Tíminn - 09.10.1968, Qupperneq 8

Tíminn - 09.10.1968, Qupperneq 8
8 TIMINN MIÐVIRUDAGUR 9. október 1968. Breiðholtsframkvæmdirnar hafa iamað starf annarra byggingaaðila AK, Rvik, 7. okt. — Á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur s. 1. fimmtudag urðu nokkrar umræð ur um skuld borgarinnar við Bygg ingafélag verkamanna eða bygg- ingasjóð verkamanna svo og bygg ingar borgarinnar vegna fyrir- spurnar Einars Ágústssonar, borg arfulltrúa Framsóknarflokks- ins um það, hve skuld borgar- sjóðs við byggingasjóð verka- manna væri nú mikil. Geir Hallgrímsson, borgarstjóri svaraði fyrirspurninni og sagði að skuldin hefði verið bókfærð 1. okt. s.l. 8,8 millj. kr. en hefði verið 10,6 millj. um síðustu áramót. Kvað hann skuldina að vísu all- mikla, en hún hefði þó farið held- ur lækkandi síðustu misseri, 'og kvaðst hann vona, að framhald yrði á þvi. Einar Ágústsson þakkaði borg- arstjóra svörin og kvaðst líta svo á, þar sem borgarstjóri hefði e kkert tekið fram um það, að eft ir væri að bókfæra og bæta skuld borgarinnar við byggingasjóð verkamanna framlagi borgarinn- ar til sjóðsins samkvæmt fjárhags áætlun á þessu ári, og væri svo skuld borgarsjóðs um 13,6 millj. kr. og hefði þá hækkað um 3 millj. á árinu en ekki lækkað. Að vísu væri sér ekki kunnugt um, hvenær borgarstjóri teldi borgar- framlagið gjaldfallið á árinu, en óeðlilegt væri að gjaldagi þess væri talinn síðar en í október- byrjun hvers árs, þar sem þá væri aðalbyggingatími ársins liðinn. Kvaðst Einar telja það mjög slæmt, að borgarsjóður skyldi verða að skulda byggingarsjóði verkamanna svona háar fjárhæðir en það mundi baka Byggingarfé- lagi verkamanna mikla örðugleiks og með hliðsjón af húsnæðisþörf alþýðufólks væri full ástæða til að gera ekki þessu félagi erfiðara fyrir um byggingu þeirra íbúða, sem það hefur bolmagn til að reisa, eða tefja framkvæmdir þess. Seinagangur hjá borginni. Einar minnti á í þessu sam- bandi, að borgin sjálf hefpi eng-; ar íbúðir byggt síðan háhýsi við Kleppsveg lauk, og væri nú orðið alllangt tímabil, sem borgin sjálf hefði ekkert leyst úr bygginga- þörfum almennings. Hins vegar Heldur borgin byggingafé fyrir Bygg- ingafélagi verkamanna? — Athyglls- verðar umræður í borgarstjórn hefði borgin verið þátttakandi í Breiðholtsáætlun með ríkinu, og sætt sig við það, að borgaríbúð- irnar þar rækju lestina í bygg- ingaframkvæmdum, og þótt allar aðrar íbúðir í fyrsta áfanga þar væru tilbúnar, hefði 'borgarstjóri upplýst, að enn væri nokkuð í land, að borgaríbúðunum þar lyki og mundi það dragast eitthvað fram á næsta ár. Einar kvaðst efast um, að það hefði verið heppilégt, eins og reynslan hefði sýnt að fela allar íbúðabyggingar borgarinnar for- sjá framkvæmdanefndar Breið- holtsáætlunar. Vera mætti, að varla ætti við að halda uppi gagn- rýni á framkvæmdanefndina á vettvangi borgarstjórnar, en hann kvaðst minnast þess, að gagnrýni á störf framkvæmda- nefndarinnar hefði fyrst komið fram hjá Framsóknarmönnum og þá verið talin stafa af öfund, þar sem Framsóknarmenn ættu eng- an fulltrúa í nefndinni, og hefðu flestir borgarfulltrúar annarra flokka tekið í þann streng. Nú virtust fleiri taka undir þá gagn- rýni, og væri ekki talað um öf- und. Einar kvaðst vilja rifja upp, að í reglugerð fyrir áætlun þessa hefði verið talað um, að fram- kvæmd bygginga yrði falin viður- kenndum byggingaverktökum á sama keppnisgrundvelli með víð- tækum útboðum. Síðan fór fram- kvæmdanefndin fram á það, að borgarstjórn samþykkti fyrir sitt leyti að horfið yrði frá útboðs- reglum í verulegum atriðum. Bent um við Framsóknarmenn á það, að þessi leið væri mjög varhuga- verð, og rökstuðningur fram- kvæmdanefndarinnar fyrir þess- ari breytingu væri mjög hæpinn. Mundi vera réttara að beita sér fyrir samsteypu tveggja eða fleiri verktaka, er gætu boðið í stór verk. Við töldum, sagði Einar að Einar Ágústsson framkvæmdanefndin varpaði með þessu rýrð á gildi útboðsfyrir- komulags og hún tæki á sig á- hættu með því að hverfa frá þessu fyrirkomulagi. Þessum röksemdum okkar var algerlega hafnað, sagði Einar. og borgin samþykkti fyrir sitt leyti, að framkvæmdanefndin semdi við einstaka verktaka um framkvæmd ir en byði þær ekki út. Nú er nýtt hljóð í strokknum Nú er nokkur tími liðinn, sagði Einar, ýmsum framkvæmdum lok- ið, og þá bregður svo við, að fleiri aðilar gagnrýna þetta. í for- ystugr. Morgunblaðsins fyrir nokkrum dögum hefði verið sagt um þetta: „Löng reynsla er af því, að framkvæmdir á vegum hins opin- bera verða dýrari en þær, sem gerðar eru á vegum einstaklinga. Breiðholtsframkvæmdirnar hafa notið stuðnings og velvilja alls al- mennings, en ljóst er, að fram- kvæmdanefndin verður að draga réttar ályktanir af þeirri reynslu, sem hún hefur öðlazt. Eðlilegast virðist að framkvæmdir á vegum SjómannastarfíB á ísafírði „Svífur að hausti, og svalviðrið gnýr“ Þannig kvað skáldið eitt únn að afliðnu sumri, sól var far- n að lækka á lofti, skammdegið íálgaðist og allra veðra var von. Þetta er saga sem endurtekur sig. Fáir reyna svo hin snöggu um- skipti íslenzkrar veðráttu sem ijómennirnir. í skammdegismyrkri og hríðarbil verða þeir oft að íeyja hina hörðu baráttu á haf- nu. Þegar til hafnar er komið oarfnast þeir því mest hvíldar. >eir sem ná til heimila sinna, íjóta samverunnar með ástvinum iímum, en þeir eru margir sem Jru í fjarlægri höfn, og hvar hafa oeir athvarf? Sjómannaheimilin eru til þess ið greiða götu þessara manna og íjálpa þeim á margvíslegan hátt. Því miður stöndum við íslending ar langt að baki nágrannaþjóðum okkar að þessu leyti, þó við á mörgum sviðum öðrum, séum í kapphlaupi við þær, og stöndum þeim framar í sumum greinum. Þetta stafar af meiri Kristilegum áhuga þessara þjóða, því öll þessi heimili eru rekin á Kristilegum grundvelli, og starfsemin í heild born uppi af Kristnu áhugafólki. Ég hefi oft áður vakið máls á þessu, og bent á nauðsyn slíkra heimila hér á landi, og vonandi á þetta eftir að breytast til hins betra. Engir finna þetta betur en sjómennirnir sjálfir. enda kom fram eindregin ósk um þetta á síðasta sjómannásambandsþingi. Að þessu sinni ætla ég sérstak lega að minnast á éinn þátt þess arrar starfsemi, Jólagjafir til sjó- manna sem fjarri eru ástvinum sínum um jólin, þá hátíð sem allir Vilja helst vera heima. Margur sjó maðurinn verður þó stöðu sinnar vegna að neita sér um þetta. í Noregi og Danmörku er mér kunnugt um að snemma á vorin og fram eftir vetri berast gjafir til sjómanna-heimilanna í þessu skyni. Víðsvegar í bæ og byggð eru starfandi kvenfélög og sauma klúbbar, sem vinna að þessu bæði með því að safna fé til starfsins og svo vinna konurnar sjálfar ým iskonar efni : jólapakkana. Trúað ar konur senda oft línu með I pakkanum til hins „óþekkta sjó- manns“ og skýra frá persónulegri Framhaid a bls 15 hennar verði boSnar út og þann- ig stuðlað að því að upp rísi stór ir og öflugir byggingaaðilar". Hér er það ekki Framsóknar- öfundin, sem stýrir penna, held- ur Morgunblaðsmenn, sagði Ein- ar. „Einhæf og misheppnuð tilraun". En það er fleira en þetta, sem borgarstjórn hefur fjallað um í sambandi vicj framkvæmdirnar í Breiðholti, sagði Einar. Fram- kvæmdanefndin ákvað að kaupa tilbúin timburhús frá útlöndum, en ég flutti þá hér í borgarstjórn tillögu um að frá þessu yrði horf- ið, en borgin beitti sér í þess stað fyrir samningum við íslenzka smiði um gerð timburhúsa og taldi líkur til, að þeir gætu orðið samkeppnishæfir við innflutt hús. Þessari tillögu var alveg hafn að, og lagðist Gísli Halldórsson fulltrúi borgarinnar í fram- kvæmdanefndinni sérstaklega gegn henni með þunga og beitti sérfræði sinni. Nú hafa þessi hús verið flutt inn og reist, og nú getur reynslan talað, sagði Einar. Blaðamaður Mbl. hefði unnið að sjálfstæðum athugunum á þessu og Mbl segir um þetta: „f öðru lagi var tilraunin með innflutt hús mjög einhæf og mis- heppnuð". Einar spurði, hvort ekki hefði þá verið skynsamlegra að semja við íslenzka iðnaðarmenn, eins og hann hefði lagt til. Atvinnu- ástandið núna mælti a.m.k. ekki á móti slíku. En fyrst hús voru flutt inn hefði þurft að vanda þessi útboð betur. Átti að lækka byggingarkostnað- inn. Eitt af því, sem framkvæmda- nefndin átti að gera samkvæmt skipunarbréfi var að lækka bygg- ingarkostnaðinn. Einar kvaðst hafa haldið því fram og gerði enn, að Húsnæðismálastjórn, sem réð yfir húsnæði og starfsliði, hefði verið fær um að standa fyrir þessum framkvæmdúm, enda var það lögbundið verkefni henn- ar að vinna að lækkun byggingar- kostnaðar. Sú ráðstöfun að setja upp sérstaka nefnd með verkfræð ingum og starfsliði öllu hlyti að hafa aukið kostnað og óeðlilegt væri að hafa tvær samhliða nefnd- ir við sama verkefnið. Ég tel, sagði Einar, að framkvæmda- nefndin hafi ekki á þessi sviði skil að árangri, sem vænta mátti. Á þetta hefð hann verið að minna af og til í borgarstjórn en ekki fengið hljómgrunn, en nú hefði hann fengið stuðning hjá Morgun blaðinu eða þeim blaðamanni, sem athugað hefði og skrifað um Breiðholtsframkvæmdirnar. Nið- urstaða hans væri sú, að verð í- búðanna hefði farið töluvert fram úr áætlun og sé hærra en vísi- töluverð fjölbýlishúsa. Einar kvaðst að vísu ekki hafa samanburðartölur um bygginga- kostnað frá Byggingafélagi verka- manna. en hann vonaði, að með- liimir framikviæmdanefndar Breið holts, sem sæti ættu í borgar- stjórn hefðu allar upplýsingar á reiðum höndum og leiðréttu, ef kostnaðurinn væri eitthvað skap- legri en bláðamaður M!bl. héldi fram. Einar kvaðst telja, að nokk- ur hluti af kostnaði við íbúðir í fyrsta áfanga í Breiðholti hefði alls ekki verið reiknaður með' verði íbúðanna þar, heldur færð- ur yfir í næsta áfanga, og gæti það verið eðlilegt, en gott væri að fá hreina vitneskju um þetta. Einar minnti á, að minnihluta- flokkar í borgarstjóm hefðu flutt tillögu um að skora á ríkisstjórn ina að standa við þann hluta júní- samkomulagsins svonefnda sem fjallar um nýtt fjármagn til Breið holtsframkvæmda, en það er rétt- mæt krafa þeirra húsbyggjenda, sem bíða eftir úrlausn hjá Hús- næðismálastjórn, en hún er nú verkefnalaus vegna fjárskorts. Það er réttmæt krafa, að Húsnæð- ismálastjórn verði skilað því fé, sem tekið var af henni til bráða- birgða og látið í Breiðholtsáætl- unina. En meirihluti borgarstjórn ar hefur ekki viljað standa að slíkri áskorun. Einar kvað illa farið, ef þessar framkvæmdir skiluðu ekki þeim árangri, sem vonazt hefði verið eftir, en yrðu til þess að hefta að mun starf byggingasamvinnn- félaga og Byggingafélags verka- manna og annarra aðila, sem byggt hafa íbúðir fyrir almenn- ing með góðum árangri og viðráð anlegum kjörum. Gísli Halldórsson tók til máls á eftir Einari og reyndi að bera í bætifláka fyrir framkvæmda- nefnd Breiðlholts, minntist á mikla erfiðleika og mikil bylting hefði orðið síðan 1965. Borgarstjóri viðurkenndi einn- ig, að 4,8 millij. framlag borgar- innar væri ekki talið með í skuld borgarinnar við Byggingafélag verkamanna, og er hún því 13,6 millj. um s.l. mánaðamót. Einar Ágústsson talaði aftur og kvað illt, er hann hefði gert Sjálfstæiíisfulltrúunum eitthvert rúmrusk með því að ræða þessi mál, en svo virtist og teldu þeir sig ekki tilbúna að rœða málið. Það væri rétt hjá Gísla, að nú væri um annað að tala en 1965. Nú væri búið að byggja og hægt að taia um raunhæfa hluti os reynslu, en áður hefði verið talað um áætlanir og ráðagerðir. Nú væri kominn tími til að meta, hvernig þær hefðu tekizt og stað- izt. Hann kvað sér vera það fram- andi kenningu, sem Gísli héldi nú fram, að mannekla 1965 hefði ráðið miklu um að ráðizt var í þessar stórframkvæmdir. Það virt ist sízt röksemd fyrir stórfram- kvæmdum, þegar skortur váeri á vinnuafli væri frekar ástæða til þess að ráðast í stórframkvæmdir enda mundi þetta *"era fyrirslátt- ur einn, og ástæðan hefði verið sú, að byggingakostnaður var orð inn mjög hár, og verkalýðsféíög- in vildu freista þess að lækka hann og knúðu rikisvaldið til þess ara átaka. Einar sagði, að auðvitað væri hægt að telja upp mörg atriði, sem boðin hefðu verið út í Breið- holti, en hitt væri stareynd, að meginhluti og kjarni verksins hefði ekki verið boðinn út. Nefnd in hefði í þess stað viljað semja við samsteypu, sem hún hefði sjálf átt þátt í að búa til.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.