Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 1

Tíminn - 09.07.1968, Blaðsíða 1
Reyna enn að komast fyrir upptök taugaveiki- bróður: Leita nú í rottum og mávum! KJ-Reykjavík, mánudag. — Við erum vongóðir um að veikin hafi ekki náð meiri út- breiðslu, sagði Jóhann Þorkels- son héraðslæknir á Akureyri er Tíminn leitaði frétta hjá honum í dag, af taugaveikibróðurnum, sem kom upp í Eyjafirði fyrir skömmu. — Við höldum þó að sjálfsögðu áfram að reyna að komast fyrir um upptök veikinn- ar, og munum m.a. drepa máva og rottur, og senda til rannsókn- ar sagði Jóliann. Héraðslæknirinn sagði að sjúkl ingarnir fjórtán sem tekið höfðu veikina, væru nú orðnir frískir. Vistmenn á elliheimilinu Skjaldar vík hafa haft einkenni taugaveiki bróður, og voru send sýnisihorn frá fólkinu til ræktunar að Keld- um. Þótt svo fari, sagði héraðslækn- irinn, að sýnishornin frá Skjaldar vík reynist jákvæð, þá vitum við hvaðan yeikin hefur borizt þang- að. í Skjaldarvík er öllu hrein- læti nú hagað eins og ef tauga- veikisbróðir hafi komið þar upp, en úrskurður um sýnishornin sem send voru þaðan kemur varla fyrr en eftir miðja vikuna. Hvað varðar útbreiðslu veikinn ar til Skáldsstaða innst í Eyja- firði, þá er talið lang sennileg- ast, að drengur þar á bænum hafi smitazt í sundlaug í Eyjafirði og borið veikina þaðan með sér á bæinn. Hröpuðu 200 metra - eru lítt meiddir Laxveiöi í sjó fyrir austan: Laxveiðinet gerð upptæk í f jöru við Þorlákshöfn OÓ-Reykjavík, mánudag. Veiðieftirlitsmaður tók í sína vörzlu s. I. föstudag nokkur net í fjörunni skammt frá Þorlákshöfn. Þótt net þessi séu kennd viö allt annað en laxveiði, vildi svo til, aö í þessum netum var talsvert af laxi, en eins og kunnugt er banna landslög alla laxveiði úr sjó. Tveir menn í Þorlákshöfn viðurkenndu strax að hafa átt netin, og töldu að eftirlits- maðurinn hefði ekki leyfi til að taka þau með sér. Ne-tin, sem tekin vor-u, lá'gu í fjörunni. Eru þau lögð á há- fjöru, og þegar fellur að veiða þau fiskinn, seom gengur næst landi, og þegar fjarar út aftur Skreið á hafnarbakkanum í Rvik. (Tímamynd-<rE). Sending fyrir 1,8 milljón til Biafra EKH-Reykjavík, mánudag. ★ Sambandsstjórnin í Nígeríu gaf í dag út þá yfirlýsingu, að hún gæfi leyfi til þess að Rauði krossinn og önnur frjáls niann liðarsamtök flyttu matvæli, lyf og hjálpartæki yfir landamæri Sambandslýðveldisins til neyð- arsvæðanna í Biafra þar sem tugir þúsunda svelta. Yfirlýs- ing þessi kom fram í tveggja síðna auglýsingu í New York Times. ★ S. 1. laugardag fór um 71 tonn af skreið og undan- rennudufti ætluð Biafrabúum með Skógafossi áleiðis til Hamborgar og Antwerpen, og er andvirði farmsins rúmlega 1.8. milljón ísl. króna. Rauði Framhald á bls. 15. fellur undan netunum og er ebki annað að gera en ganiga að þeim í fjörunni og hirða fiskinn. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem skerst í odda milli manna f Þorlákshöfn og veiðieftirl i tsm ann a, vegna laxveiða úr sjó. Meðal netanna, sem tekin voru í fjörunmi, voru nokkur silungs- net, til að villa um fyrir eftirlits mönni'm, en silungsveiðar úr sjó eru ekki bannaðar. Þá eru iðu- lega ýsunet lögð á þennan hátt, en þau m-unu vera einkar hentug til að veiða lax úr sjó, og hvað er eðllilegra en að leggja ýsunet við strendur landsins. Laxveiðimenn o>g ebki síður þeir, sem rækta lax, hafa miklar áhyggjur vegna sívaxandi veiðl þjófnaða úr sjó. Menn hafa ver ið staðnir að slíkum veíknaði inni á Sundum og víðar. í fyrra þver girtu bátar netum fyrir ós Lár- vatns á Snæfellsnesi, en þar er Framhald á bls. 14. SJÁVARHITINN MEÐ LÆGSTA MÓTI Á ÞESSARI ÖLD: Áta og síld mánuði síðar á ferðinni en í meðalári AA-Höfn-Hornafirði. mánudag. Tveir bandarískir hermenn j fóru rnikla háskaferð fram af j brún inni á Almannaskarð' og j kastaðist bíll sem þeir vuru í I fram af Klettabeltinu og lenti i j snarbröttum skriðum þar fyrir j neðan. Munu mennirnir og eitt- hvað af öilnum hafa fallið um 200 metra veg. flvorugur mann- anna er mikið slasaður. Það var á laugardagsmorgni s.l. sem mennirnir óku fram af brún inni. Sennilega naía beir verið á leið til Hafnar. Bíllinn sem var lítill vörubíll, með húsi fyrir tvo, en óyfirbyggður að öðru leyti. er í pörtum um aila t'jallshlíðina Vélin er upp undir klettabelti. yfírbyggingin neðarlega í skrið unum og grindin niðri undir grasi. Skilui enginn sem skoðað hefur aðstæður og séð hvernig bíll inn er íarinn að mennirnir sem í honum voru skyldu hafa komizt lífs af. Framhald á bls. 14. OÓ-Reykjavík, mánudag. Sjórinn norður og austur af íslandi er nú mun kaldari en í meðalári og lætur nærri að sumarkoman sé mánuði síðar á ferðinni á sjónum, en ella sé miðað við hitastig sjávar og síldargöngur. Mun þetta vera eitthvert kaldasta vor og sumr.r sem komið hefur á íslandi og hafinu norður og austur af land- inu á þessari öld. Þetta kom fram á hinum árlega fundi, sem íslenzkir, norskir og sovézkir fiskifræðingar halda með sér. í ár var fundurinn haldinn á Seyðis firði dagana 5. og G. júli. Á fund inum voru tekin sainan gögn, sem sýndu ástand sjávar, átnskil- yrði og dreiíingu síldar í Norð- urhafi á tímabilinu maí—júní 1968. Helztu niðurstöður fundar fiskifræðinganna voru sem hér segir: I. ísbrúnin í Norðurhafi var i vor austar og sunnar en oftast var Jan Mayen um.lukt ísi um áður, a.m.k. á þossari öld. Þannig miðbik júní og um hinn mikla hafís við íslandsstrendur þarf efeki að fjölyrða á þessum vetit- vangl. Samfara miklum hafís var sjávarhiti í Norðurhafi öllu, á þessu vori, með lsegsta móti. A það jafnt við um hlýsæinn í hafinu austanverðu og kalda sjó- inn í því vestanverðu. Fyrir Norð Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.