Vísir - 20.09.1977, Síða 7
VISIR Þriðjudagur 20. september 1977
7
Danir þóttu skera hár manna best
á Norðurlandakeppninni í hárgreiðslu og hárskurði
Niels Schou var aö vonura kampakátur þegar hann tók viö verölaunum
sinum úr hendi Ryno Höglunds, formanns Noröurlandasambands hár-
greiöslu — og hárskerameistara.
Esa Kokko og Anneli Palmgren hiutu önnur og þriöju verölaun fyrir
rétt handtök á greiöunni.
Eitt þaö mikilvægasta I keppninni I karlaflokki var aö háriö mældist I
réttri sldd og aö eyrun fengju aö njóta sfn á réttan hátt. Hér eru dómar-
arnir aö rannsaka hvernig til tókst.
Einn islensku keppendanna, Lýöur Sörlason, I fullum gangi.
Norðmaður var hins vegar
fimastur með greiðuna
Hárin risu — og hnigu í
stórum stíl í Laugardals-
höllinni á sunnudaginn, en
þá fór þar fram Norður-
landakeppni í hárgreiðslu
og hárskurði.
Islendingar stóðust ekki allt of
vel samkeppnina við nágranna
okkar á þessu sviði. Féll aöeins
einn af tuttugu og einum verð-
launabikar gestgjöfunum I skaut.
Hann hlaut Grétar Benónýsson,
öðru nafni Brósi, fyrir næst best-
an árangur i klippingu og blæstri.
Danir voru úrskurðaðir bestu
hárskerar Norðurlanda og hlutu
þeir öll efstu sætin i þeim þætti
keppninnar. Efstur var Niels
Schou, annar Gert Reneé Jensen
og i þriðja sæti var Jens Erik
Behrendtz.
I keppninni um bestu hár-
greiðsluna bar Björn Thorstensen
frá Noregi sigur úr býtum Hann
greiddi Anne-Lise Petersen og
þótti dómendunum tveim höfuö
hennar bera af eftir meöferðina.
önnur verðlaun hlaut Esa
Kokko frá Finnlandi og Anneli
Palmgren frá Sviþjóð varð i
þriðja sæti. Efst islensku
keppendanna vár Elsa Haralds-
dóttir, en henni var dæmt 11. sæt-
ið. —SJ
DUSCHOLUX
rennihurðir og þil í sturtur og baðherbergi
Notið DUSCHOLUX
til að njóta ánœgju í baðinu
Þegar farið er i sturtubað er alltaf hætt við að skvettist á gólfið.
Plasttjöld leysa sjaldan vandann, þegar dýr teppi eruá gólfum, þess
vegna hönnuðum við DUSCHOLUX, sem aflað hefur vinsælda um
alla Evrópu. Einfalt er að loka rennihurðunum, skrúfa frá full-
komnu.vatnsrennsli og njóta ánægjunnar án þess að skvetta á gólfið.
YÐAR ER VALIÐ
annað hvort auðhreinsað matt efni eða reyklitað. DUSCHOLUX
öryggisveggir eru ekki brothættir, endast vel og þola hita.
þokkalegt; sterkt og vandkvæðalaust
Þannig er DUSCHOLUX. Rammarnir eru úr mjög góðu áli, sem ekki
ryðgar. Hægt er að fá það gull- og silfurlitað og það er jafn sterkt og
það er fallegt. DUSCHOLUX er prýði baðherbergisins.
Það er afgreitt tilbúið með öllum festingum og þarfnast einungis
uppetningar. Ef veggir eru ekki réttir leysir DUSCHOLUX vandann
með allskonar álprófilum.
DUSCHOLUXHOLYDOOR
Þetta er lausnin þar sem rými er takmarkaö.
Auðvelt er að fella þilin saman að baði loknu.
Hægt er aö fá þil sem henta hverju baðher-
bergi og sem auðvelt og fljótlegt er að koma
fyrir. Um fjórar gerðir er að velja.
DUSCHOLUXBADKLEFAR
Hægt er að fá sérbyggðar einingar i nákvæmu
máli allt að 3.20 metra breiðar og 2.20 metra
háar. DUSCHOLUX baðklefarnir eru byggðir
fyrir framtiðina.
Til afgreiðslu strax!
Söluumboð:
HEILDVERSLUN KR. ÞORVALDSSON OG CO.
Grettisgötu 6, Rvik. Símar 24478 og 24730.