Vísir - 20.09.1977, Side 1
Þriðjudagur 20. sept. 1977 231. tbl. 67. árg
Orkubú Vestfjarða yfirtekur eignir Rarik ó Vestfjörðum:
Verður kaupverífið aðeins 1/6
híuti raunverulega verðsins?
Nýstofnað Orkubú
Vestfjarða tekur um
áramótin við allri raf-
orkudreifingu og raf-
orkuöflun á Vestfjörð-
um. Jafnframt tekur
það við þeim hitaveitu-
framkvæmdum sem
fyrirhugaðar eru i
fjórðungnum.
Gunnar Thoroddsen iðnaðar-
fáðherra gaf Vestfirðingum
fyrirheit um það á stofnfundi
Orkubúsins, að þvl yrðu af-
hentar allar eignir Rafmagns-
veitna rikisins á Vestfjörðum.
Er gert ráð fyrir þvi að eign-
irnar, sem eru bökfærðar upp á
rúmlega þrjá milljarða króna,
verði greiddar með þvl að Orku-
búið taki að sér 500 milljónir af
áhvilandi skuldum. Um það
hefur þó engin ákvörðun enn
verið tekin I rlkisstjórninni.
Auk þess lýsti ráðherra þvl
yfir að rlkisstjórnin myndi beita
Se'r fyrir því á Alþingi að Orku-
búið fengi 20% verðjöfnunar-
gjalds til raforkudreifingar-
innar og að Rafmagnsveitum
rikisins yrði falið að gera kostn-
aðaráæltun um byggingu
háspennulina úr Hrútafirði að
Mjólkárvirkjun. Kemur sú
áætlun slðan til afgreiðslu á
Alþingi með öðrum fjárlagatil-
lögum. Talið er að Iagning lln-
unnar myndi kosta rikissjóð um
tvo og hálfan milljarð.
A bls. 2-3 er nánar fjallað um
væntanlegan kostnað rlkissjóðs
af Orkubúinu og birt viðtöl við
nokkra aðila málsins.
—SJ
Hórgreiðslu-
meistararnir
Áfram smó-
auglýsinga-
happdrœtti
Sjó blaðsíðu 2
Iðnkynning
í Reykjavík
hófst í gœr
Sjó blaðsiðu 3
Úr veðurdagbók vikunnar
SJÁ BLAÐSÍÐU 10-11
Líf legt er nú um að lit-
ast i göngugötu Reyk-
víkinga, Austurstræti,
þar sem meðal annars
hefur verið komið upp
gosbrunni og fjöl-
breytilegum sýningar-
gripum i tilefni iðn-
kynningar, sem hófst í
Reykjavík í gær.
Vísismynd: EGE
Tveir lögreglumenn eru á
verði i Austurstræti og Lækjar-
torgi að næturlagi meðan á iðn-
kynningu stendur. Þarna hefur
verið komið upp smekklegum
gosbrunni, listaverki eftir As-
mund Sveinsson og sýnishorn-
um af islenskum iðnaði.
Strax eftir að gosbrunnurinn
hafði verið settur upp voru unn-
in skemmdarverk á honum og
eftir fyrri reynslu mátti búast
við frekari spjöllum ef ekki væri
lögregluvakt viðhöfð. —SG