Vísir - 04.12.1977, Síða 4

Vísir - 04.12.1977, Síða 4
Sunnudagur 4. desember 1977. Barry Lyndon sem sýningum er nú lokið á fyrir skemmstu er þess konar kvikmynd. Reyndar er upphaf þessa vetrar þegar orðið eftirminnilegt hvað óvenjulegar kvikmynda- sýningar snertir. Fyrst kom Norræna kvikmyndavikan með hinni ógleymanlegu Jörðin er syndugursöngur, þá Hitchcock- dagarnir 10 hjá Háskölabiói, Jafnokar — Bach, Schubert, Kubrick, Eisenstein. Það gæti verið fróðlegt rann- sóknarefni, að kanna hvenær og af hvaða sökuni áhorfendur á öllum aldri hættu að sækja kvik- myndasýningar og áhorfenda- hópurinn smám saman tak- markaðist við ,,ungt fólk”. Það mun sönnu næst að hér fyrr á árum hafi fólk á öllum aldri sótt kvikmyndasýningar af kappi og svipaði áhorfendum kvikmynda þá mjög til áhorfenda leik- húsanna i dag. Auðvitað er ekki nema eðli- legt, að áhugi áhorfenda/áheyr- enda skiptist milli listgreina, en kvikmyndasýningar verða ón'eitanlega fátæklegri heldur en aðrir listviðburðir, þegar þar er hætt að sjást fólk á öllum aldri. Einhverjum kann að virðast þetta væmiltituleg athugasemd- þegarþessergættað hér á landi er kvikmyndaaðsókn með endemum góð og hlutfallslega betri heldur en gengur og gerist i heiminum. Svo er þó ekki, vegna þess að þessi þróun hefur bein áhrif á kvikmyndavalið og þá kvikmyndamenningu sem hér þróast. Kynslóðaskipti áhorfenda af Sssu tagi eru margfalt óæski- jri heldur en skipting i flna og ófina, snobbaða og einlæga list- njótendur. Hafi sá sem aðhyllist andstöðu við snobb og svokallað fint fólk, aðstöðu til að njóta þess listviðburðar sem gripur hann hugfanginn,á það eitt að skipta hann máli. Enda er mest allt tal um snobb og fina list- njótendur oftast runnið undan rifjum þeirra sem standa utan við þá list sem um ræðir. Menn geta verið býsna óragir við að dæma heilan hóp áhorfenda/- áheyrenda og þá list sem þeir aðhyllast óþarfa með öllu. Þannig hefur verið skammt öfganna á milli i reyndar mjög gágnlegri umræðu um stöðu sinfóniuhljómsveitar íslands að undanförnu. Aberandi er hve fólk getur verið óvægið þegar það hefur ekki áhuga á þvi, sem það leggur dóm á. Margur skirrist til að mynda ekki við að láta i ljós þá skoðun að það eigi ekki að styrkja sinfóníuhljóm- sveit af almannafé, vegna þess að viðkomandi hefur ekki áhuga á sinfónium og þá er, að hans dómi ekkert sem mælir með þvi að aðrir eigi að njóta þeirra á þeirra eigin kostnað. Sumir áhangendur sinfóniunnar hafa á sama hátt lýst poppmúsik sem skrilmúsik og orðið berir af ekki minni þröngsýni heldur en sá sem vill sinfóniuna feiga. Sjaldnast hvarflar að mönnum að lita til baka og átta sig á þvi að sinfóniuhljóm- sveitin, svo dæmi sé tekið, er ávöxtur af áratuga löngu þrot- lausu starfi, þar sem unnið hefur verið af hugsjón og ást á málstaðnum. Það er auðvitað ekki öll sagan. En sú var reynd- ar tiðin að engin sinfóniuhljóm- sveit var til hér á landi og . þá þótti það með meiri háttar við- burðum r menningarlifinu að það skyldi vera hægt að fá tii landsins sinfóniuhl jðmsveit Hamborgar, sem lék hér árið 1926, við mikinn fögnuð áheyr- enda. Kvikmyndir á fjárlögum A þeim árum virtust jafnvel meiri likur á þvi að Islendingar myndu hasla sér völl á sviði kvikmyndagerðar heldur en sinfóniunnar, þar sem Isiend- ingar höföu þegar hafist handa um kvikmyndagerð og út- lendingar sýnt kvikmyndun islenskra bókmenntaverka á Islandi mikinn áhuga. Siðan hefur hins vegar saga is- lenskrar kvikmyndagerðar verið harmsaga á meðan tón- listinog aðrarlistirlandsmanna hafa eflst. Nú, þegar lögfesting rekstrargrundvallar sinfóníu- hljómsveitarinnar hefur komið til kasta Alþingis með þeim hætti að miklar umræður og bollaleggingar hafa hlotist af i blöðum og útvarpi, hefur stefna fjármálaráðuneytisins varðandi sjálfstæða islenska kvikmynda- gerð ekki komist i hámæli. Það kann vel að vera að ekki oeri að skoða afgreiðslu fjár- laga sem stefnu rikisins til þeirra mála sem heyra undir fjárlög. Hvað sem þvi liðursitja kvikmyndagerðarmenn nú uppi með þau tiðindi að mennta- málaráðuneytið hafi mælst til þess að veitt yrði 10 milljónum af fjárlögum næsta árs til kvik- myndagerðar á meðan verið er að biða eftir að unnt reynist að taka fyrir tillögur sem unnar hafa verið á vegum ráðu- neytisins um kvikmyndasjóð og safn til eflingar islenskri kvik- myndalist. Slikan hug ber Menntamálaráðuneytið til þess- arar greinar. Fjármálaráðuneytið hefur nú skorið þessa upphæð sem kynm að nægja til gerðar tveggja stuttmynda, eða einnar heimildarmyndar, niður i 500 þúsund. Ef viljiværifyrir hendi hjá fjárveitingarnefnd, gæti hún hækkað þessa upphæð eitthvað en það breytir ekki svo miklu gagnvart svo afgerandi niður- skurði. Ahorfendum finnst alltaf tölu- vert púður i þvi, þegar Islensk kvikmynd hefur komið á markað. Þannig hefur það verið öll árin siðan slikt tók að gerast. Hins vegar hafa ekki verið uppi neinar raddir áhorfenda sem hvatt hafa til innlendrar fram- leiðslu á kvikmyndasviðinu. Það ræður eflaust nokkru um aðgerðarleysi umboðsmanna þeirra á þingi til þessa máls. Það er ef til vill ein skýring þess að kvikmyndaáhorfendur eru takmarkaðir við ákveðinn aldurshóp, en vekur hins vegar um leið þá spurningu hvers vegna kvikmyndasýningar eru vinsælasta menningarneyslan hér á landi og meiri en gengur og gerist erlendis. Hér á landi eru kvikmyndasýningar eini listviðburðurinn, sem er með öllu úr tengslum við islenskan raunveruleika. Það er staðreynd að kvik- myndasýningar hér miðast fyrst og fremst við að fullnægja draumþörf áhorfenda. Þess konar þörf fólks hefur verið fyrir hendi frá örófi alda og hefur fengið kærkomna útrás i kvikmyndaformum allt frá fyrstu árum kvikmyndanna. Það væri fáránlegt að áfellast það. En þegar slik draumþörf ræður mestu um það hvaða kvikmyndir eru teknar til sýn- ingar hindrar hún gengi kvik- mynda, sem standast saman- burð við hvaða listviðburð sem er. Slikur viðburður átti sér stað nú fyrir skemmstu en hefur án vafa farið framhjá mörgum vegna þess hve sjaldgæfir slíkir atburðir eru. Þegar kvikmyndir eru hvað framsæknastar I hugsun og list- rænni útfærslu, skarta þær gjarnan þeim eiginleika sinum sem gerirkvikmyndaformið svo hrifandi, að það kallar á áhorf- endur.-ekki aðeins kvikmynda- unnendur heldur og unnendur allra listgreinanna og hugsandi fólk yfirleitt, þ.e. samruna allra listgreina I kvikmyndalistinni, eins og rússneski kvikmynda- höfundurinn Sergei Eisenstein orðaði þaö. Sem betur fererenn ekki loku fyrir skotið, að slikar kvikmyndir séu framleiddar og jafnvel berist hingaö til lands. Hlutskipti Barry Lyndon og Stanley Kubrick

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.