Vísir


Vísir - 20.09.1977, Qupperneq 9

Vísir - 20.09.1977, Qupperneq 9
VISIR Þriöjudagur 20. september 1977 9 Það getur verið spaug að fá bíl Ef bíleigandi verður fyrir því óláni að nýi bíll- inn hans eyðileggst í árekstri/ tapar hann stór- fé/ jafnvel þótt hann sé í fullum rétti. Haraldur Blöndal skýröi frá einu dæmi um þetta i grein i Visi fyrir nokkrum dögum. 1 þvl dæmi var um að ræða bifreið sem kostaði um 500 þúsund krónur þegar eigandinn keypti hana. Tveim árum seinna var ekið á bilinn og fékk eigandinn hálfa aðra milljón króna i bætur, sem þá var markaðsverð sams konar bils. Vegna þessara bóta var manninum siðan gert að greiða hálfa milljón króna i tekjuskatt. Visir bar þetta dæmi undir Ævar tsberg vararikisskatt- stjóra og spurði hann hvort slfk slattlagning væri eðlileg. Ævar sagði að ef um væri að ræða einkabil, sem ‘viðkomandi hefði átt i innan við tvö ár, teldust bætur vegna altjóns sem söluverð. Þvi væri sú upphæð sem billinn hefði hækkað i verði umfram kaupverð vegna verö- -bólgunnar skattskyldar tekjur. dýrt bœttan Væri þetta i samræmi við 7. grein laga um tekju- og eigna- skatt frá 1971. Þó sagði Ævar að rikisskatta- nefnd væri heimilt að dreifa þessum tekjum á 5 ár, þannig að 1/5 hluti bótanna umfram kaup- verð teljist með tekjum hvers árs. Samkvæmt þessu telst hver króna sem verðbólgan bætir við verð bílsins ágóöi. Sé hins vegar unnt að gera við bflinn eftir árekstur, þannig að hann verði samur eftir#myndast engar tekjur hjá eigandanum og skiptir þá engu hve dýr viðgerðin er. Hvort ofangreind skatt- lagning væri réttlát eða ekki, kvaðst Ævar ísberg ekki geta neitt sagt um. Rikisskattstjóra væri aðeins að framfylgja sett- um lögum. —SJ Slœmur aðbúnaður van- á Vestfjörðum gefínna Vestfirðir eru skemmst á veg komnir allra lands- hluta með aðstöðu handa vangefnum. Nú eru um 70 vangefnir heimilisfastir þar vestra/ en þar af eru um 40 í heimahúsum/ segir i frétt frá Styrktarfélagi vangefinna á Vestf jörðum. Félagið var stofnað fyrir réttu ári, og eru nú um 1400 styrktarfél- agar skráðir hjá félaginu. 1 ályktunum ráðstefnunnar er lögð áhersla á það við stjórnvöld, að hið bráðasta verði bætt úr sár- um skorti S viðunandi þjónustu við vangefna i landsfjórðungnum. Bent er á, að koma þurfi á fót fjölskylduheimilum, en siðan reist og rekin dvalarheimili. Þá beinir ráðstefnan þvi til fræöslu- yfirvalda á Vestfiörðum, að könnuð verði þörfin á sérkennslu og ráðinn til hennar starfskraft- ur. Formaður Styrktarfélags van- gefinna á Vestfjörðum er sira Gunnar Björnsson i Bolungarvik. Aðrir I stjórn eru Ragnheiður Þóra Grimsdóttir, gjaldkeri, Ölafia Aradóttir, ritari, Kristjana Olafsdóttir og Páll Jóhannesson. — ESJ VlSIR laóburóarfól óskast! Hafnarfjörður — Hafnarfjörður. Blaðburðarbörn vantar Uppl. I sima 50641 afgreiðsla Visis Hafnarfirði. vtsm Hafnarfirði Uppl. i sima 50641 í sláturtíðinni Húsmæður athugið^að venju höfum við til sölu margar gerðir vaxborinna umbúða. Hentugar til geymslu hverskonar mat- væla sem geyma á i frosti. Komið á afgreiðsluna. Kassagerð Reykjavikur Kleppsvegi 33. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 14. 19. og 23. tölublaði Lögbirtingablaðs- ins 1977 á eigninni Hringbrautt 11, hæð og ris, Hafnarfirði, þingl. eign Guðna Einarssonar, fer fram eftir kröfu Inn- heimtu rikissjóös á eigninni sjálfri föstudaginn 23. september 1977 kl. 4.00 e.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavfk fer fram opin- bert uppboð að Hverfisgötu 50 þriðjudag 27. september 1977 kl. 14.00 og verður þar seld ljósmyndavél talin eign Ljósbrots h.f. Greiðsla við hamarshögg. Borgarfógetaembættið í Reykjavlk. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 39. 41. og 43. tölublaöi Lögbirtingablaös- ins 1977 á eigninni Flókagötu 5, 2. hæð, Hafnarfiröi, þingl. eign Þorleifs Óla Jónssonar, fer fram eftir kröfu Gisla K. Sigurkarlssonar hdl., á eigninni sjálfri föstudaginn 23. september 1977 kl. 3.00 e.h. Bæjarfógetinn f Hafnarfiröi Á myndinni sést minnispeningur Iðnkynningar I Reykjavfk sem ts-Spor h.f. hefur gefið út. Peningurinn er úr bronsi, fjórir sentimetrar i þver- mál og kosta 1200 krónur. Þeir verða númeraðir frá 101 og áfram en upplagiö er takmarkað. Peningurinn verður til sölu á Iönkynningunni f Laugardalshöll og f happdrættishúsi Iðnkynningar f Lækjargötu. Moldarsala Munins í Kópavogi Lionsklúbburinn Muninn i Kópavogi hefur nú ákveðið að efna til móldarsölu um næstu helgi. Vegna óviöráöanlegra orsaka féll niður hin árlega moldarsala klúbbsins I vor, en nú verður úr þvf bætt, enda segja garðrykjufræðingar að þetta sé heppilegur timi til að fá mold heim og láta hana frjósa I vetur og brotna. Tekið verður á móti pöntun- um i dag, morgun og miðviku- dag frá klukkan 17-20 alla dag- ana i simum 40465 og 42058 en salan fer fram á laugardaginn og sunnudaginn þann 24. og 25. september. Moldinni verð- ur ekið heim og er fólk beðiö að hafa allt tilbúið til móttöku. Allur ágóði rennur til liknar- mála. — SG Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar f Reykjavfk fer fram opin- bert uppboð að Brautarholti 16 þriðjudag 27. september 1977 kl. 15.30 og verða þar seldar 3 affelgunarvélar og hjól- barðaglennari talið eign Nittoumboðsins h.f. Greiðsla við hamarshögg. Borgarfógetaembættið f Reykjavfk. Nauðungaruppboð Eftir kröfu Gjaldheimtunnar f Reykjavfk fer fram opin- bert uppboð að Bankastræti 9, þriðjudag 27. september 1977 kl. 16.00 og veröur þar seldur peningaskápur 2 skrif- borð, ritvél o.fl. talið eign óðinstogs h.f. Greiðsla viö hamarshögg. Borgarfógetaembættið f Reykjavfk. Nauðungaruppboð annað og sfðasta á eigninni Hverfisgötu 24, Hafnarfirði, þingl. eign Einöru Sigurðardóttur, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 23. september 1977, kl. 2.00 e.h. Bæjarfógetinn f Hafnarfirði. —ESJ

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.