Tíminn - 02.10.1968, Page 1
íþróttafólk hrakið úr Laugardalshöllinni, blaðsíða 12
Gerizt áskrifendur ð
Tímanum.
Hringið í síma 12323
Spiegel
upptækt
í Aþenu
NTB-Aþenu, þriðjudag.
Gríska öryggislögreglan
gerði í dag upptæk öll eintök
síðasta heftis vestur-þýzka viku
blaðsins „De-r Spi'egel“. Gekk
lögreglan til verks í öllum blað
sölum í Aþenu og lagði hald á
blaðið. Mieðial efnis í þessu
hefti „Der SpiegeT* er 17
síðna grein er hefur yfirskrift-
ina „Líffærafræði einræðisins“
og samanstendur gsrainin af
viðtölum við nokkra opinbera
talsTnenn Grikkja í dag a.nnars
vegar, og hins vegar af viðtöl
um við fyrrverandi stjórnmála
menn í Grikklandi. í greininni
er þjóðaratkvæðagreiðslunni
Framhaid á ols 15
Kjörinn formaður
Sambands ríkis-
starfsmanna á
Norðurlöndum
EJ-Beykjavilk, þriðjudag.
Samband ríkisstarfsmanna á
Norðurlöndum (Nordens Sitats-
tjenestsmænds Samrád) hélt
tveggja daga fulltrúaráðsfund í
Kaupmann-aihöfn fyrir nokkrum
dögum. Samkvæmt „Berlingske
Tidende" lét formaðurinn, E.
Svendsen, af því starfi, en Kristj-
án Thorlaeíus, formaður BSRB,
var kjörin-n nýr formaður.
Berlingske Tidende skýrir svo
frá. að helztu umræðuefni fund-
arins hafi verið launaleg staða
ríkissitarfsmanna miðað við aðra
' 'uniþegiahópa, og gerð á launa-
srtatistik og starfsmat.
Það var samdóma álit fulltrúa
ráðsmanna, að núverandi reglur
um samningsrétt rikisstarfsman.na
og aðstöðu til samningsgerðar við
hið opinbera, væru algjörlega ó-
fullnægjandi á öllum Norðurlönd
”uum.
Kristján Tliorlacius.
Stærsta dráttarbrautln
vígð á Akureyri, föstudag
SOGUFRÆGT
VERZLUNAR
HÚS BRANN
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Um miðjan dag í gær kom upp
eldur í íbúðarhúsinu að Hall-
geirseyjarhjáleigu í Austur-Land-
eyjum og brann þar til kaldra
kola frægt hús í verzlunarsögu
landsins, því þetta var fyrsta verzl
unarhús Kaupfélags Hallgeirseyj
ar, þegar það hét því nafni.
Hallgeirseyjarhjáleiga er í
eyði, en kartöfluupptökufólk frá
Hellu hafði þar húsaskjól um upp
tökutímann. Ekki er vitað um
eldsupptök, en trúilegt er þó að
þau megi rekja til eldunar- eða
kyndingartækja sem í notkun
hafa verið. Húsið varð alelda á
stuttum tíma, _og hér á myndinni
sem Sveinn ísleifsson á Hvols-
velli tók, sézt hvar unnið er að
slökkvistarfi, en reykurinn stígur
til himins. Slökkviliðið á Hvols
velli kom á staðinn, en húsið
brann til kaldra kola, og var reyk
háfurinn síðan brotinn niður, svo
hann ylli ekki slysi.
ED-Akureyri, þriðjudag.
Á föstudaginn verður ný
dráttarbraut á Oddeyri forxn-
lega tekin í notkun og vígð
við hátíðlega athöfn. En þessi
nýja dráttarbraut er sú
stærsta hér á landi og hefur
verið notuð til reynslu og upp
í hana tekin átta skip. Til að
reyna dráttarbrautina til hlít
ar, til að sýna landsmönnum,
hversu aðstaða öll til upp-
töku skipa á Akureyri hefur
batnað, samdi hafnarstjórn
Akureyrar við Skipaútgerð
SÍS, að Helgafell, sem er 2194
brúttórúmlestir, verði tekiS
upp af þessu tilefni, á háflæði
á hádegi á föstudag.
Helgafell mun losa vörur dag-
inn áður á Akureyri, en á morgun
flóðinu kl. 9,15 verður skipið tek
ið í dráttarbrautina.
Hafnarstj'órnin hefur boðið all
mörgum gestium til að vierða við
staddir vígslu brautarinn'ar, þ.á.
m. sjávarútvegsmál aráð'herra, Egg
ert G. Þorsteinssyni og iðnaðar-
málaráðherra, Jóhamni Haf.stein
ásamt mörgum öðrum embættis-
mönnum ríkisins og ríkisstarfs-
mönnum, einnig ýmsum forstöðu
mönnum skipaútgerðar. Gestunum
verður eimnig boðið að sjá skipa
smíðarnar á Akureyri, en í slipp
stöðinni á Akureyri er nú verið
að byggja tvö þúsund tonna
sitrandferðaskip.
Utanríkisráðuneytið veiti sölusamtökunum meiri aðstoð
UTFLUTNINGSKERFIÐ
HEFUR REYNZT VEL
KJ-Reykjavík, þriðjudag-
í þættinum „I brennidepli“, er sjónvarpað var í kvöld, tók Haraldur J. Hamar um-
sjónarmaður þáttarins fyrir markaðsmálin, og kvaddi til umræðna þá Guðjón B. Ólafs-
son, framkvæmdastjóra, Guðmund H. Garðarsson, viðskiptafræðing, dr. Jakob Sigurðsson
og Margeir Sigurjónsson, fiskverkanda. Var aðeins komið inn á saltfisksölumálin í þættin-
um, en aðallega rætt um markaðsmálin á breiðum grundvelli. Helzta niðurstaða umræðn-
anna var sú, að það kerfi sem nú væri notað við sölu á freðfiski, hefði reynzt vel, en Guð-
jón B. Ólafsson lýsti þeirri skoðun sinni, að utanríkisráðuneytið þyrfti að aðstoða sölusam
tökin betur og víðar en gert væri nú.
Haraldur J. Hamar umsjónar- j forsvarsmenn saltfisksölunnar ; Margeir Sigurjónsson voru tals-
maður þáttarins sagði í upphafi, að væim ekki til staðar, og yrði því menn þess að fleiri og smærri að-
markaðsmálin hefðu að undan- ekki um að ræða að saltfisksalan ilar fengjust við sölu sjávaraf-
förnu verið á margra vörum, og sem slfk yrði krufin til mergjar urða. Sa-gði Jakob m. a. að sú
því hefði þótt tilhlýðilegt að taka í þættimim. ' hætta væri fyrir hendi að þegar
þau fyrir í þættinum, þó að aðal- Þeir dr. Jakob Sigurðsson og fáir fengjust við söluna, gæti svo
farið, áð erfitt væri fyrir aðra að
fylgjast með hvort þeir sem með
sölumálin færu, næðu alltaf hag-
stæðustu samningum, en Guðmund
ur H. Garðarsson taldi það fráleitt,
þar sem tiltölulega auðvelt og
kostnaðarlátið væri að fylg!j;ast með
markaðsmálum á hverjum tima.
Margeir taldi sölufyrirkomulagið á
skreiðinni vera gott, en Guðjón
B. Ólafsson var ekki á sama máli,
og hólt því fram, að með því að
margir smáir aðilar störfuðu að
skreiðarsölumálum, væri skreiðar-
verðið í raun og veru ákveðið af
ráðuneyti, en ekki þeim, sem seldu
skreiðina. Guðjón benti á, hvernig
Framhald á bls. 14.