Tíminn - 08.09.1968, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.09.1968, Blaðsíða 5
5UNNUDAGUR 8. september 1968. TIMINN Gúmmívinnustofan h.f. Skipholti 35 — Símar 31055 og 30688 Maraþonplata The Beatles 14 lög meö Cliff Richard John Lénnon syngur „Revolu- tion' á hinni nýútkomnu plötu The Beatles. Þátturinn í dag er að þessu sinni helgaður The Beatles og Cliff Richard. Umræðuefnið er tvær hljómplötur með þessum viðurkenndu listamönnum pop- músíkurinnar. Báðar eru þær gefnar út á vegum hinnar vold ugu brezku hljómplötusam- steypu E.M.I., sem hljómplötu- deild Fálkans hefur söluumboð fyrir á íslandi. „Hey Jude“ er titillagið á hinni nýútkomnu plötu Beatl- es. Þetta er sannkallað mara- þonlag, hljómar í 7 mínútur og fimm sekúndur. Aðalsóló- istinn er Paul MacCartney, en það tekur hann ekki nema c.a. helming langsins að flytja text ann, seinnihlutinn er raulaður. Paul sleppur að venju vel frá sínu hlutverki. í „Hey Jude‘ hafa The Beatles hvorki meira né minna en 40 manna að- stoðarhljómsveit, en hvernig sem því víkur við, finnst mér þessir kappar hreinlega týnast í undirleiknum. Lagið sjálft er Paul Mac Cartney syngur mara þonlagið „Hey Jude". frekar rólegt og auðheyrilega eitt af þeim, sem verður að hlusta á oft, áður en það fær ítök í hiustandanum. Lagið hinum megin, „Itevolu tion“ er afturá móti auðmelt og grípandi, líklegra til vin- sælda. Undirleikurinn gef- ur því all sérkennilegan blæ. Þá er flutningur John Lenn- ons hreint prýðis góður. Það þarf vart að taka það fram, að bæði lögin og textarnir eru verk Lennons og MacCartney. Þetta nýjasta framlag Beatles á hljómplötumarkaðinum var kynnt í útvarpinu í gær í þættinum „Með á nótunum". Fyrir þá, sem samt sem áður hafa ekki enn heyrt plötuna, er rétt að geta þess, að þátt- urinn verður að venju endur- tekinn kl. 11,30 f fyrramálið (mánudag). „Congratulation“ var sann- kölluð vítamínsprauta á hinar rótgrónu en kannski rykföllnu vinsældir Cliff Richards. Þessu var auðvitað fylgt fast eftir og kappanum smellt á kvik- mynd með hraði. Þó er langt frá því, að það sé Cliff ókunn- ur heimur, en nokkuð er orðið langt síðan hann sást síðast á hvíta tjaldinu. Að sjálfsögðu syngur Cliff í þesari mynd, en hún heitir TWO A PENNY. L.P. plata er komin á mark- aðinn með þessum lögum, en þau eru 9 talsins, þar af eru 3 „Instrumental". Síðan er fimm lögum bætt við í kaup- bæti, þannig að alls eru 41 lög á þessari hljómplötu, sem ber sama heiti og kvikmynd- in „Two a penny.“ Það vakti athygli mína, að þrjú af lögunum eru eftir Cliff sjálfan, þar á meðal titillagið „Two a penny“ og textinn einnig. Þetta er hratt og bráð- skemmtilegt lag, sem nær fljótt tökum á manni. I öll- um lögunum er undirleikurinn áberandi vandaður, fjölbreytt ur og kraftmikill eða þýður og mildur eftir því, sem við á. Blásarar eru í aðalhlutverkun- um, en Shadows koma hér hvergi við sögu. Vegna þess hve hér er um mörg lög að ræða verð ég stutt orður um hvert þeirra. Næsta lag er með all tómantískum blæ, „111 love you forever to- day“ og er einnig eftir. Ric- hard. Hér nýtur hann sín eink ar vel, en í „Questions" er flutningur hans frábær, auð- heyrilega sungið af mikilli til- finningu. Cliff er höfundur lagsins, sem er með þeim beztu af þessum lögum úr kvikmynd inni. í „Long is the night“ fær hann hvild, því nú er hljóm- sveitin eini flytjandinn, en snjall trompetleikur er leið- andi í gegnum allt lagið, sem er ákaflega milt og fallegt. Við höldum áfram í sömu stemningu í „Lonely Girl“, en textinn við þetta fallega lag gerði Cliff sjálfur. Útsetning- in er sérstaklega athyglisverð og nú hafa blásararnir orðið að vikja fyrir fiðlunum. Næsta lag, ,And me“, er ákaflega svipað að gæðum, en ég myndi segja, að Cliff takist hér bet- ur upp í söngnum, en útsetn- ingin er einfaldari. Daybreak“ er all drunga- legt „instrumental" stef, en um leið forvitnilegt og maður kemst ekki hjá því að hlusta á það aftur. Allir kannast við „Twist and shout“, en það var upphaflega flutt af The Beatles, en sá flutningur verður að flokkast undir bernskubrek, sérstaklega eftir að maður hefur heyrt Cliff Richard flytja það, en hann gerir laginu mjög góð skil. En það, sem gefur laginu fyrst og fremst aukið gildi, eða öllu heldur nýtt líf, er frábær útsetning og kraftmik- ill og vandaður flutningur hlj ómsveitarinnar. „Celeste" er lokalagið úr kvikmyndinni „Two a penny“. Það er ekki sungið (instru- mental), en því meira reynir á hljómsveitina og gegnir hún sínu hlutverki með mikilli prýði. Lagið sjálft finnst mér alltaf betra og betra eftir því sem ég heyri það oftar. Þá er komið að viðaukan- um, en það eru fimrn lög. Fyrsta lagið í þeirra hópi er „Wake up, wake up“ og stend- ur fyllilega undir nafninu. Cliff skilar sínu mjög þoMca- lega. „Cloudy" hefur ekkert sérstakt til að bera, einföld lft- il melódía, sem fer innum ann- að eyrað og út um hitt. „Red rubber ball“ er á allan hátt mun áheyrilegra. „Close to Kathy“ — þetta gamalkunna og fallega lag stendur alltaf fyrir sínu. Cliff gerir því mjög þokkaleg skil. „Rattler" er síðasta lagið á þessari nýju L.P. hljómplötu Cliff Richard. Þetta er ekkert framúrskarandi lag, en útsetn- ingin og allur flutningur gera lagið virkilega athyglisvert. Bencdikt Viggósson. (Plötuumslagið) Myndin sýnir plötuumslag hinnar nýju L. P. Cliff Richard. -jlr JP-innréttlngar frá Jönt' Péturssynl, húsgagnaframleiffanda — aupjýstar 1 sjónvarpi. Stflhrelnat) sterkar og val ura viSartegundir og harCpIast- fram- leiBir einnig fataskápa. A5 aflokinni viótækri könnun teljum viö, aö staölaöar henti f flestar 2—5 herbergja (búöir. eins og- þær eru byggöar nú. Kerfi okkar er þannig gert, aö oftast raá án aukakostnaöar, staöfæra innréttinguna allar (búöir og hús. Allf þefíá it Seljum.staölaöar eldhús- innréttingar, þaö er fram- leiöum eldhúsTnnréttingu og seljura meö ðllum raftækjum og vaski. Verö kr. 61-OOOJÍO - kr. 08.500,00 ogkr. 73 000,00. ★ Innifallö f veríinu er eid- húsinnrétting, 5 cub/f. ís- skápur, eldasamstæöa meö tveim ofnum, grillofnl og bakarofni, lofthreinsari meö kolfilter, sTnlo - a - raatic uppþvottavél og vaskur, enn- fremur söluskattur- ie Þér getiö íaliö um inn- lenda framleiöslu á eldhús- um og erlenda framleiöslu. (Tielsa sem er stærsti eldhús- framleiöandi á meginlandi Evrépu.) hún henti, f itr Einnfg getum viö smíöaö Tnnréttingar eftir teikningu og éskum kaupanda. ie Þetta er eina tiiraunin, aö þvf er bezt veröur vitað til aö ieysa öll. vandamál ,hús- byggjenda- varöandi eldhúsiö. ★ Fyrir 08.500,00, geta margir boöiö yöur eldhúsinn- réttingu, cn ekki er kunnugt Um. aö aörir bjóöi yöur. eld- húsinnréttingu, meö eldavéi- arsamstæöu, viftu, vaski, uppþvottavél og (sskáp fyrir- þetta verö- — Allt innijaliö meöai annars söluskattur kr. 4.800,00. Söluumboð fyrlr VEUUM ISLENZKT UUNIKAfJ IDNKD -mnréttlngar Umboös- & heifdv'erzlnn Kirkjuhvoii • SeykjavSt Símar: 21718,4213?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.