Tíminn - 13.09.1968, Síða 15
: FÖSTUDAGUR 13. sept. 1968.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Framhald af öls. 3
hverju atriði, að það var líkara
því að þær væru níu“.
Leikendur í Fvrirheitinu eru:
Arnar Jónsson, Hákon Waage og
Þórunn Magnúsdóttir, en allt eru
þetta ungir leikarar, sem stundað
hafa nám í Leiklistarskóla Þjóð-
. leikhússins.
Leikstjóri er Eyvindur Erlends
son og er þetta annað leikritið,
sem hann stjórnar hjá Þjóðleik
húsinu, en hitt var eins og kunn-
ugt er Billy lygari, sem hann svið
setti á sl. leikári á Litla-sviðdnu
í Lindarbæ. Eyvindur hefur stund
að nám í Moskvu í fimm ár í
leikstjórn og lauk þar prófi með
góðum vitnisburði fyrir rúmu ári.
Leikmyndir eru gerðar af Unu
Collins, en þýðing leiksins er eft-
ir Steinunni Briem Myndin er af
leikstjóranum.
KOSNINGAR í SVÍÞJÓÐ
Framhald af bls. 1
arnir þrír verða að ná meirihluta
í öllu þinginu til þess að Erlander
segi af sér, það er að segja í
efri og neðri deild samanlagt.
Þetta hefur í för með sér að vega
verður upp á móti meirihluta jafn
aðarmanan í efri deildinni en til
þess þurfa stjórnarandstöðuflokk
arnir að vinna a. m. k. níu til
tíu þingsæti á sunnudaginn og slík
ur sigur er talinn ólíklegur, og
niðurstaðan hlýtur því að verða
sú að stjórn Erlanders sitji enn
að völdum um hríð.
Erlander forsætisráðherra hef-
ur einnig lýst því yfir að hann
muni segja af sér fái borgaraflokk
arnir yfir 50% atkvæða n. k. sunnu
dag eða þingið verði þannig skip
að að ómöguleg reynist að halda
uppi stefnu jafnaðarmanna.
Þessi afstaða Erlanders byggist
á sænsku stjórnarskránni eins og
hún er í dag. Þingið getur ekki
ger.t löglegar samjþykktir nema
með samvinnu og samþykkt í báð
um deilum. Stjórnarandstaðan lit-
ur málin öðrum augum: Kosið er
í efri deild þingsins með óbeinum
kosningum, venjulega innan hinna
þjóðkjörnu fylkisstjórna, sem
endurnýjast með mjög löngu milli-
bili þ. e. a. s. aðeins áttundi hluti
þeirra árlega. Það er sem sagt
neðri deildin, kosin beinum kosn-
ingum, sem endurspeglar vilja
fólksins eins og hann er einmitt
í dag. Nái borgaraflokkarnir meiri
hluta í neðri deildinni hlýtur rík
isstjórnin í nafni lýðræðisins að
leysa upp efri deild og efna til
nýrar kosninga.
Stjórnin getur samkvæmt stjórn
arskránni leyst upp efri deild
þingins en að efna til kosninga
nú myndi vera að ganga út í
opinn dauðann fyrir Erlander og
stjórnina svo að fáir eru þeirrar
skoðunar í Svíþjóð að hann taki
þetta til bragðs.
Þegar kbsningasérfræðingarnir
setja fram spádóma sína slá þeir
marga varnagla. Allt bendir til
þess að þrír kjósendahópar séu
líklegir til þess að skera úr um
úrslit kosninganna. í fyrsta lagi
635 'þús. ungmenni, sem fá nú
í fyrsta sinn að kjósa til þingsins,
í öðru lagi þeir sem heima sátu
við síðasta neðri deildar val 1966
og í þriðja lagi eftirlaunafólk. Fyr
irfram er erfiðast að gera sér
grein fyrir hvernig þessir kjós-
endahópar láta atkvæði sín falla:
ENN VANTAR...
Framhald af bls. 1
við Gunnar Guðbjartsson, for
mann Stéttarsambands bænda, ;
og spurði hann um gang rnála
í SaKmannanefndinni. Sagði
hann, að Sexmannanefndin
hafi hafið störf sín 20. ágúst, !
og strax þann dag lögðu fulltrú 1
ar bænda í nefndinni fram til-
lögur sínar um verðbreytingar |
TIMINN
á búvörum miðað við 1. sept.
Mjög dróst, að fulltrúar neyt
enda skiluðu sínum tillögum.
Gerðu þeir það fyi'st 4. septem
ber, en þær tillögur voru það
langt frá tillögum bænda, að
ekkert samikomulag náðist.
Var þá samþykkt þann dag
að vísa málinu til yfirnefndar
til úrskurðar. Ekkert samkomu
lag náðist um oddamann, og
var því óskað eftir að Hæsti
réttur skipaði hann. Var Guð
mundur Sikaftason, lögfræðing
ur, skipaður oddamaður á föstu
dagiun var.
Bændur skipuðu strax þann
4. sept. Ingva TVyggvason, Kár
hóli, en neytendafulltrúarnir
hafa enn ekki skipáð mann í
nefndina, og þykir sú töf
furðu sæta. Er það vissulega
vítavert að draga störf yfir-
nefndar á langinn með slíkum
aðgerðum.
Gunnar Guðbjartsson tj'áði
blaðinu, að það væri vilji
landibúnaðarráðuneytisins að
verðlagningu yrði lokið fyrir
23. september, en eins og kunn
ugt er hafa bændur tilkynnt,
að verði verðlagningin ekki
ákveðin fyrir 25. september,
muni þeir auglýsa nýtt verð
sjálfir.
ÍÞUÓTTI R-
Framhald af bts. 13.
spennandi, þó svo, að ekkert mark
væri skorað. Leeds lagði greini-
lega mikið upp úr vörninni og
voru oft og tíðum 9 leikmenn í
vörn. Þóttu ‘ þeir þremenningar,
Cooper, Bremer og Madley standa
sig frábærlega vel, og tókst að
forða því, að hinir sókndjörfu Ung
verjar, með Florens Albert í
broddi fylkingar, næðu að skora.
f fyrri leik Leeds og Ferenc-
varos, sem fram fór í Leeds, skor-
aði Mike Jones eina markið í þeim
leik.
íslenzkir knattspyrnuáhugamenn
kannast vel við ungverska liðið
Ferencvaros frá því að það lék hér
árið 1965 gegn Keflvíkinguim í
Evrópubikarkeppninni.
SJÓNVARPIÐ
Framhald af bls. 1
Gert er ráð fyrir talsverðu
skemmtiefni, erlendu og inn-
lendu, og tvær langar kvik-
myndir verða fluttar vikulega
í stað einnar áður.
Dagsikrárlengdin verður svip
uð og var sl. vetur, útsending
ar hefjast kl. 20 3 daga vik
unnar, og um kl. 18 aðra þrjá.
Engar útsendingar verða á
fimmtudögum \ eftir sem áður.
Vetrardagskráin hefur ekki ver
ið ákveðin að fullu, en flest ný
mælin eru hér talin. Svo virð
ist sem íslenzkt efni muni
skipa meiri sess en verið hefur
að. undanfornu. Flestir hinna
föstu þátta verða fluttir áfram,
en þó ef til vill í breyttri mynd
og auk þess verða sýndir all
margir stakir þættir um ýmis
efni.
Sjálfsagt finnst mörgum eft-
irsjá að góðkunningjum sínum
úr sjónvarpinu, Harðjaxlinum,
og Dýrlingnum, — Haukurinn
hefur hins vegar ekki fest sig
verulega 1 sessi. Öðrum hefur
þó fundizt allir þessir þættir ó
þarfir á dagskrá sjóinvarpsins,
einhliða og lítt uppbyggilegir.
Þó má gera ráð fyrir því, að
Dýrlingurinn eigi brátt aftur-
kvæmt á skerminn, e.t.v. þegar
eftir áramótin. Til eru hins veg
ar miklu færri þættir með
Harðjaxlinum, og vonandi hef
ur honum heldur ekki verið út
'. hýst að fullu.
Saga Forsyte æítarinnar er í
26 köflum. Danska sjónvarpið
er nýbyrjað að flytja þessa
þætti og hafa þeir vakið geysi
lega hrifningu. Verður þáttun
um sjálfsagt ekki síður vel tek
ið hér, enda þótt leikritið hafi
verið flutt í hljóðvarpi hérlend
is fyrir nokkrum árum.
WALLACE
Framhald af bls. 1
Wallace mun heimta að barátt
an fyrir jafnrétti kynþátta verði
hætt. Hann mun krefjast þess að
fá að hafa hönd í bagga um val
nýs hæstaréttaforseta og ef til vill
fara fram á sæti í ríkisstjórninni.
Samkvæmt skoðanakönnunum
hefur Wallace þegar tryggt sér
meirihluta í ríkjunum Alabama,
Missisippi, Georgiu og Louisiana.
Wallace álítur að hann geti hugs
anlega unnið í nokkrum Norður-
ríkjanna verði keppni Nixons og
Humphreys jöfn. Fái t. d. tveir
aðalframbjóendurnir 66% atkvæða
og deili þeim jafnt á milli sín
en Wallace megnið af því sem þá
er eftir telur hann sig geta ráðið
yfir flestum kjörmönnunum.
Stjónmálamenn í stóru flokkun
um tveimur hafa aðeins látið liggja
að því að hyggilegt væri að koma
á samkomulagi milli Nixon og
Humphreys sem fæli í sér að sá
þeirra sem undir yrði í kosning
unum gæfi kjörmönum sínum fyr
irmæli um að kjósa þann sem
fleiri atkvæði hefði hlotið. Ekkert
bendir þó til þess að slíkt sam-
komulag verði gert á næstunni.
Fái hvorugur aðalframbjóðend
anna tilskilinn meirihluta og komi
Nixon og Humphrey sér ekki sam
an um að brjóta Wallace á bak
aftur mun forsetakjörið fara fyr
ir öldungadeild Bandaríkjaþings,
þar sem hvert ríki hefur eitt at-
kvæði.
Á VlÐAVANGI
Framhald a+ bls 5
reglum, sem eiga að gilda.
Sannleikurinn er sá, að það
fer að verða nokkuð dýrt fyrir i
einstaklinga eða fyrirtæki að
nota ávísanaviðskipti, þegar
bæði þarf að greiða nokkurt,
á okurverði til badkanna. Flest |
viðskiptagjald og ávísanahefti i
ir munu ætla, að bankar sýndu
þjónustu sína í því að selja
ávísanahefti fremur undir en
yfir kostnaðarverði. Gæti jafn-
vel farið að borga sig betur að
geyma peningana heima, t.d.
mánaðarlaun eða rekstrarfé, til
nota á næstu dögum og vikum
fremur en leggja inn á ávísana
relkning í banka. Kannske
bankarnir vilji beina þróun-
inni í þá átt. Öðru vísi verður
þetta varla skilið. Og tíminn til
þessarar helmingshækkunar á
þessari þjónustu bankanna við
viðskiptavini er auðvitað sér-
lega vél valin til þess að sýna
sem bezt yfirburði þessara á-
byrgðarmiklu stofnana í Við- i
skiptasiðgæði! ! Með hliðsjón
af því má líta á þetta sem verð
stöðvunarfána, og fánaberlnn
er sjálfur Seðlabankinn!
Slm I154a
Barnfóstran
íThe Nanny)
tslenzkur texti
Stórfengleg. spennand) og af-
burðavel leildn mynd með
Betty Davis,
sem lék l Þel. þel. kæra Kar.
lotta
Bönnuð börnum yngrl en 14.
Sýnd kl 5. 7 og 9
Bráðin
(The naked prey)
Sérkennileg og stórmerk amer
ísk mynd tekin f Technicolor
og Panavision. Framleiðandi og
leikstjóri er Cornel Wilde.
Aðalhlutverk:
Cornel Wilde
Gert Van Den Berg
Ken Gampu
íslenzkur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Bönnuð innan 16 ára.
Síðasta sinn
18936
Blóðöxin i
— íslenzkur 'texti —
Æsispennandi og dularfull
kvikmynd með
Joan Crawford
Endursýnd kl. 9.
Bönnuð börnum.
Ræningjarnir
í Arizona ,
(Arizona Raiders)
Hörkuspennandi og viðburðar-
rík ný amerlsli nvikmynd f lit
um og Cinema Scope.
Audie Murphy,
Michael Dante
Sýnd kl. 5, 7
Bönnuð innan 14 ára.
Stúlkan með
regnhlífarnar
Endursýnd kl. 9.
Sverð Zorros
Endursýnd kl. 5.
LAUGARA8
Slmar 32075 og 38150
Á flótta til Texas
Sprenghlægileg skopmynd frá
Pniversal i litum og Tekniscope
Aðalhlutverk:
Dean Martin
Alan Delon og
Rosmary Forsyth
Sýnd kl 5, 7 og 9
íslenzkur texci.
15
Robin Krúso
hðsforingi
Bráðskemmtileg ný Walt Disn
ey kvifcmynd 1 litum með:
Dick Van Dyke
Nancy Kwan
fslenzkur texti,
Sýnc kl. 5 og 9
T ónabíó
Slm 31182
Khartoum
íslenzkur texti
Heimsfræg, ný, amerísk ensk
stórmynd í litum
Charlton Heston
Laurence Olivier
Sýnd kl. 5 og 9
Bönnuð innan 16 ára.
Elska skaltu
náungann
(Elsk din næste)
óvenju skemmtileg ný dönsk
gamanmynd i Utum með fræg
ustu leikurum Dana.
Sýnd kL 5.1ö og 9.
Síiili 50249.
Hetjurnar sjö
(Gladiators 7)
Amerísk Utmynd með íslenzk
um texta.
Sýnd kl. 9
Hillingar
Sérstæð og spennandi saka.
málamynd með
Gregory Peck
íslenzkur texti
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd 1. 5 7 og 9
aÆJÁRBiP
Slml 50184
Onibaba
Hin umdeilda japanska kvik.
mynd eftir snilUngin Kaneto
Shindo.
Hrottaleg og bersöguieg á köfl
um. Ekki fyrir nema tauga-
sterkt fólk.
Danskur textl
Bönnuð börnum innan 16 ára
Sýnd kl. 9
Skelfingarspárnar i
Sýnd kl. 7