Tíminn - 13.02.1969, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.02.1969, Blaðsíða 7
VETTVANGUR FIMM'fUDAGUR 13. febrúar 1969. TÍMINN ÆSKUNNAR Ungir Framsóknarmenn: Varnarmalin fái verðuga afgreiðslu á Alþingi Tillögur Framsóknarmamia í varnarmálum, þ. e. að hið bandaríska varnarlið hverfi úr landi sem fyrst og íslendingar taki sjálfir við gæzlu ratsjár- stöðva, ef þurfa þykir, og sjái um viðhald á varnarmannvirkj um, hafa verið allmikið til um- ræðu að undanförnu. Þessar til lögur eru umdeildar, en ómól mælanlegt er að þær liafa leyst af hólmi óraunhæft þjark kommúnista og íhalds í þessum efnum. Umræðugrundvöllur hef ur vart verið fyrir hendi vegna öfga fyrrgreinda aðila, sem jafnan hafa yfirgnæft umræður um varnarmál á opinberum vett vangi. Nú hafa hinsvegar verið settar fram ákveðnar tillögur til breytingar á núverandi ástandi, sewi verðskulda rann- sókn á því, hvort þær séu raun hæfar og framkvæmanlegar. Fyrir jólafrí þingmanna lof aði utanríkisráðherra skýrslu um utanríkismál, fljótlega eftir að þing kæmi saman á nýbyrj uðu ári. Þingfundir eru nú hafn ir, og vænta niá að í kjölfar væntanlegrar skýrslu fylgi um- ræður um utanríkismál, þó að þess verði vafalítið gætt að þau mál verði ekki lengi á dagskrá. Á þessu ári, nánar tiltekið 4. apríl, eru 30 ár liðin síðan samningurinn um stofnun At- lantshafsbandalagsins var undir ritaður í Washington af tólf þjóðum, þ.á. m. íslandi. Tuttugu ár eru langur tími, enda var ráð fyrir því gert að aðildarþjóð irnar ættu að þessum tíma liðn um að endurmeta hlutverk NATO og afslöðu sína til banda lagsins. Nokkrar umræður hafa orðið í flestum NATO-ríkjum um framtíðarhlutverk handalags ins og uppi voru efasemdir á tímabili t. d. í Frakklandi, hvort landið ætti lengur heima í því. Innrás Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu hefur óspart ver ið notuð til þess að kveða niður slíkar umræður, en því er þó ekki að neita að töluvert endur mat liefur farið fram á hlut- verki NATO í sjálfum höfuð stöðvum bandalagsins. Hér á landi virðist ætlun ráða manna að þegj: þessi tímamót í sögu vestrænnar varnarsam- vinnu í hel, varla hefur nokkuð verið ritað og rætt af alvöru um NATO, og ekkert liggur fyr ir um skoðun íslendinga á fram tfðarhlutverki bandalagsins. Úr þessu er þó enn hægt að bæta því árið 1969 er rétt geng ið í garð. Ungir Framsóknarmeun gera það að tillögu sinni, að skipuð verði þingnefnd af Alþingi, sem falið verði það hlutverk að raunsaka, hvort ráðlegt sé að gera breytingar á vörnum ís- lands, og skila álitsgerð um af- stöðu íslands til NATÓ og þró unar vestrænnar varnarsam- vinnu á komandi áruin, ekki síðar en í okt.-nóv. 1969. Tillögur Framsóknarmaima i varnarmálum eru út af fyrir sig næg forsenda fyrir skipun slíkrar nefndar og gæti hún haft þær að leiðarljósi. Að niðurslöðum þinguefndar sem þessarar fengnuin myndi afstaða ríkisstjórnarinnar. þing flokka og Alþingis í heild til varna á íslandi og vestrænnar varnarsamvinnu væntanlega liggja ljósar fyrir en nú. Og ekki er annað sæmandi, en að framtíðarstefna íslands í þess um málum líti dagsins ljós á árinu 1969. Ungir Franisóknurmenn beina þeim tilniælum til hins háa Al- þingis, að utanríkismál með sérstöku tilliti til varna lands ins fái verðuga afgreiðslu á því þingi, sem nú situr. j Kappræöur í I Stykkishólmi i um efnahags- | og atvinnumál ' Ungir Framsóknarnienn og ung \ ir Sjálfstæðismenn á Snæfellsiiesj \ efndu til kappræðufundar um efna ' hags- og atvinnumál s. 1. sunnudag | í Stykkishólmi. Húsfyllir var á ' fundinum og lætur nærri að um 100 manns hafi sótt fundinn. Verð ur það' að teljast gott og sýnir vel áhuganu sem ríkir fyrir fundum sem þessum. Framsögumenu ungra Framsókn armanna voi-u Jónas Gestsson og Stefán J. Sigurðsson en framsögu fyrir unga Sjálfstæöismemi höfðu Skúli Víkingsson og Arni Emils | SOll. Auk framsögumanna töluðu 4 ræðumenn af livorri hálfu. Fyrir unga Framsóknarmenn Guðbjart ur Guiinarssou, Tómas Einarsson, Baldvin Kristinsson og Ölafur Jóns son, en unga Sjálfstæðismenn Elv- ar Sigurðsson, Ingólfur Þórarins ' son, Halldór Árnason og Sigþór Sigurðsson. Framsöguræða Eiríks Tómassonar á kappræðufundi FUF og Heimdallar um utanríkismál: Sjálfstæða íslenzka utanríkisstefnu! Vettvangurinn birtir hér fram söguræðu Eiríks Tómassonar, sem liann flutti á kappræðu- fundi FUF og Heimdallar, sem haldinn var í Sigtúni sunnudag inn 2. febrúar. Ræðan fer hér á eftir í heild sinni að sleppt- um nokkrum inngangsorðum: „Utanríkisstefna fslendinga hefur, og þá einkum á síðustu árum, mótazt af ósjálfstæðni og undirlægjuhætti gagnvart bandamönnum okkar, og þá sér slaklega Bandaríkjamönnum. Má þessu til stuðnings nefna ótal dæmi, en hér skulu aðeins fá upp talin. Framganga íslenzku sendi- nefndarinnar á A-Hsherjarþingi S.Þ. hefur löngum verið skamm arleg, sökum lítt sannfærandi afstöðu hennar til ýmissa al- þjóðlegra .stórmála, og nægir í því sambandi að benda á afstöðu sendinefndarinnar gegn aðild Kína að samtökunum, Með því skáru íslendingar sig úr hópi Norðurlandanna, því öll hin löndin fjögur, Noregur, Svíþjóð, Danmörk og Finnand, greiddu atkvæði með tillög- unni. Jafnframt lýsir ríkis- stjórnin yfir andstöðu við inn- göngu Vt hluta mannkyns i al- heimssamtök, sem aldrei ná fullkomlega takmarki sínu. án þátttöku allra þjóða heims. Að vísu studdi ríkisstjórnin af- stöðu sína þeim rökum, að sæði tillagan fram að ganga, yrði Formósa að víkja úr S.þ, Þetta er ekki rétt, þar eð í síðustu tillögu, sem lögð var fram um mál þetta á Allsherj- arþinginu, fólst aðeins, að Formósa missti setu í Öryggis ráðinu sem eitt af stórveldum heims, og þar með einnig neit unarvald í ráðinu. Þrátt fyrir þessa breytingu, en áður hafði tillagan ætíð falið í sér brott- vikningu Formósu úr samtökun um, sat íslenzka sendinefndin samt hjá við atkvæðagreiðsl- una, að fordæmi örfárra ann- arra þjóða. Bandaríkjastjórn greiddi atkvæði gegn tillögunni á þeim forsendum, að Chiang Kai-shek, núverandi forseti Formósu ,og stjórn hans væri eina löglega stjórn Kína, og því bæri henni sælið í Öryggis ráðinu, ásamt neitunarvaldinu. Hafi íslenzka ríkisstjórnin lát- ið sannfærast af slíkum fals- rökum, því staðreynd er, að margar stjórnir aðildarríkja S.þ. hafa komizt til valda með all vafasömum hætti, var það skylda hennar að ^greiða at- kvæði gegn tillögunni ,en hún valdi enn lítilmótlegri kost og sat hjá. Annað dæmi, af svipuðum toga spunnið, er furðuleg fram koma ríkisstjórnarinnar gagn vart kæru hinna Norðurland- anna á hendur grísku herfor ingjastjórninni, sem lögð var fyrir Evrópuráðið á síðasta ári. Stjórnin taidi sig að vísu full- komlega samþykka tillögunni efnislega. en kvaðst þó ekki geta staðið að henni. vegna aukinna fjárútláta af þeim sök um. Mér er spurn: Til hvers tökum við þátt í starfi alþjóða samtaka? Og hvers vegna höld um við uppi fjárfrekri utan- ríkisþjónustu, ef við getum ekki fylgt sannfæringu okkar eftir í stórmálum sem þessum? Þessi tvö dæmi, auk fjöl- margra annarra, sýna ljóst, að íslenzk utanríkisstefna er lítt sannfærandi, og ósjálfstæð að sama skapi, enda eru skoðanir okkar virtar í samræmi við það, öfugt við skoðanir t.d. hinna Norðurlandanna, sem öll hafa áunnið sér virðingu ann- arra þjóða með einarðri og sannfærandi framgöngu sinni á alþjóðavettvangi. í þessu sambandi er okkur hollt að minnast ummæla öld- ungardeildaþingmannsins Willi ams Fulbright, sem hann við- hafði hér á landi i ræðu ei alls fyrir löngu, en þar taldi hann, að smáþjóðir gætu haft mikil áhrif á gang alþjóðamála og nytu meiri virðingar stór- þjóða, er.þær byðu þeim byrg inn, í stað þess að lúta í einu og öllu vilja þeirra. Sem dæmi tók þingmaðurinn samskipti Mexíkana og Bandaríkjanna. en þeir síðarnefndu hafa hvað eft ir annað seilst til áhrifa í Mexíkó, en jafnan mætt harðri mótspyrnu landsmanna. Stað- reyndin í sambúð þessara tveggja þjóða er hins vegar sú, að Bandaríkjamenn virða Mexí kana hvað mest hinna róm- önsku þióða Mið- og Suður- Ameríku. Ég minnist því bit ur þessara orða Fulbrights, er mér koma í hug þær lítilmót- legu tnóttökur, sem forsætis- ráðherra okkar fékk af hálfu Bandaríkjaforseta, í heimsókn sinni til Bandaríkjanna fyrir nokkru. Siík er þá sú „virðing", sem • við njótum á aiþjóðavettvangi í dag, og við hljótum að vera sammála um, að hér sé sk.iótrar breytingar þörf Verkefnin eru óþrjótandi — heimur þrot- lausra styrjalda þarfnast breyt inga til betri vegar — til frið- ar, og það er sannfæring mín, að við, íslendingar, þó smáir séum, getum snúið mörgu til betri vegar. beitum við þeim mætti, sem við búum yfir, til heillaríkra áhrifa á önnur Iönd t.d. Norðurlöndin og önnur vestræn ríki. Hernaðai-bandalög eru ekki framtíðarlausn á vandamálum heimsins, enda hvorki vænleg til þess að koma á friði né við- halda honum. Að mínu áliti er leiðin til upplausnar þeirra ekki sú, að veikja eitt á sama tíma, sem annáð styrkist, því þá myndi því valdajafnvægi, sem nú ríkir t.d. í Evrópu og sést glöggt á skiptingu álfunn- ar í tvö áhrifasvæði. stefnt í stórhættu. en slíkt eykur að- eins líkurnar á enn einni heim styrjöldinni. sem þá yrði að líkindum gereyðingarstríð Leiðin tii upplausnar hern aðariiandalaga felst hins vegar í auknum styrk S.þ., þar til samtökin verða svo öflug’ að þau geta komið til hjálpar öll- um þeim þjóðum, sem órétti eru beittar, þrátt fyrir and- stöðu stórvelda. Þá fyrst horf ir friðvænlegar, og því ber okk ur, íslendingum, að efla S.Þ. á alla lund, og hvetja aðrar þjóðir til slíks hins sama. Atlantshafsbandalagið byggir á lýðræðislegum grunni, enda hiigsjónalega til orðið til varð veizlu lýðræðis í aðildarlönd- um þess. Þó ríkir nú einræðis- stjórn í tveimur þeirra, Grikk- landi og Port.úgal, en slíkt veik ir bandaiagið að sjálfsögðu verulega hugsjónalega séð. Þarna er brýnt verkefni fyrir okkur íslendinga, sem aðila að NATO, og gætum við beitt á- hrifum okkar í enn ríkari mæli en áður, til þess að komið verði á því stjórnarfari, sem banda- laginu var í upphafi ætlað að vcrnda í þessurn tveimur að- ildarríkjum þess. Eins og sjá má eru verk- efnin næg og ný hiaðast upp með degi hverjum, cn sanit heldur ríkisstjórnin að mestu að sér höndum Slíkt aðgerðar leysi í jafn mikiivægum mál um sem þeim er áður hafa verið upp talin, skipa okkur ís lendingum á bekk vanþróaðra eða nær ósjálfstæðra rikja. Viljum við teljast sjálfstæð þjóð .verðum við að móta sjálf stæða stefnu í utanríkismálum. þó með nánum samskiptum við vestræn lýðræðisríki — nióta sjálfstæða íslenzka utanríkis- stefnw." Ritnefnd: Einár Karl, Eiríkur Tómasson og Ólafur Þ. Þórðarson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.