Tíminn - 02.10.1968, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 2. október 1968.
TIMINN
Fjós og íbúBarhús
ú Músseli brunnu
Fyrir hálfom mánuði var byrjað að rífa húsið ASalstræti 9 í Reykjavík, en í byrjun nóvember fyrir ári síðan
kom upp eldur í húsinu, og hefur það staðið auut síðan. Helgi Kristjánsson húsasmíðameistari á Lambastöð-
um á Seltjarnarnesi sér um niðurrif hússins, og sagði hann TÍMANUM að viðir hússins væru góðir, ekkert
fúnir, en skemmdir hafa orðið nokkrar á þeim vegna brunans. Aðalstræti 9 var eitt stærsta timburhús bæjar-
ins og eigandinn er Ragnar Þórðarson forstjóri. Myndlna af því sem eftir er af húsinu tók Guðjón Einarsson
Ijósmyndari Tímans í dag, og sem sjá má, þá er nú unnið að því að rífa aðra hæðina. Ráðgert er að byggja
verziunarhús á lóðinni.
KJ — Reykjavík, þrlðjudrjg.
í gærkvöldi kom upp eldur í íbúð
arhúsinu að Másseli í Jökulsárhlíð
í NMúl., og brunnu allir innviðir
hússins og sömuleiðis fjóssins, sem
stóð skammt frá.
Eldurinn mun hafa komið upp um
klutokan ellefu, og er talið að kvikn
að hafi í út frá olíukyndingu. Mikið
hvassviðri var í Jökulsárhliðinni er
eldurinn kom upp, og magnaðist
hann því á skammri stundu. Heimil
isfólkið komst með naumindum út
úr íbúðarhúsinu, og meiddist hús
freyjan á bænum, er hún var að
forða sér út úr logandi húsinu.
Á Másseli býr Þórarinn Guðjóns
son, og voru tveir synir hans einnig
heima er eldurinn kom upp. Gat
annar þeirra komizt út í fjósið og
náð að leysa kýrnar út í tæka tíð.
Einum kálfi tókst þó ekki að bjarga
og kafnaði hann og brann í fjósinu.
Sömuleiðis drapst heimiliskötturinn
á bænum í brunanum.
BREYTINGAR Á LANDSPRÓFI ■ SAM-
RÆMT GAGNFRÆÐAPRÓF TEKIÐ UPP
FB-Reykjavík, mánudag.
Menntamálaráðuneytið setti í janúar s.l. reglugerð um samræmt gagnfræðapróf, en
reglugerð þessi gerir ráð fyrir samræmdu prófi í íslenzku, dönsku, ensku og stærðfræði.
Þá setti ráðuneytið reglugerð um landspróf miðskóla nú í september, og leysir hún af
hólmi eldri reglugerð um miðskóiapróf í bóknámsdeild. í dag héldu síðan samræmingar-
nefnd gagnfræðaprófs- og landsprófsnefnd blaðamannafund og skýrðu frá helztu breyt-
ingum, sem verða með tilkomu þessara reglugerða.
Ulm gagnfræðaprófið eins og
það hefur verið, sagði Andri
ísaksson, formaður saimræmingar
nefndarinnar m.ia.:
„Allmörg undanfarin ár hefur
verið rætt um nauðsyn þess að
samræma gagnfræðapróf að ein-
hverju eða öllu leyti. Munu á-
stæður þessa vera nokkuð marg-
ar. Vitað er, að námsefni í gagn
fræðadeildum er býsna sundur-
leitt, og einnig hefur verið talið,
að prófkröfur séu mjög misjafnar
í hinum ýmsu skólum. Sú skoðun
hefur lengi verið uppi í þeim sér
skólum, sem við gagnfræðingum
taka, að iítið sé að marka eink-
unnir gagnfræðaprófs og fátt vit
að með vissu um nám að baki
prófinu, meðal annars vegna þess,
að gagnfræðadeildir starfa ekki
eftir samræmdri námsskrá. Lík
legt getur talizt, að það ástand
er hér hefur verið lýst, hafi átt
nokkurn þátt í að mynda þá
skoðun, að gagnfræðaprófið sé
minni háttar próf, er veiti 1 ítil
réttindi. Sennilega má jafnframt
ætla, að gagnfræðingar ættu nú
fleiri kosti framhaldsnáms, ef
próf þeirra hefði verið talið áreið
anlegra og námskröfur tryggari."
Samræminganefnd gagnfræða-
prófs var skipuð í marz s. 1. En
um mánaðamótin april-maí voru
síðan haldin könnunarpróf í ís-
ienzkri stafsetningu og ritgerð,
dönsku, ensku og stærðfræði, en
unnið hefur verið úr könnunar-
prófunum í vor og sumar. Tilgang
ur könnunar prófanna var einkum
tvíþættur, í fyrsta lagi, að fá
nokkra heildarmynd af getu og
þekkingu þeirra, er þreyta gagn-
fræðapróf í íslenzkri ritgerð og
stafsetningu, dönsku, ensku og
stærðfræði og í öðru lagi, að
athuga, hvernig ákveðnar gerðir
og efnisþættir prófa reynast. Tel
ur samræmingarnefndin, að niður
stöður þær, sem nú liggja fyrir,
hafi veitt mikilvæga vitneskju um
þessi atriði.
Samræmingarnefndin hélt síð
an ráðstefnu með kennurum og
skólastjórum gagnfræðaskóla hinn
30. ágúst s. 1. Var þar rætt um
niðurstöður könnunarprófa og
væntanleg drög að námsskrá í áð
urnefndum fjórum fögum. Hefur
nefndin nú lokið samningu draga
a ðnámsskrá þessari og hafa
þau þegar verið send skólum.
Frá og með nýbyrjuðu skóla-
ári munu nemendur því taka
samræmt landspróf í fjórum náms
greinum á gagnfræðaprófi. Þessi
próf skulu miðast við að kanna
ákveðinn kjarna hverrar námsgrein
ar, og þau skulu vera skrifleg og
haldin samtímis um allt land að
því er segir í reglugerðinni um
prófin. Einkunnir verða gefnar
frá 0 til 10 í heiilum tölum og
hálfum. Eina einkunn skal gefa
fyrir hverja námsgrein, nema ís-
lenzku tvær, samkvæmt nánari
ákvörðun prófnefndar. Ekki telzt
nein einkunn vera falleinkunn á
hinu samræmda prófi, og eigi
skal heldur færa meðaleinkunn
Framhald á bls. 14.
Ibúðarhúsið á Másseli var stein
hús, en með timburskilrúmum og
timburlofti. Fjósið var rétt hjá íbúð
arhúsinu, náði eldurinn þangað, og
hefur hvassviðrið líklega hjálpað
þar til. Fólk á næstu bæjum sá eld
inn á Másseli, og kom til hjálpar, en
ekkert varð við eldinn ráðið, og
mun allt hafa brunnið, sem brunnið
gat. Heimilisfólkið á Másseli er nú
á næstu bæjum, og telja menn jafn
vel að bærinn fari í eyði vegna brun
ans, en ekkert skal þó fullyrt um
það.
Hlutu Fálkaorðuna
FB —- Reykjavxk, þriðjudag.
í fréttatilkynningu frá Upplýsinga
þjónustu Bandaríkjanna á íslandi
segir, að Hannes Kjartansson, am
bassador hafi fyrir hönd íslenzku
ríkisstjórnarinnar veitt þremur
Bandaríkjamönnum fálkaorðuna fyr
ir störf þeirra í þágu aukinnar sam
vinnu milli Bandaríkjamna og ís
lands. Þeir sem fengu orðuna voru
frú Guðrún Crosier, Peter Strong
og Erik Friis.
Banaslys á
Banaslys varð á Siglufirði aðfara
nótt sunnudagsins. Þá féll Jörundur
Sveinsson loftskeytamaður milli
skips og bryggju á Siglufirði. Gerðist
þetta um þrjúlevtið um nóttina. Jör
undur var loftskeytamaður á togar
anum Víkingi. Hann lætur eftir sig
konu og börn.
Fra msókna rf élag
Hafnarfjarðar
i Klúbbfundur
verður miðviku-
daginn 2. okt.
kl. 20,30, i
Strandgötu 33.
Jón Skaftason,
i alþingism. ræðir
um stjórnmála-
viðhorfið.
Stjórnin.
STUTTAR FRÉTTIR
20 bátar á rækjuveiðar
GS — ísafirði, mánudag.
Rækjuvertíðin hefst á morgun,
þriðjudaginn 1. október og verða
um tuttugu bátar gerðir út á
rækjuveiðar hér við ísafjarðar-
djúp. Bátarnir eru frá Bolungar-
vík, Hnífsdal og ísafirði. Nú fá
bátarnir að veiða 3 tonn á viku,
en áður hefur það verið takmark
að við 600 kg. á hverjum degi.
13 til 14 þús. slátraS
á Hólmavík
JE — Hólmavik, mánudag.
Slátrun stendur nú yfir hjá
Kaupfélagi Steingrímsfjarðar á
Hólmavík, og verður slátrað held
ur færra fé núna en í fyrra, eða
13—14 þús. fjár. Ekki er búizt
við að bændur fækki fé á félags
svæði kaupfélagsins eins og í
fyrra. Slátrað er á einum stað,
í sláturhúsinu á Hólmaviik. Ekki
er hægt að segja neitt öruggt
um vænleika dilka, enn sem kom
ið er, þar sem slátrun hefur að-
eins staðið yfir í viku. Göngum
var frestað sums staðar hér um
slóðir, þar sem mönnum þötti
ekki liggja á að smala fé af fjöll
um.
Góðar heimtur
Krjúl — Bolungarvík, mánudag.
Slátrun er hafin á Bolungarvík
og stendur sláturtíðin nú sem
hæst. Hafa heimtur hjá bændum
hér um slóðir almennt verið góð-
ar. Horfur eru á því að þungi
dilka verði með betra móti. Slátr
að er á tveim stöðum hér. Verzl
un Bjarna Eiríkssonar og hjá
Einari Guðfinnssyni.
Hofsjökuir á Hornafirði
AA — Höfn, þriðjudag.
f dag kom Hofsjökull hingað
til Hornafjarðar, og er hann
stærsta skip, sem lagzt hefur hér
að bryggju, 2361 lest. Skipstjóri
á Hofsjökli er Júlíus Kemp; sagði
hann, að mjög vel hefði gengið
að leggja skipinu að bryggju hér.
Hofsjökull er að sækja hingað
7000 kassa af freðfiski, sem færa
eiga á Ameríkumarkað.
Eðlis- og efnafræði
KJ — Reykjavík. mánudag.
Út er komið fyrsta og annað
hefti af Eðlis- og efnafræði eftir
Ingolf Andersen og K. W. Nor-
böll, í íslenzkri þýðingu Sigurðar
Eliassonar.
Fyrri bókin er ætluð byrjend-
um, og er hún 125 blaðsíður að
stærð og prýdd skýringamynd-
um. Síðari bókin er ætluð 9. og
10. bekk gagnfræðastigs, lands-
prófsnefndum og iðnskólum og
fl. Sú bók er 160 blaðsíður að
stærð og prýdd skýringamynd-
um. Bækurnar eru fjölritaðar í
Letri sf., en útgefandi er Bóka-
útgáfan Kjölur.
Fjórir skólar settir á
Akureyri
ED — Akureyri, þriðjudag.
í dag voru settir fjórir af skól
um bæjarins. Barnaskólinn var
settur fyrir hádegi, í honum eru
750 nemendur i vetur. Settur
skólastjóri er Páll Gunnarsson.
Eftir hádegi var gangfræðaskól-
inn settur. í honum eru 760 nem
endur, eða fleiri en nokkru sinni
áður. Skólastjóri er Sverrir Páls-
son. Þá var Oddeyrarskóli einn-
ig settur. í þeim skóla verða 470
nemendur í vetur, skólastjóri
Indriði Úlfsson og i Leirárskóla,
sem einnig var settur eru 100
nemendur, skólastjóri. Vilbergur
Alexandersson. Þá var fyrir
nokkru settur vélskólinn á Akur.
eyri, og starfar hann nú í tveim
deildum í stað einnar áður. For-
stöðumaður er Björn Kristinsson.
Þá var Menntaskólinn settur, —
nemendur verða 510—520. Skóla
meistari er Steindór Steindórs
Ragnar Björnsson heldur
orgeltónleika
Ragnar Björnsson mun á næst
unni halda orgeltónleika í nokkr
um kirkjum landsins og verða
fyrstu tónleikarnir i Keflavíkur-
kirkju n. k. miðvikudag (2. okt)
kl. 9. Á efnisskrá eru verk eftir
Pál ísólfsson, Jón Þórarinsson,
Jón Nordal, J. S. Bach, Max Reg
er, Erik Bergman og Olivrr Mes
siaen. Ekki er endanlega ákveðið
hvaða staði Ragnar heimsækir
með orgeltónleika en hann mun
enda þetta tónleikaferðalag með
tónleikum í Dómkirkjunni í Rvík.
I