Tíminn - 09.10.1968, Side 5

Tíminn - 09.10.1968, Side 5
Justin de Villeneuve, um- boðsmaður beinasleggjunnar Twiggy hefur nú hitt fyrir nýja stúlku. Twiggy er samt sem áður ekkert afbrýðisöm. Reyndar segir hún um hina nýju stúlku Jutstins að hún sé svo „feimin og yndisleg“. Sú sem þrengir sér þannig á milli Twiggy og Justin er Oilivia nokkur Hussey, 17 ára gömul leikkona sem hefur leik ið Júlíu í „Romeo og Júlía“ undir stjórn Zefferellis hins ítalska. Og það ku eklkert róm antísikt vera við þetta samband hennar og Justins, einungis við skipti, því Olivia hefur falið Justin að sjá um framtíðina fyr ir sig. Héðan í frá á maðurinn sem gerði Cockney-skóiastúlkuna Leslie Hornsey að frægustu sýn ingarstúlku í hcimi,, að auglýsa leikkonu. Og Olivia segist treysta Justin fullkomlcga, því hann sé öðruvfsi en aðrir um- boðsmenn, nefnilega vingjarn- legur og þolinmóður. Olivia hitti Twiggy í fyrsta siun fyrir tveim mánuðum, og Twiggy sagði: „En hvað hún er feimin og taugaóstyrk". Og fljótlega urðu þær hinar beztu vinbonur. Justin kveðst þess fuflviss að ★ / ★ * » ..... ... ., Kiy/Miw.': Anthony Quinn, þykir mörg um stórbrotinn leik*ri. Hér á landi er hann eir#am þekktur fyrir hlutverk sín í myndunum „Grikkinn Zorba“ og „Byssurn kvikmyndatöku og spjallar við ar i Navarone". Á meðfylgjandi tvo syni sína þá Daniele og mynd sjáum við hvar meistar Francesco. inn hefur tekið sér hlé frá hann verði farinn að græða pen inga á Oliviu eftir um það bil eitt ák, þangað til verður hann að látá sér nægja að lifa á því sem Twiggy gefur af sér. Twiggy hefur nú verið boðið hlutverk í kvikmynd, og auðvit að á Justin að leika í myndinni lika. Framleiðandi myndarinnar verður George Dunning, sem gerði „Yellow Submarine“ fyrir Bítlana, en þessi mynd hans á að vera ævintýramynd. Þúsundir íþróttamanna og ferðamanna streyma nú til Mexí'kóborgar alls staðar a'ð úr . veröldinni. Og Mexíkanar sjálf ir skunda til höfuðborgar sinn ar í þeim tilgangi að sjá með eigin augum mesta íþróttavið- burð aldarinnr í Mexílkó. En ibúar Mexíkólborgar efna þús- undum saman til mótmæla og krefjast au'kins frelsis sér til handa. Þar eru stúdentar fremstir í flokki. Og á meðan iþróttafólkið nýtur hins alþjóð lega andrúmslofts í olympíu- bænum og lætur fara vel um sig, standa hermenn á verði og gæta þess, að ekkert utan- aðkomandi verði til að bregða skugga á brosandi andlit í- ^þróttakappanoa. Svíar eru vœst akmennt taldir eiga heimsmeit í því að gera djarfar kynlífskvikmyndir, og ber þá einna hæst hinar marg- umtöluðu myndir Vilgot Sjö mans „Ég er forvitin, gul og „blá“. En sú „gula“ varsýndihér í Stjörnubíói fyrir stuttu og blöskraði margri gamalli konu, en hætt er við að sittihvað al- varlegt eigi eftir að koma fyrir ef vandlætingarpostular gera sér tíðförult að sjá þá kvik- mynd sem nú er bvað mest rædd í Sviþjóð. Hér er sem sé um nýtt heimsmet að ræða. Myndir Vilgot Sjömans verða eins og barnaleikur í saman- burði við „Sem naíktir vindar hafsins“ sem „Swedish film- production" lætur gera undir stjórn Gunnars Höglunds. Hand ritið er unnið eftir skáldsögu Gustav Sandgrens. Svissneskt fyrirtæiki er um þessar mundir a@ setja „kjöt lausa steik“ á markaðinn. Steik in er gerð úr sojahveiti og fram leiðendur fullyrða að hún inni haldi eggjahvítuefni og reynd ar 911 efni sem þurfa a® vera í ekta steik fyrir nokkra aura. Steikin er framleidd í litlum brúnum bitum og þarf að sjóða þá í um það bil fimmtán mín- útur. Fólk sem hefur bragðað hinn iiýja rétt segir að hafi hann verið soðinn lengi þá bragð ist hann reyndar pínulítið eins og nautakjöt, og hamborgararn iir verða ekki sérlega vondir ef þess er gætt að nota mjög mik- ið af tómatsósu. Borgarbúum f jölgar stöðugt í heiminum. Tölfræðimeistarar Évrópuráðsins hafa gefið út skýrslu þar sem segir meðal annars að árið 1800 hafi fimm- tíu borgir um allan heim haft meira en hundrað þúsund (100. 000) ibúa. Núna eru þesesar borgir orðnar fleiri en níuhundr uð. „Af festu og öryggi" Forustugrein Mbl. í gær ber yfirskriftina „Af festu og öryggi“. Greinin fjallar um við- ræður stjónmálaflokkanna og lýkur henni á þessa leið: „Skrif stjórnarandstöðublað- anna að undanförnu um þess- ar viðræður benda ekki til þess að mikil heilindi séu hjá þeim mönnum, sem að slíkum skrif um standa. Þvaður um „gjald-' þrot“ og „uppgjöf“ stuðlar ekki að jákvæðum árangri í þessum viðræðum. Og það skyldu menn gera sér alveg ljóst, að ríkis stjórn Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks mun leggja fram sínar tillögur til lausnar hinum. gífurlegu vandainálum, seni að þjóðarbúinu steðja og fvlgja þeim fram, þótt stjórnarandstað an fáist ekki til samstarfs. Þessi ríkisstjórn hefur jafnan brugðizt við hverjum vanda, sem upp hefur komið af öryggi og festu, gagnstætt' fálmi og stefnuleysi stjórnarandstöðunn- ar og á þeim vinnubrögðum rík isstjórnarinnar verður engin breyting nú.“ Svo mörg eru þau orð Mbl. En væru atvinnuvegirnír komn ir að stöðvun eftir langvarandi hallarekstur, ef „festa og öryggi“ hefði einkennt störf ríkisstjórnarinnar? Og hví skyldn ungir Sjálfstæðismenn krefjast kosninga nú, ef þeir tryðu á „öryggi og festu“ rík- isstjórnarinnar? Tillögur ríkis- stjórnarinnar Anuars er það athyglisverð- ast í framanbirtri klausu úr for ustugrein Mbl. að þvi er haldið þar fram, að ríkisstjórnin „mun leggja fram sínar tillögur til lausnar hinum gífurlegu vanda málum og fylgja þeim fram, þótt stjómarandstaðan fáist ekki til samstarfs.“ En fyrst ríkisstjórnin virðist þannig hafa tiUögur sínar tUbúnar, lxvers vegna leggur hún þær þá ekki fram! Eftir hverju er ver ið að bíða? Er það kannske ekki aðkaUandi, að vandmálin verði leyst sem fyrst? Hvað er það, sem hér dvelur Orminn ianga? Hingað til hefur ríkisstjórnin tafið viðræður stjórnmálaflokk anna með því að láta gagna- söfnunina dragast á langinn. Þetta hefur aðaUega verið skýrt þannig, að ríkisstjórnin hefði tUlögur sínar ekki tilbún ar. Nú segir Mhl. annað. Þess verður þá vonandi ekki langt að bíða, að ríkisstjórnin sýni tiUögumar. j Leikaraskspur? Annað er einnig athyglisvert í áðurbirtri klausu Mbl. Blaðið segir, að stjórnin hafi sínar til- lögur og muni framkvæma þær, hvað sem stjórnarandstaðan geri. En tU hvers era stjórnar- flokkarnir þá að kveðja stjórn arandstöðuna til viðræðna? Er henni aðeins ætlað að segja já og amen við tillögum ríkis- stjórnarinnar? Annars komi ekki sanxstarf til greina. Það væii ekki ófróðlegt að fá þetta upplýst, því að sé þetta rétt, hefur tilgangur stjórnarflokk- anna aldrei verið annar en hel- ber leikaraskapur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.