Vísir - 20.09.1977, Side 8
8
Þriðjudagur 20. september 1977 VISIR
Skólatannlæknar Reykjavikur munu ann-
ast tannlæknaþjónustu fyrir 6-12 ára börn í
barnaskólum Reykjavikur í vetur.
11 og 12 ára börn i Fella- og Hólabrekku-
skóla verða þó að leita til annarra tann-
lækna fyrst um sinn og verða reikningar
fyrir þá þjónustu endurgreiddir hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavíkur.
Aðrir reikningar verða ekki endurgreiddir
nema með leyfi yfirskólatannlæknis.
—
Smurbrauðstofan
i BJÖRISJÍIMIM 1
Njálsgötu 49 — Sími 15105
Sendisveinn óskast
Félagsprentsmiðjan
Spitalastig 10
VÍSIR
Bergstaðastræti
Sóleyjargata
Bergstaðastræti
Skúlagata frá nr. 50
Rauðarárholt.
Uppl. i sima 86611.
PASSAMYIVDIR
leknar i litum
ftilliúnar strax I
barna & flölskyld
LIOSMYNDIR
AUSTtíBSlBÆTI 6 S. 12644
»'y
KÓPASKERSBÚAR í RÆKJUSTRÍÐI VIÐ RÁÐUNEYTIÐ:
Vilja forgangsrétt til
rœkjuveiða ó öxarfirði
„Það hefur hingaö til verið
viðurkennd regla bæði við
Húnaflóa og tsafjaröardjúp, að
bátar frá viðkomandi fjörðum
sætu fyrir þeirri rækjuveiði sem
þar væri stunduð. Það er þvi
harla einkennilegt, aö sjávarút-
vegsráðherra skuli úthluta
veiðileyfum i öxarfirði til báta
frá Húsavik, ekki sist þar sem
frá Kdpaskeri er ekki stunduö
önnur útgerð en rækjuveiðar”,
sögðu forráðamenn Kópaskers-
búa á fundi með fréttamönnum.
Tilefni fundarins er sú
ákvörðun Matthiasar Bjarna-
sonar ráðherra að skipta þvi
magnisem leyft verðurað veiða
af rækju i öxarfirði milli báta
frá Kópaskeri og Húsavik. Þeir
sem boðuðu til fundarins voru
þeir Kristján Armannsson
framkvæmdastjóri rækjuverk-
smiðjunnar Sæbliks á Kópa-
skeri, Friðrik Jónsson oddviti
Presthólahrepps og Björn Guð-
mundsson oddviti Keldunes-
hrepps.
Þeir bentu á, að Hafrann-
sóknarstofnunin hefði lagt til að
leyft yrði að veiða 650 tonn af
rækju á vertiðinni sem nú er að
hefjast. Rækjubátar frá Kópa-
skeri gætu auðveldlega veitt þa ð
magn og verksmiðjan tekið það
til vinnslu. Engu að siður hefði
ráðherra ákveðið að skipta
þessu magni jafnt milli báta frá
Húsavik og Kópaskeri eða 325
tonn á hvorn stað. Sæblik væri
eina atvinnufyrirtækið á Kdpa-
skeri fyrir utan Kaupfélagið.
Hluthafar eru auk hreppanna,
Verkalýösfélag Presthóla-
hrepps, Kaupfélag Norður
Þingeyinga og um 80 einstakl-
ingar, en ibúar á Kópaskeri
voru 136 þann 1. desember
siðast liðinn. Vegna lélegrar
hafnaraöstöðu er ekki hægt að
geraútstóra báta frá Kópaskeri
ogþvier treyst á rækjuveiðarn-
ar.
Töldu þremenningarnir það
ekkert áhorfsmál að ibúar við
öxarf jörð ættu að hafa algjöran
forgang við nýtingu rækjumið-
anna þar i firðinum.
Hafrannsóknarstofnunin hef-
ur lagt til að aðeins átta bátum
verði úthlutað veiðileyfum og
megi hver bátur ekki veiða yfir
5 tonn á viku. Þá megi bátar yfir
30 tonn ekki stunda þessar
veiðar.
Visir hafði samband við Jón
B. Jónsson fulltrúa sjávarút-
vegsráðuneytisins og spurði
hvað margir bátar hefðu sdtt
um leyfi. Hann sagði að 16 um-
sóknir hefðu borist. Þrir bátar
koma ekki til greina vegna þess
að þeir eru yfir 30 tonn. Eftir
standa þá fjórir bátar frá Kópa-
skeri og niu frá Húsavik og er
útlit fyrir að úthlutað verði leyf-
um til 11-12 báta.
Varðandi kröfu Kópaskersbúa
sagði Jón að Húsvikingar hefðu
orðið á undan Kópaskersbúum
að nýta þessi mið. Stefnan væri
sú að hleypa ekki fleirum þarna
að en áður, en ekki væri hægt að
gera upp milli manna með sam-
bærilegar aðstæður. —SG
ENN PÍLAGRÍMSFLUG HJÁ FLUGLEIÐUM:
Flytja nœr 13 þús-
und pílagríma í ór
Flugleiðir hafa undirritað )
samning um að flytja 12.800 pila-
grlma til og frá Jeddah i Saudi-
Arabiu á næstu mánuðum.
Um fimm þúsund þeirra koma
frá Kanó i Nlgeriu, en 7.800 frá
Aisir.
Tvær DC-8-63 þotur verða
notaðar til fiutningánna, sem
hefjast 25. október n.k. og standa
til 15. desember. Alls munu um
lOOstarfsmenn Flugleiða og Loft-
leiða taka þátt I flutningunum.
A meöan á þessu stendur munu
Flugleiðir taka á leigu DC-8-63
þotu, sem að mestu mun verða
notuð til flugs milli Chicago,
Reykjavikur og Luxemborgar.
Tveggja mónaða
Mallorca-ferð
eftirlaunafólks
Ferðaskrifstofan Sunna efnir i eftirlaunafólks til Mallorca.
hausttil tveggja mánaða ferðar Mun 100 manna htípur fara
þangað um miðjan október og
koma heim aftur um miðjan
desember.
t frétt frá ferðaskrifstofunni
segir, að sérstök dagskrá og
sérstakir fararstjórar verði
með þessum hópferðum til að
annast fyrirgreiðslu og efna til
skemmti- og skoðanaferöa. Þá
verður islenskur iæknir með
daglegan viðtalstima fyrir gest-
ina og fylgist með heilsufari
þeirra. Ferðakostnaðurinn fyrir
þá, sém dvelja á höteli, er 129
þúsund krónur fyrir þetta tvo
mánuði og er þá m.a. fullt fæði
innifaliö, segir i fréttinni.
— ESJ.
Heildaraflinn mun
meiri en í fyrra
— en þar munar mest um loðnuveiðarnar
Heildaraflinn það sem af er ár-
inu er verulega meiri en i fyrra,
og munar þar mest um aukningu
loðnuaflans. Hins vegar hafa tog-
ararnir einnig aflað meira en á
sama tima i fyrra, en bátaflotinn
aðeins minna.
Þetta kemur fram i tölum
Fiskifélagsins um heildaraflann
fyrstu átta mánuði ársins.
Heildaraflinn nú er nú 1035 þús-
und lestir, en var á sama tima i
fyrra rúmlega 757 þúsund lestir.
Loðnuaflinn var nú tæplega 639
þús. iestir, en rúmlega 406 þúsund
lestir i fyrra.
Togaraaflinn var i ár tæplega
173 þúsund lestir, A svæðinu frá
Vestmannaeyjum til Stykkis-
hólms komu rúmlega 67 þúsund
lestir á land. Næst efsti landshlut-
inn var Norðurland með tæplega
49 þúsund lestir.
Bátaaflinn var einnig1 lang-
mestur á Suðvesturlandi, eða
tæplega 126 þúsund tonn af 191
þúsund tonnum sem bátaflotinn
fékk fyrstu átta mánuði þessa
árs.
—ESJ
/