Tíminn - 03.10.1968, Page 1
BENFICA - VALUR 8:1 SJÁ BLS. 13
Gerizt. áskrifendur ð
Tímanum.
Hringið í síma 12323
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Gunnar Guðbjartsson, formaður Stéttarsambands bænda, um nýja verðlagsgrundvöllinn:
Er áfangi, sem bændur munu
sætta sig við vegna ástandsins
'■'v. •
(Tímamynd—GE).
^M
I.ögreglubíllinn og sjúkrabíllinn eftir áreksturinn. Mennirnir serr. slösuöust sátu aftur í lögreglubílnum.
Lögreglu-, sjúkra- og slökkviliðsbifreiðar í hörðum árekstri:
Lögreglumaöur og „far-
þegi“ slösuöust mikiö
EJ-Reykjavík, miðvikudag.
Stjórn Stéttarsambands
bænda hefur sent út yfirlýs-
ingu, þar sem segir að þær
breytingar, sem orðið hafa á
verðlagsgrundvellinum, séu
til bóta, þótt hún telji hins
vegar ekki horfur á að hann
tryggi bændur tekjujafnrétti
við hinar svokölluðu viðmið-
unarstéttir, sem þó er lögum
samkvæmt meginverkefni
þeirra, sem verðlagsgrund-
völl ákvarða á hverjum tíma.
Sérstaklega bendir stjórnin á,
að fjórum atriðum sé ábóta-
vant:
1. Magn tilbúins áburðar telur
stjórnin of lágt áætlað.
2. Fyrningarkostnaður véla er
ekki í samræmi við vélaþörf
bús af þeirri stserð, sem á-
kveðin er í grundvellinum.
3. Vextir eru í algjöru ósam-
ræmi við fjármagnsþörf
grundvallarbúsins.
4. Vinnumagn í launakostnað-
arliðnum er mun minna en
búreikningar og vinnumæl-
ingar benda til, að þörf sé
fyrir búi af þessari stærð.
Sérst.aklega vill stjórnin
benda á þá staðreynd, að sé
fjármagnskostnaður lítill,
hlýtur vinnuaflsiþörfin að auk
ast að sama skapi. •
Blaðið ræddi í dag við Gunnar
Guðbjartsson, formann Stéttarsam
Framhald á bls. 1.4.
OÓ-Reykjavík, miðvikudag.
Mjög harður árekstur varð í
dag milli lögreglubíls, slökkvi
liðsbíls og sjúkrabíls. Tveir
menn í lögreglubíinum slös-
uðust alvarlega og voru flutt
ir beint á sjúkrahús. Bílarnir
voru allir á leið að Mýrarhús-
um á Seltjarnarnesi, þar sem
tilkynnt hafði verið um bruna
Á öllum bílunum voru rauð
blikkandi ljós og sírenur í
gangi. Heyrðu ökumenn bíl-
anna ekki í öðrum sírénum
en sem þeir þeyttu sjálfir.
Framhald á bls. 14.
Giiunar Guðhjartsson
Dreifingarkostnaður landbúnaðar
vara hefur hækkað um 12-17%
EJ-Reykjavík miSvikudag.'
Hækkun dreifingarkostnaðar hef
ur haft meiri áhrif til hækkunar
á verð Iandbúnaðarvara á almenn
um markaði en hækkun ágrund-
vellinuin til bænda. Sem kunnugt
er hækkaði grundvöllurinn um
rúm 7%, en dreifingarkostnaður-
inn hefur hækkað um 12% til
17%.
Þetta kom fram í viðtali, sem
blaðið átti í dag við Gunnar Guð-
bjartsson, formann Stéttarsam-
bands bænda, um nýja verðlags-
grund'VÖUinn.
— Það hefur komið i ljós í sam
handi við þessa veiðlagningu,
sagði Gunnar, — að dreifingar-
kostnaðurinn hefur auki/t mjög
mikið á siðastliðnu ári, og það er
auðvitað þáttur, seim kemur mjög
illa við neytendur, þ.e. að verð-
lagið hækkar miklu meira í út-
sölunni heildur en það hækkar til
framleiðandanna, eins og reyndar
hefur oft skeð áður.
Það liggur í því, að áhrif geng
isbreytingarinnar kermur öll fram
núna ,en voru að mjög litlu leyti
komin fram í dreifingarkostnaðin-
um áður. Eins er að áhrif hækk-
ana á vinnulaunum í dreifingunni
koma einnig fram í verðlaginu
núna, ennfremur áhrif af breyt-
ingu vegalaganna, þ.e. hækkun á
Framhald á bls. 14.
Froskmenn íundu tvo
séniverkassa / höfninni
KJ-Rcykjavík, miðvikudag.
,í dag fundu froskmeim frá
Landhelgisgæslunni tvo kassa af
Hulstkamp sénivcr i Reykja
víkurhöfn, rétt þar sem Fjall
foss liggur.
TÓflgæzlan hafði grun um að
áfengi liofði verið komið und
an eftir að Fjallfoss kom í
Reykjavíikurhöfn á dögunum.
Var búið að taka einn skip-
verja at Fjallfossi á laugardag
inn með 72 flöskur. er hann ætl
aði að fara með áfengið og
20 þúsund vindlinga í burtu í
bifroið. Við leit í Fjallfossi um
helgina sáu tollverðir þess
merki að meira ólöglegt á-
fengi hefði verið um borð, en
það hafð' verið fjarlægt úr
felustöðunum. Eftir ítarlega
leit í skipinu, var helzt hall
ast að því, að áfenginu hefði
Framhald á ols. 15.