Tíminn - 28.12.1968, Blaðsíða 8

Tíminn - 28.12.1968, Blaðsíða 8
8 TÍMINN LAUGARDAGUR 28. desember 1968. ÚTSYNNINGUR Sjðtíu og fimm ára gamall maður hefur lifað litrikt skeið islenzkrar sögu, honum eru há- tfðahöldin í tilefni aldamót- anna í barnsminni. Hann hefur séð sjálfstæð'sdrauma þjóðar- innar rætast 1918 og 1944, þjóð ltf og lifnaðarhættir hafa ger- |>ylzt um hans tíma og senni- legq^hefur hver stökkbreyting- in rekið aðra í þeirri starfs- grein, er hann hefur valið sér að ævistarfi. Einn þeirra, sem 75 ára eru á þessu herrans ári, 1968, er Gunnar Einarsson, prentsmiðjustjóri í Leiftri. Störf Gunnars að prentiðn, prentsmiðjurekstri og bókaút- gáfu spanna orðið 59 ára tíma- bil og er því ekki úr vegi að nota merkisafmæli hans sem á- tyllu til þess að rif ja upp fyrstu lærlingshandtök hans í ísafold- arprentsmiðju, og hvernig lífið var í þá gömlu daga. Gunnar Einarsson er fæddur 26. des. árið 1893 í Reykjavík og hefur alið allan sinn aldur þar. Hátíðahö’idin í sambandi við aidamótin fóru fram á mót- um áranna 1899 og 1900 en ekki 1900 og 1901, eins og kannski hefði átt að gera sacn- kvæmt venjulegum tímatals- reikningi. En eins og nærri má geta hafa menn verið bráðlátir að fagna þessum tímamótum. Gunnar var því ekki nema sex ára aldamótaárið, en samt var hann á Austurvelli, þegar álfadansinn dunaði og litfagrar luktir voru bornar úr Alþingis- húsinu í strekkingsvindi út á Austurvöll og einlægt var að slokkna á þeim. Eina skreyt- ingin í bænum þá var allavega litur pappír á rúðukrílum kot- anna í sjávarþorpinu, sem átti eftir að verða að bæ og borg og vera skreytt miklu veglegar. En þetta þótti gott í þá tfð. ritstjóri í þann vegiun að setj- ast í ráðherrastól. Ólafur sonur hans að taka við ritstjórn ísa- foldar, og prentsmiðjunni. Mig minnir að Björn hafi hætt nokkrum mánuðum eftir að ég byrjáði. — Vélabúnaðurinn var ekki viðamikill í gömlu ísafold. I>að var ein bókapressa sem stúlka lagði í og svo tvær aðrar smá- vélar. Allt Lesmál var hand- sett og klisjur af þeim fáu myndum, sem birtust í blöð- unum voru allar gerðar í Dan- mörku. Fynstu myndaklisjutia, sem gerð var að öllu leyti hér- lendis skar danskur sýningar- stjóri í Nýja Bíói, Bang hét hann líklega, út í linoleum dúk. Hún birtist t Morgunblaðinu árið 1913 og fylgdi æsifregn um konu, sem deyddi bróður sinn með því að gefa honum inn rottueitur í skyri. Þetta var frægt morð, framið til fjár hérna á Vesturgötunai. En eftir að Valtýr Stefánsson Og Ólafur Björnsson settu á stofn Morgunblaðið fór að verða þörf á hraðvirkari press- um og setningarvélum og smátt og smátt iókst vélakostur prent smiðjunnar. Prentsmiðjurnar voru „suðu- pottar" mannlífsins í Reykja- vík fyrstu áratugina eftir alda- mótin. Þegar Gunnar hóf prent námið, sem stóð þá í 4 ár, voru prentsmiðjur í Reykjavík auk ísafoldar, Þjoðólfsprentsmiðja. en hana átti ritstjóri Þjóðólfs, Hannes Þorsteinson, Þjóðvilj? prentsmiðjan í eigu Skúla Thor Gunnar Einarsson. okkur í skyn, að þar væri um að ræða konu eins af beztu borg urum Reykjavíkur, en lítil lík- indi eru til þess að fsraiíd- skáldið hafi >omizt í týgi við hana. — En það var ekki bara prentað í íafold. Spíritiismi ruddi sér töiuvert til rúms í Reykjavík um þetta leyti og var Björn Jónsson mjög hlynnt ur honum. Mér er nær að halda, að vagga spíritismans á íslandi hafi staðið í skrifstofu gömlu ísafoldarprentsmiðjunn- ar við hliðina á setjarasalnum. Þar voru haldnir einna fyrstu andafundir, sem sögur fara af, með Guðmund Kamban rithöf- und sem miðil. Þá rifjast upp fyrir mér dæmi um það, hvað stjómmála baráttan var persónuleg á þess um árum og hve alls konar skætingur var algengur í biöð- unum. Haraldur Níelsson, pró- fessor og Þórður Sveinsson, yf- irlæknir á Kleppi, voru helztu forvígismenn sálarrannsókna hér, en einhvern tfma voru þeir báðir í framboði til þings ísafoldarmegiu. í hópi póli- tiskra andstæðinga var blaðið aldrei kallað annað en „fsa“. Þess vegna var það, að í einu Reykjavíkurblaðinu birtist eftirfarandi vísa, sem varla hefur átt að teljast alvarlegt framlag til kosningaáróðursins: „fsulið esr illa meant ætlar því að senda á þing Hara drauga dirigent og Dodda yfirvitfirrmg.“ Nú liggur beint við að á- lykta, að setjararnir hafi orð- ið fyrir áhrifum af „kuklimr* á skrifstofunni. — Ég dróst aldrei inn f þetta, og hef alla tið verið trú- laus maður á þá vísu, sem al- ménnt er lagt í hugtakið fcrú. En ég er staðfastlega sanntrú- Afmælisviðtal við Gunnar Einarsson í Leiftri Faðir Gunnars og bróðir voru báðir sjósóknarar og hvers vegna skyldi hann ekki hafa fetað í fótspor þeirra? — Ég gerði ráð fyrir því eft- ir fermingu að ég færi á sjó- inn, en ætli maður ráði eJns miklu um sitt eigið lífshlaup eins og margir vilja vera láta. Öriögin höguðu því þannig að ég byrjaði prentnám í eld- rauðri ísafold, gömlu ísafoldar- prentsmiðjunni að Austurstræti 8, árið 1909 fyrir blinda til- viljun. Þá var Bjöm Jónsson, oddsens, prentsmiðja blaðsins Reykjavíkur með Jón Ólafs- son sem höfuðpaur og Félags- prentsmiðjan. Gutenbergprent smiðjan hafði og einu ári áður, 1908, hafið starfsemi sína und- ir stjórn Þorvarðar Þorvarðs- sonar. Ætli það hafi ekki verið skemmtilegt að vera setjari á þessum tímum, þegar stjórn- málabaráttan var hörð og skör- ungarnir skóku pennana hvor- ir framan í aðra? — Samband þeirra sem settu og þeirra sem skrifuðu, var miklu nánara, held ég, en nú þegar allt þarf að ganga fyrir sig með vélrænum hraða. Það var svo sem látið viðgang- ast þó handrit, sem öll voru handskrifuð, þyrftu að ganga frá manni til manns í prent- smiðjunni, svo hægt væri að fá botn í þau. Þó urðu prent- arar með tímanum allra manna bezt læsir á handrit, og blöð- in voru ekki eins ilia haldin af prentvillupúkanum og nú. Handrit sumra, sem þó voru alltaf að láta birta eitthvað eft- ir sig, eða láta leiðrétta fyrir sig Alþingistíðindin, eins og Hannes Hafstein, Hannes Þor- steinsson og Steingrímur Jóns- son, sýslumaður, voru á köfl- um ólæsileg, en við vöndumst á að ráða í samhengið. Jónas Jónsson frá Hriflu skrifaði líka hrafnaspark, sem helzt enginn gat ráðið nema Jón Þórðarson, prentari, sem þá var í ísafold með mér. Það voru „ekspert- ar“ í hverri rithönd. Enginn skyldi þó halda að stórhöfðingjarnir hafi verið einir um að heimsækja okkur í prentsmðjuna Símon Dalaskáld heimsótti okkur t.d. oft þegar hann var á ferðinni í Reykjavík. Dala skáldið nauðgaði skáldgáfu sinni freklega með því að vera síyrkjandi nótt sem nýtan dag. enda voru ’isurnar margar ekki annað en rlmorðin tóm og hann gat notað sömu mann lýsinguna um alls ólíka menn, bara með pví að hnika til vísu orðum. Það var sárasjaldan að honum dytti eitthvað vitlegt i hug fyrir þessu eilifa vísna- rausi. Dalaskáldið gaf út bók eftir sig, Ljóðasmámunir, sem prent aðir voru í ísafold. En þar sem honum var ekki sýnt um að skrifa stóð rímsnillingurinn við hlið setjarans meðan á setningu bókarinnar stóð og las honum fyrir. Þetta reyndist prýðis fyrirkomulag og mestan part munu Ljóðasmámunir hafa orðið þarna til á staðnum í gömlu ísafold. Símon var með einkennilegr mönnum, hann var nokkuð hár, en gildvaxinn, þykkur og allur klunnalegur. Hann gekk alltaf á flakki sínu í mórauðum ull- arfötum úr íslenzku efni Flökkunáttúran var rík í hon- um og alls staðar vildi hann vera aufúsugestur og kannski hefur hann litið á sig sem nokkuns konar íslands „trúba- dor“. Allt um það lét hann einatt í veðri vaka að hann væri mikill kvennarraður og kvenmenn gengjust mjög upp fyrir honum. Hann taldi mönn um gjarnan trú um að hinar og þessar konur hefðu gefið honum flíkur af sér til minn ingar um »æiu samverustund anna. Einu sinni í Reykja- víkurferð xom skáldið ínn ísafold og þvæidist þar um rneð rúðótta flúnelsdruslu um háls- inn. Við spurðum Símon að því hvað hann væri eiginlega með Hann svaraði að oragði: „Þetta eru nú hn.iáskjólin af blessun- inni nenni Guðríði minni." Töldum við að hann vildi gefa aður á annað lSf, annars væri mannlífið, siðakerfið og öll okkar hugsun harla furðulegt fyrirbæri. Hins vegar get ég ekki fellt mig við það, hvernig kirkjan leggur áherzlu á per- sónu Ki'ists, sem skiptir raun- verulega engu að mínu viti, en kenningar hans, sem öllu máli skipta, hefur hún ekki megnað að gera virkar. Á tímabili virtist þó eins og forsjónin hefði ætlað mér að ganga trúarveginn. Fyrsta bók in sem ég setti hét nefnilega — Á guðs vegum — og var eftir norska skáldið Björnstj- erne Björnson. Seinna, árið 1919, gerðist ég svo einn af stofnendum Acta, sem nú heit- ir Prentsmiðjan Edda. Það réð ist þð svo, að ég kaus ekki að vera áfram í þvi blutafélagi, en enginn treysti sér til þess að kaupa hlutinn af mér. Þá lagði ég í að gefa út — Glataða soninn — eftir Hall Caine (bók, sem gerist að nokkru hérlendis) 02 hluturinn minn gekk upp í kostnað við prent- unina í Acta. Þetta virtist sem sagt benda til þess að ég væri kristilega sinnaður. en svo fór sem fór. Þessi fyrsta bókaút- gáfa mín ?ekk nokkuð ve] og hlutnum skilaði Glataði sonur- inn aftur. Gunnar var nær samfleytt í ísafold frá 1909 til 1955. Arið 1919 dvaldi nann þó ejns og nokkrir orencarar á þeim ár- um við frekara prentnám hjá S.L. Möller pienthúsinu í Heste Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.