Tíminn - 17.11.1968, Page 14

Tíminn - 17.11.1968, Page 14
14 TIMINN SUNNUDAGUR 17. nóvember; 1968. Kristniboðsvika Dagana 17.—24. þessa mánaðar verða kristniboðssamkomur í húsi KFUM og K við Amt- mannsstíg hvert kvöld kl. 8,30. Sagt verður frá kristniboðinu í Konsó og þar sem ísl. kristni- boðar starfa annars staðar í Eþíópíu. Hugleiðing verður í lok hverrar samkomu. Fyrsta samkoman verður í kvöld kl. 8,30. Kristniboðsfrásaga verður og séra Ingólfur Guðmundsson hefur hugleiðingu. — Kvartett U.D. í KFUM syngur. — Á mánudagskvöld verða sýndar litmyndir: Læknisvitjun í Eþíópíu. — Árni Sigurjónsson bankafulltrúi, hefur hugleið- ingu. Einsöngur. — Allir vel- komnir. Samband íslenzkra kristniboðsfélaga. BANKARNIR Firamhald af bls. 1. izt verulega og öll viðskipti orðin viðameiri en áður var. Má nefna sem dæmi, að ávís- anareikningar við bankastofn- anir á Reykjavíkursvæðinu eru vel yifir 60.000 og fjöldi tékka sem bókaðir eru daglega, er 10-15 þús. í kjölfar þessarar þróunar hefur misnotkun tékka aukizt verulega. Þessar aðstæður allar valda því, að afstaða bankastofnana hlýtur að breytast til aðila, sem ekki eru í föstum viðskipt um og er umrædd auglýsing til komin þess vegna, að því er segir í tilkynningunni frá samivinnunefnd bankanna. Vona þær stofnanir, sem að þessu máli standa, að almenn- ingur sýni því fullan skilning, en markmiðið er að sjálflsögðu, að skapa aukið traust í banka- viðskiptum og styrkja gildi og öryggi tékka. ©AUGLÝSINGASTOFAN Böraimrita hvað pu i ilfa ••• ••• i'filfa kikföngin grá l®f kjalnndi REYKJALUNDUR, sími um Brúarland. Skrifstofa í Reykjavík: Bræðraborgarstíg 9, síml 22150 Miðstjórn ASÍ mót- mælir Þjóðvilja- frétt Svöhljóðandi ályktun var ein- róma samþykkt á fundi mið- stjórnar ASÍ í gær: „Vegna skrifa dagblaðsins Þjóð viljans í dag, þar sem veitzt er að fulltrúum launþegasamtakanna í Verðlagsnefnd og sérstaklega að Birni Jónssyni og jafnvel gef- ið í skyn, að hann og aðrir full- trúar samtakanna hafi með starfi sínu í nefndinni stutt að stór- felldum verðlagshækkunum á því tæpa ári, sem þeir hafa átt þar sæti, vill miðstjórn Alþýðusam- bands íslands lýsa því yfir, að fulltrúar samtakanna hafa starfað þar á þann hátt, að fullyrða má, að þeir hafa hindrð verðhækk- anir í verulegum mæli, og trú- lega svo, að háum upphæðum skiptir í skertum verzlunargróða og lægra vöruverði en ella hefði gi'lt. Þá vill miðstjórnin lýsa því yf- ir að gefnu tilefni, að Björn Jóns son tók sæti í nefndinni að ein- dregnum tilmælum miðstjórnar- innar, þótt hann væri, vegna anna við önnur störf, ófús til þess. Miðstjórnin vill ennfremur lýsa fyllsta trausti á fulltrúa sína í Verðlagsnefnd og þakka mikils- verð störf þeirra þar í þágu laun- þega og neytenda". DAGSBRÚN Framhald af bls. 1. gluggum. Sjást hvergi merki þess að brotizt hafi verið inn í sjálfa bygginguna. Fyrst hafa þjófarnir reynt fyrir sér á fjórðu hæð, en gefizt upp , við að komast inn um dyr þar. í Skrifstofur Dagsbrúnar eru á fyrstu hæð. Þar hafa þjófarnir komizt inn með því að taka stóra | rúðu úr falsi í hurð. Rifu þeir | listana, sem héldu rúðunni, úr. Þegar komið var inn á innri gang var sami háttur hafður á að kom ast inn um aðrir dyr þar. Þegar inn var komið hefja þjófarnir pen ingaleit. Brutú-þeir upp hurðir og skúffur og höfðu meðferðis sæmi leg verkfæri til þess brúks. Er innbrotið auðsjáanlega undirbúið og hafa þjófarnir gefið sér góðan tíma til að komast í hirzlur. Brutu þeir upp fjóra litla peningakassa og stóran peningaskáp. Fyrst bor- uðu þeir gat á skápinn og stækk- uðu það með viðamiklu verkfæri, sennilega stóra meitlinum. Ekki dugði þessi framkvæmd samt til að ná í allt fé sem í skápnum var og var nú byrjað á nýjan leik og hurðin sprengd upp. Eins og íyrr segir er ekki vitað með vissu hve miklu stolið var. Hvorki í peningum eða af öðrum verðmætum. En víst er að pening arnir sem hurfu eru ekki mikið undir 200 þúsundum króna, kann- ske meira. Meðal þeirra peninga sem hurfu, var aðgangseyrir sem greiddur var að dansleiknum í Lindarbæ í gærkvöldi, og hafi þjófarnir þurft að borga sig þar inn, eru þeir búnir að ná þeim kostnaði inn aftur. Verkfærin skildu þeir eftir, hafa sennilega haft nóg að bera. Leiga Blikur Út af samtali við Guðjón Teits son, forstjóra Skipaútgerðar ríkis ins, sem birtist í blaðinu í gær, óskar hann að taka fram, að það hafi ekki verið eingöngu vegna gengisbreytingarinnar, sem áfram- haldandi leiga Blikur myndi hafa hækkað um nærri 20 þúsund kr. á dag, heldur einnig vegna veru- legrar hækkunar grunnleigu, sem eigendur skipsins vildu fá. En að lokum var skipið ekki falt, þar eð eigendur höfðu ákveðið að setja það í áætlunarsiglingu milli Fær- eyja og Kaupmannahafnar. Keflavík Framsóknarfélag Keflavíkur heldur aðalfund sinn sunnudaginn 17. nóv. kl. 8 síðdegis í Aðalveri. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundar störf, 2. Kosnir fulltrúar á kjör- dæmisþing, 3. umræður um bæjar mál. Kjósarsýsla Framsóknarfélögin í Kjósarsýslu halda almennan félagsfund mið- vikudaginn 20. nóv. kl. 9, að Fólksvangi. Kosnir verða fulltrúar á kjördæmisþing. Jón Skaftason, alþingism. mæt- ir á fundinum. Stjórnir félaganna. Dylgjur út af skip- an miðstj. Alþ.- bandalagsins ATHUGASEMD FRÁ JÓNASI ÁRNASYNI Ég sé í blöðum að heiman, að sú staðreynd, að ég er ekki meðal miðsitjórnarmanna Alþýðubanda- lagsins, er notuð til að lauma því að fólki, að ég sé hundfúll út af þessu öllu saman og vilji helzt enga ábyrgð bera á flokksstofn- uninni. Morgunblaðsmiaðurinn Styimir Gunnarsson gengur lengst í þessum dylgjum. Þó veit hann, þessi gamli bekkjarbróðir Ragnars Arnalds og persónulegur kunningi okkar Ragnars beggja, að með flokksstofnun þessari hafa loks rætzt vonir, sem ég hef lengi gert mér um Alþýðubandalagið, bæði hvað skipulag og forustu þess snertir. Ég fór hingað vest- ur á þing S.Þ. beint af skemmtun Alþýðubandalagsmanna á sunnu- dagskvöldið, bjartsýnni og í anda hressari en ég hef verið langa lengi. Ástæðan til þess, að ég baðst undan kosningu í miðstjórn, var einfaldlega sú, að ég hafði sem kjörnefndarmaður lagt fram til- lögu með nöfnum fólks, sem að mínum dómi átti allt meira erindi í miðstjórn heldur en ég, og við þessa tillögu hlaut ég að standa. Með því að taka kjöri, hefði ég brugðizt því samkomulagi, sem náðist í nefndinni og gert mig þarj með að óþarflega ómerkilegri peri sónu. Þetta veit ég, að allt heiðarlegt I fólk hlýtur að skilja — og einnigj Styrmir Gunnarsson. New York,_8. nóv. 1968, Jónas Árnason. Kirkjukvöld i Hallgrímskirkju Kirkjukvöldin í Hallgrímskirkju eru fram að jólum að nokkru leyti helguð heilbrigðismálum. Lækning líkamlegra og andlegra meina hefir á öllum öldum verið áhugamál kristinnar kirkju, og í flestum löndum er nú vaxandi samvinna með læknum og prest- um. Á sunnudagskvöld er kirkju- kvöld í Hallgrímskirkju, og hefst kl. 8,30. — Ræðumaður kvöldsins er prof. dr. med. Sigurður Sam- úelsson. Ræða hans mun fjalla um almennar heilsufarsrannsóknir. Þá verður samleikur tveggja nemenda tónlistarskólans á fiðl- ur, Dóru Björgvinsdóttur og Júlí- önu Kjartansdóttur. Ennfremur mun organisti kirkjunnar, Páll Halldórsson, leika einleik á orgel, og söngfiokkurinn aðstoða við al- mennan safnaðarsöng. VIÐREISNARHRUN Framhald af bls. 1 andi efnahagsvandræðum á fs- landi, sem væri eitt aðildar- ríkjanna. íslenzku fulltrúarnir höfðu ekki vitað um það fyrirfram, að tillaga þessi yrði borin upp, og mun hún hafa komið þeim nokkuð á óvart. ÁRÁS Á ALÞÝÐUNUA Framhald af bls. 1. jafn róttæki’a aðgerða í efnahags- málum, án nokkurra tilrauna til þess að leita samráðs við launa- stéttirnar, stilla verkalýðnum upp fyrir orðnum hlut og bjóða síðan viðræður um hliðarráðstafanir, sem eigi að létta byrði gengis- fellingarinnar, sem þó er Ijóst, að breyta eigi þeirri staðreynd er nú blasir við, það er að afleiðing gengisfellingar leiðir yfir verka- lýðinn slíka kjararýrnun, að ó- gerningur verður fyrir verka- manninn að framfleyta sér og sín- um af launum sínum. Því mótmælir fundurinn harð- lega gengisfellingunni og hinni boðuðu bindingu kaupgjalds. Skorar fundurinn á allan verka lýð í landinu að rísa upp og hefja bará-ttu fyrir lífvænlegri lífskjör- um og verðtryggingu launa. Til að undirstrika vilja sinn í þessu efni og undirbúnings vænt- anlegri baráttu, samþykkir fund- urinn að segja upp samningum við atvinnurekendur.“ I HEIMSFRÉTTUM Framhald af bls. 2. einhver samstaða sé milli stór veldanna — Bandarfkjanna og Sovétríkjanna — um að hafa stjórn á málum fyrir botni Miðj arðarhafsins, og koma í veg fyrir frekari styrjaldará tök. En stórveldunum hefur áður reynzt erfitt að stjórna þessum rí-kjum, hvort sem það eru Arabaríkin eða ísrael, svo vonir manna eru ekki sterkar. Aftur á móti eru ýmsir þeirr ar skoðunar, að nú sé síðasta tækifærið til að koma í veg fyrir nýja styrjöld milli fsra els og Arabaríkjanna, en báð ir aðilar eru að nýju mjög vel vopnum búnir. Þannig lét Cara don lávarður, lastafulltrúi Bret lands hjá Sameinuðu þjóðun um, i Jjós þá skoðun sína á fundi Öryggisráðs S.Þ. á dög unum, að „ef okkur mistekst árið 1968, þá mun 1969 vissu lega verða ár afleiðinganna, árið. þegar hatur og ótti og vonleysi taka alia stjórn. þeg ar hryllingur annarrar styrj aldar verður hræðileg stað- reynd.“ Elías Jónsson.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.