Tíminn - 17.11.1968, Qupperneq 2
2
TIMINN
SUNNUDAGUR 17. nóvember 1968.
'y. jrtttSsi
iilii J
WfÁLJ.i’.vr a *r£x . :<■ UTí.' Á, U
HEFUR DR. GUNNAR
JARRING MISTEKIZT?
Mohammed Fawzy, hershöfðingi, varnarmálaráðherra Egyptalands (t.v.) og Nasser, forseti, kanna ástandið við Suez-skurð. Varnar-
máttur Egyptalands er nú talinn slíkur, að ísraelsnienn geti ekki endurtekið leiftursókn eins og þá, sem þeir gerðu í fyrra.
ÞÓTT MEIRA EN ár sé lið-
ið frá sexdagastrríðinu milli
ísraels og Arabaríkjanna, virð-
ist ekkert hafa þokað í átt til
friðar milli þessara aðila. Hef-
ur verið fullyrt hina síðustu
daga, að hið mikla starf Dr.
Gunnar Jarrings, sáttasemjara
Sameinuðu þjóðanna í þessu
m'áli, hafi til einskis orðið.
Jarring hóf starf sitt í desem-
ber í fyrra, og hefur ráðning-
artími hans verið framlengdur
þrisvar sinnum, og nær nú til
mlánaðarmótanna.
Dr. Jarring hefur undan-
farna daga og vikur lagt sig
í líma við að fá fúlltrúa deilu-
aðiianna — aðallega þó ísra-
els, Egyptatlands og Jórdaníu
— til að semja fyrir milli-
göngu sína. Hefur honum tek-
izt að fá utanríkisráðherra
landanna til að skiptast á fyr-
irspurnum og svörum á þann
hátt, en ekki er þó hægt að
nefna slíkt samninga.
Hefur Jarring látið í ljósi
þá skoðun sína, að ef þessi
tilraun hans til að koma á frið-
arsamningum í einni eða ann-
arri mynd mistekst eins og
hinar fyrri ,þá sé til lítils fyrir
hann að halda áfram sátta-
semjarastarfi sínu. Er því allt
í óvissu um áframhaldandi
starf Dr. Jarrings.
ÞAÐ HEFUR GERT útlitið
enn svartara nú síðustu daga,
hversu mikil átök hafa orðið
bæði milli herliðs fsraels og
Egyptalands og ísraels og Jór-
daníu. Hafa þessir aðilar marg
sinnis lent í alvarlegum átök-
um á vopnahléslínunni að
undanförnu.
En Jarring hefur haft að-.
gang að utanríkisráðherrum
landanna þriggja allt frá því
í byrjun september síðastlið
inn í New York. Utanríkisráð
herra Egyptalands, Mahmoud
Riad, og Jórdaníu, Rifai, fóru
á dögunum til heimalanda
sinna, en Abba Eban, utanrík
isráðherra ísraels, dvaldi um
kyrrt í New York um tíma.
Telja margir, að heimför Ri
ads og Rifais þýði, að Dr. Jarr
ing hafi mistekizt, enda hefur
afstaða aðilanna þriggja ekkert
breytzt að því er virðist frá
lokum sexdagastríðsins. Blöð í
Kairó, höfuðborg Egyptalands,
hafa einnig lýst því yfir, að til
raunir hans hafi mistekizt.
Segja þó góðar heimildir, að
bæði Egyptar og ísraelsmenn-
muni gera allt er þeir geta til
þess að Dr. Jarring haldi á
fram starfi sínu, því mjög
hættulegt ástand geti skapazt.
ef enginn sáttasemjari verður
að störfum.
ANNARS ER EKKI von til
þess, að mikið miði í samkomu
lagsátt á meðan hvorugur að
ilinn gefur eftir svo nokkru
nemi í afstöðu sinni.
Þannig krefjast Arabaríkin
þess, að ísraelsmenn yfirgefi
hernumdu svæðin, og þannig
verði upp tekin þau land~mæri
er giltu fyrir sexdagastríðið.
Aftur á móti virðast Araba
ríkin ekki hafa hug á friðar
samningum við ísraelsmenn.
enda viðurkenna þeir ekki til
verurétt ríkis þeirra.
ísraelsmenn gera einnig
mjög erfitt fyrir. Þeir krefj
ast beinna viðræðna milli ísra
Dr Gunnar Jarring,
— hættir hann?
els og Arabaríkjanna, ákveð
inna friðarsamninga milli ríkj
anna og samkomulag um ný
landamæri, sem stækki fsrael
verulega frá því sem var fyrir
sexdagastríðið. Er vitað, að
ísraelsmenn munu aldrei fall
ast á að láta af hendi Golan
hæðirnar í Sýrlandi, jórdanska
hluta Jerúsalem og ef til vill
allan vesturhluta Jórdaniir.
Jafnframt krefjast þeir þess.
að verði Sinaiskaga skilað aft
ur, skuli engir egypzkir her
menn staðsettir þar, og jafn
framt skuli ísraelskum skipum
heimilt að sigla um Suezskurð
og Tiran-sundið. Er talið, að
sögn New York Times,_ að í
þeirri kröfu felist, að ísraels
menn skuli áfram ráða Sharm
el Sheik-virkinu við Tíransund
ið.
Á MEðAN KRÖFUR beggja
aðila eru sem hér segir, virð
ast litlar horfur á friði í lönd
u.num fyrir botni Miðjarðar
hafsins.
Þá hefur ástandið í Jórdan
íu síðustu dagana aukið mjög
Levi Eskhol,
— ráðherrar ósammála
á ótta manna um víðtæk hern
aðarátök á næstunni og fall
Husseins, konungs í Jórdaníu.
SEXDAGASTRÍÐIÐ fór
mjög illa með_ Jórdaníu Huss
eins konungs. ísraelsmenn her
tóku vesturhluta landsins, sem
er frjósamari hluti Jórdaníu —
án veirturhlutans á Jórdanía
euga möguleika á að standa á
eigin fótum, sem sjálfstætt
ríki.
Til viðbótar við landmissinn
hefur Hussein orðið að taka
við miklum fjölda flóttamanna
bæði frá vesturhlutanum. og
eins flóttamenn úr fyrra stríði
Jórdaníu og ísraelsmanna.
Við bætist síðan, að eftir sex
dagastríðið hefur fjöldi sam
taka risið upp í landi hans og
stundað skæruhernað gegn
ísraelsmönnum, bæði í vestur
hlutanum og ísrael Hafa hreyf
ingar þessar talað um, að
frelsa alla Paiestínu, þar á
meðal ísrael. og afhcnda Pal
estínu-Aröbum, sem orðið
hafa að flýja þaðan síðustu
áratugina.
Hussein Ibn Tatal
— milli steins og sleggju.
ÞÓTT IIUSSEIN sé illa við
öfgastefnu sumra þessara
hreyfinga, er hann í mjög erf
iðri aðstöðu, þar sem hreyfing
arnar eru mjög vinsælar með
al flóttamannanna í iandinu.
Hann á því á hættu. að hrevf
ingar þessar taki hreinlega
völdin í landinu, ef hann legg
ur til atlögu gegn þeim — eða
ef hann gengur of langt í
samningaátt við ísrael.
Á móti kemur. að ísraels
menn hafa látið á sér skiljast.
að ef öfgahreyfingarnar taki
völdin í Jórdaníu, muni þeir
hertaka iandið allt.
Virðast menn því ekki bein
línis friðsamlega sinnaðir þar
eystra sem stendur.
í ÍSRAEL ER annars ekkert
samkomulag um, hvað gera
skuli í sambandi við hernumdu
svæðin — en flestir reikna víst
með, að þau verði hernumin
um langan cima.
Moshe Dayan, varnarmála
ráðherra i stjórn Levi Eskhoi-
hefur lengi lýst þeirrí skoðun
sinni opinberlega, að vinna
ætti skipulega að því að gera
þá um eina milljón Araba, sem
búa á herteknu svæðunum, að
hluta af ísraelsþjóð. Á hann
þá við, að aðlaga skuli þetta
fólk ísraelsku efnahagslífi, og
gera það svo háð ísrael, að
óvilji þess í garð fsraelsmanna
ihverfi vegna þeirra tengsla.
Telur hann, að með því móti
sé hægt að leysa grundvallar
atriðið í máljnu, tveggja ára
tuga deilu ísraelsmanna og
PalestánuArab.a. Dayan telur,
að vissulega verði um langt
hernám að ræða. og því verði
að vinna að slíkri lausn máls
ins.
UM síðustu helgi lét einn af
álhrifamestu stjórnmálaleiðtog
um landsins, Pinhas Sapir,
ráðherra án ráðuneytis, í sér
heyra um þetta mál, og and
mælti sjónarmiðum Dayans
mjög ákveðið. Taldi hann ótal
hættur felast í því, að aðlaga
Arabana ísraelsku efnahafslífi.
Með því væri framtíð fsrael
sem ríki Gyðinga sett í mikla
hættu.
Vitað var, að um afstöðuna
til hernumdu svæðanna og
Arabanna, se_m þar búa, eru
ráðamenn í ísrael mjög ósam
mála. og því undraði fólk ekki,
að sú deila er nú orðin opin
ber. Aftur á móti mun Eskhol
lítt hrifinn af deilum ráðherra
sinna á opinberum vettvangi
og lét þá óánæg.iu sína í ljósi
á fimmtudaginn var.
ALMENNT ER TALIÐ. að
mjög lítil von sé til þess, að
Dr. Jarring takist að ná sam-
komulagi milli deiluaðila j
löndunum fyrir botni Miðjarð
arhafsins- Það hefur þó verið
haft eftir bandarískum heim
ildum, að vel sé mögulegt, að
einhver árangur náist í næsta
mánuði. Virðist i raun, sem
Framhald á bls. 14