Tíminn - 28.12.1968, Qupperneq 12
12
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 28. desember 19G8.
Handknattleiksmenn læra
lexíurnar sínar heima!
Æfingasókn handknatfleiksmanna hefur stóraukizt að undanförnu.
KIp-Reykjavfk. — Áhnginn hjá
landsliðsmönnunum í knattspyrnu
er mikilí um þessar mundir, eins
og kunnugt er. Og nú hafa hand-
knattleiksmenn tekið heldur bet-
ur við sér eftir mikla deyfð í
byrjun mánaðarins, en þá voru
landsliðsæfingamar illa sóttar. Nú
er æfingasóknin aftur á móti mjög
góð, en að jafnaði mæta 16—18
af 22, sem valdir voru til iands-
liðsæfinga. Þeir, sem ekki hafa
getað mætt, hafa verið forfaUaJSr
vegna vinnu eða veikinda, en
„Mao-flensan“ herjar á handknatt
ieiksmenn eins og aðra.
Hilmar Björnsson, land'sliðs-
þj'álfari, sagði í stuttu viðtali við
iþróttasíðuna, að Jiaiui væri mjög
ánægður með æfingasóknina og
liðsandann hjá hópnum, en hann
væri eins góður og bezt væri á
kosið.
HjLmar1, sem einnig er þjálfari
unglingalandsliðsins ásamt Sigur-
bergi Sigsteinssyni, sagði, að bæði
liðm æfðu eftir nýju kerfi, sem
væri eins fyrir bæði liðin. Væri
það gert til þess, að unglingalands
liðspiltarnir, sem síðar leika með
aðallandsliðinu, ættu hægara með
að aðlagast æfingum hinna eldri.
Þetta nýja keifi hefur verið fjöl-
ritað og sent öllum leikmönnum,
sem valdir voru til æfinga með
landsliðinu og unglingalandsliðinu.
Heirna hjó sér yfirfara leikmenn-
irnir svo kerfið. Má þvi segja, að
þeir læri lexíurnar heima, áðul
en þeir mæta á landsliðsæfingum.
Þetta er nýlunda í sambandi við
þjálfun landsliðsmanna, en Hiim-
ar Björnsson sagði, að þetta gæfi
góða rau-n.
Landsliðið hefur leikið tvo æf-
ingaleiki, við Víking og ÍR, og
tapað þeim báðum með litlum
mun, en Hilmar sagði, að í þeim
leikjum hefði liðið leikið þetta
nýja kepfi í fyrsta sinn, og hefði
það getfizt vel, þriátt fyrir töp.
Taka yrði tillit til þess, að þetta
væru fyrstu leikirnir.
Aðalhöfuðverkur liðsins eru mark
verðirnir. Fjórir markverðir voru
boðaðir til æfinga með landsiiðinu,
en sá bópur er óðum að þynnast,
Hjalti Einarsson er veikur, og
vafasamt að hann verði orðinn
heill heilsu fyrir Landsleikina.
Emil Karlsson úr KR er slasaður
á hendi og Birgir Finnbogason úr
FH, sem varið hefur mjög vel í
æfingalei'kjunum, - er nú veikur.
Er þá Þorsteinn Björnsson, Fram,
einn eftir.
Hilmar sagði, að markvarðaleys
ið væri mikið vandamál, sem leysa
þyrfti. Þau erlendu lið, sem hér
hafa Leikið á undanförnum árum
faafa verið skipuð frábærum mark
vörðum, og erfitt vaeri að finna
jafningja þeirra hér hjó okkur.
Æfingadagskrá landsliðsins um
faelgina er ströng. í dag er æfinga
leikur við FH, og á morigun eru
tvær æfingar, ein fyrir hódegi og
önnur eftir h'ádegi. Á mánudag
verður leikinn æfingaleikur, Lík-
lega við Hauka, og á laugardag
fer fram Leikur milli iandsliðsins
og pressuliðsins, en eftir þann leik
verður landsliðið sem mæta á
faeimsmeisturunum fró Tékkósló-
vakíu þann 12. janúar, valið.
Tommy Docherty
Gengur vel hjá
Docherty í byrjun
Aston Villa hefur snúið taflinu við.
Hinn umdeildi og skapmikli
framkvæmdastjóri, Tommy Doc-
faerty, sem á stuttum tíma faefur
verið framkvæmdastjóri fjögurra
liða á Englandi, Ohelsea, Rother-
ham, QPR og nú Loks botnliðsins
fræga í 2. deild, Aston Villa, hef-
ur sannað hversu frtábær skipu-
leggjari hann er.
Bftir að hann tók við Aston
Villa, hefur liðið leikið tvo leiki,
og unnið þá báða, sem er sjald-
gætft bjá þessu fræga liði, en því
hetfur gengið óskapLega xHa ó
þessu keppnistJímabili. Sigraði
Aston Villa í fýrxi viku Millwall
1:0 og á annan í jólum lék liðið
við eitt af efstu liðunum í 2. deild
Cardiff, á heimavelli sínum og
sigraði 2:0. Áhorfendur voru 43
þíisund talsins og er lamgt síðan
að Aston Villa hefur fengið eins
góða aðsókn. Það þarf ekki að taka
fram, að áihorfendur fóru heim í
sjöunda himnL
Evrópubikarmeistararnir
fengu skell á Highbury
mÉm.
Frá landsliðsæfingu í handknattleik.
„hjóla“ af öllum kröftum.
..................:✓ -- - /v<r,X
Aðunn Óskarsson, FH, sést
(Tímamynd—Guunar).
START
ENGINE STARTING RUID
Start vökvi
•Gangsetningarvökvl sem
auðveldar gangsetníngu, elnkum
f frostum og köldum veðrum.
SENDUM CEGN PÓSTKRÖFU
UMiANDALLT'
Fr'esta varð tveim leikjum í 1.
deildinni ensku vegna ku'lda, og
einum leik í 2. deild. Þessir leikir
óttu að vera á milli Leicester og
Totteniham og Úlfanna og Covent-
ry. í 2. deild varð að fresta leik á
milli Oxford og Portsmouth. Liver
pool heldur enn tforustunni í 1.
deild, þrótt fyrir, að liðinu tækist
aðeins að gera jafntefli við Burn-
Ley, 1:1. Leeds er í öðru sæti eftir
sigur yfir Newcastle 2:1 og hefur
nú 37 stig eftir 26 leiki.
Arsenal „stal“ þriðja sætinu frá
Everton, með stórsigri á Higfalbury
er þeir léku sér hreinlega að
Bvrópuhikarmeistarunum Manc-
hester Utd. og sigruðu 3:0. Er
þetta vissulega stór skellur fyrir
Manchester Utd.. Mörk Arsenal
skoruðu þeir Armstrong, Covert
!og Ridford.
j Everton er í 4. sæti eftir sigur
jyfir öðrum meisturum fró Manc-
jhester, en það eru sigurvegararnir
j í 1. deild í fyrra, Manchester City.
jSá leikur fór fram í Manchester
og itöpuðu meistararnir enn á
Iheimavelli sínum, 3:1.
Urslitin í 1. deild:
Arsenal — Manchester Utd. 3:0
Ipswioh — Chelsea 1:3
Leeds — Newcastle 2:1
Liverpool — Burnley 1:1
Manchester C. Everton 1:3
QPR — West Brom 0:4
Southamton — West Ham 2:2
Stoke — Notth Forest 3:1
Sunderland — Sheff. Wed 0:0
ÚrsEt í 2. deiLdt
Astan Villa — Car'diff 2c0
Blackbum — Pieston HO
Blackpool — Huddersf. 0:0
BioLton — Carlisie 0:1
Bristol City — Charlton 2:0
Derby — Middlesbro 3:2
Fulham — Birmingham 2:0
HuU — Norwich 0:1
Millwall — Bury 1:0
Sheff. Utd. Crystai Palace 1:1
Reynir formaður
tækninefndar KSÍ
Alf-Reykjaví'k. — Reynir Karls-
son hefur tekið að sér formennsku
í tækninefnd Knattspyrnusambands
fslands. Hefur Reynir átt sæti í
nefndinni oft á undanförnum ár-
um og gjörþekkir þau mál, sem
nefndin fær að glíma við, en það
eru einkum þjólfaramálin.
Sú breyting var gerð á starfsemi
KSÍ á síðasta ár’sþingi, að fram-
vegis sitja formenn hinna ýmsu
nefnda annan hvern stjórnarfund.
Munu formenn nefndanna leggja
Reynir Karlsson
fram starfsáætlun sinna nefnda
næsta stjórnarfundi.
f
Þekkt íþróttafólk gengur í það heilaga
í d-ag verða gefin saman í
hjónaband í Garðakirkju á
ÁLftanesi, tvær landkunnar
íþróttastjörnur, þau Sylvia Hall
steinsdóttir, landsliðskona í
handknattlei'k og Helgi Núma-
son, landsliðsmaður í knatt-
spyrnu. Óþarfi er að kynna
þessi tilvonandi brúðlhjón á í-
þróttasíðunni, svo oft hefur
verið ritað um þau hér, og þá
ætíð sem afreksfólk með sín-
um liðum, hvort sem liðið er
FH, Fram eða íslenzka lands-
liðið. Sylvía lék áður með FH,
en leikur nú með Fram.
Þrátt fyrir þann mikla tíma
og kostnað, sem æfingum og
keppni í íþróttum fylgir, hefur
þeim í sameiningu tekizt að
koma sér upp eigin íbúð í Sas-
viðarsundi 29, og þar mun
heimili þeirra verða í framtíð
inni.
íþróttasáða TÍMANS óskar
hinum tilvonandi brúðhjónum
til hamingju með daginn, og
óskar þeim alLt hins bezta í
framtíðinni.
—Klp.