Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 3

Vísir - 27.11.1977, Blaðsíða 3
Sunnudagur 27. nóvember 1977 Fl EKKI IURÖK- IIANN?" Myndir: Jens Alexondersson Þannig teiknar einn af nemendum Mynd- lista- og handiðaskólans, Bárbur Leós, Carmen. one vestur-þýska sendiráðsritarann þar en hann starfaði hér á landi i nokkur ár áður en hann fór til Sierra Leone. Hann hélt þvl fram að fólkið hér væri bæði kuldalegt og leiðinlegt. Og það væri ekk- ert hægt að hafa fyrir stafni. Ég bjóst þess vegna ekkert við of miklu þegar ég svo kom hingað. Ég vildi gjarnan hitta hann aftur núna og segja honum minn hluta sögunnar, þvi elskulegra og betra fólki hef ég ekki kynnst. Það veltur samt allt á atvinnu hvort ég verð hér til lang- frama eins og mig langar til. Það er mjög erfitt fyrir erlenda manneskju að fá hér vinnu, sérstaklega ef hún er ekki islenskumælandi. En maður lifir ekki á loftinu einu saman og þegar ég frétti af módelstarfi sló ég (11. Þetta var geysilega erfið ákvörðun, þvi starfið samræmist ekki beintminu spænska uppeldi. Fyrst I stað var ég reglulega feimin og gat meö engumótihorfsti augu viðþásem voru að teikna mig. En ég verð að segja það að nemendurnir hafa gert þetta eins auövélt fyrirmig ogfrekastmá vera. Annars held égaðég sékomin yfirþað versta núna, þó alltaf sé grunnt á feimninni . En loks þegar maður hefur komist yfir það versta ' tekur annað við. Nemendurnir neita að tala við mig nema á Islensku. Þetta á vist að vera einn liðurinn I að kenna mér mál- ið, sem við fyrstu sýn viröist vera óyfir- stiganleg hindrun,” segir Carmen. „Þær myndir sem ég hef séð af mér bera bara góðan þokka; alla vega get ég séð að þetta er ég sem er verið að teikna. HUn er allt annars eðlis kennslan sem ég stunda i Hafnarfirði. Ég kenni þar eitt kvöld þrjá tima isenn, og það erstarf sem mér likar reglulega vel við. En baö er ekki hægt að sjá sér farboröa með þvi.Og hvað tekur við þegar módelvertiðinni lýkur i upphafi næsta árs? Vera min hér veltur á þvi, hvort mér tekst fyrir þann tima að útvega mér vinnu. En ég virki- lega finn mig hér og min börn sem eru sjö og átta ára eru alveg yfir sig hrifin. Þau vilja eins og ég hvergi annars staðar vera.” p.stef Bandarískir körfuknatt- leiksmenn með tslenskum félagsliðum! — Slíkt hefði einhverntima þótt saga til næsta bæjar. En fyrir þremur árum riðu þó tvö félög á vaðið og fengu til sín bandaríska leikmenn. Þetta «roru KR og Ar- mann/ og þau fengu til sin blökkumennina Jimmy Rogers og Curtis Carter (eða „Trukkinn" eins og hann var kallaður hér á landi vegna stærðar sinnar og fyrirgangs). Koma þessara leik- manna hingað til lands vakti.mikla athygii á sínum tima/ og varð til þess að auka mjög aðsókn fólks á leiki í körfuboltanum. En þrátt fyrir það vöru ekki allir ónægðir, og á ársþingi Körfuknattleikssambands islands vorið eftir þetta keppnistimabil beittu full- trúar tveggja félaga sér fyrir þvi að settar voru reglur um komu þarlendra leikmanna hingað. Var samþykkt að hér mættu er- lendir leikmenn ekki leika nema hafa haft hér búsetu í 6 mánuði áður en keppnis- tímabil hæfist. Því fór svo/ að i fyrra var hér aðeins einn erlend- ur leikmaður, Jimmy Rog- ers hjá Ármanni. Hann fór þó af landi brott um jóiin og kom ekki aftur. En á ársþingi körfu- knattleiksmanna s.l. sum- ar var þetta mál tekið fyrir á nýjan leik, og varð af- greiðsla málsins þá sú að hvert félag mætti hafa einn erlendan leikmann innan sinna raða. m Og nú i haust kom heldur betur hreyfing á málin. Menn voru gerðir út af örkinni og sendir í æfinga- búðir í Bandarikjunum, þar sem þeim gafst tæki- færi til að lita á og ræða við fjölda bandarískra leik- manna sem höfðu áhuga á að leika körfubolta i BANDA- RÍSKIR Evrópu. Útkoman varð sú/ að nú leika 5 bandarískir leik- menn með félögum i 1. deild. Þeir eru Dirk Dun- bar hjá ÍS, Andrew Piazza hjá KR/ Mark Christens- sen hjá Þór, Michael Wood hiá Ármanni og Rick Hockenos hjá Val. — Þess- ir menn gera meira en að leika með meistaraf lokks- liðum félaganna, þeir þjálfa allir yngri flokka félaganna og skiia því mjög miklu starfi sem ef- laust á eftir að skila á- rangri er fram Ifða stund- ir. KORFU- BOLTA- MENN Á Helgarblaðið brá sér af stað fyrir stuttu, og ræddi við þá fimmmenninga um veru þeirra hér og annað i þvi sambandi. ÍSLANDI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.