Tíminn - 02.10.1968, Qupperneq 5

Tíminn - 02.10.1968, Qupperneq 5
®ÐV1KUI>AGUR 2. október 1968. TIMhNN De Gaulle forseti hefur haft hljótt um sig undanfarið. Þó hefur hann haldið blaðamanna fundi öðru hverju og að venju er þeirra beðið með óþreyju, Heyrst hefur að næsta geim skot frá Kennedyhöfða verði þann 11. október. Hinn reyndi geimfari Walter Shirra verður foringi þriggja manna í Appollo geimfari sem sveima á kringum jörðina í tíu daga. Geirnf arið er af þeirri gerð sem Kanar hyggj ast nota til tunglferðar á næst omri. því fólk veit yfirleitt ekki á hverju það getur átt von. Ekki vitum við hvaða boðskap hann er að flytja hér á myndinni, en íbygginn er hann. verkið í myndinni og birtist á tjaldinu með breiða pels- kanta neðan á kjólunum sín- um og flögirandi tjullhatta frá fyrri heimstyrjöld, hnéstuttum shiffonkjólum frá því á þriðja tug aldarinnar, og kápum og kjólum með vænum axlarpúð- urn. Tízkufrömuðir í New York eru svo vissir um að þessi tízka eða réttara sagt þessar tízkur, ryðji sér til rúms, að þeir settu þennan fatnað á markaðinn áður en kvikmynd in var frumsýnd. Sá undarlegi atburður kom fyrir tvo sænska veiðimenn nú fyrir skömmu, að stór kóngs öm réðst skyndilega á hund inn þeirra. Fuglinn kræikti klón nrn í hundinn og lyfti sér með hann upp yfir höfuð veiðimann anna en þeir skutu á öminn og hittu hann þannig að hann neyddist til að skila hundinum aftur. Hvutti mun hafa sloppið með taugaáfall. Nú í ár verður það í annað sinn í amerískri stjórnmálasögu að tveir varaforsetar eiru and stæðingar í forsetavali. Fyrra sinnið var árið 1800 þegar Thomas Jefferson sigraði Jehn Adams. Fjarlægðin til mánans (um 238.000 mílur) verður mæld nákvæmlega, svo nákvæmlega, að ekki á að skakka einum metna. Þeir er framkvæma mæl inguna eru franskir stjörnu- fræðingar í rannsó'knarstöðinni Pic du Midi i Pyreneafjöllun um. Lasergeisla verður beint að mánanum, og endurvarp hans til jarðarinnar mun falla á 107 ferfeta spegil í endurvarpskíki í Pic du Midi. Rafeindaheili verður síðan látinn mæla endur varpið og reikna út tímann, sem það hefur tekið ljósið að fara firá jörðinni til tunglsins í mill jónasta broti úr sekúndu. Til raun þessi verður endurtekin mörgum sinnum til þess að komast að raun um hvernig ljósið endurvarpast frá fjalls- tindum og dölum á tunglinu. Búizt er við nýrri fatatízku í New York innan skamms og má vænta þess að hin fræga Bonny og Clyde tízka verði að víkja fyrir henni. Það er kvik- myndin Funny Girl, sem talin er munu breyta Bonny og Clyde tízkunni og hefur þeg- ar sett svip sinn á hausttízku New York borgar. Kvikmyndin fjallar um banda bandarísku leikikonuna Fanny Brice, sem lék kynþokkadís í fjörutíu ár. Það er Barbara Streisand sem leikur aðalhlut Þéttbýlasta meginlandið í heiminum er Evrópa ef Sovét ríkin eru undanskilin, að því er segir í skýrslu frá Evrópuráð- inu. íbúarnir eru 236 á hverja fermílu. í Asíu eru íbúarnir 176, í Afríiku og Norður og Suður-Ameríku eru íbúarnir 28 og í Eyjaálfu eru íbúarrir tveir á fermflu. Nei, myndin — hér að ofan er ekki frá Biafra, heldur er stúlkan sú arna söngkona með danskri bítlahljómsveit. Hún hefur nýlega lokið hljómleiika haldi og tekur þvá hraustlega til matar síns. Shiran Shiran, og James Earl Ray meintur morðingi Martin Luther King, hafa báðir selt tveim amerískum rit- höfundum „minningar“ sínar. Þeinra hluta af gróðanum sem eflaí»*t mun verða af bókunum á sð varja til kostnaðar við rétt am<«<íin yfir þeim. Bók Shir ans ætlar Robert Blair Kaiser áður blaðamaður við Time að skrifa, en bó’k Rays ætlar William nokkur Bradford Huie að skrifa. Olíumilljóneirinn Pierre •Sohlumberger bauð nú fyrir skömmu til hinnar dýrustu veizlu sem haldin hefur verið síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk. Veizlan stóð í tvo daga, en boðsgestirnir voru eitthvað í kringum þrettán hundruð manns — „þar af voru átta hundruð nánir vinir“ sagði hinn örláti gestgjafi. Meðal hinna góðu vina miljungsins voru þau Margrót Danaprins- essa og Hinrik, maður hennar. J A VlÐAVANGI Mótmælír Bjarni? Ýmsir hafa haldið því fram, m. a. Gísli Guðmundsson alþ.- maður í ágætri grein, að núver andi ríkisstjórn ætti að segja af sér og starfa sem bráða- birgðastjórn, meðan viðræður um nýtt stjórnarsamstarf fara fram, úr því að ríkisstjórnin leitaði á annað borð til minni- hlutaflokkanna í þessu skyni. Bjarni forsætisráðherra hefur mótmælt þessu harðlega og tal ið fráleitt, að stjórnin ætti að segja af sér og látið svo um mælt, að ekki bætti úr skák að efna til stjórnleysis ofan á allt annað. í viðtali, sem Morgunblaðið á í gær við formann ungra Sjálfstæðismanna í Vestmanna- eyjum, kemur hins vegar fram önnur skoðun. Þessi ungi Sjálf stæðismaður segir: „Við veittum Sjálístæðis- flokknum stuðning til ríkis- stjórnarforystu. Ef hann brest- ur getu til úrlausnar eiga þeir að segja af sér“. Þetta segir ungi maðurinn sem rölcsemd gegn myndun þjóðstjórnar. Heilbrioi viðhorf Þetta viðhorf hins unga Sjálf stæðismanns er heilbrigt og lýðræðislegt, og er ástæða til þess að vekja athygli á þrí. Á það hefur hvað eftir annað ver- ið bent hér í blaðinu, að það sé lýðræðislegri ríkisstjórn ekki nóg að hafa þingmeirihluta, heldur verður hún að ráða við verkefni sín og standa við fyrir heit sín. Ef það tekst ekki, á hún að segja af sér ög efna til nýrra kosninga eða gefa færi á öðru stjómarsamstarfi. Það get ur í sjálfu sér verið eðlilegt, að ástandsbreytingar geta valdið því, og það er mannlegt að skjátlast eða ná ekki því marki, sem stefnt er að. Enginn gerir meira en hann getur. En menn og allra sízt ríkisstjórn í lýð- ræðisríki, má ekki bresta heið- arleikann fyrir það, þann mann dóm að draga réttar ályktanir af staðreyndum og bregðast sið mannlega við þeim. Það er grundvöllur heilbrigðs lýðræð- isstjórnarfars, að ríkisstjórn setji sjálfa sig í veð fyrir fram- gang þeirrar stefnu, sem hún I.vsir yfir. Það verður t. d. aldrei ráðið við verðbólgu og efnahagsvanda, nema ríkis- stjóm hafi manndóm til þess að gera þetta. Stjórnartök og afstaða almennings verður allt önnur. ef þetta er engum vafa bundið . Vinstri stjórnin, ríkisstjóm Hermanns Jónassonar, gerði þetta hiklaust. Þegar hún kom ekki fram stefnu sinni um að halda verðbólgu niðri, sagði Hermann Jónasson af sér. Nú- verandi ríkisstjórn hefur farið allt öðru vísi að. Hún lvsti því hátíðlega yfir í öndverðu sem meginstefnumarkj sínu að halda verðbólgu niðri. Stífla hennar brast aftur og aftur og hvað eftir annað, en hún sagði ekki af sér, heldur notaði ráðherra- stólana sem flotholt til þess að hanga í á fleygiferð undan straumnum. í þessu er fólginn meginkjarni þeirrar stjómmála spillingar, sem ríkt hefur síð- asta áratuginn. Ofan á þetta bætti stjórnin svo því að segja kjósendum ósatt um ástandið fyrir síðustu kosningar. f stað Framihald á bls. lö.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.