Tíminn - 13.09.1968, Side 9

Tíminn - 13.09.1968, Side 9
FÖSTUDAGUR 13. sept. 1968. TÍMINN 9 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson. Jón Helgason og Indriði 3. Þorsteinsson Fulltrúi rítstjórnar- Tómas Karlsson Aug- lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur t Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastræti ? Af- greiðslusími: 12323. Auglýsingasimi: 19523 Aðrar skrifstofur, simi 18300 Askriftargjald kr 120.00 á mán lnnanlands — f lausasölu kr. 7.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h. f. Skuldir bænda Ein meginástæða þess, að landbúnaðurinn er nú verr undir það búinn að mæta erfiðleikum en áður, er hin mikla skuldasöfnun, sem orðið hefur hjá bændum og fyrirtækjum þeirra hin síðari ár. Samkvæmt upplýsing- um sem fyrir lágu á síðastl. sumri, námu heildarskuldir bænda þá nálega hálfum öðrum milljarð króna, en síðan hafa þær stóraukizt, m.a. vegna harðindanna í vetur. Hér eru skuldir fyrirtækja bænda ekki meðtaldar. Jafnframt þessu hefur það gerzt, að óhagstæðar lausaskuldir eru nú miklu stærri hluti heildarskuldanna en áður. Árið 1961 voru lausaskuldir 35% af heildarskuldum bænda, en á síðastl. ári voru þær komnar upp í rúm 60%. Orsakir hinna miklu lausaskuldasöfnunar hin síðari ár, eru m.a. þessar: 1. Framkvæmdir allar »g vélvæðing krefjast mikils fjár- magns, enda hefur dýrtíðin farið ört vaxandi hin síðari ár . 'X 2. Stofnlán landbúnaðarins hafa ekki hækkað í hlutfalli við stofnkostnað. 3. Lánstími stofnlána er allt of stuttur, enda styttri nú en áður, nema á lánum til íbúðarhúsabygginga. Lán eru nú til 15 ára út á járnvarðar timburbyggingar, t.d. hlöður, fjárhús og fjós, en til 20 ára út á steyptar byggingar og rælctun, en aðeins til 5 ára út á aflvélar. 4. Vaxtakjör Stofnlánadeildar landbúnaðarins eru miklu lakari nú en áður, eða 6% til íbúðarhúsalána, en voru áður 3V2%, til allra annarra lána deildarinnar eru 61/2% vextir, en voru áður 4%. Vaxtahækkun síðan 1960,er 60—70%. 5. Lagður er nú sérskattur á bændur, og rýrir það til rhuna tekjur þeirra, en tryggir þeim ekki lán sem skyldi, eins og þeim var heitið, er skatturinn var á þá lagður. 6. Ungt fólk eða byrjendur í búskap fá hvergi lán til bústofns- eða vélakaupa. 7. Þótt óðaverðbólga hafi rikt síðan 1959, hafa rekstrar- lán landbúnaðarins ekki hækkað. 8. Veðdeild Búnaðarbankans hefur allt of lítið fjármagn til umráða og vextir hennar ekki hagstæðir, þar sem þeir eru 8%. Við þetta hefur svo bætzt of lágt afurðaverð, miðað við tilkostnað, mikil fóðurbætiskaup vegna harðinda o.fl. Afkoma fjölda bænda er nú þannig, að þeir hljóta að gefast upp við búskapinn, ef þeir fá enga aðstoð tii að rísa undir þeirri byrði, sem hinar óhagstæðu lausa- skuldir eru. Þess vegna fluttu Framsóknarmenn á sein- asta þingi frumv. um, að veðdeild Búnaðarbankans gæfi út nýjan flokk bankavaxtabréfa, sem yrðu eingöngu not- uð til að breyta lausaskuldum bænda í föst lán. Vextir skyldu eKki vera hærri en 6V2% og lánstími allt að 20 ár, gegn veði í fasteign, en 10 ár gegn veði í vélum. Heildarlán mættu vera allt 'að 80% af matsverði. Því miður náði þetta frumvarp ekki fram að ganga. En svo augljós, sem þörfin var fyrir slíka ráðstöfun fyrir ári síðan, er hún enn augljósari nú. i Hér er tvímælalaust um eitt mesta vandamál land- búnaðarins að ræða — vandamál, sem er þannig vaxið, að það krefst lausnar á næsta þingi. -......... á — ______ ^ ERLENT YFIRLIT Sobhusa konungur ( þióðbúningi. HINN 6. þ. m. öðlaðist sein- asta brezka nýlendan í Afríku fullt sjálfstæði. Hér er um að ræða Swasiland, sem er að mestu innilokað í Suður-Afríku, en hefur þó á stuttum kafla landamæri með portúgölsku ný lendunni Mozambique. Bretar héldu um alllangt skeið tveim- ur landsvæðum innan landa- mæra SuðurAfríku eða Basutu landi og'Swasilandi. Bæði þessi lönd voru byggð sérstæðum þjóðflokkum svertingja, sem Bretar höfðu samið sérstak lega við um verndargæslu. Bas utoland, sem nú heitir Lesotho, hlaut fullt sjálfstæði 1966 og er nú eitt af aðildarríkjum S. Þ. Lesotho er mjög háð Suður- Afríku vegna legu sinnar, og féllst stjórn Suður-Afríku lika á sjálfstæði þess með því skil- yrði, að ekki væri rekinn það- an neinn áróður gegn kyn- þáttastefnu hennar. Blökku- menn annars staðar í Afríku skilja þessa sérstöðu Lesothos og láta því afskiptalaust, þótt fulltrúi þess taki ekki þátt í atkvæðagreiðslu á þingi S. Þ. um kynþáttamálin í Suður-' Afríku. Nokkuð svipað er að segja um annað gamallt verndargæzlu svæði Breta, Bechuanaland, sem nú ber nafnið Botswana. Það liggur milli Suður-Afríku og Rhodesíu, og er því alger- lega háð þessum tveimur ríkj um. Það er því tilneytt að leiða hjá sér kynþáttadeilurnar á þingi S. Þ., þótt íbúar þess séu eingöngu blökkumenn. SWASILAND er hið eina þessara þriggja brezku ný- lendna, er ekki breytir um nafn við sjálfstæðistökuna. Á- stæðan er sú, að það dregur nafnið af þeim þjóðflokki, sem byggir landið. Hann er einn af elstu og þekkustu þjóðflokk- um þar og hefur notið þess, að ráðamenn hans hafa frá upp- hafi haft gott samstarf við hina evrópísku aðkomumenn á þessum slóðum, fyrst Búa og síðan Breta. Eins og Botswana og Lesotho mun Swasiland sækja um aðild að Sameinuðu þjóðunum og mun vafalaust veitt hún á næsta aðalþingi þeirra. Swasiland er konungdæmi frá gamalli tíð. Núverandi konung ur þar er Sobhusa II, en meðal landa sinna gengur hann aðal- lega undir nafninu Ngwenyama eða ljónið. Hann er tæplega sjötugur að aldri, en hefur verið konungur síðan 1921. Konungi er leyfilegt að eiga margar kon ur, og telja kunnugir, að kon- ur hans fyrr og síðar séu nú orðnar um 170 talsins og barna fjöldinn eftir því. Eins og í öðr um nýlendum Breta, hefur ver ið komið á lýðræðislegri stjórn í Swasilandi áður en það fékk sjálfstæðið viðurkennt. Flokk- uis sem konungur styður, hefur yfirgnæfandi meirihluta á þingi. Konungurinn hefur orð á sér sem hygginn og fram- sýnn stjórnandi. Hann hefur beitt sér fyrir ýmsum umbót- um, en telur þó, að þær megi ekki breyta lifnaðarháttum og siðvenjum landsmanna of hratt. SWASILAND er að flatar- máli langminnst umræddra þriggja rkja eða tæp 7 þús. fermílur að flatarmáli. Það er líka fámennast, en íbúarnir eru um 400 þús., þar af Evrópu menn 8—10 þús. Þeir byrjuðu að flytja þangað nokkru fyrir aldamót og hafa gerzt þar stór bændur. en stór hluti landsins er vel fallinn til ræktunar. Konungur Swasilánds samdi um það strax í upphafi, að Evr- ópumenn mættu aðeins taka sér bólfestu í vissum hlutum landsins og aðeins eiga jarð- eignir þar. Þetta hefur stutt að því, að jarðeignir hafa ekki komizt eins mikið í hendur Evrópumanna og ella. Þó er ríflegur meirihluti landbúnað- arframleiðslunnar í höndum þeirra. Auk þess að vera gott land- búnaðarland, er Swasiland ríkt af mörgum náttúruauðæfum öðrum. Þar eru t. d. miklar járn- og kolanámur og einhverj ar mestu asbestosnámur í heimi. Gull, silfur og tin er unnið þar úr jörðu. Á síðari árum hefur risið þar upp nokk ur iðnaður, en enn eru Swasi- lendingar þó fyrst og fremst landbúnaðarþjóð. Swasiland er talið geta átt góða framtíð, einkum vegna náttúruauðæfa landsins. Miklu skiptir, hvernig sambúðin við Suður-Afríku verður. Ilún hef ur verið vinsdmleg fram að þessu, m. a. innheimtir Suður- Afrika allar tolltekjur fyrir Swasiland og greiðir því síð an 0.15% af heildartolltekjum | sfnum. Það talar sínu máli um 1 framtíðarmöguleika Swasilands I að útflutningur þess hefur pre H faldast síðan 1960. Þ.Þ. f r merr\

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.