Tíminn - 02.03.1969, Síða 12

Tíminn - 02.03.1969, Síða 12
 51. tbl. — Sunnudagur 2. marr 1969. — 53. árg. Þegar vel viðrar til sjósóknar fara bátar út strax aftur, og sjómenn hafa ekki tíma til að skreppa heim. í stað þess fá þeir heimsókn niður á bryggju. — Á neðri myndinni hafa tvcir sjö ára piltar fengið rauðsprettu hjá hinum eldri. (Tímamyndir—OÓ). Komið úr róðri OÓ-Reykjavík. Engu var líkara en Vest- mannaeyingar leystust úr álög um þegar sjómannaverkfallinu lauk ekki alls fyrir löngu. í þessari mestu útgerðarstöð landsins varð mannlíf enn daufara en á öðrum stöðum, þegar bátar voru bundnir ^ið bryggju og kominn vertíðar- tími, en sjómenn biðu í landi eftir lausn sinna mála og fjöldi manna og kvenna varð atvinnulaus, þar sem fiskur barst ekki að landi. Öll afkoma Vestmannaeyinga byggist á fiski. Þeir sem ekki stunda sjó eða starfa við vinnslu aflans í landi, vinna að þjónustu við fiskiflotann eða fiskvinnslu- stöðvarnar. Er því ekki að undra þótt brúnin hafi létzt á fólki þegar flotinn loks hóf veiðar eftir langvarandi verk- fall. Var nú aftur tekið til höndum í bænum. Bátarnir streymdu úr höfn og vinna ' hófst í frystihúsum og öðrum fiskvinnslustöðvum. Fyrst í stað barst ekki ýkja mikill afli á land, Sjómenn voru að leita fyrir sér hvar fiskinn væri helzt að fá og í hvaða veiðarfæri. Afli var misjafn fyrstu dagana, en hvað um það, verkfallinu var lokið og vertíð hafin. Loðnu- bátarnir voru þeir fyrstu sem komu dekkhlaðnir að landi. Þeir tóku á móti hverri loðnu göngunni af annarri og innan fárra daga voru allar þrær fiskimjölsverksmiðjanna orðn- ar fullar þótt loðnan væri brædd allan sólarhringinn. Það hefur löngum verið sið- ur þeirra Vestmannaeyinga, sem í 'landi eru, að labba sér niður að höfn um það bil er bátarnir koma að, rölta milli bátanna og spjalla við sjómenn ina. Allir spyrja hins sama: — Hvernig var fiskiríið í dag? Hvernig sem fiskaðist, svara sjómennirnir með sama kæru- leysinu, spýta út fyrir borð- stokkinn og horfa á bátana sem eru að koma inn undir Heima- kletti: — Það er ekki kvikindi að hafa. Andskotan ekki neitt. Og í bezta tilfelli: — Nú, þetta er svona sæmilegt. •— En svo stórt er ekki tekið upp í sig nema að minnsta kosti lestarnar séu fullar og helzt gott betur. Fiskimenn nota ekki efri stig lýsingarorða, þegar þeir tala um aflabrögð, nema þegar lítið fiskast og þá fylgja oft- ast nokkur vel valin orð í kaup bæti, og eru þá sjávarbúum lítt vandaðar kveðjurnar. Þegar bátarnir koma úr róðri eru sjómennirnir ekki síður forvitnir að vita um afla hinna bátanna, en þeim sem í landi eru. Þegar bátarnir eru komnir inn í höfnina og eru á leið á sinn stað við bryggjurn ar má oft sjá þá lyfta höndum ótt og títt eða glenna sundur fingurna og kteppa suma. Þetta merkjamál nota þeir til að gefa kunningjum sínum á hinum bátunum til kynna hve mörg tbnn þeir hafi fengið, og er svarað í sömu mynt frá öðr- um bátum. Það er skemmtilegt að fylgj ast með þegar bátarnir birtast einn af öðrum undan Heima- kletti og leggja að. Þeir fyrstu koma meðan enn er bjart. Dag nokkurn í vikunni lögðu Eyja- bátar að í vetrarblíðunni og voru margir á ferli við höfn- ina. Virðulegir embættismenn gengu með frúm sínum og spurðu nýaðkomna sjómenn frétta. Strákar hlupu milli bát anna og reyndu hver um sig að fá aflafréttirnar fyrst til að geta sagt hinum, og hlupu síð- an upp bryggjurnar til að til- kynna þeim sem síðar komu hvað þessi bátur og hinn hafi fengið. Við brimgarð næst inn- siglingunni stóðu aldraðir sjó- menn, sem nú voru komnir í land fyrir fullt og allt. Tóku í nefið og sögðu fátt. Þeir þurftu ekki að spyrja neinna frétta. Þeir fylgdust gaumgæfi lega með hverjum bát sem sigldi inn hafnarmynnið og sáu strax með þjálfuðum sjómanns augum hve mikið hver bátur var hlaðinn og fóru þá nærri um tonnafjöldann. Enn er ótalinn einn stærsti hópur þeirra Vestmannaeyinga sem leggja leið sína niður að höfn þegar von er á bátunum úr róðri. Það eru sjómannskon- urnar. Sumar óku þær barna- vögnum eða leiddu krakka sér við hlið, nema hvort tveggja væri. Þær gengu ekki milli bátanna eins og annað bryggju göngufólk, heldur horfðu á bát ana þegar þeir kornu inn og þegar rétti. báturinn kom að voru þær þar við sem hann lagðist að bryggju. Þar biðu þær rólegar þar til einn af skipshöfninni brá sér upp á bryggjuna, kíkti inn í barna- vagninn, og svo var talað sam- an í hálfum hljóðum, sjálf- ,sagt um aflabrögð. Strákunum, sem voru orðnir nógu stórir til að standa í fæt urna var lyft yfir lunninguna og fengu að spígspora um á hálu þilfarinu og þóttust menn með mönnum. Vestmannaeyingar eru aldir upp við og á sjó frá blautu barnsbeini. Strákarnir eru yfir leitt ekki gamlir þegar þeir fara að hyggja að veiðiskap við höfnina, ef ekki eigin veiði þá aflabrögðum stóru bátanna Framhald á bls. 16 Það er enginn landburður, sem trillurnar leggja upp, en hlutaskipti eru hagkvæm og er oft ekki minna upp úr handfæraveiðum að hafa en róa á stærri skipum. Flatfiski landað. Trollbátarnir hafa nú leyfi til að fiska á gömlum miðum og er ekki að sökum að spyrja, flatfiskur er aftur farinn að berast á land. ■mhi \

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.