Tíminn - 02.03.1969, Side 6
y
18
ÞINGFRÉTTIR TIMINN ÞINGFRÉTTIR 0
##
Það, sem
sja og
/#
flestir viðurkenna
Jómfrúarræða Jónasar Jónssonar á Alþingi s.l. þriðjudag.
Herra forseti:
Erfiðleikarnir eru miklir og
blasa hvarvetna við, það sjá allir
og viðurfcenma.
Það er annað sem allir sjá nú,
o.g flestir viðurkenna í hjarta
sínu ef ekki opinberlega, jafnvel
þó að í stjórnarliði hafi verið, —
og það er það að núverandi stjórn
ai-stefna er röng í meginatriðum.
—Hún á alls ekki við í þjóðfélagi
okkar, hvað sem kann að reynast
annars staðar.
Þetta hafa menn lært af sár-
biturri reynslunni.
Þetta l'inna húsmæðurnar, sem
eru að streitast við að láta laun-
im endast fyrir hinum brýnustu
nauðþurftum í óðfluga hækkandi
verðlagi.
Þetta finnur hver heimilisfaöir
þó að fasta vinnu og föst laún
hafi, þegar hann á stöðugt erfið-
ara otg epfiðara með að standa í
skilum með afborganir af lánun-
um af íbúðinni, eða húsaleigunni
eða öðrum skuldbindingum.
Og hvað þá um hima atvinnu-
lausu. Þeim birtist þetta sem blá-
kaldur veruleikinn hvern morgun,
sem þeir vakna, ekki til að fara
til vinnu og neyta starfsorku sinn-
ar, til aukinnar framleiðslu og hag
sældar í þjóðfélaginu, eins og
hverjum heilbrigðum manni er|
eðlilegt, heldur til að sitja auð-
um höndum, vegna þess, að í
þjóðfélagi, þar sem allt er óleyst,
finnast ekki verkefni fyrir þá.
Han má- streitast við það eitt,
að draga fram lífið á naumum
atvinnuleysisbótum.
Atvinnurekendur eru trúlausir
á aðgerðir stjórnarinnar,
Atvinnurekendur finna einnig
að stjórnarstefnan er röng. Þeir
reyna tæpast að endurlifga at-
vinnurekstur sinn eftir gengisfell-
inguna, setm átti þó að vera þeim
blóðgjöf.
Em einmitt vegna endurtekinn
ar gengisfellingar, með nákvæm-
lega sömu úrræðum og áður, sem
þá reyndust haldlaus, eiga þeir
nú enga þá bjartsýni, sem nauð-
s.vnleg er til að endurlífga at-
viranulífið.
Nú er þa'ð enn erfiðara en
nokkru sinni fyrr að fá nauðsyn-
lcgt rekstrarfjármagn. Og þannig
fráleitara en áður að koma fyrir-
tækjum á heilbrigðan rekstrar-
grundvöll.
Þá finna og sjá sjómennirnir
þetta vel þegar skerða verður hlut
þeirra stórlega, eftir hina stór-
felldustu gengisfellingu í þjóðar-
sögumni.
Hækkanir á rekstrarvörum bitna
á bændum og ncytendum.
Og hvort munu bændur ekki sjá
það og finna, að stefnan er röng.
Þeir hafa í stórum landshlutum
orðið að þola mjög erfitt árferði
Jónas Jónsson.
nú um hrið, en enn meira mun
þeim þó ógna hinar stórfelldu
hækkanir á rekstrarvörum sínum,
fóðurbæti, oliu og áburði. Nú
þurfa þeir ekki aðeins að þola
hækkun vegna gengisfellingar á á-
burðinum, sem þeir kaupa í vor,
heldur einnig þeim, sem borinn
var á í fyrra. Þeir sjá glöggt, að
hækkunin á búvöruverðinu, sem
af þessu leiðir ef ekkert verður að
gert.’verður svo mikil á komandi
hausti, að stórspillir sölumöguleik
uim þeirra á afurðum hér innan
lands. Það kemur mjög hastalega
niður á neytendum, ef landbún-
aðarvörurnar þurfa að hækka, þær
eru svo mikilvægur hluti hins dag-
lega lífsviðurværis. Þannig fléttast
mjög saman hagsmunir bændanna
og neytenda, sem auðvitað eru
allir landsmenn.
Nú geta bændur ekki axlað
meira af byrðunum. Þeirra hlut-
ur er búinn að vera langminnst-
ur svo lengi. Varla er enn hægt
að skerða hann. Nú standa þeir
frammi fyrir þeim vanda, hvernig
þeir eiga að reyna að leysa út
áburðinn á komandi vori. Mega
þeir ekki einá eiga voin á annarri
gengisfellingu á næsta hausti, og
þá annarri skuldafúlgu á bakið,
ef taka verður erlendan víxil til
að leysa út áburðinn, þannig -að
sagan endurtaki sig frá síðasta
ári.
Ekki liægt að afsaka mistökin
með löngum skýrslum.
Það er sama hve margar skýrsl-
ur eru fluttar, sem eiga að sanna
það, að allir erfiðleikarnir stafi
frá máttarvöldum, af verðfalli og
aflaleysi. Menn trúa því ekki að
betur hefði ekki mátt stjórna á
veltu-tímunum.
Það er ekki hægt að fá mann
með heilbrigða skynsemi til að
trúa því, að ekki hafi mátt með
skynsamlegum stjórnarháttum
nota feng góðæranna betur. Þann
ig að við stæðum nú betur að
vígi til að mæta erfiðleikunum.
Að ekki hefði mátt treysta betur
grunn atvinnuveganna. Leggja
grundvöll að fjölbreyttari atvinnu
háttum, sem væru minni sveiflum
háðir. Byggja til dæmis upp heil-
brigðan innlendan iðnað í stað
þess að leggja hamn í rúst.
Eða hvað má segja um ástand-
ið í heilbrigðismálum, skólamál-
um eða vegamálum. Bendir það
til þess, að tækifæri góðæranna
hafi verið rétt notuð?
Vildu menn skipta á kjörum nú
og fyrir „viðreisn“.
Ef ég hef skilið rétt skýrslu
þá, sem hæstvirtur forsætisráð-
herra las hér upp í upphafi þess-
ara umræðna, þá urðu bæði þjóð-
larframleiðsla og þjóðartekjur
reiknaðar á hvern landsmann,
svipaðar árið 1968 og þær voru
árin 1962—63.
Nú held ég, að það mætti leita
með logandi ljósi meðal allra
starfsstétta, og marana í öllum
greinum atvinnulífsins, — án þess
að finna nokkurn einasta atvinnu-
rekenda eða launþega, sem ekki
teldi aðstöðu sína hafa verið erf-
iðari á síðastliðnu ári en hún var
á fyrnnefnda tímabilinu, og útlit-
ið uggvænlegra nú en það var þá.
Og hver vildi ekki skipta á útlit-
inu nú og því, sem var á vinstri-
stjórnartímanum.
Þetta finna menn ofurvel,
menn finna sárt til þess, hvern-
ig þjóðin hefur gloprað að miklu
leyti úr höndum sér tækifæruin-
A
BRÉF UM DULFRÆÐILEGA
HUGLEIÐINGU
heitir nýjasta bókin um yoga og heimspeki, samin af Dhwyal
Khul, skrásett af Alice A. Bailey og þýdd af Steinunni S.
Briem.
MEÐ'AL EFNIS: Mikilvægi hugleiðingar bls. 20. 1) Hún leiðir til snertingar og sam-
tengingar við egóið. 2) Hún skapar jafnvægisástand. 3) Hún staðlar sveiflutíðnina
1) Hún stuðlar að hækkun vitundarstillingarinnar og auðveldar sjálfsgagnrýni.
Bókin fæst hjá flestum bókaverzlunum um land allt. Útgefendur: sími 41238 21189.
um, sem góðærið gaf henni. Tæki-
færum til að treysta efnahagslegt
sjálfstæði sitt og búa i haginn
fyrir framtíðina.
Og þó er það enn verra, hve
þess mistök, — þessi ranga stjórn
arstefna — Jiefur dregið úr bjart-
sýni fólksiins, — úr trú þess á
m'átt sinn og möguleika íslenzkra
atvinnuvega — lamað trú þess á
framtak einstaklinga og félags-
heilda, að það mun tefja mest
fyrir endurreisninni.
En langhættulegast er þó það,
að stjórnin sjálif virðist vera al-
gerlega móðlaus, — og trúlaus á
það, að við getum lifað hér mann-
sæmandi lífi á eigin atvinnu-
rekstri.
Stjórnarliðum er ekki treystandi
fyrir f jöreggi þjóðarinraar.
Það er vegna þessa trúleysis og
áberandi undirlægjuháttar við er-
lend völd, — sem stjórninni er
vantreyst svo mjög til samminga-
gerðar við erlenda aðila. I-Ivort
sem verið er að semja vi'ð eflenda
auðhringa um framkvæmdir hér,
eða athuga um tengsl við alþjóða-
bandalög. Fólkið er hrætt við að
treysta þessum trúlausu mönnum
fyrir fjöreggi þjóðarinnar — sjálf
stæðinu.
Framsóknarmenn eru ekki á
móti því að leyfa samvinnu við
erlent fjármagn til að byggja upp
atvinnutæki iér á landi, — þegar
það á við, og þegar mannsæmandi
samningar nást. Og þegar það er
innan þeirra marka, að engin
hætta geti talizt á þvi, að hags-
munir hins erlenda fjármagns taki
af okkur ráðin, hvorki í smáu né
stóru.
Framsóknarmenn vilja ekki ein-
angrun.
Á sama hátt eru Framsóknar-
menn engir einangrunarsinnar
gagnvart samvinnu milli þjóða,
en þeir vilja heldur ekki á því
sviði hætta því, sem okkur er dýr-
mætast af öllu, — bæði í efna-
hagslegu og meraningarlegu tilliti
— en það er algert sjálfstæði og
sjálfsforræði í öllum okkar málum.
Við getum hvort sem er í þessu
tilliti lært af eigin reynslu — eða
annafra þjóða eða þjóðabrota. —
Við getum fengið sjálfstæðið, og
þó að Danir og ýmsir úrtölu-
menn innlendir teldu okkur óhæfa
til að lifa hér efnahagslega sjálf-
stæða, þá komu þó framfarirnar
einmitt með sjálf9forræðinu.
Aðrar smáar þjóðir hafa lifað
í sambandi við eða undir handar-
jaðri stærri þjóða, svo sem keltn-
esku og norrænu þjóðabrotin á
útskögum og eyjum Bretlands.
Þeir hafa feragið á því að kenna,
hvernig gæði landa þeirra hafa
verið nýtt en arðurinn sogazt inn
til miðstöðva stóru heildarana, en
þeir staðið fátækir eftir. Jafnframt
hafa þeir ta pað hluta af sínu
bezta fólki til mi'ðstöðvanna. Þetta
viljum við ekki að gerist hér,
hvorki frá landinu í heild né
irananlands milli landshluta. Þvi
viljum við heilbrigða íslenzka
stefnu í efnahags- atvinnu- og við-
skiptamálum, og því viljum við
jafnvægi milli byggða í landinu.
Sannanir viðskiptamálaráðherra
Hæstvirtur viðskiþtamálaráð-
SUNNUDAGUR 2. marz 1969.
herra tekur sér það nú fyrir hend
ur í hverri ræðunni af annarri —
þegar hann er þá ekki að kenna
kaupmönnum og öðrum slíkum bú
j fræ'ði, — áð sanna það, að stefna
stjórnarinnar í efnahagsmálum sé
sú eina rétta — og hin sanína
framfarastefna, en stefnur stjórn
arandstöðuflokkanna, og sérstak-
lega Framsóknarmanna, úrelt aft-
urhaldsstefna.
Ekki skal ég fara að karpa hér
um það, hvað telst frekar til fram-
fara eða afturhalds. Að láta allt
reka á reiðanum undir yfirskini
frelsis, láta blind stundargróða-
sjónarmið ráða því, hvernig fjár-
munum er varið, en ekki skyn-
samlegt mat á því, hvað heildimmi
er fyrir beztu í bráð og lengd.
Láta fégjarna spákaupmenn og
það, hvað þeim tekst með auglýs-
ingaskrumi að fá fólkið til að
kaupa, rá'ða miklu um það, hvern-
ig gjaldeyrinum er varið. í stað
þess að meta aö eftir beztu
manna yfirsýn, hvernig hyggilegt
er að verja honum.
Ekki má nefna skynsamlega
stjórn hlutanna, og að taka það
framyfir, sem gagmlegast er. Þá
er hrópað: Höft, höft, höft.
Þegar harðnar á dalnum og ekki
er nóg til skiptanna, á ekki að
velja úr og verja gjaldeyrinum til
þess nauðsynlegasta, heldur er þá
skorturinn gerður að skömmtun-
arstjóra. Þannig á það að vera
á öllum sviðum.
j Ef þetta er hin nýja framfara-
stefna Alþýðuflokksins, þá er ekki
nema vom að mörgum virðist
hann nú va'ða í meinlegri vilju.
Þá er heldur ekki von að ráð-
herrar flokksins sjái það, sem all-
ir aðrir sjá, og ég nefndi í upp-
hafi, að stjórn þeirra væri á
rangri leið.
En ungir menn í forystu Al-
þýðuflokksins hafa þó bent á það
fleiri en eimn í greinum í Alþýðu-
blaðinu. Þeir hafa og gert um það
samþykktir, að frá þessari stefnu
verði að víkja. En ekkert stoðar,
ráðherrarnir sjá ekki villu síns
vegar.
Meinvilla Alþýðuflokks-
ráðherranna.
Þetta geta þeir e.t.v. skili’ð, sem
kynnzt hafa því, þegar menn vill-
ast í hríðum og dimmviðri, Fyr-
ir kemur þá, að þeir þekkja ekki
alkunn kennileiti, og taka heldur
ekki ráðum samferðamamna, sem
benda á rétta leið. Og svo römm
getur villan orðið, að menn
átti sig ekki á straumi fallvatna,
Og telji vatnið renna upp á móti.
Á því stigi villunnar virðast
mér ráðherrar Alþýðuflokksins
nú vera. Svo dimmt er orðið á
þeim í herleiðingunni. Verður þá
skiljanlegt, hvers vegna hæstvirt-
ur ráðherra leggur sig svo mjög
í líma vi'ð að sanna, að vatnið
renni upp á móti brekkunni, að
framfarastefna sé afturhald og
öfugt.
En hví er ég að ræða um þetta.
Það sem búið er og gert er, verð-
ur ekki aftur tekið. Það sem máli
skiptir er, hvernig við komumsl
út úr vandanum. — Það gerum
við aðeins með aukinni bjartsýni
Með nýrri framfaratrú. Hún þari
að skapast með samheldni allra
þjóðhollra framfaraafla.
Það verðá nýir kraftar að koms
til. Ungir og framsæknir menr.
verða að taka við af þeim eldri
sem þreyttir eru orðnir af oi
langri stjórnarsetu. Og til þesí
verður þessi stjórn að fara frá
Hún er bæði trúlaus og á engt
tiltrú.
Breyta þarf um stefnu.
Það er fyrsta skilyrðið til þes:
að hægt verði að vekja þá bjart
sýni hjá fólki, sem nauðsynlegt ei
til þess að við losnum úr erfið
leikunum og getum hafið hér nýji
framfarasókn. Svo að við geturr
hafið hér nýja uppbyggingu, ti'
Framliald á bls. 23.