Vísir - 04.12.1977, Síða 5

Vísir - 04.12.1977, Síða 5
vism Sunnudagur 4. desember 1977. sem kvikmyndaunnendum voru jafnmikils viröi og klassi'skir sinfóniutónleikar, og svo nú siðast Barry Lyndon, sem er þeim töfrum gædd að hún höfðar ekki siður til njótenda klassiskrar tónlistar og klassiskrar myndlistar heldur en aðdáenda þess sem við getum hiklaust kallað kvik- myndalist. Það er næstum þvi gefið mál að tónlistarunnandinn á þess kost að sjá og heyra margt i Barry Lyndon sem kvikmyndaunnandinn er vis til að fara á mis við. Barry Lyndon erum leið kvikmynd, sem telja má vist, að það fólk sem löngu er hætt að fara i bió einfaldlega vegna þess að þvi finnst það ekkert hafa þangað að sækja, fer á mis við. Hún er kvikmynd, sem krefst mikils af áhorfand- anum, en gefur þeim mun meir af sér. Hún er sönnun þess að mikil kvikmyndalist kallar á alla listunnendur og hugsandi fólk úr hvaða stétt sem er og sker sig að vissu leyti úr öðrum listgreinum hvað þaö snertir. Samt verður hún einhæfni i kvikmyndavali og skiptingu áhorfenda eftir listgreinum og aldri að bráð,og er sárt til þess að vita. Barry Lyndon er ljós- lifandi dæmi um það hve hlutur áhorfenda er mikilvægur fyrir þróun lista og þá einkum og sér i lagi kvikmyndalistar, sem óhugsandi er að geti orðið til án stuðnings áhorfenda vegna þeirra svimandi fjárhæða sem þarf tilað endurskapa veröldina á filmu eins og höfundurinn sér hana og skilur. Við þekkjum dæmi þess að menn hafa starfað að listsköpun alla sina ævi án þess aö hljóta viðurkenningu samtiðar sinnar, sbr. málarann Van Gogh. En ef til vill má segja um kvikmynd- irnar, að þær hafi umfram aðrar listgreinar ekki getað orðið til nema með óbeinu sam- þykki áhorfenda. Van Gogh málaði eins og hann ætti llfið að leysa þrátt fyrir að hann seldi enga mynd.Bruckner hélt ótrauður áfram að skrifa sin- fóniutónlist þrátt fyrir að hann lifði aldrei að heyra sumar sinfónia sinna fluttar og helm- ingur starfsævinnar færi i að endursemja verkin i þvi augna- miði að þau yrðu aðgengilegri. En Stanley Kubrick, sem varið hefur stórfé til gerðar mynd- arinnar um Barry Lyndon og á að baki sér viðurkennd listaverk eins og 2001 og A Clockwork Orange, hann á þess ekki kost nú að halda áfram sköpun eigin kvikmynda og verður að láta sér nægja að annast leikstjórn kvikmyndar sem að öðru leyti kemur honum ekkert við. Ástæðan er sú að aðsóknin að Barry Lyndon reyndist ekki I samræmi við þann kostnað sem gerð myndarinnar hafði I för með sér. bað er vitað að Kubrick hefur lengi langað til þess að gera kvikmynd um Napoleon Bonaparte, en það verður þvi miður að skrifast á reikning kvikmyndaáhorfenda að sú mynd veröur ekki gerð I bráð. Handritin að sinfóníum Bruckners var hægt að gefa út að honum látnum og nú getum við keypt flutninginn á hljóm- plötum og átt heima hjá okkur. Málverk Van Goghs hanga á söfnum út um allan heim. En uppgötvað kvikmyndahandrit að höfundi látnum verður aldrei að kvikmynd. Hrörnun eða blómstrun Ekki svo að skilja að það hafi ekki verið gerðar kvikmyndir áður um Napóleon eða þá tima sem Barry Lyndon gerist á, en efnismeðferð Kubricks á for- tlðinni opnar áhorfandanum alveg nýja sýn inn i heim 18 aldar, sem að minnsta kosti tón- listarunnandinn og málverka- unnandinn finnst hann þekkja svo vel gegnum list þess tima. Hversu hrifandi er ekki að virða fyrir sér plötualbúmin sem t.d. geyma útgáfur Deutche Grammophone á pianókon- sertum Mozarts með Géza Anda. Sérhvert albúm hefur að geyma málverk af byggingum og fólki frá þessum tima. Allar þessar myndir lifna við i kvik- mynd Kubricks um Barry Lyndon og tónlistin sömuleiðis. En Barry Lyndon gerir meira. Hún bætir viö nýjum skilningi á þessu timabili og dýpkar tilfinn- ingu okkar fyrir þvi. Hún er harmleikur þar sem aðalhlut- verkin eru leikin af mannlegum fullkomleika og mannlegum ófullkomleika. 1 skjóli fegurðar- innar dafnaði ofbeldið sem dregur dám af fegurðinni i formi skammbyssueinvig. a en þeim eru gerö ýtarleg skil i myndinni svo og i hinni miklu hernaðarlist, sem sýnd er llkust blóðugum ballett. Um leið er þetta sá timi sem hin klassiska tónlist okkar nærðist á. Hér væri hægt að skrifa langt mál um efni Barry Lyndon en þess skal látið ófreistað enda sýningum myndarinnar hætt. Hins vegar skal farið nokkrum orðum um einstök atriði i uppbyggingu myndarinnar, vegna þess að þessi kvikmynd umfram aðrar kvikmyndir, gefur fyrirheit um að kvikmyndirnar sem listgrein eigi fyrir höndum vöxt og blómaskeið sem einna helst verður jafnað við það sem gerðist i tónlistinni á 18. og 19. öld en hefur tæpast siðan gætt i listum I jafn rikum mæli. Það er með listirnar eins og lifið að þær ýmist vaxa, bera rikulegan ávöxt eða hrörna. Til að hrörnunin verði ekki algjör þarf að koma til endurnýjun. ________________......................................... ( tt'iUtltílí Jtht tt ' ' MU/.AR I: KI.AVII: HKO.NZi RTl. • l'IANO CUNCI'KTOS í> iM. RliN MAjpR'j KV -i5S \ lil. R|í\ A MAjOlUKV •> • •• SOI.ÍST I. Ni> /\ANUA ,:.•} STEREO f.; —C—..—..—. fil li'IJ Fegurð 18. aldar eins og hún birtist okkur á plötualbúmunum lifnar við I Barry Lyndon, — fólk, vagnar, garðar, hallir, dýr. Eins og seg- ir i lokatexta myndarinnar: ,,Nú hvlla þau öll jafnt, fátæk og rík, ljót og fín, góð og iil.” siðan Eisenstein leið, en skoöun hans á möguleikum kvikmynd- arinnar er um margt skyld þanka Wagners um óperu- formið. Kubrick hefur hins vegar tekið af allan vafa um möguleika þessa skilnings á kvikmyndaforminu. Músik og mynd Notkun tónlistar i uppbygg- ingu Barry Lyndon getur skýrt nokkuð hvað hér um ræðir, en hún er ráðandi fyrir alla hrynj- andi myndarinnar auk þess sem hún dýpkar merkingu einstakra sem verið er aö undirbúa ein- vigi. Þessi tónlist ris hæst i dauða sonar Barry Lyndons, Bryans og aðdraganda hans. Auk þess má nefna hermanna- músik, sem fylgir Ehglend- ingum og önnur sem fylgir Prússum. Músik sem kemur upp eftir að 7 ára striðinu lýkur og tengist þjóölifi og byggingum 18. aldar, að ógleymdri fjár- hættuspilsmúsikinni. En bæði hún og prússneska hermanna- músikin er jafnframt sungin innan atriðanna. Hér með er ekki allt upptalið i sambandi við notkun Kubricks á tónlist i myndinni. Sú tónlist sem hér hefur verið upp talin giftingu Barrys og Lafði Lyndon. Siðan heyrist þessi Schubert músik, sem er sér- spiluð inn fyrir myndina, þar sem önnur tónlist er notuö af hljómplötum, ekki fyrr en i lokaatriöi myndarinnar. Barry hefur misst fótlegginn fyrir neðan hné i einvigi við uppeldis- son sinn, Bullington lávarö. Einvigi þeirra er reyndar efni i heila ritgerð. 1 þvi ris myndin hæst hvað hugsun og efni snertir. Eftir að Barry hefur náð sér eftir fótamissinn berst honum tilboð fóstursonarins þess efnis að honum verði séö fyrir árlegri peninga-upphæð framvegis, gegn þvi aö hann fari úr landi. Nú kemur Schu- bert músikin upp yfir mynd af bænum þar sem Barry hafði dvalist meðan hann var að jafna sig eftir fótarmissinn. Við sjáum Barry koma út á hækjum sinum og stika að vagni sem biður hans að flýfja hann úr landi, slyppan og snauðan. Um leið og hánn stigur upp i vagninn frystist myndin, þ.e. verður kyrr. Þvi næst sjáum við yfirlitsmynd úr höllinni sem hafði verið heimili Barrys i um 15 ár. Þar situr fyrrverandi eiginkona hans og sonur hennar af fyrra hjónabandi og eru að gera upp reikninga eignarinnar, \ þegar kemur að undirskrift ávisunar þeirrar sem hin n fyrrverandi eiginmanni og stjúpföður hefur verið heitið. Það er ekki mælt orð af munni, — nærmyndir af þeim mæðg- inum og Schubert segja það sem sagt verður og hin músikalska lausn trióþáttarins eftir Schu- bert verður jafnframt lausn lokakafla þessa mikla kvik- myndaverks og kemur i staðinn fvrir.samtal eða útlistanir sögumanns. 1 samræmi við það, að sumt verður ekki sagt með orðum forðast Kubrick það eins og heitan eldinn að svara fyrir- spurnum blaðam. um þaö hvað fyrir honum vakti. .ý"-: gfp Hl*| Ofbeldi. Spilling. Hún verður oft með þvi að tekin eru upp eldri og frumstæðari form. Um kvikmyndirnar gildir það, að þær hafa ekki enn náð fyrsta hrörnunarskeiðinu. En myndir eins og Barry Lyndon, og myndir einstaka kvikmynda- höfunda eins og Fellinis, Bunuels,og fyrri tima manna eins og Eisensteins, benda til að biómaskeið sé i nánd. Að þvi leyti skera bestu kvik- myndirnar sig úr öðrum lista- verkum samtimans, að þær skilja áhorfandann iðulega eftir með þá tilfinningu að betur hafi ekki verið gert á filmu. Hann beinlinis finnur þróun kvik- myndamálsins eiga sér stað. Að auki sækir svo kvikmyndalistin það besta úr öllum hinum list- greinunum, þannig aö stöðug endurnýjun á sér stað. Þessi sameining allra lista i einu formi kvikmyndarinnar hefur ekki ætiö átt upp á pall- borðið hjá kvikmyndahöfundum KVIKMYNDA- SP3ALL eftir Erlend Sueineson atriða og i vissu tilviki er henni treyst fyrir þvi að koma ákveðinni merkingu sem ekki verður útskýrð með orðum til skila. Það er ekki i fyrsta sinn sem Kubrick reynir þannig á tónlistina, sbr. notkun hans á upphafi á tónaljóði Richards Strauss Also Sprach Zarat- hustra i kvikmyndinni 2001 A Space Odyssey. Svipuðu hlut- verki gegnir tónlist Schuberts i Barry Lyndon. Líkt og Kubrick notar mál- verkin til stuðnings fyrir mynd- bygginguna ljær tónlistin kvik- myndinni ekki aðeins hrynjandi og markar lengd einstakra efnisþátta þannig að stundum virðist með ólikindum, þá skapar hún einnig blæ tima- bilsins, — éinfaldlega vegna þess að við vitum að hún er frá þeim tima sem myndin fjallar um; þaö er meira að segja tvivegis músfserað i myndinni Jafnframt þes'su er tónlistin notuð sem leiöistef, leitmótif. Myndin hefst á Barry Lyndon-músikinni, sem siðan kemur ekki upp fyrr en eftir giftingu Redmonds Barry. Siðan má nefna ástarmúsik, þ.e. músik sem tjáir hina hreinu, sönnu ást, dauðamúsik, sem er notuð i margvislegri mynd en kynnt fyrst undir nærmynd af tveimur byssuhlaupum, þar fellur öll að þvi timabili sem myndin f jallar um en það gerir hins vegar pianótrió Schuberts op 100, 2. þáttur ekki. 1 þessu sambandi reynir allmjög á þekkingu og músikuppeldi áhorfandans. Slik vitneskja ein sér nægir til að búa mann undir eitthvað sérstakt þegar að þessari tónlist kemur^ enda kemur i ljós að hún er ekki notuð sem leiðistef heldur sem sam- tal, samtal augna, tjáning þess sem ekki verður sagt. Þáttur Schuberts Þeim sem ekki vita að Schu- bert músikin er frá öðrum tima er nokkur hjálp að Schubert músikin er eina tónlistin sem notuð er og er leikin á pianó. Þessi músik kemur upp i atriðinu þegar Redmond Barry kemur i fyrsta sinn auga á frú Lyndon, lýsir þvi hvernig kynni þeirra verða, tjáir hugsanir þeirra, og nær fram til þess atriðis þegar Barry gengur til fundar við eiginmann frú Lyndon, Sir Charles sem er far- lama og veikur. Samtal þeirra leiðir siðan til dauða hr. Lyndons. Um leið og hann deyr er sleginn hljómur úr impromtu eftir Schubert og kunngert með skilti að það sé komið hlé. Siðari hluti myndarinnar hefst siðan á Hérgefst ekki tóm né getur talist ástæöa til að fara frekar út i efni og form Barry Lyndon, sem verður þeim sem nýtur ærið umhugsunarefni enda þess konar mynd sem ekki verðurséð i eitt skipti. En þeirri hugsun verður ekki varist þegar listaverk sem þessi eru annars vegar, — áhrifa- mikil, full af nýjungum i frá- sagnaraðferð og efni, og fellir efni og form saman i einhverja dularfulla heild — , aö gerðar séu áþekkar kröfur til áhorf- enda slikra kvikmynda i dag og til áheyrenda á tímum tón- snillinganna sem uppi voru á þeim tima sem myndin fjallar um. Og ekki nóg með það, heldur sé mynd eins og Barry Lyndon umfram allt vitnis- burður um það, að einmitt á sviði k vikmy ndageröar nútimans, séum við samtima snillingum i listsköpun á borö við tónsnillingana sem Barry Lyndon styðst við. Sérhverrar nýrrar kvikmyndar eftTr Kubrick verður beðið meö sömu óþreyju og spenningi og 18. aldar áheyrendur jiýs pianókon- serts eftir Mozart. Abyrgð ahorfenda er að sama skapi mikil og er þá jafnframt skirskotað til þeirra sem ráða kvikmyndauppeldi og- kvik- myndamennt þeirra, t.a.m. á Islandi. Hvorki listsköpun né listneysla sprettur upp af engu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.