagnsteppi — myndavél — leikföng og vöruúttektir. Mikið um að vera.á hótelinu á morgun. _ Allur ágóði rennur til liknarmála. Félag fyrrverandi og núverandi flugfreyja.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.