Tíminn - 08.09.1968, Page 13

Tíminn - 08.09.1968, Page 13
/ SGNNUDAGUR 8. septeniber 1968. ÍÞRÓTTIR TIMINN ÍÞRÓTTIR 13 Alfreí NrsteÍRssan A VHATEIGI Járntjald í íþróttum. Svo virðist, sem inrás Rússa í Tékkóslóvakíu ætli að hafa alvarleg áhrif á gang í- þróttamála í Evrópu. Austan tjaldslöndin hafa verið ein angruð í knattspyrnu og verða að keppa innbyrðis í Evrópu bikarkeppninni. Enn alvar- legri er þróunin í handknatt leik, því að í þeirri íþrótta grein hefur Evrópubikarkeppn in verið lögð niður um tíma og leikjum í undankeppni heimsmeistarakeppninnar ver- ið frestað. Það fer því ekki milli ffiála, að járntjald er að síga hægt og hægt niður á milli íþrótta fólks í vestri og austri. fþróttir og stjórnmál. Því hefur löngum verið hald ið fram, að íþróttir og stjórn- mál ættu ekki samleið. Ekkért getur breytt þeirri staðreynd, ekki einu sinni innrás Rússa í Tékkóslóvakíu, jafn fólsku leg sem hún var þó. Við for- dæmum hana. En gleymum ekki, að iþróttir eru sá vett vangur, þar sem fólk af ólíku bergi, fólk af ólikum litar hætti og fólk með ólíkar stjórn málaskoðanir getur mætzt og háð með sér keppni. Þess vegna er það sorglegt, hve í- þróttir hafa dregizt inn í stjórnmálaviðburði síðustu daga. Vel má vera, að einhverjir verði til að mótmæla þessari skoðun, Rússar og fylgifiskar þeirra eigi ekki betra skilið og að með þessu sé hægt að sýna, hve rík samúðin með Tékkum sé. En ef okkur er einhver alvara, því slítum við þá ekki stjórnmála og við- skiptatengsl við þessi ríki? Væri það ekki áhrifaríkara? Á hverju ári ske atburðir víðs vegar um heiminn, sem eru okkur ekki að skapi. í þesu sambandi má nefna Viet nam. Vitað er, að þorri al mennings er á móti stefnu Bandaríkjastjórnar þar í landi. Engan hef ég þó heyrt, sem vill útiloka Bandaríkjamenn frá íþróttakeppni. í Nígeríu brytja Nígeríumenn Biafra- menn niður og svelta þá. Samt geta þeir tekið þátt í íþrótta keppni hvar sem er. Svona er hægt að telja á fram, Við fordæmum Ijótar að farir, en höldum íþróttunum fyrir utan það. Glappaskot HSÍ-fulltrúanna í Amsterdam. Eins og vikið er að fyrst í þættinum, er þróunin í hand knattleiksmálum alvarleg. Evr- ópubikarkeppnin lögð niður í ár og leikjum í heimsmeistara keppninni frestað. Það var al þjóðaráðstefna handknattleiks manna, sem háð var í Amster- dam nýlega, sem tók ' þessa heimskulegu ákvörðun. En með svo litlum mun var hún samþykkt, ,að aðeins munaði einu atkvæði. Framh. á bls. 14. Guðbrandur Magnússon: LLUR KEPPNi UMFI OG RVÍKUR NIDUR? Fyrsta landsmót í fþróttum sið an á gullöld, var haldið í Reykja vík 1911, að tilefni aldarafmælis Jóns Sigurðssonar forseta, og stóð mótið í viku. Heyrt hefi ég ’eldra fólk vitna til þess, að það hafi ekki verið haldið til jafns við þennan lið afmældsháítiðar Jóns Sigurðssonar . fyrr en 1944, en þá var efnt til íþróttamóts, sem ekki stóð hinu að baki. Hér er ekki mælt í iþróttaaf- rekum heldur bylgjulengdinni sem yfir vötnum sveif. ílþróttamótið 1911 mun hafa staðið í viku. Þátttaka var hvaðan æfa af landinu, enda greinilega sagt frá mótinu í blöðum þess tíma, eins og hátíðahaldinu öllu. Ég get þess hér, ungu kynslóð- inni til fróðleiks, að á þessu ári sá lífið fyrir sjálfa sér í beinu framhaldi af ævistarfi Jóns Sig- urðssonar, okkar vitru, varfærnu, en farsælu frelsishetju. Þá var m.a. Háskóli íslands stofnaður og ef ég man rétt, íþróttasamband ís lands einnig. En hvers vegna er verið að rifja þetta upp. f íþrótta fréttum Morgunblaðsins í dag 6. sept. les maður þessa stórletruðu fyrirsögn: Fellur keppni UMFÍ og Reykjavíkur niður? Að forgöngu Ungmennafélag- anna var verið að koma því til leiðar, að Frjálsaþróttasamiband fslands kæmi á keppnismótum milli UMFÍ og Reykjavíkur-íþrótta félaga, og fékk tillaga þessi mjög góðar undirtektir. Var í ráði að keppni þessi ýrði til skiptis í Reykjavik og úti á landi. En hvað skeður ekki! Fram- kvæmdastjórinn neitaði um vallar leyfi á þeim forsendum, að forseti ÍSÍ og framkvæmdastjóri töldu að íþróttafólk gæti ekki keppt fyrir UMFÍ. Morgunblaðið segir: „Telja má slíka afstöðu næsta furðulega!" Tíminn er nákvæm- lega sama sinnis, og telur þessa afstöðu stórfurðulega. Morgunblað ið greinarfpá, ,að ydirstjórn íþró.tta málanna muni hins vegár ekkert hafa haft við það að athuga, að keppni færi fram „sem keppni Reykjavíkur og laiidsbyggðarinn- ar“. Ég vil gera grein fyrir því, að í hinni fjölmennu Reykjavíkur- borg er nú ekkert Ungmennafélag. Skýringin á því er sú, að þau eru að undanskildu Umf. Víkverja- uppleyst í sérfélög/ svo sem leik- fimifélög, glimufélög, sundfélög, söngfélög, skógræktarfélög. Hin fjölmenna höfuðborg hefur mann afla til slíkrar sérgreiningar á áhugamálum Ungmennafélaganna, sem létu sér ekkert óviðkomandi, nema trúmál og stjórnmál. Ekki heldur forustumenn íþróttamála gjkjddu fara villur vegar! Guðbrandur Magnússon. Frakkar mótmæla einnig Nú hafa Frakkar bætzt í hóp þeirra ríkja, sem mótmælt hafa hinum nýja drætti í Evrópubik- arkeppninni f knattspyrnu. f sím skeyti til Evrókuknattspymusam bandsins (UEFA) skora Frakkar á sambandið að halda sig við upphaflega dráttinn, enda sé það lögum samkvæmt. Þá hefur samband franskra at- vinnumánnaliða ennfremur sent mótmæli, en það bendir á, að ekki megi blanda saman íþrótt um og stjórnmálum. ^ Þess má geta, að frönsku meist* ararnir, St. Etienne, drógst í fyrstu á móti Ruch Chorzow frá Póllandi ,en síðari drættinum á móti Glasgow Celtic, fyrrverandi Evrópubikarmeisturum. Þá hefur AusturÞýzkaland einnig bætzt í hóp mótmælaland- anna, en í skeyti til Evrópuknatt spyrnusambandsins segja Austur Þjóðverjar, að hér sé um að ræða stjórnmálalega meðhöndlun á mál inu eftir þrýsting frá öflum, sem séu fjandsamleg íþróttum. Þess má geta, að stjórn Evrópu knattspyrnusambandsins mun koma saman til fundar í Ziirich í Sviss á morgun, mánudag, til að ræða mótmælin. En óhugsandi er, að enn einu sinni verði gerð breyting, þar sem mörg lið hafa þegar náð samkomulagi eftir nýja dráttinn, til að mynda KR og hin- ir grísku mótherjar þeirra í keppni bikarhafa. Á þessum ,-T ■ ■■ i ■■ *. >’ f velli leika Valsmenn Hinn stóri íþróttaleikvangui sem við sjáum á myndinni til hliðar er leikvöllur portú- gölsku meistaranna, Benfica, Lissabon. Valsmenn munu leika á þess um velli síðari leik sinn gegn Benfica í Evrópubikarkeppn inni þann 2. október. Mikill áhugi er á leik Ben fica og Vals og búast Portú galarnir við að fá 40 þiisund áhorfendur eða jafnvel fleiri á leikinn. Verður án efa erfitt fyrir Valsmenn að leika fjrir svo mörgum áhorfendum, auk þess, sem búast má við, að leik ið verði í flóðljósum. in í dag Bikarkeppni KSI verður haldið áfram í dag. Verður leikið bæði í Reykjavík og á Akureyri. Á Melavellinum í Reykjavík leika kl. 2 Akranes og KR b. Síðar. eða kl. 5 leika svo Víkingur og Þróttur. Á Akureyri leika heimamenn gegn Val og hefst leikurian kl. 5. Kvenfólk leikur knatt- spyrnu í Kópavogi í dag — og bæjarstjórn Kópavogs leikur gegn meistaraflokksliði Breiðabliks. Hinn vinsæli knattspyrnu- leikur milli bæjarstjórnar Kópavogs og meistaraflokks Breiðabliks, fer fram á vell- inum vi5 Kópavogsbraut í dag (sunnudag). Dagskráin hefst kl. 2,30 með leik í 5. flokki KR—Breiðablik. KR-ingar eru nýbakaðir íslands meistarar í þessum aldursflokki og verður gaman að sjá hvernig Kópavogspiltunum vegnar gegn þeim, en þeir hafa ekki tapað leik síðan í byrjun júní. Dómari í beim leik verður Sigrún Ingólfsdóttir, sem mun vera eini kvendómarinn í knatt spyrnu. ! Þá mun kvenfólk keppa í knattspyrnu og mun það vera í fyrsta sinn hér á landi. Kven- fólkið i Breiðablik. hefur nú æft knattspyrnu um nokkurt skeið og munu lið Austurbæjar og Vestur bæjar mætast að þessu sinni. Rnísínan í pylsuendanum verð- ur svo leikur bæjarstjórnarinnar við meistaraflokk Breiðabliks og mun bæjarbúum og fleirum ef- laust leika fórvitni á að sjá hvort geta bæjaryfirvalda hefur hrakað í hinni vinsælu Sþrótt, en þeir sigruðu, þegar kcippt var síðast.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.