Vísir - 28.10.1977, Síða 5

Vísir - 28.10.1977, Síða 5
VISIR Föstudagur 28. október 1977 .......... ■ -■■■ Umsjón: óli Tynes Vopnasölubann hefur lítil óhrif á framtíð S-Afríku Pik Botha, utanrikis- ráðherra Suður-Afriku, sagði i viðtali við banda- riska sjónvarpsstöð i nótt, að land hans myndi að sjálfsögðu berjast gegn vopnasölubanni eins og það framast gæti. „Við getum ekki látið halda okkur eins og gislum með bannhótun um hversu alvarlegar sem þær kunna að vera”, sagði hann. t samþykkt Sameinuöu þjóö- anna um þetta mál er reyndar enn ekki fariö aö tala um aö aðildarlöndunum sé skylt aö viröa þaö. Vopnasölubann gegn Suöur-Afriku hefur veriö 1 gildi i mörg ár, en löndum hefur veriö þaö i sjálfsvald sett hvort þau virtu þaö. Bandarikin og Bretland hafa virt banniö og þessvegna kannski fúsari til þess en Frakkar aö setja á algert bann sem verði skylda aö hlita. Frakkar hafa selt mjög mikiö af vopnum til Suöur- Afriku. Flugherinn er t.d. nær eingöngu búinn Mirage orrustuþotum, skriödrekarnir eru franskir og einnig kafbátaflotinn. Israelar hafa hinsvegar selt til landsins hraðskreiöa eftirlitsbáta, vopnaða léttum fallbyssum og eldflaugum. Vopnasölubanniö mun tæplega hafa mikil áhrif á Suöur-Afriku. Þaö er langt siðan þessi mögu- leiki var séöur fyrir og byrjaö aö safna umframbirgðum bæöi af skotfærum og varahlutum. Annaö og ekkisiöra atriöi er aö Suöur-Afrika er farin aö fram- leiða meginhlutann af sinum vopnum sjálf. 011 handvopn og skotfæri eru framleidd þar og sömu sögu er að segja um nokkr- ar tegundir eldflauga og ýmsar aðrar'vitisvélar. Landiö er vel undir þaö biiiö aö standa af sér „umsátur.” t nám- um sem löngu er hætt að nota eru oliubirgðir til átta til tiu ára ef vel er með farið og svipaðar birgöir erutilaf öðrum mikilvægum vör- um. Her landsins er svo stór# vel þjálfaöur og vel vopnaöur, aö honum yröi mjög létt aö hrinda hvaöa innrás Afrikurikis sem er. Jafnvel þótt öll rlki Afriku legöu heri sina saman og geröu innrás yröi þeim litiö ágengt. Vopnasölubann Sameinuöu þjóöanna hefur þvi litla aöra þýðingu en þá aö einangra Suöur- Afriku frekar pólitiskt og friöa herskáa blökkumannaleiötoga. Suöur-Afriku veröurekki komiö á kné með neinu vopnasölubanni. Ef í nauöirnar ræki er ljóst aö landiö hefur bæöi þekkingu og hráefni til að smiöa sér kjarn- orkusprengju. Hótun um slikt gæti fengið Vesturveldin til að hugsa sig um tvisvar. Prinsessan sagði nei — og Margréti Trudeau var visað ó dyr Margréti Trudeau, eiginkonu kanadiska forsætisráðherrans, var visað frá þegar hún reyndi að fá blaðaviðtal við nöfnu sina, prinsessu frá Bretlandi, þar sem hún var að snæða hádegisverð ásamt kunningjum i „Club 21” i New York. Margrét Trudeau er skilin aö borði og sæng viö mann sinn og vinnur fyrir sér sem blaðamaöur og ljósmyndari i Bandarikjun- um. Meðal þeirra sem i fylgdarliöi prinsessunnar voru, var Volin Tennant, lávarður og frU, en Margrét er á leiö i heimsókn til þeirra á eyju sem þau eiga I Karabiska hafinu. Þaö varö uppi fótur og fit i klúbbnum þegar Margrét blaða- kona ruddist þangaö inn, I galla- buxum og meö ljósmyndara meö sér, en „21” er einhver allra fin- asti klúbburinn i New York. Margrét Trudeau ásamt fimm ára syni sinum, og með mynda- vélina um hálsinn. Margrét kvaðst þekkja prinsessuna og baö um viötal. Þjónar báru skilaboð á milli. Hádegisveröargestirnir urðu felmtri slegnir og prinsessan neitaði aö hitta nöfnu sina, sem var þá samstundis beöin að yfir- gefa staöinn. Spánverjar herða flugrœningja- eftirlitið var um daginn var sem kunnugt erræntiPalma áMallorca.Þar er eftirlit svo litiö og lélegt aö flugræningjar gætu liklega komist um borðmeö fallbyssu i aftani'vagni. Vestur-þýska stjórnin hefur krafist þess aö fá aö hafa sina eigin öryggisverði I Palma og á tólf öörum flugvöllum viöa um heim, þar sem öryggi er ekki taliö nógu mikiö. Spænska stjórnin hefur ákveðið að herða mjög allt öryggiseftir- lit á flugvöllum lands- ins og verður milljón- um peseta varið til þess. á næsta ári. Lufthansaþotunni sem rænt Meö brugönar byssur og skildi sér til hlifðar, gera japanskir lögreglumenn árás á strætisvagninn Rœningjar yfirbugaðir Tveir japanskir glæpamenn rændu fyr- ir nokkru strætisvagni með sextán farþegum um borð og settu fram ýmsar kröfur um lausnargjald. Þetta var skömmu eftir að stjórn landsins hafði orðið við kröfum ræningja japönsku þotunnar sem lentu i Alsir. Þeir fengu greidda sex milljón dollara og nokkrir félag- ar þeirra voru látnir lausir úr fangelsi. Raningjar strætis- vagnsins hótuöu að sprengja hann i loft upp og myröa þar með alla gísla sina, ef þeir fengju ekki lfka lausnargjald. En i þetta skipti ákvaö jap- anska stjórnin aö láta hart mæta hörðu. Lögreglumenn geröu skyndiárás á vagninn og ruddust um borö áður en ræn ingjamir höfðu áttað sig. Annar þeirra var samstundis skotinn til bana en hinn særður. Engann gislanna sakaöi hins- vegar, og lögregluþjónarnir sluppu einnig ómeiddir, þótt ræningjarnirvæm vel vopnaöir. Móöir réttir fimm ára dóttur sina út um glugga strætisvagns- ins meöan á umsátrinu stóö. Hún var látin laus i skiptum fyr- ir ketil og tebolla. Einn ræningj- anna, grimubúinn, stendur fyrir aftan mæögurnar. Eftir árásina: Annar ræningjanna lést af skotum iandlitiö, en hinn er leiddur særöur á brott.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.