Vísir - 20.09.1977, Side 3
VISIR Þriðjudagur 20. september 1977
3
Mjólkárvirkjun er meðal þeirra eigna sem Orkubú Vestfjarða
myndi yfirtaka.
„Orkubúið œtti
ekki að þurfa
neinn hluta
verðjöfnunar-
gjaldsins"
— segir Helgi Bergs
formaður stjórnar
Rafmagnsveitna ríkisins
,,Ef ákveðið hlutfall verð-
jöfnunargjaldsins á að ganga til
einhvers landshluta, hættir það
um leið að vera verðjöfnunar-
gjald,” sagði Helgi Bergs banka-
stjóri formaður stjórnar Raf-
magnsveitna rikisins i samtali
við Visi.
Tilgangur verðjöfnunargjalds
er að jafna verð raforkunnar
þannig að það ekki verði dýrara á
þeim stöðum sem dýrast er að
leggja rafmagnið til, en annars
staðar.
Helgi sagðist telja að með þvi
að Orkubú Vestfjarða fái eignir
Rafmagnsveitu rikisins fyrir brot
af bókfærðu verði þeirra ætti raf-
magnsöflun búsins að vera
ódýrari en annarra rafveitna.
„Þegar létt verður á skulda-
byrði þeirra hefði ég álitið að þeir
þyrftu ekki neinn hluta verð-
jöfnunargjaldsins,” sagði Helgi.
Eftir að Orkubú Vestfjarða tek-
ur við raforkudreifingu og raf-
orkuöflun á Vestfjörðum um
næstu áramót hafa Rafmagns-
veitur rikisins enga starfsemi
þar.
Helgi sagði að sér sýndist að þvi
stefnt með þessu að lands-
hlutarnir eigi hver um sig að taka
við eignum rikisins og um leið
taki hver landshluti við sinum
hluta verðjöfnunargjaldsins.
—SJ
„Ríkisstjórnin hefur ekki
enn afgreitt kaupverðið"
— segir Jón Sigurðsson róðuneytisstjóri
„Þessi hugmynd um að Orkubú
Vestfjaröa taki á sig 500 milljóna
króna skuldir gegn þvl að yfir-
Jón Sigurðsson
taka eignirnar er komin frá Vest-
firðingum sjálfum, en þaö mál er
engan veginn frágengið ennþá,”
sagði Jón Sigurðsson ráöuneytis-
stjóri i fjármálaráðuneytinu þeg-
ar Visir spurðist fyrir um þaö
hver ætti að greiða bókfært verð
eigna Rafmagnsveitna rikisins á
Vestfjörðum umfram þessar 500
milljónir.
Bókfært verð eignanna er eitt-
hvað á fjóröa milljarð króna en á
stofnfundi Orkubúsins gerði
iðnaðarráðherra, Gunnar
Thoroddsen, ráð fyrir þvi aö skil-
yrði yfirtökunnar væri að Orku-
búið taki á sig 500 milljónir af
þeim skuldum sem á eignunum
hvila.
Jón Sigurðsson sagði að málið
ætti eftir aö koma tii endanlegrar
afgreiðslu hjá rikisstjórninni. Þvi
sagðist hann telja að ráðherra
hefði ekki gengið frá neinu I þessu
efni á fundinum, heldur hefði allt
sem þar hefði verið sagt verið að
áskildu samþykki rikisstjórnar-
innar.
—SJ
Mikill áhugi fyrir einni orku-
veitu fyrir öll Suðurnesin
— segir Kári Þórðarson rafveitustjóri í Keflavík
„Það er mikill áhugi hjá
sveitarfélögunum á Suðurnesjum
fyrir þvi að stofnuð veröi ein
orkuveita fyrir öll Suðurnesin,”
sagði Kári Þórðarson rafveitu-
stjóri i Keflavlk, þegar Vlsir
spurðist fyrir um það hvort
sveitarfélög á Suðurnesjum
hygðu á stofnun orkuveitu I llk-
ingu'viö Orkubú Vestfjarða.
„Við höfum lengi haft hug á þvi
að komast i bein viðskiptatengsl
við Landsvirkjun,” sagði Kári, en
hingað til hafa Rafmagnsveitur
rikisins verið milliliður i raforku-
sölu tilrafveitna á Suðurnesjum.
„Rafmagnsveitur rikisins
leggja nú um 12% á raforkuverð
Landsvirkjunar til okkar og er
þaðmikilhækkunfrá þvi sem var
fyrirnokkrum árum. Þetta hækk-
ar verðraforkunnarhjá okkur, og
þegar hækkanir verða hjá Lands-
virkjun hækkar álagning Raf-
magnsveitu rikisins. Til viðbótar
þessu fer fjórða hver króna sem
við tökum inn fyrir raforkuna i
verðjöfnunargjald og söluskatt,
en þessi gjöld eru nú 33% af allri
raforku nema þeirri sem fer til
húsahitunar.”
Kári sagði að fyrir rúmum
Kári Þórðarson
tveim árum hafi verið skipuð
nefnd að tilhlutan Gunnars
Thoroddsen iðnaðarráöherra til
að endurskipuleggja raforku-
dreifingu á Reykjanesi og i ná-
grenni Reykjavikur. I þeirri
nefnd eiga sæti 3 Suðurnesja-
menn, 3 menn af Stór-Reykja-
vikursvæðinu og einn frá Raf-
magnsveitum rikisins. Hafnar-
fjöröur á þó ekki fulltrúa I nefnd-
inni og taldi Kári það fremur
óeðlilegt. Sagði hann að vonir
stæðu til að nú færi að komast
skriöur á afgreiðslu þessa máls.
„Eins og kunnugt er stendur til
að setja upp gufuvirkjun f Svarts-
engi. Ef hún reynist vel, vonumst
við til að geta átt þátt I orkuveitu
til annarra svæða á Suðvestur-
landi.”
Rafveitur sveitarfélaganna á
Suðurnesjum fá ekki fremur en
aðrar einkarafveitur, neinn hlut
af verðjöfunarsjóði. Við spuröum
Kára hvort hann teldi að Orku-
veita Suðurnesja myndi fara^
fram á að fá hluta veröjöfnunar-
gjaldsins, ef Orkubú Vestfjarða
fengi þau 20% sem iðnaðar-
ráöherra gaf fyrirheit um.
Kári sagðist ekki búast við þvi.
Þvert á móti hefði hann óttast það
að Byggðalinan svokallaða yrði
til þess aö meðalverðið hækkaði,
þvi „okkur mörgum hafa fundist
Rafveiturnar á Suðurnesjum
ásamt með Rafmagnsveitu
Reykjavikur vera notaðar sem
mjólkurkýr fyrir dreifbýlissvæð-
in,” sagði hann.
-SJ
IÐNKYNNINGIN LEGGUR NÚ REYKJAVÍK UNDIR SIG:
Albert Guðmundsson formaöur iðnkynningarnefndar, Birgir tsleifur Gunnarsson borgarstjóri
og Pétur Sveinbjarnarson framkvæmdastjóri islenskrar iðnkynningar á leið til opnunarinnar.
„Hefur farið eins og
vorblœr um landið"
„Iðnkynning hefur farið sem
vorblær um landið og vakið
unga sem aldna til umhugsunar
um framtiðina. Engum dylst
lengur þýðing öflugs iðnaðar
fyrir þjóöfélagiö. Fólki er fariö
að skiljast, að efla þarf Islensk-
an iönað, það verður best
tryggt, ef landsmenn kaupa og
nota innlenda framleiðslu, þeg-
ar þvl veröur við komið. Sam-
staða þjóðarinnar er brýn eigi
að tryggja atvinnuöryggi I land-
inu.”
Svo mælti Albert Guðmunds-
son alþingismaöur meðal
annars viö opnun iðnkynningar I
Reykjavik i gær. Albert er for-
maður iðnkynningarnefndar
Reykjavikur og stjórnaði hann
opnun kynningarinnar sem
fram fór i Austurstræti I gær.
Veöur var gott og fjöldi fólks
hlýddi á ávörp Alberts, Birgis
Isleifs Gunnarssonar borgar-
stjóra, Hjalta Geirs Kristjáns-
sonar formanns verkefnaráðs
islenskrar iðnkynningar og sið-
an setti Björn Bjarnason for-
maður Landssambands iðn-
verkafólks iðnkynninguna i
Reykjavik.
Reistur hefur verið gosbrunn-
ur i Austurstræti og á Lækjár-
torgi eru sýndar islenskar
iönaöarvörur. Iönminjasýning
verður opnuö I Árbæjarsafni a
fimmtudaginn og iðnkynning i
Laugardalshöll daginn eftir.
Iönskólinn verður opinn al-
menningi til skoðunar á föstu-
dag og laugardag. A laugardag-
inn mun Félag islenskar iðnrek-
enda, Landssamband iðnaðar-
manna, Iðja og Útflutningsmið-
stöð iönaðarins veita viöurkenn-
ingar sinar viö athöfn aö Kjar-
valsstöðum. Ýmislegt fleira
verður á döfinni fram til 2. októ-
ber að iðnkynningu lýkur og i
gangi er glæsilegt happdrætti
iðnkynningar. Framkvæmda-
stjóri iðnkynningar I Reykjavik
er Kristján Hjaltason.
MikiII mannfjöidi var samankominn I Austurstræti I gær. Visis-
myndir: EGE.