Tíminn - 12.11.1968, Síða 6
TIMINN
ÞRIÐJUDAGUR 12. nóvember 1968.
Hver er morðinginn í Melissa?
Fjöldi íólks hefur undanfarin
! iþriðjudagskvöld fylgzt af mikilli
' eftirvæntingu með sakamálaleik-
■ ritinu Melissu í sjónvarpinu. Sýn
ist flestum, að þarna hafi Bretum
tekizt vel upp eins og oft áður i
sakamálasögum og myndum.
Blaðamaður og Ijósmyndari
Tímans brugðu sér í gönguferð
' um borgina fyrir helgina og
spurðu fólk, hver það héldi að
; væri aðalsökudólgurinu. í kvöld
kemur svo vaentanlega í Ijós hver
,af þessu fólki hefur reynzt glögg-
skyggnastur. Skyldi það verða
’ rannsóknarlögreglumaður eða 11
ára skóladrengur? Það er eftir að
vita.
Ásta Tómasdóttir,
Verzl. Björns Kristjánssonar:
Mér finnst læknirinn grunsam-
legur, en alls ekki eiginmaðurinn.
— Þetta er spennandj.
Haraldur Theódórsson,
í Verzluninni Geysi:
Það er mjög gaman að mynd-
inni. Það er nú spurningin hver
er morðinginn. — Felix held ég.
Þorsteinn Sigfússon,
. lögreglulþjónn:
Ég hef ekki horft svo oft, að ég
,-geti vel um það dæmt. Læknir-
inn er grunsamlegur.
Ólöf Hilmarsdóttir,
i 7
afgreiðslustúlka:
. Ég veit ekki. Það er ómögulegt
að segj_a.
Sveinn Björnsson,
listmálari:
Mér finnst leiðinlegt að segja
það, en ég gruna lækninn. Þá hef
' ur mér dottið í hug að leynilögr-
; reglumaðurinn sjiálfur sé morðing
inn, en ég vil ekki trúa þvi
Rebekka Sverrisdóttir,
nemarxdi í 2. bekk Hagaskóla
Ég hef verið að hugsa um þetta
alla vikuna. Það gæti verið dökk-
(hærði karlinn, ég meina ungi mað
urinn, Don Page heitir hann víst.
Svana Eyj ólfsdóttir,
húsmóðir:
Eins og sakir standa finnst mér
læknirinn grunsamlegur, hann er
allavega eitthvað kúgaður. Annars
kemur þetta allt í ljós í síðasta
þætti, það er venjan.
Eyjólfur Jóhannsson,
rakari:
Myndin er ekki sem verst. Mér
hefur nú diottið í hug rS eiginmað
urinn væri sá seki.
Oddur Jónsson,
nemandi í 5 bekk A Miðbæj-
arskólans:
Það er ábyggilega Dr. Swanley. Hugborg HjartardÓttÍr,
Eða þá maðurinn með byssuna, ° °
sem þóttist vera George Anthrop-
us.
Sævar Halldórsson,
starfsmaður tæknideildar
rannsóknarlögreglunnar:
Það er ómögulegt að segja. Mað
ur hefur ekki getað rannsakað
vettvanginn sjálfur. Læknirinn og
Don Page eru grunsámlegir. En
þeir eru gerðir grunsamlegir, svo
að það er ekkert að marka.
í verzluninni Vísi:
Mér fannst Felix Hepburn grun
samlegur í síðasta þætti. Annars *
hef ég ekki horft n-ema tvisvar
og get ekki vel myndgð mér skoð
uin um þetta.
Njörður Snæhólm,
rannsóknarlögreglumaður:
Það getur verið hver sem er,
læknirinn eða Don, ungi maður-
inn, sem gengur í augun á kven- -
fólkinu. Þó held ég, að það sé 1
hvorugur þeirra. — Annars hef;
ég ekki alltaf horft á myndina og
get því ekki almennilega myndað
mér skoðun á miálinu.
Eftir 30 ára starfsemi er Iðunn
skógerð, viðurkennd verk-
smiðja í íslenzkum skóiðnaði.
Iðunn fjöldaframleiðlr fyrir
fjöldann.
Meginþorri þjóðarinnar getur
dæmt um Iðunnarskóna af eig-
Jn reynzlu.
Það er styrkur starfseminnar.
ÖRUGG TRYGGING
VERÐS OG GÆÐA.
IÐUNN