Tíminn - 02.03.1969, Blaðsíða 6

Tíminn - 02.03.1969, Blaðsíða 6
y 18 ÞINGFRÉTTIR TIMINN ÞINGFRÉTTIR 0 ## Það, sem sja og /# flestir viðurkenna Jómfrúarræða Jónasar Jónssonar á Alþingi s.l. þriðjudag. Herra forseti: Erfiðleikarnir eru miklir og blasa hvarvetna við, það sjá allir og viðurfcenma. Það er annað sem allir sjá nú, o.g flestir viðurkenna í hjarta sínu ef ekki opinberlega, jafnvel þó að í stjórnarliði hafi verið, — og það er það að núverandi stjórn ai-stefna er röng í meginatriðum. —Hún á alls ekki við í þjóðfélagi okkar, hvað sem kann að reynast annars staðar. Þetta hafa menn lært af sár- biturri reynslunni. Þetta l'inna húsmæðurnar, sem eru að streitast við að láta laun- im endast fyrir hinum brýnustu nauðþurftum í óðfluga hækkandi verðlagi. Þetta finnur hver heimilisfaöir þó að fasta vinnu og föst laún hafi, þegar hann á stöðugt erfið- ara otg epfiðara með að standa í skilum með afborganir af lánun- um af íbúðinni, eða húsaleigunni eða öðrum skuldbindingum. Og hvað þá um hima atvinnu- lausu. Þeim birtist þetta sem blá- kaldur veruleikinn hvern morgun, sem þeir vakna, ekki til að fara til vinnu og neyta starfsorku sinn- ar, til aukinnar framleiðslu og hag sældar í þjóðfélaginu, eins og hverjum heilbrigðum manni er| eðlilegt, heldur til að sitja auð- um höndum, vegna þess, að í þjóðfélagi, þar sem allt er óleyst, finnast ekki verkefni fyrir þá. Han má- streitast við það eitt, að draga fram lífið á naumum atvinnuleysisbótum. Atvinnurekendur eru trúlausir á aðgerðir stjórnarinnar, Atvinnurekendur finna einnig að stjórnarstefnan er röng. Þeir reyna tæpast að endurlifga at- vinnurekstur sinn eftir gengisfell- inguna, setm átti þó að vera þeim blóðgjöf. Em einmitt vegna endurtekinn ar gengisfellingar, með nákvæm- lega sömu úrræðum og áður, sem þá reyndust haldlaus, eiga þeir nú enga þá bjartsýni, sem nauð- s.vnleg er til að endurlífga at- viranulífið. Nú er þa'ð enn erfiðara en nokkru sinni fyrr að fá nauðsyn- lcgt rekstrarfjármagn. Og þannig fráleitara en áður að koma fyrir- tækjum á heilbrigðan rekstrar- grundvöll. Þá finna og sjá sjómennirnir þetta vel þegar skerða verður hlut þeirra stórlega, eftir hina stór- felldustu gengisfellingu í þjóðar- sögumni. Hækkanir á rekstrarvörum bitna á bændum og ncytendum. Og hvort munu bændur ekki sjá það og finna, að stefnan er röng. Þeir hafa í stórum landshlutum orðið að þola mjög erfitt árferði Jónas Jónsson. nú um hrið, en enn meira mun þeim þó ógna hinar stórfelldu hækkanir á rekstrarvörum sínum, fóðurbæti, oliu og áburði. Nú þurfa þeir ekki aðeins að þola hækkun vegna gengisfellingar á á- burðinum, sem þeir kaupa í vor, heldur einnig þeim, sem borinn var á í fyrra. Þeir sjá glöggt, að hækkunin á búvöruverðinu, sem af þessu leiðir ef ekkert verður að gert.’verður svo mikil á komandi hausti, að stórspillir sölumöguleik uim þeirra á afurðum hér innan lands. Það kemur mjög hastalega niður á neytendum, ef landbún- aðarvörurnar þurfa að hækka, þær eru svo mikilvægur hluti hins dag- lega lífsviðurværis. Þannig fléttast mjög saman hagsmunir bændanna og neytenda, sem auðvitað eru allir landsmenn. Nú geta bændur ekki axlað meira af byrðunum. Þeirra hlut- ur er búinn að vera langminnst- ur svo lengi. Varla er enn hægt að skerða hann. Nú standa þeir frammi fyrir þeim vanda, hvernig þeir eiga að reyna að leysa út áburðinn á komandi vori. Mega þeir ekki einá eiga voin á annarri gengisfellingu á næsta hausti, og þá annarri skuldafúlgu á bakið, ef taka verður erlendan víxil til að leysa út áburðinn, þannig -að sagan endurtaki sig frá síðasta ári. Ekki liægt að afsaka mistökin með löngum skýrslum. Það er sama hve margar skýrsl- ur eru fluttar, sem eiga að sanna það, að allir erfiðleikarnir stafi frá máttarvöldum, af verðfalli og aflaleysi. Menn trúa því ekki að betur hefði ekki mátt stjórna á veltu-tímunum. Það er ekki hægt að fá mann með heilbrigða skynsemi til að trúa því, að ekki hafi mátt með skynsamlegum stjórnarháttum nota feng góðæranna betur. Þann ig að við stæðum nú betur að vígi til að mæta erfiðleikunum. Að ekki hefði mátt treysta betur grunn atvinnuveganna. Leggja grundvöll að fjölbreyttari atvinnu háttum, sem væru minni sveiflum háðir. Byggja til dæmis upp heil- brigðan innlendan iðnað í stað þess að leggja hamn í rúst. Eða hvað má segja um ástand- ið í heilbrigðismálum, skólamál- um eða vegamálum. Bendir það til þess, að tækifæri góðæranna hafi verið rétt notuð? Vildu menn skipta á kjörum nú og fyrir „viðreisn“. Ef ég hef skilið rétt skýrslu þá, sem hæstvirtur forsætisráð- herra las hér upp í upphafi þess- ara umræðna, þá urðu bæði þjóð- larframleiðsla og þjóðartekjur reiknaðar á hvern landsmann, svipaðar árið 1968 og þær voru árin 1962—63. Nú held ég, að það mætti leita með logandi ljósi meðal allra starfsstétta, og marana í öllum greinum atvinnulífsins, — án þess að finna nokkurn einasta atvinnu- rekenda eða launþega, sem ekki teldi aðstöðu sína hafa verið erf- iðari á síðastliðnu ári en hún var á fyrnnefnda tímabilinu, og útlit- ið uggvænlegra nú en það var þá. Og hver vildi ekki skipta á útlit- inu nú og því, sem var á vinstri- stjórnartímanum. Þetta finna menn ofurvel, menn finna sárt til þess, hvern- ig þjóðin hefur gloprað að miklu leyti úr höndum sér tækifæruin- A BRÉF UM DULFRÆÐILEGA HUGLEIÐINGU heitir nýjasta bókin um yoga og heimspeki, samin af Dhwyal Khul, skrásett af Alice A. Bailey og þýdd af Steinunni S. Briem. MEÐ'AL EFNIS: Mikilvægi hugleiðingar bls. 20. 1) Hún leiðir til snertingar og sam- tengingar við egóið. 2) Hún skapar jafnvægisástand. 3) Hún staðlar sveiflutíðnina 1) Hún stuðlar að hækkun vitundarstillingarinnar og auðveldar sjálfsgagnrýni. Bókin fæst hjá flestum bókaverzlunum um land allt. Útgefendur: sími 41238 21189. um, sem góðærið gaf henni. Tæki- færum til að treysta efnahagslegt sjálfstæði sitt og búa i haginn fyrir framtíðina. Og þó er það enn verra, hve þess mistök, — þessi ranga stjórn arstefna — Jiefur dregið úr bjart- sýni fólksiins, — úr trú þess á m'átt sinn og möguleika íslenzkra atvinnuvega — lamað trú þess á framtak einstaklinga og félags- heilda, að það mun tefja mest fyrir endurreisninni. En langhættulegast er þó það, að stjórnin sjálif virðist vera al- gerlega móðlaus, — og trúlaus á það, að við getum lifað hér mann- sæmandi lífi á eigin atvinnu- rekstri. Stjórnarliðum er ekki treystandi fyrir f jöreggi þjóðarinraar. Það er vegna þessa trúleysis og áberandi undirlægjuháttar við er- lend völd, — sem stjórninni er vantreyst svo mjög til samminga- gerðar við erlenda aðila. I-Ivort sem verið er að semja vi'ð eflenda auðhringa um framkvæmdir hér, eða athuga um tengsl við alþjóða- bandalög. Fólkið er hrætt við að treysta þessum trúlausu mönnum fyrir fjöreggi þjóðarinnar — sjálf stæðinu. Framsóknarmenn eru ekki á móti því að leyfa samvinnu við erlent fjármagn til að byggja upp atvinnutæki iér á landi, — þegar það á við, og þegar mannsæmandi samningar nást. Og þegar það er innan þeirra marka, að engin hætta geti talizt á þvi, að hags- munir hins erlenda fjármagns taki af okkur ráðin, hvorki í smáu né stóru. Framsóknarmenn vilja ekki ein- angrun. Á sama hátt eru Framsóknar- menn engir einangrunarsinnar gagnvart samvinnu milli þjóða, en þeir vilja heldur ekki á því sviði hætta því, sem okkur er dýr- mætast af öllu, — bæði í efna- hagslegu og meraningarlegu tilliti — en það er algert sjálfstæði og sjálfsforræði í öllum okkar málum. Við getum hvort sem er í þessu tilliti lært af eigin reynslu — eða annafra þjóða eða þjóðabrota. — Við getum fengið sjálfstæðið, og þó að Danir og ýmsir úrtölu- menn innlendir teldu okkur óhæfa til að lifa hér efnahagslega sjálf- stæða, þá komu þó framfarirnar einmitt með sjálf9forræðinu. Aðrar smáar þjóðir hafa lifað í sambandi við eða undir handar- jaðri stærri þjóða, svo sem keltn- esku og norrænu þjóðabrotin á útskögum og eyjum Bretlands. Þeir hafa feragið á því að kenna, hvernig gæði landa þeirra hafa verið nýtt en arðurinn sogazt inn til miðstöðva stóru heildarana, en þeir staðið fátækir eftir. Jafnframt hafa þeir ta pað hluta af sínu bezta fólki til mi'ðstöðvanna. Þetta viljum við ekki að gerist hér, hvorki frá landinu í heild né irananlands milli landshluta. Þvi viljum við heilbrigða íslenzka stefnu í efnahags- atvinnu- og við- skiptamálum, og því viljum við jafnvægi milli byggða í landinu. Sannanir viðskiptamálaráðherra Hæstvirtur viðskiþtamálaráð- SUNNUDAGUR 2. marz 1969. herra tekur sér það nú fyrir hend ur í hverri ræðunni af annarri — þegar hann er þá ekki að kenna kaupmönnum og öðrum slíkum bú j fræ'ði, — áð sanna það, að stefna stjórnarinnar í efnahagsmálum sé sú eina rétta — og hin sanína framfarastefna, en stefnur stjórn arandstöðuflokkanna, og sérstak- lega Framsóknarmanna, úrelt aft- urhaldsstefna. Ekki skal ég fara að karpa hér um það, hvað telst frekar til fram- fara eða afturhalds. Að láta allt reka á reiðanum undir yfirskini frelsis, láta blind stundargróða- sjónarmið ráða því, hvernig fjár- munum er varið, en ekki skyn- samlegt mat á því, hvað heildimmi er fyrir beztu í bráð og lengd. Láta fégjarna spákaupmenn og það, hvað þeim tekst með auglýs- ingaskrumi að fá fólkið til að kaupa, rá'ða miklu um það, hvern- ig gjaldeyrinum er varið. í stað þess að meta aö eftir beztu manna yfirsýn, hvernig hyggilegt er að verja honum. Ekki má nefna skynsamlega stjórn hlutanna, og að taka það framyfir, sem gagmlegast er. Þá er hrópað: Höft, höft, höft. Þegar harðnar á dalnum og ekki er nóg til skiptanna, á ekki að velja úr og verja gjaldeyrinum til þess nauðsynlegasta, heldur er þá skorturinn gerður að skömmtun- arstjóra. Þannig á það að vera á öllum sviðum. j Ef þetta er hin nýja framfara- stefna Alþýðuflokksins, þá er ekki nema vom að mörgum virðist hann nú va'ða í meinlegri vilju. Þá er heldur ekki von að ráð- herrar flokksins sjái það, sem all- ir aðrir sjá, og ég nefndi í upp- hafi, að stjórn þeirra væri á rangri leið. En ungir menn í forystu Al- þýðuflokksins hafa þó bent á það fleiri en eimn í greinum í Alþýðu- blaðinu. Þeir hafa og gert um það samþykktir, að frá þessari stefnu verði að víkja. En ekkert stoðar, ráðherrarnir sjá ekki villu síns vegar. Meinvilla Alþýðuflokks- ráðherranna. Þetta geta þeir e.t.v. skili’ð, sem kynnzt hafa því, þegar menn vill- ast í hríðum og dimmviðri, Fyr- ir kemur þá, að þeir þekkja ekki alkunn kennileiti, og taka heldur ekki ráðum samferðamamna, sem benda á rétta leið. Og svo römm getur villan orðið, að menn átti sig ekki á straumi fallvatna, Og telji vatnið renna upp á móti. Á því stigi villunnar virðast mér ráðherrar Alþýðuflokksins nú vera. Svo dimmt er orðið á þeim í herleiðingunni. Verður þá skiljanlegt, hvers vegna hæstvirt- ur ráðherra leggur sig svo mjög í líma vi'ð að sanna, að vatnið renni upp á móti brekkunni, að framfarastefna sé afturhald og öfugt. En hví er ég að ræða um þetta. Það sem búið er og gert er, verð- ur ekki aftur tekið. Það sem máli skiptir er, hvernig við komumsl út úr vandanum. — Það gerum við aðeins með aukinni bjartsýni Með nýrri framfaratrú. Hún þari að skapast með samheldni allra þjóðhollra framfaraafla. Það verðá nýir kraftar að koms til. Ungir og framsæknir menr. verða að taka við af þeim eldri sem þreyttir eru orðnir af oi langri stjórnarsetu. Og til þesí verður þessi stjórn að fara frá Hún er bæði trúlaus og á engt tiltrú. Breyta þarf um stefnu. Það er fyrsta skilyrðið til þes: að hægt verði að vekja þá bjart sýni hjá fólki, sem nauðsynlegt ei til þess að við losnum úr erfið leikunum og getum hafið hér nýji framfarasókn. Svo að við geturr hafið hér nýja uppbyggingu, ti' Framliald á bls. 23.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.