Vísir - 23.10.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 23.10.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 23. október 1977 3 Viðtal: Póll Stefónsson Myndir: Jens Alexandersson ÚTOGSÚÐUR „Það er svolitið einkennilegt en allir halda að þegar maður fer út & land að skemmta þá sé það hreinn gullmokstur. En þetta er sko ekkert sældar- brauð. Það þarf að auglýsa þetta meira og meira á hverju ári. Og öll gjöld eru orðin það há að það er á takmörkunum að þetta borgi sig. Húsaleiga, skattar og önnur gjöld taka 50- 60% af aðgangseyrinum, sem er hreinn glæpur. Og þeir sem standa að þessu — við vorum t.d. niuí sumar — fá afganginn. Og eigum þá eftir að borga auglýsfngar, mat, hótel, og flutning á milli. Það er lfka svo komið að skemmtikraftar eru farnir að sleppa stórum og góðum húsum úr vegna þess að það borgar sig enganveginn að skemmta þar.” „Gaman? Jæja, þetta er þrælavinna. Þó skeður margt skemmtilegt i svona ferðum. Ég man meðal annars eftir þvi þegar við vorum að skemmta fyrir 2 árum á Skagaströnd.Það var fyrir lokaatriðið á skemmtuninni. Við höfðum sett saman leikþátt sem við kölluðum Linharð Ogeta, og allir þurftu að hafa fataskipti. Meðal manna þarna er Magnús Jónsson óperusöngvari sem er mjög karlmannleguri alla staði, og það sem þykir einna flottast, alveg kafloðinn á bringunni. Hann litur á Karl Möller sem er alger andstæða og segir: ,,Þú erteins og eyðimörk”. Og Karl sem er einstaklega orðheppinn maður litur rólega á MagnUs og segir: „Já, það er lika misjafn- lega langt siðan mennirnir komu niður Ur trjánum.” „Annars er það alveg kostu- legt aði eina skiptið sem ég man til, að íslendingar hafi komið timanlega á skemmtun bilaði allt hjá okkur, og við komum allt of seint. Billinn okkar bilaði við Þingeyri og við þurftum að fara á puttanum alla leið til Hnifsdals. Það var hálfneyðar- legt að bera inn tækin i gegn um sal fullan af fólki. Og til að kóróna þetta allt saman var ekki hægtað draga fyrir, þannig að við vorum eins og aular þarna uppi á sviði.” „Annars er gott að skemmta úti á landi. Fólk kemur til þess að skemmta sér. Það er lika allt i lagi að skemmta hér á höfuð- borgarsvæðinu til klukkan 11. Eftir það eru allir orðnir svo fullir, að einhver maður uppi á sviði er bara truflandi.” RÖDDIN þessu. Það er eins og hann hafi getið þessa dúkku sjálfur, — svo mikill er hamagangurinn. Ef það er hægt að kaupa einkaleyfi á rödd, þá er eins gott fyrir menn eins og mig að pakka saman. Það er alveg merkilegt hve mikið umstang ein dúkku- tuðra getur valdið. Fyrir utan þetta smá/stórmál er ágætt að vinna hjá sjónvarpinu. Þó finnst mér betri mórall niðri i útvarpi. Þvi kynntist ég vel þegar ég vann með Hrafni Pálssyni að þættinum Allt i grænum sjó.” „Nei, ég ruglast aldrei á minni eigin rödd og einhvers annars. Og ég held að það sé enginn sem fettir fingur út í það að ég sé að herma eftir honum. Nema þá helst Gisli Hallddrsson „primadonna”. Honum finnst það ekki við hæfi að hans rödd sé notuð i svona lagað. Stjórn- málamönnunum okkar finnst þetta bara góð auglýsing sem gaman er að.” „Annars er Palli sá erfiðasti sem ég hef hermt eftir. Það að herma eftir rödd sem annar maður er höfundur að er mjög erfitt. Ég fékk nokkurra daga fyrirvara,svona tilprufu.0g hún tókst. Þetta var skemmtileg vinna. NU,siðan hef ég notað Palla- röddina inn á milli á skemmtunum og gert mikla lukku. En Jón Þórarinsson hjá sjónvarpinu er alveg æfur út af ALLTAF SAMA TUGGAN? ^Maður heyrir það svona útundan sér, að fólk er stundum að tala um að þetta sé alltaf sama tuggan sem maður er með. Þar kemur bæði til, að þetta land sem við búum á er litið og fljótyfirfarið, og þess vegna er maður tilneyddur að endurnýja oft. Oft gerist eitt- hvað spennandi i þjóðlifinu og þá er þvi smellt inn i prögrammið, og maður reynir vissulega að vera sem fersk- astur. En það væri ógjörningur að endurnýja sig mánaðarlega. Af smæð landsins leiðir lika að varla er hægt að vera skemmti- kraftur að aðalstarfiý —P.Stef. ....Óli Jó... .. .og Lúðvík LÍF OG r ~~ i • HEILSA Magasjúkdómar Um það bil sjötti hver maður á jafnaðarlega við einhverja magakvilla að stríða. Oftast er um að ræða verki, þembu eða hægðatruf lanir. Hvað veldur, og hvað er til úr- bata? Fyrst af öllu skal tekið fram, að rétt er að fara til læknis, verði vart magakvilla, nema um sé aö ræða smáseiðing, sem hverfur eftir stutta stund. Læknirinn úr- skurðar síðan, hvort hér sé á ferð- inni sjúkdómur Í þörmum eða einhver þeirra sjúkdóma, sem rætt er um hér á eftir. MAGABÓLGA Margir hafa fengið brjóstsviða. Hann lýsir sér oft sem sár hungurtilfinning og kemur, þegar maginn er tómur mörgum klukkutimum eftir siðustu máltið. Sársaukinn getur verið afleiðing magasárs, en leiði röntgenskoðun i Ijós, að um slíkt er ckki að ræða, er oft unt magabólgu að ræða. Þá getur lækningin einfaldiega verið fólgin i þvi að borða reglulega og draga úr kaffidrykkju og rcyk- ingum. Oftast er unnt að draga úr verknunt mcð þvi að borða dáiitið eða eta töflur, sem slá á maga- sýrurnar og fást án lyfseöils i næstu lyfjabúð. Margt getur orðið að gagni, en ódýrast er að leysa svolitinn matarsóda upp I vatni. Stundum verður vart maga- verkja strax að lokinni máitið, þ.e. þegar maginn er ekki tómur. Orsökin getur verið .■'Hófleg áfengisdreykkja eða ofneysla verkjataflna. Ýmsir, sem þjásfc af magahólgu, baka sér óþörf óþægindi með þvi að fasta. Auðvitaö skyldu menn forðast að neyta matar, sem vitað er að fer illa i maga, en að öðru leyti á að vera óhætt að borða ailan algengan mat. Stundum kemst svolitil maga- sýra upp i vélindað, og getur hún vaidið brennandi brjóstsviða. Sumir fá brjóstsviöa með löngu millibiii, en aörir þjást stöðugt af honum. Brjóstsviðinn er algengur á nóttunni eða þegar menn eru átútir. Þaö er hægt að draga úr óþægindum aö næturlagi með þvi að sofa með hátt undir höfðinu. Við brjóstsviða er ágætt aö drckka mjóik cöa taka inn lyf sem draga úr sýrunum. Þeir sem þjást af brjóstsviöa að staðaldri ættu að teita læknis. HARÐLIFI er sennilega algengasti maga- kvillinn. Það verður aldrei of brýnt fyrir fólki að reyna að hafa sem mesta reglu á hægöunum. Harðlifi er mjög aigengt meðal Við magaverk getur verið gott að leysa sódatöflu upp i vatni. þeirra, sem geta ekki sinnt kalli náttúrunnar vegna vinnu sinnar. Það eru ekki aliir, sem gera sér ijóst samhengi iikamshreyfingar og mcltingar. Þeir sem starfa á sjúkrahúsum vita, að meltingin hægir á sér, þegar menn ieggjast á sóttarsæng, og eins cr kyrrsetu- fólki hætt við harölifi. Hjólreiðar eða gönguferðir veröa flestum að góðu liði. Ekki er nauðsynlegt aö taka upp sérstakt mataræði við harð- lífi, en benda ntá á, að grænmeti og heilhveitibrauö draga veru- lega úr harðlifi. Flestir vita, að sveskjur eru taidar góðar við harðlifi. í flestum tilvikum ættu ofangreind ráð að koma að not- um. Betra þykir að þjást af vægu harðlifi en að taka hægðalyf. NIÐURGANGUR Flestir hafa einhvern tima fengið niðurgang. Hann getur átt sér tnargar orsakir, og hér verða ncfndar nokkrar þeirra. 1 sumt fólk vantar efnahvata (ensým), sem veldur þvi að sykurinn i mjólk meltist ekki á eðlilegan hátt. Þetta er ckki sjúkdómur i venjulegum skilningi, en áhrifin verða þau.aö mjólk orkar á sama hátt og hægðalyf. Læknismeðferðin er fólgin I þvi að forðast mjólk. Vafalaust eru margir stöðugt haldnir niður- gangi án þess að þurfa þess. Ann- ars er ntjólkin svo mikilvægur liður i mataræöi manna að forð- ast skyldi að hætta aö drekka mjólk nema fyrir liggi úrskurður læknis um, að það sé einmítt mjólkin sem valdi niöurgangin- um. Aður en sagt er skilið við maga- sjúkdóma, er rétt að benda á, að starfsemi magans er mjög ein- staklingsbundin. Suntir hafa hægðir þrisvar á dag, og öörum nægir að gera það þriðja hvern dag. En það er Hka rétt að hafa I huga að truflanir i meltingar- starfseminni geta bent til alvar- legra sjúkdóma, sem krefjast þess, aö snöggt sé brugöiö við. Það skal nokk vera allt í lagi með magann minn....

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.